Þjóðviljinn - 04.01.1979, Page 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 4. janúar 1979
EYÐSLUSAMIR
RÁÐHERRAR
Anker Jörgensen hefur nú misst
einn besta flokksbróöur sinn úr
stjórninni.
Ritt Bjerregaard kaus heldur aö
láta reka sig en borga 1,2 miljónir
úr eigin vasa.
Stuttu fyrir jól var
kennslumálaráðherra
Dana, Ritt Bjerregaardi,
rekinn úr starfi vegna óhóf
legrar eyðslu á utanlands-
reisu sinni þar sem hún sat
ráðstef nu UNESCO í
París. Anker Jörgensen
varð æfareiður og skipaði
henni að koma strax heim
þar sem hún var stödd í
Austurlöndum fjær. Hann
gaf henni kost á að borga
1,2 miljónir íslenskra
króna úr eigin vasa ellegar
hætta störfum.
Ritt Bjerregaard valdi þann
kostinn aö láta reka sig og fannst
henni ekki að ferðakostnaður sinn
væri óeölilega mikill miðað við
það sem gerist með ráöherra.
Fjölmiðlar smjöttuöu vel og
innilega á þessu máli. Bjerre-
gaard er þekkt fyrir takmarka-
laust sjálfstraust og dugnaö jafnt
af andstæðingum sínum sem
stuöningsmönnum. Þarna var
hitt á veikan blett og voru teikn-
arar blaðanna ólatir við að teikna
hina eyðslusömu prinsessu á
bauninni. Kynferði ráðherrans
var óneitanlega krydd á brand-
arann, skrýtla er ekki skrýtla
nema vitlausi ökumaðurinn sé
kvenmaður. Annars væri aðeins
um að ræöa óhapp i umferðinni.
Eftir brottrekstur kennslu-
málaráðherrans má óneitanlega
segja að þar hafi Anker Jörg-
ensen misst einn besta og dug-
legasta flokksbróður sinn úr
rlkisstjórninni. Högg það sem
hann hefur greitt spillingunni
sannar þó óneitanlega stéttvisi
hans sem sósialdemókrata eða
hvað?
1 lok septembermánaðar var
utanrikisráðherrann úr sam-
steypustjórn krata og Venstre
I (n.k. framsóknarflokkur),
Henning Christophersen, í New
York til að sitja allsherjarþing
Sameinuðu þjóðanna. Reisu-
kostnaöur hans hefur ekki haft
sömu afleiðingar og eyðsla
Bjerregaard en tæplega er hægt
að segja að þar hafi hann orðiö
stétt sinni til sóma (hann er að
vlsu Venstre-maður, en ekki
krati...)
Ef litið er á flugmiða hans
kemur i ljós að ekki hefur honum
nægt að fljúga á fyrsta farrými
hjá SAS heldur kaus hann að
fljúga með Concordeþotu sem er
120.000 krónum dýrara.
A meðan á dvöl hans stóð I Nýju
Jórvlk leigði hann bifreið í félagi
viö samráðherra sinn, Lise öster-
gaard,og kostaði sá nærri 900.000
Islenskar krónur I fimm daga.
Ef við berum þannig saman
fararkostnað Ritt og utanrikis-
ráðherrans lltur dæmið þannig út.
Ritt Bjerregaard:
Bllládag: 78.000 kr.
Nóttáhóteli: 84.000 kr.
Henning Christophersen:
Bniádag: 175.000 kr.
Nótt á hóteli: 60.000 kr.
Utanrlkisráðherrann heldur þvl
fram að eyðsla sin eigi sér mun
skynsamlegri forsendur en kostn-
aður við ferðalag Ritt Bjerre-
gaard . Hann sjálfur hafi verið á
mikilvægum fundi og haft þörf
fyrir öruggt farartæki. Hún
hafi hins vegar verið á ósköp
venjulegum fundi og séð sjálf um
skipulagningu ferðar sinnar.
Christophersen lét hafa eftir
sér við Ritzaus fréttastofuna að
eyðslusemi Bjerregaard væri til
háborinnr skammar en seinna
hélt hann þvi fram að rangt hafi
verið haft eftir honum.
Hvorki Anker forsætisráðherra
né Bjerregaard fyrrum kennslu-
málaráðherra hafa viljaö segja
nokkuð um fjármál Christopher-
sens utanrlkisráöherra. Þing-
maður Fremskridtspartiet hefur
þó farið fram á að hann borgaði
450.000 krónur úr eigin vasa en
sams konar kröfur til Ritt Bjerre-
gaard námu um 1,2 miljónum
króna.
E.S.
Blaö samvinnu-
starfsmanna
Hlynur
Slðasta tbl. Hlyns, — blaðs
Landssambands samvinnustarfs-
manna, — sem okkur hefur bor-
ist, er að verulegu leyti helgað 60
ára afmæli Samvinnuskólans.
Þar ritar Reynir Ingibjartsson,
formaður Landssambandsins
forystugrein um Samvinnu-
skólann 60 ára. Birt er viðtal
Reynis við Hauk Ingibergsson
skólastjóra. Sagt er frá afmælis-
ráðstefnu Samvinnuskólans.
Reynir Ingibjartsson ritar grein-
arnar: Samvinnustarfsmenn
flytja I Ugluhóla, Vinnan byggir
og Mistök. Birt er myndaopna af
kaupfélagsfólki á Suöurnesjum.
Sagt er frá ráðstefnu Landssamb.
Isl. samvinnustarfsmanna að Bif-
röst 23. og 24. okt. sl. Sumarhús og
kartöflurækt, Reynir ræðir við
Svavar Laxdal á Svalbarðseyri.
Kristinn Jónsson ritar Pistil úr
Búðardal og Sigurjón Hjartarson
á Djúpavogi um Heiðarsel.
Fréttir eru af námskeiðum sam-
vinnumanna á Austurlandi og
birtar myndir frá þeim. Mikill
fjöldi mynda er I ritinu.
Útgáfustjórn Hlyns skipa:
Reynir Ingibjartsson (ábm.),
Guðmundur R. Jóhannsson,
Gunnar Sigurösson, Bryndis
Ellasdóttir og Pálmi Glslason.
—mhg
Sovésk hjálp tíl
rnaiina Nkonios
LUSAKA, 2/1 (Reuter) — Táls-
maður Föðurlandsfylkingarinnar
skýrði frá þvl I dag, að Sovét-
menn heföu sent skæruliðum sem
aðsetur hafa i Sablu tlu tonn af
lyfjum og teppum. Var það
sovéski Rauöi lvossinn sem varð
við bón þeirri sem Nkomo bar til
umheimsins eftir árásir hers
Ródeslumanna á flóttamanna-
búðir fyrr á þessum vetri.
Slðustu árááir þeirra voru
gerðar tveimur dögum fyrir jól.
Þessi mynd birtist i dönsku dagblaði en hún er tekin i einni krá I Krist-
janiu sem nefnist Woodstock. Höfuðin sem sett eru inn I myndina eru af
heistu andstæðingum Kristjaniu á danska þinginu. Ef myndin er
skoðuð vel má sjá að ólögleg flkniefni eru þar höfð um hönd, en svipur
fólksins bendir ekki til annars en að allt sé i himnalagi.
Lögreglumadur hand-
tekinn fyrir
þjófnad í Kristjaníu
KAUPMANNAHÖFN — A
Þorláksmessu var tuttugu og sjö
ára gömlum lögreglumanni stefnt
fyrir rétt i Kaupmannahöfn, þar
sem hann var sakaður um
þjófnaðog ólöglega meðferð hass.
Maðurinn er i óeirðalögreglunni
sem leggur oft leið sina I Krist-
janiu, en einmitt þar mun hann
hafa fallið fyrir freistingum
Satans.
Lögreglumaðurinn á að hafa
stolið þremur gullhringjum þegar
hann framdi húsrannsókn ásamt
vinnufélögum slnum I örk friðar-
ins I Kristjanlu. Að sögn hans
sjálfs seldi hann gullsmiði einum
tvo hringi en hélt þeim þriðja
sjálfur.
Hann er einnig sakaður um að
hafa tekið segúlbandstæki
ófrjálsri hendi þar sem hann átti
leið um grisastiuna I sömu
Kristjaniu.
Sama dag gerir hann 18 grömm
af hassi upptæk en stingur þeim I
eigin vasa.
Þarna afsakaði hann sig með að
segja að hann hefði verið á leið I
jólamat til vina sinna svo hann
hefði ekki haft tima til að skrifa
skýrslu um málið sama dag. Hins
vegar hefði hann ætlað að gera
svo daginn eftir, en þá var hann
handtekinn. Lögreglumaðurinn
hefur verið settur frá störfum um
óákveðinn tima.
(Information)
Athugasemd
vegna staöla
fyrir mid-
stöðvarofna
Iðntæknistofnun lslands hefur
sent frá sér eftirfarandi fréttatil-
kynningu:
Af gefnu tilefni þykir rétt að upp-
lýsa eftirfarandi.
I júni s.l. var gefinn út staöall
„Ofnar fyrir miðstöðvar- og hita-
veitukerfi, Stálofiiar ÍST 69.1”. 1
staölinum segir m.a.:
„Gerðar eru lágmarkskröfur um
efiii, efnisþykkt , þrýstiþol og
suðugæði. Um hæfni suðumanna
vísast til hæfnisvottoröa Iön-
tæknistofnunar Islands (áöur
Rannsóknastofnunar iðnaöarins).
Staðall þessi nær einnig til próf-
ana á varmagjöf stálofna.”.
Alkunna er aö staölar eru ekki
lög, né hafa þeir lagagildi. Aftur á
móti er algengt að byggingaryfir-
völd tileinki sér ákveðna staðla,
einkum staöla er ná til öryggis og
gæða mannvirkja eða hluta
þeirraog öðlast þeir þá lagagildi.
Liklegt má telja aðsú verði raun-
in á einnig hér.
Eftírtaldir framleiðendur mið-
stöövarofna hafa sent stofnuninni
staðfestar prófanir á varmaaf-
köstum ofna þeirra er fyrirtækin
selja: Ofnasmiðjan hf. Reykja-
vík, Vélsmiðjan Oddi hf. Akur-
eyri, Runtal-ofnar hf. Reykjavlk,
Ofnasmiðja Suöurnesja hf. og
Ofnasmiðja Norðurlands hf..Tvö
fyrst nefndu fyrirtækin hafa feng-
ið staðfestar ofnatölur. Hin fyrir-
tækin hafa öll sent inn fullnægj-
andi prófunargögn fyrir flestar
þær ofnategundir er þeir fram-
leiða, en nokkuð skortir þó á hjá
sumum þeirra, en mismikið þó.
Rætt heftir verið um að Iðntækni-
stofnun Islands taki að sér eftirlit
með framleiðslugæðum þessara
fyrirtækja og er sennilegt að
samkomulag náist þar um.
Fyrirtækið Skorri hf I Reykjavlk
hefur I auglýsingum undanfarið
staðhæft að þeirra ofnar uppfylli
kröfúr Islenskra staðla. 'Fyrir-
tækinu hefur verið bent á að okk-
ur sé ókunnugt um aö svo sé og
þeir þá væntanlega þeir einu er
þaö vita.