Þjóðviljinn - 03.12.1978, Qupperneq 7
Sunnudagur 3. desember 1978 ÞJOÐVILJINN — SIÐA 7
þvl betra. Menn komu sér upp
kolgrimmum hundum af blób-
hundakyni sem kostuðu offjár og
voru liðónýtir I smalamennskum.
Gamlir bændur, sem vanir voru
góöumhundum, urðunií sjálfir að
hlaupa i smalamennskum upp og
ofan snarbrattar skriður svei-
andi og antignandi þessum fram-
andi hundum sem hlupu stein-
þegjandi á eftir ánum og rifu þær
ogbitu til óbóta þegar þeir náöu i
þær. Margur var sá aldurhniginn
bóndisem hneigniður sprunginn i
miðri skriðu oghét á andskotann
gráti nær og með blóöbragð i
munni aö hirða bæði hund og ær
og sjálfan sig lfka. Aldrei heyrði
ég þess getiö að slikur hundur
yrði mink að bana.
Sumir hinna tæknisinnaðri
bænda komu sér upp gildrum til
að veiöa I minkinn. Þessar gildr-
ur voru hræðileg morðtól með svo
sterkri fjöður að nægöi til að
klippa I sundur kUstskaft ef mað-
ur rak þaö í agnUann. Einn bóndi
missti framan af fjórum fingrum
hægri handar þegar hann var aö
egná gildruna. Aldrei heyrði ég
minnst á að minkur veiddist i
slika gildru, en fyrir kom aö
flækingskettir létu þar lif sitt.
Og svo voru það skotvopnin.
Flestir bændur áttu — og eiga
enn, — töluvert vopnasafn, — það
er nU einu sinni starf bóndans að
drepa það sem ætt er, lömb,
kálfa, folöld og annað sláturfé —
ogsvoauðvitaðrjúpuá vetrum og
álft og gæs á sumrum. Hófet nU
mikill vopnaburöur i sveitum, og
sattaðsegja varpUðurog blý hið
eina meöal sem einhverja raun
gaf. Já, menn fóru vopnaðir á
milli bæja i þá daga, einkum eftir
að fréttist um afdrif gamlingjans
á Snæfellsnesi. Það er nefnilega
aldrei að vita hvar og hvenær
stundin rennur upp, eins og stend-
ur í Hávamálum:
Övist er aö vita
hvar óvinir
sitja á fleti fyrir.
Þeir sem álpuöust óvopnaðir á
milli bæja i ljósaskiptum sáu
gjarnan glóra i rauðar og blóð-
þyrstar glyrnur morðvargsins til
hliðar við götuslóöann og margur
kom þá hartnær sprunginn i hlað.
í hugarheimi mínum, sem var
ennþá barn þegar hér er komið
sögu, — var þó minkurinn varla
til, öðru vísi þá en eitthvað í lik-
ingu við galdranornina vondu i
sögunni af Hans og Grétu. Ég átti
möo. tæpast von á þvi að hann
holdgaöist fyrir augum mér
fremur en hún. Eöli beggja þekkti
ég af frásögn og vissi aö þaö var
flátt. Um harðvituga baráttu viö
meinvættið upp á lif og dauða
dreymdi migaldrei enda var faö-
ir minn friðsamur maður og fyrir
annaö þekktari en vopnaburð. Aö
visuáttihann amk. þrjúskotvopn
en litt voru þau fallin til sigurs I
nútimastríði. Hið elsta þeirra var
reyndar gamall framhlaöningur
af sömu gerð og þeirri sem
Frakkar öxluðu austur I Rúss-
landi árið 1812. Hann var nærri
þvi tveir metrar á lengd. Upphaf-
lega var þetta kúlubyssa, en þeg-
ar hætt var að nota hana á
Rússa hafði hún veriö boruö
upp fyrir haglahleöslu og not-
uð á rjúpu enda þarf mun minni
skammt af blýi i þær en Rússann
eins og allir vita. Nú var
þessi mikla byssa ryðguð i
köku og aldrei notuð
nemabvaðvið krakkarnir æfðum
okkur I stangastökki á henni upp
á háalofti þegar rigndi og viö gát-
um ekki verið úti. Riffil, 22 kali-
ber eins og þaö heitir á fag-
mannamáli, átti faöir minn einn-
ig. Hann var aldrei notaður til
annars en að afllfa ær og stór-
gripi, sigtin voru lögnu dottin af
honum og þvl ógerningur að hitta
nokkurt kvikindi meö honum
nema hlaupið væri sett þétt að
enni fórnardýrsins.
Drottning skotfæranna á bæn-
um var haglabyssan. Faðir minn
hafði fengið hana eftir látna álfta-
skyttu handan ár. Alftirnar eru
svona einhversstaöar mitt á milli
rjúpu og Rússa að lifseiglu og
þurfa þvi högl af sérstakri stærð.
Þau högl steyptu karlarnir sjálfir
og kölluðu rennilóö. Rennilóðin
slitu byssunum fljótt, pollar
komu I hlaupið og það vlkkaöi I
framendann. Þessar byssur urðu
þvi meö timanum ákaflega kraft-
litlar. Þar á móti kom svo aö þær
settu dreift og var lltill vandi að
hitta með þeim, — kæmist skytt-
an nógu nálægt.
Pinninn I byssunni hans föður
mlns var oröinn ákaflega slitinn
og stóð stundum á sér nema ef
hlaupinu var beint upp i loftið.
Það kom reyndar aldrei aö sök
þar sem faðir minn var fuglavin-
ur og byssan því aldrei notuö,
nema hvað við krakkarnir feng-
Birt smásaga úr
bók
Böðvars
Guðmundssonar
,,Sögur úr seinni
stríðum”, sem
Mál og menning
gefur út
um að skjóta úr henni einu skoti á
gamlárskvöld, — en það er al-
kunna að þá þyrstir börn venju
fremur i hávaða.
Svo er það einn sólskinsfagran
morgun i ágústbyrjun að ég heyri
að hún móðir mín kallar úr ád-
húsinu meö bældri rödd bæöi á
minn himneska fööur og hinn
jarðneska. Þegar mikil öriög ráð-
ast er okkar himneski faöir
gjarnan vlðs fjarri, enda kom það
nú í hlut hins jaröneska að meta
ástandið og taka ákvarðanir.
Fyrir utan eldhúsgluggann á flöt-
inni suður af húsinu sat sem sagt
grámórauður ferfætlingur, tor-
kennilegur I útliti með ljósan kvið
og langa búk og geröi kúnstir i
morgundögginni.
Þið eruð reyndar áreiðanlega
búin aö gera ykkur ljóst hver
þarna var á ferðum, — hitt hafa
menn kannski ekki séð að annars
vegar sat i varpa sjálf ógæfa
landsins, — hins vegar var lltið,
friðsælt heim ili sem nú skyldi far-
ast eða komast af.
Upp á tugt og arbeiöi var yngra
heimilisfóiki haröbannað að gefa
frá sér nokkurt hljóö eða hreyfa
sig út fyrir dyr — meðan faöir
minn læddist uppá háaloftogblés
rykiö úr hlaupinu á rennilóða-
byssuna, setti I hana skot og tvö
önnur I vasann og lokaði á eftir
sér bænum Meö fingurinn upp i
mér og titrandi eins og asparlauf
stóð ég viö gluggann og horföi á
hann föður minn laumast fyrir
húshomið, setjast á hækjur sfnar
miða vel og vandlega og hleypa
af. — En þvl miður, — pinna-
fjandinn stóð á sér eins og vana-
lega þegar hlaupinu var ekki
beint upp á viö. Til þess að bana
mink meö þessari byssu hefði
hann þurft aö vera fleygur. Og nú
varð minkurinn var við hann föð-
ur minn og þeir horföust i
augu góða stund meðan faðir
minn spennti aftur hanann á
byssunni. innan víð gluggann
spennti ég greipar og baðst fyrir.1
Sú bæn heyrðist vist aldrei á æðri
stöðum, það reyndist meö öllu ó-
gerlegt að fá skot úr byssunni og
þar kom aö minknum leiddist þóf-
ið og smaug undir girðinguna
kringum heimakálgarðinn, þar
sem kartöflugrasið náði mér i
hné. Viö noröurenda kálgarðsins
var skjólveggur gegn noröanátt-
inni, hlaöinnúr torfi og grjóti. Inn
i hann smaug nú minkurinn og
kvaddi hinn sýnilega heim.
Varnú þessiorrusta töpuð? Var
nú vágesturinn sestur aö þarna i
kálgarösveggnum, albúinn þess
að eyöileggja kartöflurnar um ó-
komna framtiö? Nei, — þessi orr-
usta var ekki töpuð, ekki enn. Ég
veit ekki hvernig á þvi stóð, —
Framhald á 11. slðu
i
j 8. 1 ft M' A
>> ’V ‘é.r' * ' V
Elsku
bragðaðu nú á öllum
tegundum
Kókoskökuir
•Spesíur
►Kókostoppar
►Vanilluhringir
mmwmmmwh.
1 4SF m ~ m
fjég. 3^ Z
vrfL w
KEXVERKSMIÐJAN FRÓN 0* wfcz mF' w>