Þjóðviljinn - 29.11.1978, Blaðsíða 4
4 SIÐA — ÞJOÐVILJjNN Miftvikudagur 29. nóvember 1978
DJOOVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýds-
hreyfingar og þjóðfrelsis
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann
Kitstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson.
Rekstrarstjóri: tJlfar Þormóösson
Auglýsingastjóri: Gunnar Steinn Pálsson.
Afgreiöslustjóri: Filip W. Franksson
BlaAamenn: Alfheiður Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Erla Sig-
uróardóttir, Guójón Friöriksson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Ingólfur
Margeirsson. Magnús H. Glslason, Sigurdór Sigurdórsson. lþrótta-
fréttamaöur: Ingólfur Hannesson
Þingfréttamaöur: Siguröur G. Tómasson
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Leifur Rögnvaldsson.
Otlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson. Sævar Guöbjörnsson.
Handrita- og prófarkalestur, Blaöaprentsvakt: Andrea Jónsdóttir,
Elias Mar, Oskar Albertsson.
Safnvöröur: Eyjólfur Arnason.
Augiýsingar: RUnar Skarphéöinsson, Sigrlöur Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Skrifstofa: GuðrUn Guövarðardóttir, Jón Asgeir Sigurðsson.
Afgreiösla: Guðmundur Steinsson. Kristin Pétursdóttir.
Sfmavarsla: ölöf Halldórsdóttir, Sigriöur Kristjánsdóttir.
Bflstjóri: SigrUn Bárðardóttir.
HUsmóöir: Jóna Sigurðardóttir.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
Dtkeyrsla: Sölvi MagnUsson, Rafn Guömundsson.
Ritstjórn, afgreiösla og auglýsingar: SlöumUla 6.
Reykjavlk, sfmi 81333
Prentun: Blaöaprent h.f.
Vonbrigði
í
Sjálfstœðisflokki
• Málgögn Sjálfstæðisflokksins hafa þessa daga mjög
hátt um það sem þau kalla aumingjaskap Alþýðuf lokks-
ins. Flokkurinn er ávítaður f ýmsum tóntegundum fyrir
það áð haf a tekið þátt i samkomulagi stjórnarf lokkanna
um ráðstafanir gegn verðbólguvanda fyrsta desember.
Um þetta segir Morgunblaðið í leiðara á sunnudaginn að
á það hefði reynt „hvort Alþýðuf lokkurinn hefði þrek og
styrk til að kúga Alþýðubandalagið og ölaf Jóhannesson
eða hvort aumingjaskapur krata væri slíkur að þeir létu
kúga sig" Síðan hafi sá „harmleikur" gerst, að Alþýðu-
f lokkurinn hafi látið „kúga sig" eins og það er orðað og
séþetta einkar lærdómsríkt fyrir kjósendur hans frá síð-
asta sumri.
• Allur er þessi málatilbúnaður undarlegur: hvernig
ætlast Morgunblaðið til þess að einn af þrem stjórnar-
f lokkum geti knúið fram sinn vilja I málum sem ágrein-
ingur er um? Slík krafa er gerð í anda mjög sérstæðs
skilnings á lýðræði. Og vitanlega er hér annað á ferðum.
Morgunblaðið talar um harmleik af þeirri einföldu á-
stæðu, að Sjálfstæðisf lokkurinn hefur beinlínis ætlast til
þess að þingmenn Alþýðuflokks notuðu tækifærið til að
rjúfa stjórnarsamstarfið og yrði það undanfari að
stjórnarmyndun með Sjálfstæðisf lokknum, eins og Þór-
arinn Þórarinsson bendir á í Tímanum í gær. Þegar
þessar vonir bregðast verður uppi grátur og gnístran
tanna.
• Vangaveltur í þessa veru meðal Sjálfstæðismanna eru
að visu ekki óeðlilegar. Alþýðuflokkurinn er reyndar
nokkuð geðklofinn í afstöðu sinni til helstu verkefna ís-
lenskra stjórnmála. Margir foringjar hans hugsa mjög
svipað um efnahagsmál og obbinn af oddvitum Sjálf-
stæðisf lokksins. En um leið veit Alþýðuf lokkurinn, að ef
hann heldur ekki jarðsambandi við verkalýðshreyfing-
una, þá eru forsendur tilveru hans endanlega brostnar.
Það er síðarnefnd staðreynd sem mestu ræður um þá
samstöðu sem nú hefur náðst innan ríkisstjórnarinnar.
Til
velunnarra
blaðsins
• Þessa daga er verið að taka lokasprettinn í árlegu
Happdrætti Þjóðviljans,dregið verður í því fyrsta des-
ember.
• útbreiðsla Þjóðviljans hefur vaxið jafnt og þétt und-
anfarin ár og ýmislegt batnað í rekstri hans. En sú já-
kvæða þróun breytir því ekki, að blað eins og Þjóðviljinn,
blað verklýðshreyfingar, þjóðfrelsisbaráttu, málgagn
sósíaliskra viðhorfa, er dæmt til f járhagslegra örðug-
leika, það hef ur af eðlilegum ástæðum aðra stöðu en þau
blöð sem geta reitt sig á stuðning og velvild peninga-
manna í þjóðfélaginu. Því verður það ítrekað eina ferð
enn, að blaðið getur ekki starfað án þess að hundruð og
þúsundir vina og velunnarra blaðsins leggi því lið með
sínum framlögum. Við minnum ykkur öll á að gera sem
fyrst skil í því Happdrætti sem nú er í gangi — án ykkar
góða stuðnings fær þetta blað ekki lifað, þaðan af síður
dafnað.
verið hlíft?
1 þeirri miklu umræöu um
mannréttindi sem fariö hefur
um heiminn hefur fáum veriö
hlift: þótt fordómar og afsak-
anatilhneigingar einstakra
aöila komi þar viö sögu, þá
veröur samanlögö útkoma sú,
aö valdhafar i vestri, suöri og
austri hafa allir fengiö sinn
skammt af ákærum. Kina er eitt
þeirra landa sem fremur sjald-
an hefur boriö á góma, og þá
hefur jafnan veriö skirskotaö til
þess, aö þaöan væri fáar áreiö-
anlegar upplýsingar aö hafa.
Mest hafa sovésk blöö skrifaö
um fangabúöir I Kina, geöþótta-
handtökur og fleira. Oftar en
ekki hafa þau kvartaö mjög yfir
þvi, aö vestræn blöö hamist
mjög gegn Sovétrikjunum út af
mannréttindamálum, en þegi
þunnu hljóöi yfir ósköpum i
Kina. Sovéskur fréttaskýrandi
oröar þetta á eftirfarandi hátt I
nýlegu fréttabréfi frá APN:
„Hvaö Kina varöar, þá er
þessu öfugt fariö. I eina tiö
lögöu vestrænir fjölmiölar sig
mjög fram um aö lýsa hryöju-
verkum „haröstjórnarinnar” i
Kina, þar sem „hundruö miljón-
ir manna væru sviptar frum-
réttindum og frelsi.” í dag
reyna þessir sömu fjölmiölar
Imeö óverulegum undantekning-
um, aö skapa þaö áiit, aö
( grimmilegir glæpir, þar á
t meöal aö miljónir manna voru
Idrepnar eöa lokaöar inni i
gaddavirsgiröingum meöan á
„menningarbyltingunni” stóö á
, siöara hluta sjöunda áratugsins,
Itilheyri liöinni tiö.
Vestrænir fréttamenn, sem
aösetur hafa i Peking, viröast
, fylgja fyrirmælum um aö loka
Iaugunum fyrir þvi, sem er aö
gerast umhverfis þá, og þeir
sem ekki hlýöa þeim eru tafar-
, laust sendir heim. Og þeir njóta
ekki einu sinni stuönings starfs-
bræöra sinna. I þessu tilviki er
um aö ræöa samsæri þagnar-
innar.”
Þaö er nokkuö til I þvi, aö
vestræn blöö haga seglum eftir
pólitiskum vindum i mannrétt-
indamálum I rikari mæli en
menn almennt gera sér grein
fyrir. Þaö er rétt, aö meöan
Kinverjar voru taldir fjand-
menn Bandarikjanna og vinir
Rússa þá var allt fundiö þeim til
foráttu, en eftir aö veöur breytt-
ust hefur Kina haft mjög góöan
byr I háborgaralegum fjölmiöl-
um.
Dauðadœmdir
til sýnis
Hinn sovéski fréttaskýrandi
sem fyrr var nefndur er hins-
vegar ekkert aö klipa af lýsingu
sinni á brotum á mannréttind-
um I Kina. Hann segir m.a.:
„Þaö er fátt, sem hefur breyst
i landinu frá tima „menningar-
byltingarinnar”, sem fyrir Kin-
verja almennt táknaöi fjölda-
kúgun. Likt og áöur reyna þús-
undir Kinverja aö synda til
Hong Kong og taka þá áhættu aö
ljúka æfinni i hákarlsgini.
Nauösyn þess aö komast frá
Kina vegur þyngra en sú ban-
væna áhætta. Skrár meö nöfn-
um hundraöa manna, sem tekn-
ir hafa veriö af lifi, birtast enn i
klnverskum borgum. Og likt og
áöur er ekiö meö þá, sem
dæmdir hafa veriö til dauöa, um
göturnar almenningi til sýnis.
Raunverulegri tölu fórnar-
lamba þessa fjöldaofbeldis er
leynt fyrir almenningi. Leynileg
fyrirmæli, sem gefin voru út á
timum Maós eru enn I gildi.
Samkvæmt frásögn „24
heures” I Sviss fela fyrirmælin i
sér möguleika á fáhreyöum
misgeröum, og gera yfirvöldun-
um kleift aö handtaka, fangelsa,
pynda og taka fólk af lifi eftir
geöþótta sinum. Sönnun fyrir
sekt er ekki nauösynleg, grun-
semdir einar nægja.
Þjóöernislegir minnihluta-
hópar, en til þeirra teljast alls 50
miljónir manna I Kina, eru sér-
staklega hart leiknir. Þeir eru
reknir burt frá gamalgrónum
heimkynnum sinum og samlag-
aöir kinverjum meö valdboöi.
Menning þeirra er upprætt og
þeim sjálfum útrýmt. Heilu
þorpin standa mannauö eftir i
kjölfar reglulegra „hreinsunar-
aögeröa” sérstakra dauöa-
sveita.”
Tvöfelldni
allsstaðar
Svo mörg eru þau orö. Hitt er
svo öllu lakara, aö sú tvöfeldni
sem Sovétmenn eru aö saka
vestræn blöö um i þessum mál-
um einkennir málsmeöferö
þeirra sjálfra. Þegar sambúö
Sovétrikjanna og Kina var góö
heföi allt tal um fangabúöir og
aftökur hjá Maó falliö undir
landráö i Sovétrikjunum. En
fáum mun detta I hug, aö mann-
réttindavandamál hafi þá fyrst
skotiö uppkollinumi Kina þegar
upp úr vinskap slitnaöi milli
Kina og Sovétrikja Khrúsjofs.
Skýrsla
Amnesty
Hvaö sem þvi liöur: á þessa
hluti er hér minnst m.a. vegna
þess, aö alþjóöasamtökin
Amnesty International hafa nú
gefiö út fyrstu skýrslu sina um
Kina. Skýrslan er byggö á
margra ára söfnun gagna. Þar
er borin fram ýtarleg gagnrýni
á kinverskt réttarkerfi. Þar
segir m.a. aö löggjöf sú sem
geri ráö fyrir fangelsun manna
af pólitiskum orsökum sé mjög
óskýr og gefi möguleika á viö-
tækum geöþóttahandtökum.
Þar eru gagnrýnd atkvæöi kin-
versku stjórnarskrárinnar sem
gera ráö fyrir þvi aö menn séu
sviptir þegnlegum rétti á grund-
velli „stéttarlegs uppruna” eins
saman. Meöferö mála er mjög
gagnrýnd: sakborningar hafi i
mörgum tilvikum enga mögu-
leika á aö verja sig og ýmsum
þeirra sem handteknir eru fyrir
pólitiskar sakir er refsaö meö
nauöungarvinnu án dómsrann-
sóknar, segir I skýrslunni. Til-
færöur er vitnisburöur um illa
meöferö á föngum og ónógt
fæöi. Þá er þaö sérstaklega
gagnrýnt aö enn I fyrra hafi
menn veriö teknir af lifi fyrir
pólitiskar sakir i Kina.
Amnesty International lætur
þess getiö, aö kinversk yfirvöld
hafi ekki fengist til aö gera nein-
ar athugasemdir viö heimildir
samtakanna. Samt hafi Tsjiang
Húa, forseti Hæsta réttar, i sl.
mánuöi viöurkennt, aö „enn
væru margir menn fangelsaöir
meö rangindum I landinu.”
Það sem mestu
skiptir
Allir sem meö hafa fylgst
vita, aö ýmisleg slagsiöa veröur
á umræöu um mannréttindi:
menn hlifa hvergi þeim stjórn-
um sem þeir sjálfir hafa andúö
á, en draga úr syndum vina
sinna. Hjá þessu er erfitt aö
komast. En þegar allt kemur til
alls er þaö einn sannleiki sem
mestu skiptir: og þaö er sann-
leikurinn um sjálfa hina
pólitisku fanga, eöa samvisku-
fanga og hlutskipti þeirra. Þann
sannleika reyna samtök eins og ,
Amnesty International aö leiöa I
ljós á sem skilmerkilegastan
hátt og eiga skilinn stuöning
allra sæmilegra manna i þeirri
viöleitni sinni.
— áb.
StftW
I'' * *
wfkv. r
i ijK, , t
úe/"íi •Mtwsga, *»,„
%4liU|ii, i -itA- i iuiAn-inm-,. vmíjju.nu
•S«W***«w**. '******' '
% tj'íWÍ.'Y'á#X
'ÁP
■A
<«H'W i
flVMttllío
& ,1 ! > 11
Mynd úr skýrslu Amnesty: hún er af tilkynningu um pólitiskan
dauðadóm I Gáungdonghéraði.
—áb