Þjóðviljinn - 03.01.1979, Side 14
14 SIÐA— 'ÞJÓÐVILJINN MiCvikudagur 3. janúar 1979
FUNDURA
SAUÐÁRKRÓKI
Ragnar Arnalds menntamála- og samgöngu-
ráðherra mun á næstu dögum halda fundi á þétt-
býlisstöðum á Norðurlandi vestra eins og venja
hefur verið nú um langt skeið. Fyrsti fundurinn
verður á Sauðárkróki n.k. fimmtudagskvöld 4.
janúar og hefst hann i Villa Nova kl. 21.
Næsti fundur verður væntanlega á Skagaströnd
á föstudagskvöld, á Hvammstanga og Blönduósi
á laugardag, en þessir fundir verða nánar aug-
lýstir siðar. Á fundunum mun Ragnar ræða
stjórnmálaviðhorfið og hagsmunamál kjör-
dæmisins, auk þess sem hann mun svara fyrir-
spurnum. Fundirnir eru öllum opnir.
Hafnarhreppur Höfn i Hornafirði
Auglýsing
um lóðaúthlutun
Þeim, sem hyggjast hefja byggingar-
framkvæmdir á árinu 1979 og ekki hafa
fengið úthlutað lóð,er hér með gefinn kost-
ur á að sækja um lóðir.
Fyrirhugað er að úthluta lóðum undir
einbýlishús i hverfi við Hrishól. Nánari
uppl. um lóðirnar eru veittar á skrifstofu
byggingarfulltrúa Hafnarbraut 27 Höfn
Hornafirði. Lóðarumsóknum skal skilað á
skrifstofu byggingarfulltrúa á sérstökum
eyðublöðum, sem þar fást, fyrir 15. jan.
1979.
Athygli er vakin á þvi, að eldri umsókn-
ir um lóðir þarf að endurnýja.
Byggingarfulltrúi.
Sveinafélag
pípulagningarmanna
Akveðið hefur verið að viðhafa allsherjar-
atkvæðagreiðslu um kjör stjórnar og trún-
aðarmannaráðs. Framboðslistum skal
skilað á skrifstofu félagsins að Skipholti 70
fyrir kl. 18.00 þann 5. janúar 1979.
Stjórnin.
Blaðberar
óskast
Vesturborg:
Melhagi
Tómasarhagi
Austurborg:
Grensásvegur
Breiðagerði
Vesturberg
Kópavogur:
Viðihvammur
DJÖÐVIUINN
Siðumúla 6, simi 8 13 33
Réttarstada
Framhaldaf 10. siðu
kemur hvergi nærri, nema
rannsóknaraðilar óski atbeina
hans i einstökum afmörkuðum
tilvikum, svo sem til gæsluvarð-
haldsúrskuröar, leitar, eða halds
á munum. Heimildir sakbornings
og verjanda til að fylgjast meö
rannsókninni og kynna sér sakar-
gögn meöan á rannsókn stendur
eru svo takmarkaðar, að þær eru
i raun nánast engar og undir
geðþóttaákvörðun rannsóknar-
manna komið, hvað sakborningur
og verjandi fá að vita um sakar-
gögn og gang rannsóknarinnar
þar til rannsókn er lokiö, ákæra
hefur verið gefin út og málið er
komið i hendur dómara.
Réttur við
frumrannsókn
Þar sem frumrannsókn hjá
rannsóknarlögreglu er nú ætlað
að vera grundvöllur málshöfð-
unar á hendur sakborningi án
þess að til sakadómsrannsóknar
komi, nema i undantekningartil-
vikum.og lögregluskýrslur höfuð-
sönnunargögn i sakarmálum, er
augljóst að tryggja verður
réttarhagsmuni sakbornings
strax á frumrannsóknarstigi
málsins.
Meðan rannsóknarvaldið var i
höndum Sakadóms var þaö sak-
borningi nokkur vernd, að dóm-
arar stjórnuöu rannsókn og
meðferð mála og gættu að nokkru
i raun hagsmuna sakbornings
gagnvart lögreglu og ákæruvaldi.
Þessu er nú ekki lengur til að
dreifa og málum þannig háttað,
að rannsóknarhagsmunir sitja i
fyrirrúmi en mannréttindi og
réttarhagsmunir sakbornings eru
bornir fyrir borð.
Betur tryggt
annarsstaðar
Réttarfarsákvæði frændþjóða
okkar á Norðurlöndum, ályktan-
ir Mannréttindanefndar Evrópu-
ráðsins i þessum efnum og þróun
mála i lýðfrjálsum rikjum hefur
öll gengið i þá átt, að tryggja mun
betur en hér tiökast mannréttindi
grunaðra manna og sakaðra. Er
það sérstakt áhyggjuefni, hversu
illa er búið að réttarhagsmunum
sakborninga hérlendis miðað við
grannþjóöirnar, einkum með
hliðsjón af þeirri viðtæku beitingu
gæsluvaröhalds, sem hér á sér
stað og veldur óþolandi öryggis-
leysi fyrir fólk. Stjórn L.M.F.l.
telur að við núverandi ástand
verði ekki unað og sé íslandi sem
réttarriki til vansæmdar.
Stjórnin væntir þess, að ráðu-
neytið sjái sér fært að taka mál
þessi til gagngerrar endur-
skoðunar hiö allra fyrsta og er
reiðubúin til samstarfs og
samvinnu i þvi efni.
1 stjórn Lögmannafélags
Islands: Guðjón Steingrimsson
hrl., formaöur, Hákon Arnason
hrl., varaformaður, Skarphéöinn
Þórisson hdl., gjaldkeri, Stefán
Pálsson hdl., ritari, og Jón E.
Ragnarsson hrl., meðstjórnandi.
Nýtt hefti
Framhald af 3. siðu.
Karlsson og Jóhönnu Sveins-
dóttur og ádrepa eftir Þröst
Ólafsson.
Aftast er efnisyfirlit 39.
árgangs Timaritsins.
Timaritsheftiö er 112
blaðsiöur en allur árgangur-
inn rúmar 450 blaðsiöur.
Timaritið er sent félags-
mönnum Máls og menningar
endurgjaldslaust, en árgjald
er nú 3.500 krónur. Timaritiö
er prentaö I Prentsmiöjunni
Odda hf. Ritstjóri er Þorleif-
ur Hauksson.
Ávarp forseta
Framhald af bls. 6
húsi verðbólgunnar, en hana má
kalla samnefnara fyrir það sem
nú þrengir svo mjög að þjóð vorri.
Þarer viöramman reip aö draga,
en sá er eldur heitastur sem
brennur ámanni hverju sinni, og
það er engin léttúð þótt minnst sé
á að oft hefur áöur syrt i álinn en
siðan skinið upp og vel ræst úr.
Vera má að nú reyni meira en oft
áður á þolinmæöi, þrekog góöviid
stjórnmálamanna vorra og um
leið þjóöarinnar allrar, en þá er
að neyta þeirra eiginleika af öllu
afli, og mun vel fara.
. Góðir áheyrendur. Ariö sem
var á ýmsan hátt ár mikilla tið-
inda hér álandi, gleðitiðinda en
einnig mikilla sorgartiðinda.
Hugur vor leitar i samúð til
þeirra sem um sárt eiga að binda
vegna ástvinamissis af slysförum
og öörum ótimabærum sökum.
Og ekki gistir hamingjan hvert
hús og heimili um þessi áramót
fremur en endranær. Megi þó
hækkandi sól vera tákn þess og
áminning að aftur getur birt þar
sem dimmter i ranni. Mætti einn-
ig þeim meðbræðrum vorum
leggjast likn með þraut, sem sak-
ir ellivanmáttar, sjúkleika eða
fangavistar fá ekki notiö þeirrar
náðar að mega ganga til verka á
komandi degi, þvi að sú er llfs-
fylling mannanna mest. Ég óska
yður öllum, góðir landsmenn, eft-
ir þvisem auðið má veröa, góðrar
heilsu, lifsgleði og sálarfriðar.
Gleðilegt nýjár.
í þinghlé
Framhald af 4. siðu.
fara þeir Matthias og Styrmir á
vergang þótt Haraldur verði
samkvæmt bréfi Verslunar-
ráðsins að hætta rekstri
Morgunblaðsins innan tiöar.
Matthias gæti t.d. fengið vinnu
hjá Norræna þýöingarsjóönum
og Styrmir leitað á náðir hinna
mörgu félagslegu aðila sem
leysa á farsælan hátt slikan
vanda á félagslegum grund-
velli.
Þungfært
Framhald af 1. siðu
Fjallvegir á Austurlandi voru
ófærir, en unnið var að þvi að
ryöja veginn I Fagradal, og til
stendur að opna leiðinatil suður-
fjarðanna allt til Djúpavogs i
dag. Frá Djúpavogi er svo fært
alla leiö til Reykjavikur, en þó
var orðið all-þungfært á Breiða-
merkursandi I gær, enda byrjað-
ur skafrenningur þar.
Hellisheiði og Þrengslavegir
voru fær i gær svo og aðal-vegir á
Suöurlandsundirlendi. Þó var
viða þungfært i uppsveitum
Arnessýslu.
Þessar upplýsingar fengum við
hjá vegaeftirliti Vegageröarinn-
ar, en þar var jafnframt tekið
fram aö þar sem spáð er vaxandi
vindi, mætti búast við aö vegir
sem I gær voru sæmilega færir,
lokuöust með litlum sem engum
fyrirvara ef skefur.
—S.dór
#ÞJÓÐLEIKHÚSIti
SONUR SKÓ'ARANS OG
DÓTTIR BAKARANS
i kvöld kl. 20
sunnudag kl. 20
MATTARSTÓLPAR
ÞJÓÐFÉLAGSINS
6. sýning fimmtud. kl. 20
Hvlt aðgangskort gilda
7. sýning laugardag kl. 20
A SAMA TIMA AÐ ARI
föstudag k. 20
Litla sviðið:
IIEIMS UM BÓL
fimmtudag kl. 20.30
Miðasala 13,15—20 simi 11200
LKIKFFIAG
REYKIAVlKUR
LÍFSHASKI
i kvöld kl. 20.30
laugardag kl. 20.30
SKALD-RÓSA
fimmtudag kl. 20.30
75. sýning sunnudag kl. 20.30
VALMOINN
föstudag kl. 20.30,
örfáar sýningar eftir
Miðasala i Iðnó kl. 14—20.30
simi 16620
Gestaleikur í Norræna
húsinu
THE EXQUI-
SITORS
Fimmtudagur 4. jan. kl. 21.00
Föstudagur 5. jan kl. 21.00
Laugardagur 6. jan. kl. 17.00
Sunnudagur 7. jan. kl. 17.00 og
21.00
Miðasala I Norræna húsinu.
Snjór
Framhald af 16 siðu
stjóri að farið væri að flytja snjó
af götunum ýmist á opin svæði
eöa út fyrir bæinn. Afkastamestu
tækin i þvi tilliti eru ýtuskóflurn-
ar, en borgin á einnig snjóblásara
sem notaður er um nætur. Ingi Ú.
Magnússon sagöist að lokum vera
mjög ánægður með vinnu sinna
manna og taldi hann að eins vel
væri að gatnahreinsuninni staðið
og nokkur kostur væri. Þá hefðu
fridagarnir einnig orðiö til þess
að menn hefðu bjargað sér betur
sjálfir.
—AI
Alþýöubandalagiö
NÝARSGLEÐI ABK
Nýársgleði Alþýöubandalagsins i Kópavogi verður i dag, laugardag
30. desember, I Þinghól og hefst kl. 15.00.
Fjölbreytt skemmtiatriði.
Skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Stjórn ABK
Alþýðubandalagsfélag Grindavikur
heldur fund I Festi laugardaginn 30. des. kl. 2. Gestur fundarins verður
Lúðvik Jósepsson og annar fulltrúi Alþýðubandalagsins á Suöurnesj-
um. — Stjórnin.
Almennur félagsfundur ABK
Almennur félagsfundur verður haldinn hjá Alþýöubandalaginu i Kópa-
vogi miðvikudaginn 10. janúar kl. 20.30. Fundarefni: aöild ABK að
bæjarstjórn Kópavogs, stefnumótun og fjárhagsáætlun bæjarins fyrir
árið 1979. — Stjórn ABK
Þrettándaíagnaður ABK
Þrettándafagnaður Alþýðubandalagsins i Kópavogi verður haldinn I
Þinghól n.k. laugardag. Skemmtiatriði og dans fram eftir nóttu. Félag-
ar eru hvattir til aö mæta vel og taka meösér gesti. — Stjórn ABK
^WIW—WIIIMMI Hll........................mMlllilll.BIIIWHWIIill^
Eiginkona min elskuleg
Þorbjörg Magnúsdóttir
Stórholti 25
sem andaðist þann 21. desember veröur jarösungin frá
Dómkirkjunni föstudaginn 5. janúar kl. 13.30. Fyrir hönd
barna, tengdabarna, systkina og annarra vandamanna.
Guðmundur Jónsson