Þjóðviljinn - 04.01.1979, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 04.01.1979, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 4. janúar 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13 Apaköttur týnist Fimmtudaginn 4. janúar kl. 21.05 verður endurflutt leikritið „Apakötturinn" eftir Johanne Luise Hei- berg. Það var áður á dag- skrá i desember 1958. Þýðinguna gerði Jón Aðils eldri/ en leikstjóri er Bald- vin Halldórsson. Með hlut- verkin fara Haraldur Björnsson, Guðbjörg Þor- bjarnardóttir, Brynjólfur Jóhannesson, Inga Þórðar- dóttir og Jón Sigur- björnsson. Flutningur leiksins tekur tæpa eina og hálfa klukkustund. i leikriti vikunnar utvarp Þetta er einn hinna svonefndu dönsku „vaudeville” leikja, léttur og glensfullur, meö mörgum söngvum. Iversen prófessor er mikill lærdómsmaöur, einkum I náttúrufræöum, og reynir aö fá Margréti bróöurdóttur sina til aö tileinka sér eitthvaö af slikri þekkingu. Hann vill ekki sjá aö hún sé aö eltast viö unga menn, og ásamt ráöskonu sinni heldur hann uppi ströngum húsaga. En svo týnist forláta apaköttur, sem pró- fessorinn á, og hann vill allt til vinna aö fá hann aftur. Johanne Luise Heiberg fæddist áriö 1812. Hún fór á ballettskóla barn aö aldri, en þó varö leik- listin aöalævistarf hennar. Ariö 1831 giftist hún rithöfundinum Johann Ludvig Heiberg, sem skrifaöi „vaudevillur” sérstak- lega fyrir hana. I meira en mannsaldur var hún aöalleikkona Konunglega leikhússins, en eftir aö hún hætti störfum þar 1864 fór hún aö skrifa endurminninga- bækur. „Apakötturinn” (1849) er önnur af tveimur „vaudevillum”, sem hún samdi. Hin er „Sunnu- dagur á Amager ”, Johanne Hei- berg lést áriö 1890. Smásaga eftir Kristínu Sigfús- dóttur Jónfna H. Jónsdóttir les I kvöld smásöguna Þeim var eg verst eft- ir Kristfnu Sigfúsdóttur, og hefst lesturinn kl. 20.10. Kristin Sigfúsdóttir var mikil- virkur rithöfundur. Eftir hana liggja skáldsögur, smásögur, leikrit, ljóö og bernskuminningar, og er mikiö af þvi aö finna i Ritum I-III, sem út komu á árunum 1949- 51. Kristin fæddist áriö 1876. Húij var lengi húsfreyja f Kálfageröi f Eyjafiröi, en sföustu ár ævi sinn- ar bjó hún á Akureyri. Hún lést áriö 1953. ih KÆRLEIKSHEIMILIÐ Alsír í brenni- depli Friörik Páll Jónsson frétta- maöur sér um þáttinn Vfösjá kl. 22.50 I kvöld. — Ég hef f hyggju aö fjalla um Alsfr, — sagöi Friörik Páll,— um pólitlk og efnahagsástand þar I landi. Tilefniö er aö sjálfsögöu nýlegt lát Houari Boumediennes, forseta, en ég ætla ekki aö tala eingöngu um hann, heldur öllu fremur um landiö og þjóöina, og einnig um þaö sem helst má búast viö aö gerist þar á næstunni, aö Boumedienne látnum. ih llouari Boumedienne, forseti Aisfr. 7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Tónleikar. 7.10 Leikfiml 7.20. Bæn 7.25 Morgunpósturinn. Um- sjónarmenn: Páll Heiöar Jónsson og Sigmar B. Hauksson. (8.00 Fréttir). 8.15 Veöurfregnir. For- ustugr. dagbi. (útdr.) Dag- skrá. 8.35 Morgunþulur kynnir ýmis lög aö eigin vali. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: KnúturR. Magnússon endar iestur sögunnar um „Næt- urferö Kalla” eftir Valdisi óskarsdóttur (3). 9.20 Leikfimi 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. 10.00 Fréttir. 10.10 Veöur- fregnir. 10.25 Morgunþulur kynnir ým- is lög: frh. 11.00 Verslun og viöskipti. Umsjónarmaöur: Ingvi Hrafn Jónsson. 11.15 Morguntónleikar: Han de Vries og Filharmoniu- sveitin f Amsterdam leika Lftinn konsert f F-dúr fyrir óbó og hljómsveit op. 110 eftir Johannes Kctlliwoda: Anton Kersjes stj. / Hljóm- sveit franska útvarpsins leikur Sinfóniu i C-dúr eftir Georges Bizet: Sir Thomas Beecham stj. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til- kynningar. 12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. Viö vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miödegissagan: ,,A noröurslóöum Kanada” eft- ir Farley Mowat. Ragnar Lárusson les þýöingu sina (6). 15.00 Miödegistónleikar: Wen- delin Gártner og Richard Laugs leika Sónötu I B-dúr fyrir klarinettu og pfanó op. 107 eftir Max Reger / John Williams og Rafael Puyana leika Duo Concertante fyrir gítar og sembal eftir Steph- en Dodgson. 15.45 Börnin okkar, leikur þeirra og hugarstarf. Finn- bogi Scheving stjórnar þættinum. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veöurfregnir). 16.20 Tónleikar 16.40 Lagiö mitt: Helga Þ. Stephensen kynnir óskalög barna. 17.20 Útvarpssaga barnanna: „Dóraog Kári” eftir Ragn- heiöi Jónsdóttur Sigrún Guðjónsdóttir les (2). 17.45 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Daglegt mál Eyvindur Eiriksson flytur þáttinn. 19.40 tslenskir einsöngvarar, 3 kórar syngja. 21.10 „Þeim var ég verst” , smásaga eftir Kristinu Sig- fúsdóttur Jóntna H. Jóns- dóttir les. 20.45 Flaututónlist a.Konsertf D-dúr fýrir fimm flautur eftir Joseph Bodin de Bois- mortimer. Sanssouci— flautuflokkurinn leikur. b. Konsert I C-dúr fyrir blokk- flautu og strengjahljóöfæri eftir Antonio Vivaldi. Hans Martin Linde og Kammer- hljómsveit Emils Seilers leika: Wolfgang Hofmann stj. 21.05 Leikrit: „Apakötturinn” eftir Johanne Luise Heiberg Aöur útvarpaö 1958. Þýö- andi: Jón J. Aöils. Leikstj: Baldvin Halldórsson. Per- sónur og leikendur: Iver- sen: Haraldur Björnsson, Margrét: Guöbjörg Þor- bjarnardóttir, Jómfrú Sör- ensen: Inga Þóröardóttir, Óli: Brynjólfur Jóhannes- son, Lindal: Jón Sigur- björnsson. 22.30 Veöurfregnir. Fréttir Dagskrá morgundagsins. 22.50 Vfösjá: Friðrik Páll Jónsson sér um þáttinn. 23.05 Afangar Umsjónar- menn: Asmundur Jónsson og Guöni Rúnar Agnarsson. 23.50 Fréttir. Dagskrárlok. PETUR OG VELMENNIÐ — II. HLUTI EFTIR KJARTAN ARNORSSON

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.