Þjóðviljinn - 29.11.1978, Side 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 29. nóvember 1978
Umsjón: Ingólfur Hannesson
Jón Hjaltalín Magnússon
Þjálfari og
lelkmaður hjá
Malmö FF
t nýjasta hefti sænska tima-
ritsins Handboll er grein um ab
stofnuö hafi veriö handknattleiks-
deild innan eins stærsta og þekkt-
asta félags Sviþjóöar Malrnö FF.
Þaö, sem vakti forvitni undir-
ritaös er þaö, aö hinn góökunni
islenski handknattleiksmaöur
Jón Hjaltalin Magnússon hefir
veriö ráöinn þjálfari og leik-
maöur meistarafiokks félagsins.
í viötali viö Einar Malmborg,
formann hinnar nýstofnuöu deild-
ar, segir hann aö ráöist hafi verið
i aö fá þjálfara, sem einnig væri
„toppspilari” og þar hafi Jón
sýnt ágæti sitt. Þetta sé aö visu I
fyrsta sinn, sem Jón þjálfi meist-
araflokksliö. Siöan segir Einar:
„Viö erum vissir um aö Jón er
maöurinn, sem viö þörfnumst,
réttur maöur á réttum staö.”
Þá er einnig stutt viötal viö Jón,
hvar hann lýsir ánægju sinni meö
að fá tækifæri til þess aö fást viö
þjálfun hjá þessu stóra og fræga
félagi. Og Jón segir ennfremur:
„Það er öruggt aö þegar slikt
félag stofnsetur nýja deild er ekki
um neitt hálfkák aö ræöa, heldur
Jón Hjaltalln Magnússon.
er stefnt af fullum krafti aö settu
marki og haldiö áfram þar til þaö
næst.”
1 lokin má geta þess, aö Jón
Hjaltalin Magnússon var áöur
leikmaöur meö Vikingi og
islenska landsliöinu og siðar meö
Lugi i 1. deildinni sænsku. Nú
hefur hann semsagt söölað um og
er oröinn leikmaöur og þjálfari
meö „þeim bláu” i 3. deild
sænska handknattleiksins.
—IngH
„Metnaður minn
að leika 1 ensku
fvrstu deildinni”
seglr Steve
Hunt,
útherji hjá
Coventry
Síöastliðið sumar gerðist
það/ að besti leikmaður
hins f ræga liðs Cosmos var
seldur til enska liðsins
Coventry fyrir 40 þús.
pund. Þetta var útherjinn
Steve Hunt og fór hann
sjálfur fram á þessa sölu.
Hingað til hefur það frem-
ur verið þannig að leik-
menn færu til Bandarikj-
anna/ en að þeir á hátindi
frægðar sinnar flyttust til
EnglandS/ hvar mikiu
Svete Hunt, Coventry, sést hér i
baráttu viö vinstri bakvörö and-
stæðinganna.
minni f jármuni er að hafa
fyrir að leika knattspyrnu.
Hunt var áöur leikmaöur meö
enska liðinu Aston Villa og var
fastamaöur þegar þeir áunnu sér
sæti I 1. deildinni. Þegar þangaö
var komiö komst Hunt ekki i aöal-
liöiö og þvi fór hann fram á sölu.
Þá var ekki nema um tvennt aö
ræöa, annaö hvort aö fara til
Bandarikjanna eöa til liös I 2. eöa
3. deild. Hunt valdi fyrri kostinn.
Cosmos geröi tilboö I pilt og
þangaö var hann siöan seldur
fyrir 35 þús. pund. Meö þeim lék
hann 29 leiki og skoraöi 14 mörk.
A siðasta ári var Hunt kosinn
„dýrmætasti leikmaöurinn” i
bandarisku knattspyrnunni. En
hann var ekki ánægöur og fór
fram á sölu. Hunt lýsir þessu
þannig sjálfur: „Sumir héldu aö
ég heföi misst vitiö, þar sem ég
vildi ekki lengur spila meö þessu
fræga og rika félagi. En þaö hefur
alltaf veriö metnaöur minn aö
sýna getu mina i 1. deildinni
ensku og kann þaö aö stafa af
vonbrigöunum, sem fylgdu I kjöl-
far þess, aö ég komst ekki i aöal-
liö Aston Villa hérna um áriö.”
Steve Hunt segir ennfremur:
„Auövitaö eru miklu meiri pen-
ingar i bandarisku knattspyrn-
unni, en þeir eru ekki allt og ég
vissi vel hvaö ég var aö gera. Nú,
Coventry hefur veitt mér lang-
þráö tækifæri og ég er staöráöinn
i þvi, aö gera vel fyrir félagiö.
Þaö er mjög gott aö vera hérna og
félagarnir I liöinu eru stórkost-
legir. Ég er viss um aö viö eigum
eftir aö standa okkur vel i vetur
og aö viö komumst I Evrópu-
keppni, en til þess þurfum viö aö
ná einu af sex efstu sætunum i
deildinni.”
Aö lokum er ágætt aö athuga
hvaö Gordon Milne, fram-
kvæmdastjóri Coventry hefur aö
segja um Steve Hunt: „Steve er
mjög duglegur leikmaöur meö
góöa hæfileika. Hann hefur komiö
meö aukna vidd i leik liösins, meö
þvi aö spila mjög utarlega. Einn-
ig er hann mjög góöur aö gefa
knöttinn fyrir markiö. Steve er i
alla staöi mjög góöur leikmaöur
og á eflaust eftir aö bæta sig
mikiö enn.”
IngH byggöi á SHOOT.
Eigendur dísilbifreiða
Viðurkennd hefur verið ný tegund
ökumæla til ákvörðunar þungaskatts.
ökumælar þessir eru af gerðinni HICO,
Umboðsmaður HICO mælanna er Vélin
Suðurlandsbraut 20, Reykjavik. Áður
höfðu verið viðurkenndir mælar af gerð-
inni V.D.O. Umboðsmaður þeirra er
V.D.O. verkstæðið Suðurlandsbraut 16,
Réykjavik.
Fjármálaráðuneytið.
Getraunaspá In
i siöustu getraunaspá geröust
þau undur og stórmerki, aö
undirritaöur haföi niu leiki rétta
og munu elstu menn vart aö
annab eins hafi skeö hjá sport-
skrifara. Leiöa má getur aö þvi,
aö nú veröi réttu leikirnir ellefu,
þar sem þeir voru sjö fyrir hálf-
um mánuöi. Og þá er aö skella
sér i spána og sjá siöan hvernig
til tekst.
Arsenal — Liverpool X
Þó aö Liverpool sé efst i deild-
inni og ég mikill aödáandi
þeirra tippa ég á jafntefli. Tií
þess eru einkum tvær ástæöur.
Sú fyrri er aö Arsenal er meö
sterkt liö og þar aö auki á
heimavelli. Sú seinni er sú aö
Liverpool hefur alltaf átt I hin-
um mestu brösum meö Arsenal,
jafnvel þegar hvaö mestur
munur hefur veriö á getu liö-
anna.
Aston Villa — Coventry 1.
Þessi liö eru mjög áþekk aö
getu, bæöi I efri hluta deildar-
innar. Hér held ég aö heimavöll-
urinn muni ráöa úrslitum.
Heimasigur.
Bristol City — Derby 1
Þessi tvö liö eru einnig mjög
svipuö aö getu, en munurinn er
helst sá, aö Derby er á uppleið,
en Bristol frekar á niöurleiö. Þó
er ég á þvi aö Bristol sigri, eink-
um vegna þess hve beitt fram-
lina þeirra er. Þess má geta aö
væntanlega leikur nýi miövörö-
urinn frá Leicester, Steve Sims
sinn fyrsta leik meö Derby á
laugardaginn.
Everton — WBA 1
Það, sem kom einna helst á
óvart i siöustu leikviku var, aö
WBA skyldi ekki takast aö vinna
Aston Villa á heimavelli sinum.
Everton er meö geysisterkt liö
um þessar mundir og allt bendir
til þess aö þeir bæti viö tveimur
stigum I stigasafn sitt á laugar-
daginn.
Ipswich — Leeds 1
Ipswich kom verulega á óvart
siðasta laugardag með þvi aö
sigra Man. City á útivelli...
Leeds vann þá stórsigur gegn
Southampton og má þvi búast
viö hörkuviöureign. övitlaust
væri að tippa á jafntefli eöa úti-
sigur, en ég held mig viö sigur
Ipswich.
Man. Utd. — Norwich 1
Man Utd. klifrar hægt og bitandi
upp stigatöfluna þessar vikur.
Þeir hafa fengiö nýjan mann til
liös viö sig, Mike Thomas og átti
hann ágætan leik siöasta laug-
ardag. Norwich eru I lakari
hluta deildarinnar og veröa þar
væntanlega áfram. Heimasigur.
Middlesbro — Tottenham 2
Liverpool lék liö Middlesbro
sundur og saman um siöustu
helgi ogeru þeir vitanlega ekki
búnir aö jafna sig eftir þá út-
reiö. Tottenham hefur komiö
mjög sterkt út slöustu vikurnar
meö Aregntinumennina tvosem
bestu menn. Þó aö ég tippi á
Tottenham kæmi ekki á óvart þó
þessum leik lyki meö marka-
lausu jafntefli, þvi Middlesbro
er frægt fyrir góöa vörn.
Nott’m Forest — Chelsea 1
Þetta er öruggasti leikur seö-
ilsins. Getumunur á þessum liö-
um er þaö mikill, aö ekki kemur
annaö til greina en heimasigur.
Q.P.R. — Bolton 1
Hér eigast viö tvö af slökustu
liöum deildarinnar og bæöi eru
aö berjast fyrir tilverurétti sin-
um þar. Þessi leikur getur
þannig endaö á hvern veginn
sem er, en liklegt má teljast aö
Q.P.R. njóti heimavallarins.
South’ton — Birmingham 1
Birmingham er á botni deildar-
innar og viröist dæmt til þess aö
falla niöur I 2. deild. Raunar
hafa þeir átt ágæta leiki undan-
fariö, en þaö hefur ekki alltaf
gefiö af sér stig. Allan Ball og
félögum hjá Southamptwi ætti
ekki aö veröa skotaskuld úr þvi
aö sigra botnliöiö.
Wolves — Man. City 2
Man. City beiö mjög óvænt lægri
hlut fyrir Ipswich á heimavelli
siöasta laugardag, þrátt fyrir
það, aö þeir heföu undirtökin I
leiknum lengst af. Wolves tap-
aöi einnig, en þeir eru orönir
nokkuö vanir þvi, þar sem þeir
eru i næst neösta sæti deildar-
innar. Útisigur.
Burnley — Luton 1
Loks er þaö leikurinn úr 2. deild
miili Burnley og Luton. Burnley
er meö miklu sterkara liö en
Luton og ætti ekki að veitast
erfitt aö sigra i þessum leik,
jafnvél meö nokkrum mun.
Létt hjá Njarðvíkingum
gegn Þór á Akureyri
Rufu 100 stiga
múrinn og sigr-
uðu 109:85
A laugardaginn leiddu saman
hesta sina i iþróttaskemmunni á
AkureyriúrvalsdeildariiöÞórs og
UMFN. Skemmst frá aö segja
unnu gestirnir yfirburðasigur
109-85. Var þetta i fyrsta sinn á
þessu keppnistimabili, sem 100
stiga múrinn er rofinn á Akur-
eyri.
Njarövikingarnir mættu mjög
ákveönir til leiksins og náöu strax
undirtökunum, Um miðjan hálf-
leikinn voru sunnanmenn búnir
aö ná 16 stiga forystu og virtust
Þórsarar aldrei ná sér á strik.
T.a.m. fóru niu sóknir I súginn i
röð hjá þeim I fyrri hálfleik.
Algjört skipuiagsleysi rikti I leik
liösins á köflum. 1 hálfleik var
staöan 53-37 UMFN I vil og til aö
bæta gráu ofan á svart var
Þröstur Guöjónsson komin útaf
meö fimm vÚlur.
í siöari hálfleiknum hélst
munurinn áfram aö aukast, svo
og villuvandræöi Þórsara. Njarö-
vikingar gátu aftur á móti skipt
inná aö vild, án þess aö liöiö
veiktist. Aöur en yfir lauk voru
fjórir Þórsarar komnir útaf og
var þá farinn aö þynnast skipti-
mannabekkurinn og liöiö varö
þ.a.l. lakara eftir þvi sem á leiö.
Lokatölur uröu siöan 109-85 fyrir
UMFN.
I liöi Þórs var Mark Christ-
iansen bestur og einnig kom Karl
ólafsson á óvart meö ágætum
leik. I annars jöfnu liöi Njarövik-
inga var Þorsteinn Bjarnason
bestur.
Stigin fyrir Þór skoruöu: Mark
27, Eirikur 20, Karl 10, Jón 10,
Birgir 10, Agúst 6, og Sigurgeir 2.
Stig UMFN skoruöu: Þorsteinn
18, Ted Bee 17, Gunnar 16, Jónas
16, Guösteinn 10, Geir 10, Guöjón
9, Brynjar 8 og Július 7.
Vegna plássleysis i gær reynd-
ist ekki unnt aö birta frásögn af
þessum leik fyrr en i dag og eru
lesendur beönir velviröingar á
þvi.
E.B./IngH
Tíðíndamaður á Akureyri
Einar Björnsson, kennari hefur tekiö aö sér, aö vera tiöinda-
maöur Iþróttasiöunnar á Akureyri og birtast fyrstu íþrótta-
fréttirnar frá honum á siöunni I dag undir fangamarkinu E .B. Einar
mun einnig sjá um Iþróttaskrif fyrir blaöiö Noröurland I vetur.
IngH