Þjóðviljinn - 09.12.1978, Side 16

Þjóðviljinn - 09.12.1978, Side 16
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 9. desember 1978 INGIBJÖRG BERGÞÓRS- DÓTTIR: Hús skáldsins á Kirkjubúli. Mynd: —jrú Guömundur Böövarsson á yngri árum. Mmnmgarsjóðurinn um skáldið á Kirkiubóli Strax viö útför Guömundar Böövarssonar skálds á Kirkju- bóli kom fram sú hugmynd, aö minning hans yröi heiöruö meö þvi aö varöveita hús hans I sem likustu formi og þaö var, er hann skildi viö þaö. Þaö var Arni Þorsteinsson i Fljótstungu, sem átti uppástunguna. Hann færöi þetta i tal viö Sigurö, son skáldsins, og tök hann þvi máli vel. Hann upplýsti, aö faöir hans heföi sjálfur sett fram þá hug- mynd, aö eftir hans dag yröi húsiö vinnustaöur fyrir rithöf- unda og aöra iistamenn. Þessi hugmynd fékk mjög góöan hljómgrunn meöal Borg- firöinga. Meöal fyrstu áhugamanna um þetta voru forystumenn í þrem stærstu félagasamböndum Borg- firöinga, sem tóku máliö upp á sina arma, en þaö eru Samband borgfirskra kvenna, Búnaöar- samband Borgarfjaröar og Ungmennasamband Borgar- fjaröar. Systkinin á Kirkjubóli, Kristin, Siguröur og Böövar, vo ru m jög hlynn t málin u eins og best sýndi sig siöar. Kom öllum saraan um, aö samböndin skyldu vinna aö þvi meö Kirkjubólsstystkinum og Rithöfundasambandi Islands aö stofna minningarsjóö um skáld- iö, en sá sjóöur yröi skráöur eigandi hússins. Formlega var sjóöurinn stofnaöur 1. september 1974, daginn sem skáldiö heföi oröiö sjötugt. Stofnaöiljarnir fimm tilnefndu þá sinn fulltrúann hver i sjóösstjórn, sem skipti þannig meö sér verkum: For- maöur: Ingibjörg Bergþórs- dóttir Fljótstungu (SBK) Gjaldkeri: Friðjón Sveinbjörns- son Borgarnesi (UM.S.B.) Ritari: Magnús Kolbeinsson, Stóra-Asi (Búnaöarsamb. Borg). UmsjónarmaÖur húss- ins: Sigurður Guömundsson, Kirkjubóli. (Fulltrúi erfingja). Meöstjórnandi: Böövar Guömundsson, Hjaröarlundi 6, Akureyri (Rithöfundasamb. Islands), Ingibjörg Bergþórsdóttir i Fljóts- tungu, formaöur sjóösstjórnar- A þessum fundi varendanlega gengiö frá skipulagsskrá sjóös- ins og skipulögö söfnun til ágóöa fyrir hann meöal Borgfiröinga. Þeirri söfnun var svo vel tekiö, aö þaö fór fram úr björtustu vonum. Þátttaka einstaklinga var mjög almenn og mörg félög gáfu stórhöfðinglegar gjafir. A þó ekkert þeirra yfir digrum sjóöum aö ráöa. Þeirra á meöal voru flestöll kvenfélög innan Sambands borgfirskra kvenna, sem gáfu upp 1 50 þúsund krónur hvert. A aðalfundi S.B.K. í júni 1974 bárust allra fyrstu framlögin i þessa söfnun, tæpar 50 þúsund krónur. Þaö er ekki i fyrsta sinn, sem Sambandiö ryöur þannig brautina fyrir þörf málefni i héraöinu. Er tæplega nokkrum gert rangt til meö þvi aö færa þá- verandi formanni S.B.K., Þór- unni Eiriksdóttur, sérstakar þakkir fyrir hennar hlut I framgangi þessa máis innan Sambandsins og utan. Enn er ótalin stærsta og veglegasta gjöfin þvi að börn skáldsins, Kristin, Siguröur og Böövar, gáfu sjóönum húsiö og sýndu meö þvi sinn hug og hvers þau mátu verk fööur sins og mirmingu foreldra sinna. Umsjón: Magnús H. Gíslason Magnús Kolbeinsson, Stóra-Asi, fulltrúi Búnaöarsambands Borg- arfjaröar f stjórn Minningarsjóösins. Arininn hlóö Guömundur Böövarsson og aflaöi til þess efnis úr ýmsum áttum. Mynd: —jró / gestabók á Kirkjubóli 1 októbermánuöi siöastliönum dvaldi Guömundur Ingi Kristjánsson i húsi skáldbróöur sins að Kirkjubóli. I gestabók hússins getur nú aö lita eftirfarandi ljóö. 1 skáldhúsi er ég til skammtíma sestur við skriftir og lestur. f Ijóðum er auður þess allra mestur. Áratugum saman voru þau vinir mínir, veittu mér unað, gáfu mér sýnir, auðlegð, sem enginn týnir. Hér er ég sestur I hússins ró, þar sem höfundur Ijóðanna bjó, gestur í húsi hans, horfins manns. Hans orð og anda ég sé. Hann orti líka með hníf í tré. Sá handskurður fagur er hér í sveigum og röðum, í hillum og uppistöðum og sæmir hans bókablöðum. Hér fagna ég svip þessa fágæta manns. Og framan við dyrnar er prjónavél konu hans, sem hún sé hér enn í húsi mínu — og hafi rétt skroppið frá verki sínu. * Hún vakir líka með llfi og anda í Ijóðunum, sem í hillunni standa. I Jónsmessunóttinni 19 71 er lífi hennar varanleg mirining veitt og ástinni yfirleitt. I húsi þessara hjóna er dögunum lyft með hógværð og andagift. Guömundur Ingi Kristjánsson. Þetta gjörbreytti viöhorfinu, þvi vitaskuld haföi veriö reikn- aö meö aö borga sanngjarnt verö fyrir húsiö. Utanhéraðsmenn hafa einnig gefiö sjóönum stórgjafir. Má nefna tvær gjafir frá Seölabank- anum, þá fyrri eina miljón króna og hálfa miljón siöar. Stéttarsamband bænda gaf sjóðnum kr. 600 þúsund. Sjóöur- inn nýtur nokkurs styrks frá Alþingi. Bragi Þóröarson, bóka- útgefandiá Akranesi, hefur ver- iö sérstakur velgjöröamaöur sjóösins og gefiö honum bóka- gjafir hvaö eftir annaö. Húsiö var nýlegt tímburhús. 1975 voru geröar á þvi gagnger- ar endurbætur. Aöur haföi þaö verið hitaö með miöstöövar- eldavél. Þaö kerfi var allt fjarlægt og i staö þess komu rafmagnsþilofnar, rafmagns- eldavél og hitadunkur. Húsiö var málað hátt og lágt, utan og innan, skipt um útihurð, teppa- lagt og dúklagt eftir þvi sem meö þurfti. Guömundur átti talsvert safn gamalla muna, sem hann haföi haldiö til haga. Settir voru upp skápar meö glerhuröum fyrir þetta safn. Aö síðustu var lóöin girt og framkvæmd róttæk lagfæring á henni I fyrravor. Aöalsteinn Simonarson sá um þaö verk. Nýting hússins er nokkuö góö og vaxandi og umgengni dvalargesta góö. Þeir borga væga húsaleigu þann tima, sem þeir standa viö. Núna er hún kr. 10.000 á viku. Viö andlát Þorsteins Valdemarssonar skálds (d. 7. ág. 77) gaf Rithöfundasamband Islands sjóönum minningargjöf um hann, sem variö var til prentunar á minningarspjöld- um. Þaueru til sölu á eftirtöld- um stööum: Hjá Ríthöfundasamb. Islands, Skólavörðustig 12, Rvk., á simstööinni i Siöumúla, á sim- stööinni i Borgarnesi, hjá Guðrúnu Jónsdóttur, Garöa- braut 41, Akranesi, hjá Gisla Þorsteinssyni, Faxabraut 33, Keflavik, hjá Þórunni Eiriks- dóttur, Kaöalsstööum, hjá Sigriöi Þorsteinsdóttur, Giljahliö.og hjá sjóösstjórn. Þrír rithöfundar hafa dvaliö þarna sem boðsgestir sjóös- stjórnar: Jón Helgason frá Rauösgili, Jakobina Siguröar- dóttir Garöi I Mývatnssveit og nú alveg nýlega dvaldi þar Guömundur Ingi Kristjánsson frá Kirkjubóli I önundarfiröi. 1 tilefni stórgjafar Stéttar- sambands bænda voru þvl boðin afnot af húsinu októbermánuö siöastliöinn.en Guömundur Ingi nýtti boöiö fyrir þess hönd. Sjóösstjórn vill nota tækifæriö tíl aö þakka hinum'fjölmörgu velunnurum sinum, einstakiing- um, félögum og stofnunum. Fyrir þeirra tilverknaö er afkoma sjóösins oröin betri en nokkurn óraöi fyrir aö veröa myndi, og sýnir þaö ástsæld skáldsins meöal þjóöarinnar. Formaöur stjórnar^ Ingibjörg Bergþórsdóttir.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.