Þjóðviljinn - 16.11.1978, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 16.11.1978, Blaðsíða 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 16. nóvember 1978 Umsjón: Magnús H. Gíslason Frá ísafiröi Menning- arpunktar Litli leikklúbburinn Málefni aldradra Litli leikklúbburinn æfir nú af kappi Sá sem stelur fæti eftir Dario Fo undir leikstjórn Guðrúnar Alfreðsdóttur, og verður frumsýning seinni hluta nóvembermánaðar. Laugar- daginn 4. nóvember var árs- hátfð klúbbsins i Gúttó og þótti hún takast með afbrigðum vel. Hún byggðist þannig upp að hvert atriði var tvinnað utan um ástina. Það var skreytingin, skemmtiatriðin og jafnvel mat- urinn. Astarsöngvar voru sungnir yfir borðum. Skólarnir Menntaskólinn var með kvöldskemmtun tvisvar sinnum i röö um mánaðamótin sem kallaðist Þetta er indælt striö og voru fluttir kaflar úr ó þetta er indælt strið, Heimsókn á vig- völlinn eftir Arabal og Tindátarnir eftir Stein Steinarr undir leikstjórn Guölaugar Bjarnadóttur. Þá er skóla- blaöiö aö koma út á næstunni. Nemendur i Gagnfræöa- skólanum, Menntaskólanum og Samtök herstöövaandstæöinga undirbúa nú dagskrá sem flutt veröur á fullveldisdaginn, 1. desember. Foreldrafélag var loks stofn- aö viö Gagnfræöaskólann nú um daginn eftir aö lengi haföi veriö rætt um þaö. Kvöldskólinn starfar meö miklum blóma og eins hafa ver- iö námskeiö i Húsmæöraskólan- um, bæöi i ýmis konar mat- reiöslu og hannyröum þannig aö nær þvl hver einasti Isfiröingur er búinn aö vera i einhverju svona stússi. Tónleikar Miövikudaginn 8. nóvember voru tónleikar á vegum Tón- listarfélagsins og lék þar Ice- landic-Canadian Ensamble. Hljóðabunga Nú er aö koma út 3. hefti af timaritinu Hljóöabungu sem er vandat) og efnismikið rit um al- menn málefni. Upphaflega var stofnaö til þess af nemendum og kennurum Menntaskólans og komu út 2 hefti á árunum 1975 og 1976 en nú kemur hiö 3. út og hefur Hallur Páll Jónsson barnakennari haft mestan veg og vanda f þvi. Veðrið hefur veriö mjög gott á Isafiröi I haust þannig aö hægt hefur veriö aö steypa upp aö mestu leiguibúöir fyrir aldraöa en sú bygging stendur á milli nýja Menntaskólans og skrúö- garösins. Kynnt hefur veriö skýrsla sr. Jakobs Hjálmars- sonar og Friöriks Hjartar um málefni aldraöra á ísafiröi. Hún hefur verulega hrist upp i mönnum um þau mál og þar er aftur komið upp, sem ekki hefur mátt mikiö tala upphátt um, aö þaö heföi átt aö byrja fyrr á elli- % heimilinu heldur en á leigu- ibúöunum. Þörfin á þvi er jafn- brýn og fyrir 30 árum. Fljótlega fer I gang starfshópur liklega undir stjórn Rannveigar Guö- mundsdóttur félagsráögjafa, um hvernig bærinn geti best komiö til móts viö aldraða. Dagheimili og leikskóli A tsafiröi átti aö fara aö byggja heilmikiö dagheimili og leikskóla, en þaö var ákveöiö i bæjarstjórn aö fresta fram- kvæmdum til vors. Leikskóli sá sem fyrir er er rekinn meö miklum myndarbrag. Mengunartillaga Á aukafundi bæjarstjórnar fyrir skemmstu var felld tillaga frá Guömundi Ingólfssyni for- seta bæjarstjórnar um aö leyfö skyldi gufuþurrkun á rækjuskel til vors inn I bænum. Isfirðingar hafa fjölmennt á bæjarstjórnar- fundi til mótmæla, en mikil mengun er talin stafa af slikri starfsemi. Hefur veriö rifist fram og til baka um þetta mál aö undanförnu og þykir nokkr- um tlðindum sæta aö tillagan skyldi felld. Hótelið Nokkrir fundir hafa veriö haldnir vegna væntanlegrar hótelbyggingar, en grunnur hennar er kominn. Litiö hefur veriö unniö aö fjármögnun og er óljóst um framhald byggingar- innar. Nú liggur þaö fyrir aö aö- standendur hótelsins heimti aö bærinn borgi allt saman ef þeir finnaekki aöra leiö. Allir sjá nauðsyn þess aö byggja hótel en ýmsir vilja aö á undan komi t.d. dagheimili og elliheimili. M.ósk./GFr Minnismerki um sjómenn á tsafirði. Höggmyndina gerði Ragnar Kjartansson. t siðasta sunnudagsblaði Þjóð- viljans birtist greinarkorn eftir undirritaðan um Heimilisiðn- aðarsafnið á Blönduósi. Mjög er þar stiklað á stóru, enda aldrei ætlað að verða ýtarleg frásögn heldur aðeins lausleg kynning með það eitt fyrir augum, að vekja athygli á merku safni. Upplýsingar þær um safniö, sem þar koma fram, eru aö nokkru frá Safnveröi, frú Þór- hildi Isberg, en aö meiri hluta til byggöar á riti Frosta F. Jóhanns- sonar Um norölensk minjasöfn. Nú hefur mér borist grein frá Stefáni Jónssyni, arkitekt, meö ýmsum viöbótarupplýsingum um Heimilisiönaöarsafniö.og kann ég honum þakkir fyrir. Grein Stefáns Jónssonar fer hér á eftir: Um Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi 1 Þjóöviljanum sl. sunnudag er sagt frá Heimilisiönaöarsafni á Blönduósi. Þar sem min er getiö i sambandi viö skipulagningu safnsins, en frásögnin i blaöinu getur valdiö misskilningi, tel ég rétt aö eftirfarandi komi fram: Meðfylgjandi uppdrættir sýna Kvennaskólann á Blönduósi og þær byggingar i sambandi við hann sem ýmist er búið að reisa eða eru ókomnar-Teikningarnar eru gerðar af arkitektunum GuðrúnuJóns- dóttur og Knud Jeppesen. ,, Þess skal getið sem gert er...” Um heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi Safn þetta er til húsa i gömlu fjósi, hlööu, haug- og geymslu- húsi, sem byggt var á vegum Kvennaskólans á Bönduósi um eöa eftir 1920. Þarna rak skólinn bú um árabil, enda var meöferö mjólkur liöur i kennslunni. Eftir 1960 var ákveöin stækkun skólans og ýmiss konar endur- bætur. I tillögum, sem arkitektar skólans, Guörún Jónsódttir og Knútur Jeppesen,geröu og lágu fyrir 1964, var gert ráö fyrir, aö þessi hús yröu innréttuö sem kennaraibúöir, þvi aö þeim var umhugaö um, aö þessi gömlu hús fengju aö standa meö breyttu hlutverki. Ekki var á þetta fallist, enda skiptar skoöanir um gildi húsanna, og stóöu þau óhreyfö næstu árin, en húsnæöisvandamál kennara var leyst meö ný- byggingu eftir uppdráttum áöur- nefndra arkitekta. Um þessar mundir var skólinn fullskipaöur nemendum og þrengsli mikil. Ein stofa i gamla skólahúsinu haföi um skeiö veriö notuö fyrir gamla gripi, sem Hulda Á. Stefánsdóttir, þáverandi skólastjóri, haföi safnaö. 1 þeirri stofu fór einnig fram kennsla I tó- vinnu og meöferö ullar. Kom þá fram sú hugmynd, aö koma mun- unum fyrir I húsunum, sem yröu þá einskonar safn, sem jafnframt gæti komiö aö notum viö kennslu i heimilisiönaöi og þá varpaö Ijósi á, hvaö unniö var á Islenskum heimilum frá fyrstu tiö. Þetta féll vel aö hugmyndum, sem uppi voru hjá Sambandi austur-hún- vetnskra kvenna og getiö er um i greininni. Þegar hér var komiö geröu áöurnefndir arkitektar ýt- arlegar tillögur um hvernig nota mætti húsin i þessu skyni og fylgdu meö nákvæmar vinnu- teikningar um þaö, hvernig framkvæma skyldi verkiö og hafa framkvæmdir veriö aö mestu samkvæmt þvi. 011 þessi vinna arkitektanna var látin I té endur- gjaldslaust vegna áhuga þeirra á þessu málefni. Halldóra Bjarnadóttir, sá kunni Húnvetningur, tók þá ákvöröun, þegar framkvæmdir vpru vel á veg komnar, aö ánafna safninu hluta af eigum sinum. Þá var ákveöiö aö hluti húsnæöisins yröi sérstaklega notaöur undir þessa gjöf og aö setja þar upp heimilis- iönaöarsafn meö munum Halldóru. Þegar hér er komiö, kem ég fyrst viö sögu, sem um- boösmaöur Halldóru Bjarnadótt- ur. Þegar til átti aö taka reyndist ekki vera þaö mikiö eftir á heim- ili hennar af fjölbreytilegum og góöum gripum, aö hægt væri aö gera úr þvi góöa sýningarstofu, enda haföi Halldóra mörgum ár- um áöur gefiö Búnaöarfélagi tslands gótt safn muna og bún- Þessi aflapistili frá Vest- mannaeyjum, sem Magnús frá Hafnarnesi sendir, birtist nú heldur með seinni skipunum og viröist hafa farið eitthvað villur vegar. Hann er skrifaöur 3. nóv. en við látum hann samt fiakka. Nú viröist heldur betur vera aö glaöna yfir slldveiöinni hjá nótabátunum. Smásildin er nú farin aö skilja sig frá demants- sildinniog minni hætta aö menn þurfi aö sleppa úr nótunum, en þaö er nú þannig, aö ekki má fara hreistur af þessum bless- inga og Búnaöarfélagiö gefiö þvi góöa aöstööu I skrifstofuhúsnæöi sinu, til sýnis almenningi. Eftir voru aöallega persónulegir munir, einföldustu heimilismunir Halldóru I stofu hennar I Héraös- hælinu á Blönduósi. Fæddist nú sú hugmynd, aö koma þeim fyrir I safnstofu, „flytja stofu hennar I safniö”, sýna hvernig sú mikla merkis- kona haföi búiö og starfsaöstööu hennar. Þaö yröi þá nokkurs- konar ,, Minningarstofa Hall- dóru”. Þetta var svo gert. Aö koma inn I „Halldórustofu” I Safnhúsi er þvi næstum eins og aö heimsækja hana I stofu hennar i Héraöshæli. Þaö, sem nú hefur veriö rakiö, sýnir, aö safniö hefur sveigst nokkuö frá þvl, sem upphaflega var ætlaö, þ.e. aö vera hluti Kvennaskólans, og þáttur Hall- dóru breyttist nokkuö frá fyrri hugmynd. Þaö skal ekki undirstrikaö af mér, þar sem þaö má öllum ljóst vera, aö hér er um merkilegt safn aö ræöa, sem hefur vissulega sér- stööu meöal Islenskra safna. Hér hafa margir unniö gott verk, ekki sist Byggöasafnsnefnd austur- húnvetnskra kvenna, — sem ástæöa er til aö þakka, og vona ég, aö safniö veröi hiö fyrsta aö- gengilegt öllum, ekki sist þeim, sem áhuga hafa á islenskum heimilisiönaöi. Stefán Jónsson, form. Heimilisiönaöarfélags Islands. aöa fiski svo ekki sé hann dauöadæmdur. Mokveiöi var hjá nóta- bátunum i nótt. Til dæmis fékk Gunnar Jónsson 100 tonn af fyrsta flokks sild ogHeimaey 90 tonn. Fleiri bátar voru meö góöan afla, þetta frá 30 og upp i 50 tonn. Tregara var hjá rek- netabátunum og komu sumir ekki inn. Nú veröur nóg aö gera hjá konumum enda var eins og bærinn heföi fengiö annansvip þrátt fyrir útsynningshryöj- urnar. Magnús frá Hafnarnesi Með síldinni Birtir yfir bænum

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.