Þjóðviljinn - 12.11.1978, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 12.11.1978, Blaðsíða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 12. nóvember 1978 VASAPENINGAR mynd um börnin félaginu fyrstu mynd Truf fauts/ 400 högg/ sem sýnd var í Hafnarfirói á sinum tíma og t þá ,,Ungur f lóttamaöur". Jean-Pierre Léaud í hlutverki Antoine Doinel. fngibjörg Haraldsdóttir skrifar um kvikmyndir t frlmínútum horfa strákarnir gegnum kiki á konu sem er aö baöa sig. Árið 1959 varð Francois Truffaut heimsfrægur fyrir kvikmynd sína „400 högg" (Les quatre cent coups) sem hlaut aðalverð- launin á kvikmyndahá- tíðinni í Cannes. Myndin var talin marka timamót í sögu kvikmynda um börn. f henni sagði frá ungum dreng, Antoine Doinel, sem elst upp í fátækt við erfiðar aðstæður, lendir á hæli fyrir vandræðadrengi. Truffaut skrifaði handrit sjálfur, og byggði það að einhverju leyti á sínum eigin endurminningum. Sögupersónan Antoine Doinel hefur slöan komiö fyrir í a.m.k. þremur öörum kvikmyndum Truffauts, og jafnan leikin af sama leikaranum, Jean-Pierre Léaud. Allar hafa þessar kvik- myndir veriö mjög persónulegar, hlýjar og manneskjulegar. Þetta eru einmitt þeir eiginleikar sem einkenna Truffaut. En þaö er talsvert stór munur á kvikmyndunum „400 högg” og „Vasapeningar”. A milli þeirra eru 17 ár. Reiöin og sársaukinn sem bjó aö baki fyrri myndinni hefur dofnaö, i staöinn er litiö til baka, horft á bernskuna frá sjónarhorni fulloröna mannsins, og viö þaö fá atburöirnir á sig mildari blæ. Fjölhæfur leikstjóri Fjölhæfni Truffauts kemur ef til vill best fram ef viö hugum aö þvi, aö meö nokkurra mánaöa millibili komu frá hans hendi tvær kvikmyndir áriö 1976. Hin fyrri var „Adéle H.” og hin siöari „Vasapeningar” (Argent de Poche). Ólikari myndir er vart hægt aö hugsa sér. „Adéle H.” var synd hér á frönsku kvik- myndavikunni i fyrra. Hún fjall- aöi um dóttur rithöfundarins Victors Hugo og vonlausa ást hennar á snoppufrföum liösfor- ingja. Sýnt var hvernig draumur- inn um ástina hrekur unga og hæfileikarika konu frá einni niöurlægingunni til annarrar, þartil hún missir vitiö. 1 „Vasapeningum” er eiginlega ekki sögö nein saga, heldur er þar brugöiö upp svipmyndum úr lifi barna I smábæ einum I Frakk- landi. 'Þessar svipmyndir eru raunar margar litlar sögur sem mynda eina heild, einsog maöur sé aö rifja upp bernskuminningar sinar. Samt lætur Truffaut at- buröina gerast i nútimanum. Aö þaö skuli vera hægt bendir ó- neitanlega til þess aö ekki hafi oröiö mikil framför i skólamálum iFrakklandisiöan „400högg” var gerö. Aö visu sjáum viö kenn- arana ekki misþyrma börnum likamlega, einsog þar kom fyrir, en kennsluaöferöirnar viröast aö miklu leyti vera þær sömu: páfa- gaukslærdómur osfrv. Að taka börn alvarlega Þaö sem gefur þessari mynd fyrst og fremst gildi finnst mér vera sú afstaöa til barna sem þarna kemur fram. Börn eru tek- in alvarlega, þaö er tekiö mark á þeim. Þau eru sýnd sem mann- eskjur, aö visu oft I skoplegu ljósi, en aldrei af litilsviröingu. Erfitt er aö benda á eitt atriöi öörum betra I myndinni. Þau þyrpast mörg fram i hugann: gluggaævintýri litla barnsins, þar sem lifsháskinn liggur i loftinu og enginn býst viö ööru en barniö deyi þegar þaö kemur niöur á jöröina eftir hátt fall, en i staöinn ris litli drengurinn upp skælbros- andi og segir: „Gregory sagöi búmm”. Eöa bióferöin óborgan- lega, þegar kjarkurinn brást ung- um manni og hann þroöi ekki aö kyssa stelpu, svo aö vinur hans varö aö sinna tveimur. Sagan af Julien, vanrækta drengnum sem enginn gefur gaum fyrren lögreglan er komin I spiliö, er ofin inn 1 myndina á snilldarlegan hátt, og á sinn þátt i aö gefa þessari skemmtilegu kvikmynd alvarlegan grunntón. Þeirri sögu lýkur meö þvi aö kennari heldur „fulloröins- fræöslu” yfir heilum bekk af strákur og og talar viö þá um þaö misrétti sem óhamingusöm börn veröa aö þola af hálfu samfélags- ins. Óhamingjusamur fulloröinn maöur getur gert eitthvaö til aö draga úr óhamingju sinni, sem barn getur ekkert gert.þaö er háö hinum fulloröna og þjóöfélagiö tekur ekkert mark á börnum vegna þess aö þau hafa ekki at- kvæöisrétt. Á erindi til fleiri Þetta er einmitt boöskapur myndarinnar. Markmiö hennar er aö vekja umhugsun um börnin I samfélaginu. Mér finnst þessi mynd eiga erindi til miklu fleiri en þess takmarkaöa hóps sem sækir mánudagsmyndir Háskóla- biós. Til dæmis efast ég ekki um aö margir krakkar og unglingar, frá 10 ára og uppúr, myndu hafa faman af henni. Þaö er ekki á hverjum degi sem þau fá tækifæri til aö sjá mynd þar sem h.u.b. all- ir leikararnir eru börn og ung- lingar. En til þess aö þau gætu notiö hennar almennilega þyrfti auövitaö aö fylgja henni Islenskur texti. I Háskólabió er hún hins- vegar sýnd meö dönskum texta. Þegar Háskólabió tók upp þá ágætu nýbreytni aö sýna „mánu- dagsmyndir” mun ætlunin hafa veriö aö sýna þar eingöngu myndir sem væru aö einhverju leyti sérstakar og ekki væri von til aö fylltu salinn oft og lengi. Svonefndar „listrænar” myndir. Einsog málin standa I bióum borgarinnar nú, er þó engu likara en upp hafi veriö tekin sú stefna aö telja allar myndir „listrænar” sem ekki eru bandarlskar. Stund- um finnst manni einsog þetta muni leiöa til þess aö draga úr aö- sókn aö þeim fáu myndum sem hingaö berast og framleiddar eru annarsstaöar en I Bretlandi eöa Bandarikjunum. Sérfræðingur á svæflnga- og gjörgæsludeild Staða sérfræðings i svæfingum á Svæfinga- og gjörgæsludeild Borgar- spitalans er laus til umsóknar. Laun samkvæmt kjarasamningum Lækna- félags Reykjavikur og Reykjavikur- borgar. Upplýsingar veitir yfirlæknir deildarinnar. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störfjskulu sendar stjórn sjúkrastofnana Reykjavikurborgar fyrir 10. desember n.k. Reykjavik, 10. nóvember 1978 Stjórn sjúkrastofnana Reykjavikurborgar I Starfsfólk * óskast Óskum að ráða fólk til margskonar starfa í nýja stórverslun í Kópavogi. Heilsdagsstörf, hálfsdagsstörf og breyti- legur vinnutimi. Upplýsingar á skrifstofu Kron Laugavegi 91 kl. 10-12 næstu daga. Ekki i sima. Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.