Þjóðviljinn - 03.01.1979, Side 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 3. janúar 1979
Starfsmaöur óskast að skóladagheimilinu Brekkukoti sem fyrst. Starfið felst m.a. i umsjón með smiðum og föndri. Umsóknarfrestur er til 10. janúar. Upplýsingar eru gefnar á Fé- lagsmálastofnun Akureyrar milli kl. 10 og 12.
BLAÐBERAR Rukkunarheftin eru tilbúin. Vinsamlegast sækið þau á afgreiðslu Þjóðviljans, sem fyrst. Þjóðviljinn Siðumúla 6 S. 81333
Lausar stööur lækna Lausar eru til umsóknar stöður lækna við heilsugæslustöðvar á eftirtöldum stöð- um: Bolungarvik, laus frá 15. janúar 1979, Flateyri, laus nú þegar, Ólafsfirði, laus frá 1. mars 1979, Raufarhöfn, laus nú þegar, Djúpavogi, laus nú þegar, Hveragerði, laus frá 1. febrúar 1979. Umsóknir sendist ráðuneytinu ásamt upplýsingum um menntun og störf. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið 29. desember 1978.
Auglýsing um rannsóknastyrki EMBO i sameinda- liffræði. Sameindaliffræöistofnun Evrópu (European Moiecular Biology Organization, EMBO) hefur i hyggju aö styrkja visindamenn sem starfa i Evrópu og tsrael. Styrkirnir eru veittir bæöi til skamms tima (1 til 12 vikna) og lengri dval- ar, og er þeim ætlaö aö efla rannsóknarsamvinnu og verk- lega framhaldsmenntun I sameindallffræöi. Skammtimastyrkjum er ætlaö aö kosta dvöl manna á erlendum rannsóknastofum viö tilraunasamvinnu, eink- um þegar þörf veröur fyrir slikt samstarf meö litlum fyrirvara. Langdvalarstyrkir eru veittir til allt aö eins árs I senn, en umsóknir um endurnýjun styrks til eins árs I viðbót koma einnig til álita. Umsækjendur um lang- dvalarstyrki veröa aö hafa lokið doktorsprófi. Umsóknir um styrki til dvalar utan Evrópu og tsraels koma til álita, en þær njóta minni forgangs. t báöum tilvikum eru auk dvalarstyrkja greidd fargjöld styrkþega milli landa. Umsóknareyöublöö og nánari upplýsingar fást hjá Dr. J. Tooze, Executive Secretary, European Molecular Biology Organization, 69 Heidelberg 1, Postfach 1022.40, Vestur- Þýskalandi. Umsóknir um skammtimastyrki má senda hvenær sem er, og er ákvöröun um úthiutun tekin fljótlega eftir mót- töku umsókna. Langdvalarstyrkjum er úthlutaö tvisvar á ári. Fyrri úthlutun fer fram 30. april, og veröa umsóknir aö hafa borist fyrir 20. febrúar, en slöari úthlutun fer fram 31. október, og veröa umsóknir aö hafa borist fyrir 31. ágúst. Vegna þess aö umsækjendur eru venjulega kvaddir til viötals, er nauðsynlegt aö umsóknir berist áöur en frestur rennur út. A árinu 1979 efnir EMBO einnig til námskeiða og vinnu- hópa á ýmsum sviöum sameindaliffræöi. Skrá um fyrir- huguö námskeiö og vinnuhópa er fyrir hendi I mennta- málaráöuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik. Menntamálaráðuneytið, 28. desember 1978.
- f\\0 NSKÓLI X/rL SIGURSVEINS D. KRISTINSSONAR Hellusundi 7 . Reykjavílc Innritað verður i vorönn i Hellusundi 7, miðvikudaginn 3. janúar og fimmtudaginn 4. janúar kl. 16 —19 báða dagana. — í húsi Tónskólans við Fellaskóla verður innritað sunnudaginn 7. janúar kl. 14 —16. 1 undir- búningsdeild og kórsöng er enn hægt að innrita nokkra nemendur, að öðru leyti er skólinn nær fullskipaður. " Umsóknir þarf að staðfesta með greiðslu námsgjalda áður en kennsla byrjar. Kennsla hefst mánudaginn 8. janúar sam- kvæmt stundaskrá. Skólastjóri.
a/ eriendum vetivangi
Svokölluö kynvilla hefur
verið lítið rædd hér á landi.
Fæstir vita hve algeng hún
er, enda flýja þeir margir
til útlanda vegna mann-
fæðinnar hér sem er frjó-
samasti jarðvegur kjafta-
sagna sem hugsast getur.
I öBrum löndum finnast samtök
öfugra sem berjast fyrir réttind-
um félaga sinna og veita þeim
ráögjöf sem i vanda eru staddir.
Ef oröiö hommi heyrist veröur
fólki helst hugsaö til skraut-
klædds manns meö ankannalegt
göngulag og hjáróma rödd.
Sömuleiðis veröur lesbia aö feitri
og stuttklipptri konu I karl-
mannaskyrtu. En hugmyndir
þessar eru eins þröngar og sú aö
guö sé skeggjaö gamalmenni i
fermingarkyrtli. y
Kynvillingar eru fleiri en okkur
grunar (ef fariö er eftir borgara-
legri kynjaskiptingu). Skoöanir
um þá eru mismunandi, allt frá
þeirri aö kynvilla búi i okkur öll-
um til staöhæfingarinnar að kyn-
Tom Ammiano ásamt nokkrum nemenda sinna
Hommar tífa í eitífum
ótta við atvinnumissi
villa sé dæmi um hnignun borg-
arastéttarinnar.
1 siöasta mánuöi voru borgar-
stjórinn i San Francisco og borg-
arfulltrúi (kynvilltur) myrtir af
miklum andstæöingi kynvillu.
Umræöur um þessi mál hafa ver-
iö miklar I Bandarikjunum og ný-
lega var grein I þarlendu riti um
kynvillta kennara.
Marc Rubin, formaöur sam-
taka kynvilltra kennara, minnist
þar sfmtals sem hann fékk um
miöja nótt. I simanum var kenn-
ari sem sagöist hafa veriö rekinn
úr vinnunni þann dag. Nú hefði
hann tekiö of stóran skammt af
lyfjum og ætlaöi hann aö kveöja
þetta lif. Hann neitaöi aö segja til
nafns sins og lagöi tóliö á. Rubin
vakti þaö sem eftir var nætur og
er enn hugsaö til afdrifa þessa
óhamingjusama manns.
Rúmverur
eða mannverur?
Samtök kynvilltra hafa styrkst
mikiö á undanförnum árum.
Samt sem áöur lifa margir kenn-
arar I stööugum ótta viö aö missa
vinnuna. t siöasta mánuöi var til-
laga felld i Kaliforniu þess efnis
aö skólayfirvöldum yröi gert
kleift aö reka kennara vegna kyn-
villunnar einnar saman.
Tæplega fertugur kennari sagö-
ist búa i stööugum ótta viö aö
veröa rekinn. Aöeins væri hægt aö
reka hann vegna grófs misferlis.
Kynvilla flokkaöist aö visu ekki
undir gróft misferli, en hann heföi
horft upp á kennara, sem flæmdir
voru burt vegna þessa.
Menn sem berjast gegn kyn-
villu og studdu fyrrnefnda tillögu
um rétt skólayfirvalda eru á
þeirri skoöun aö kynvillingar
grafi undan áliti barna á kjarna-
fjölskyldunni, auk þess sem þeir
fái nemendur til aö lita á kynvillu
sem prýðilegan lifsmáta. Eins og
maöur einn aö nafni Vernon
Graves komst aö oröi: „Guöi sé
lof, aö hér eru ekki margir kyn-
villtir kennarar. Ég kæri mig ekki
um aö vita af slíku. Þaö bagar
mig ekki svo framarlega sem þeir
halda sig frá skólum og börnun-
um minum.” Annar maöur tók i
sama streng og mótmælti þvi
harölega aö kynvilla flyttist úr
svefnherberginu I skólastofuna.
Rétt eins og kynvillingar væru
rúmverur en ekki mannverur.
Kynvilltir kennarar
Skoöanir þessara manna stinga
gersamlega i stúf viö þaö sem
sálfræöingar hafa komist aö. Sál-
fræöingasamtök Bandarikjanna
uröu sammála fyrir heilum
fjórum árum um að kynvilla væri
ekki afleiöing geðrænnar trufl-
unar, heldur gæti hún aöeins
valdið vandræöum ef hinn kyn-
villti þjáöist vegna sérstöðu sinn-
ar. Kynþroskasérfræðingar halda
þvi fram aö kynhneigö barna sé
ákveöin löngu áður en þau héfja
skólagöngu.
- Anita Bryant er löngum þekkt
fyrir hatrammlega baráttu gegn
kynvillu. Eitt sinn stóö hún fyrir
ráöstefnu þar sem máliö snerist
nær eingöngu um kynvillta
kennara. Þar hneigöist fólk til aö
halda þvl fram aö slfkir kennarar
væru einmitt þeir menn sem leita
á börn. Kannanir leiöa hins vegar
i ljós aö langflestir „tippakarlar”
eru heterosexuel, þ.e. hneigjast
aö ööru kyni en sinu eigin.
Einn kennari benti á að fjölda-
mörg börn heföu veriö nemendur
ógiftra gamalla kvenna og nunna.
Samt sem áöur heföu börn þessi
ekki hneigst til piprunar né
kaþólsku.
Vegna sérstöðu sinnar eru
öfugir kennarar oft ákaflega var-
færnir. Lesblskur menntaskóla-
kennari sagöist varast eins og
heitan eldinn aö koma viö nokk-
urn nemanda vegna viðurkenndr-
ar kynvillu sinnar. Barnaskóla-
kennari aö nafni Tom Ammiano
sagöist hins vegar ekki foröast
slikt. Hann tæki börnin á kné sér
eins og fulloröin manneskja sem
veitti hlýju en ekki' sem kyn-
villingur. Hann gæti ekki ýtt
börnunum frá sér aðeins vegna
fordóma einhverra manna úti i
bæ.
Ertu hommi?
Margir kynvillingar segjast
snúa sér aö barnakennslu þar
sem þeim þyki gaman aö börnum
og viti aö þeir muni ekki sjálfir
eignast börn.
Menntaskólakennari einn
sagöist auövitað taka eftir
myndarlegumpiltum, rétt eins og
starfsbróöir hans tæki eftir
föngulegri stúlku. En þessi aldur
nemenda sinna væri bara ekki
fyrir sinn smekk, sjálfur aöhyllt-
ist hann eldri herra.
Fyrrnefndur Ammiano sagöi
einn átta ára nemanda sinn hafa
spurt sig hvort hannn væri
hommi. Hann jánkaði þvi en
sagöi þaö ekki skipta máli. Hann
væri kennari þeirra og vinur engu
aö síöur. Barniö hélt þá áfram
lestri eins og ekkert heföi i
skorist. Ammiano sagðist viss um
að þetta barn myndi ekki veitast
aö kynvillingum I lifi sinu siöar
meir.
ES þýddi og endursagöi
Frá Áfengisvarnaráði:
Lögræði og lögaldur
til áfengiskaupa
Þar eö þess misskilnings viröist
gæta hjá ýmsum fjölmiölum aö
áfengiskaupaaldur og lögræöis-
aldur hljóti aö fara saman, vekur
Afengisvarnaráð athygli á eftir-
farandi:
I Noregi veröa menn lögráöa
tvitugir, enfá leyfi til áfengis-
kaupa 21 árs.
t Sviþjóö veröa menn lögráöa 18
ára, en fá leyfi til kaupa á
sterkum drykkjum 20 ára.
1 Bandarikjunum fá menn
kosningarétt 18 ára. Lögaldur til
áfengiskaupa er mismunandi
eftir rikjum. Af 51 riki eru 32 meö
hærri áfengiskaupaaldur en 18 ár,
þar af 24 meö 21 árs aldur. Lög-
aldur til áfengiskaupa er t.d. ári
hærri i Washington en Reykjavik.
Afengisvarnaráö