Þjóðviljinn - 11.01.1979, Side 3
Fimmtudagur n. Janúar 197» ÍÞJÓÐVILJINN — SiÐA 3
ERLENDAR FRÉTTIR
fí
Bandaríkjamenn senda
herflugvélar til Saudi-Arabíu
WASHINGTON, 10/1 (Reuter) — Bandarlkjamenn munu senda
tólf stykki af F-15 flugvélum til Saudi-Arabiu siöar f þessum
mánuðl til sýningar. Yfirvöld hafa þegar fest kaup á sextiu
eintökum en hvert þeirra kostar 2,5 miljarði dollara.
Stjórnvöld I Saudi-Arablu hafa lýst yfir miklum áhyggjum
sinum vegna ástandsins i Iran en ekki er langt á milli landanna.
Talsmaður bandarisku rikisstjórnarinnar neitaði þó aö viður-
kenna að flugvélasendingarnar væru stjórnmálalegs eölis, held-
ur ættu hinar tólf vélar aðeins aö sýna hvað þær gætu.
Hernaöarleg stríðni
VESTUR-BERLÍN, 10/1 (Reuter) — Yfirvöld i Vestur-Berlin
voru ekki sérstaklega hress yfir nýárskortinu sem þau fengu frá
frönsku hershöfðingjunum I borginni. Þar var nefnilega minnst á
komu Naflajóns til borgarinnar eftir að herir hans sigruðu
Prússa árið 1806.
Hershöfðingjarnir segjast þó alls ekki hafa viljað móðga Þjóö-
verjana, þetta hefði eingöngu veriö heiðarleg tilraun til að minna
á tengsl þjóöanna.
Berlinarmenn vilja samt ekki fyrirgefa þeim og hugsa þeir sér
að senda kort til Frakkanna á Bastilludaginn þar sem getið
veröur Vilhjálms Prússlandskonungs er hann var geröur aö
keisara Versala eftir hernaöarsigur hans í Frakklandi 1871.
Réttarhöld í Leteliermálinu
eru hafin i Washington
WASHINGTON, 10/1 (Reuter) — Réttarhöld hófust i gær vegna
morösins á Orlando Letelier sendiherra Chile i Washington og
fyrrum utanrikisráöherra i stjórn Allendes. Óttast lögreglan að
hægri menn muni reyna að frufla gang réttarhaldanna. Þrfr
Kúbanir sem flýðu byltingu Castros eru sakaðir um morðið sem
framið var árið 1976.
Dómari og saksóknari I málinu hafa báðir fengiö nafnlausar
morðhótanir og i gær fann lögreglan miða I baðherbergi dóms-
hússins sem merktur var Omesa-7, hryöjuverkaflokki and-
stæðinga Castros.
Þrátt fyrir morðhótanirnar neitaöi dómarinn I gær að flytja
réttarhöldin á öruggari stað. Verjandi Kúbananna vill halda þvi
fram að morðhótanirnar geti merkt óvild i garð skjólstæðinga
sinna, en sú skýring virðjst vera nokkuö langsótt.
Alls eru Kúbanirnir fimm sem grunaðir eru um aðild að
morðinu, en tveir þeirra ganga enn lausir.
Auk þeirra og ekki sist liggja þrir yfirmenn úr her Chile undir
grun, en meðal þeirra er Manuel Contreras hershöfðingi fyrrum
yfirmaður leyniþjónustunnar illræmdu DINA sem nú hefur
fengið nýtt nafn. Taliö er aö hann hafi ákveöiö og skipulagt
morðiö en látið Kubanina framkvæma þaö.
Yfirvöld I Chile neitá allri aðild að moröinu á Orlando Letelier,
fyrrum ráðherra úr stjórn Salvadors Allende.
Herinn kœfir verkfall í Perú
LIMA, Perú, 10/1 (Reuter) —Allt útlit er nú fyrir að hervöldum f
Perú hafi tekist að kæfa allsherjar verkfall sem hefjast átti f höf-
uðborginni Lima f gær. Verkfaliið átti að standa i þrjá daga til að
mótmæla efnahagsstefnu stjórnarinnar.
Flestar verksmiðjur i Lima voru lokaöar en öruggar heimildir
eiga að vera fyrir þvi að vinna hafi verið meö eðlilegum hætti i
námum landsins. Foringi námuverkamanna hafði lýst þvi yfir
að verkföll yröu i námunum þrátt fyrir yfirlýsingar innanrikis-
ráðherrans um hið gagnstæöa.
Litið var um óeirðir, en yfirvöld höfðu hótað þvl að miskunnar-
laust yrði skotið á hvern þann sem gerði sig liklegan til óláta.
Hermenn voru á hverju strái I Lima I gær. Skriödrekar og her-
vagnar tepptu aöalgötur borgarinnar. Strætisvagnar gengu með
eðlilegum hætti að því undanskildu aö hver vagn var vaktaöur af
öflugum herverði.
Fjöldi verkalýösforingja var handtekinn um sl. helgi, 56 aö
sögn innanrikisráðuneytisins en mörg hundruö aö sögn verka-
manna sjálfra.
Rafmagnslaust i kaldri Vin
VIN, 10/1 (Reuter) — Rafmagn fór af i Vin og næsta nágrenni I
gær I eina klukkustund. Var þá mjög kalt i veðri.
Sporvagnar komust ekki úr sporunum og slokknaði á götuljós-
um. Tvær ástralskar flugvélar urðu að hringsóla yfir Schwechat-
flugvelli þar til rafmagn komst á á ný.
Fimmburar í Frakklandi
NANCY, Frakklandi, 10/1 (Reuter) — 1 gær fæddust tvitugri
konu fimmburar, ein stúlka og fjórir drengir. Móðirin heitir
Marie-Helene Guidon og býr hún með manni sinum I Neuves-
Maison i nálægð Nancy I Norðaustur-Frakklandi.
Börnin fæddust þremur mánuðum fyrir tlmann en munu vera
hin hressustu. Tvö þeirra voru þó sett I súrefniskassa en munu
ekki vera I hættu.
Systkinin heita: Ludovic, Regis, Serge, Fabrice og Sonia.
Poppað fyrir börn hjá S.Þ.
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR, 10/1 (Reuter) — Popparar tróðu
upp I húsakynnum Allsherjarþings S.Þ. f gær til styrktar barna-
hjálp Sameinuðu þjóðanna.
Þarna hófu raust sina Elton John, Rod Stewart, Bee Gees,
Abba og Olivia Newton-John.
öryggisráðstafanir voru öflugri en venja er til, en ekki vegna
pólitlskra öfgamanna heldur ákafra aödáenda stjarnanna.
David Frost og framleiðandi „Saturday Night Fever”, Robert
Stigwoo^stóöu fyrir skemmtuninni.
VERKFALLIÐ Á BRETLANDI:
Hafnir lokaðar og
iðnaður lamaður
LONDON, 10/1 (Reuter) —
óopinbert verkfaii bíi-
stjóra er nú farið að iama
iðnað í Englandi, en það
hefur staðið frá því í
síðustu viku. Lestarstjórar
fóru í eins dags verkfall í
dag til að leggja áherslu á
kröfu sína um 10% bónus.'
Verkfall þeirra hafði þær
afleiðingar að þúsundir Breta
komust ekki til vinnu sinnar
heldur urðu aö sitja heima. Aðrir
reyndu að brjótast á vinnustað
sinn, en komu allt of seint.
Olluskortur er þó ekki lengur,
þar eð oliubifreiöastjórar hafa
fallist á að he'fja vinnu á ný. Vöru-
bilstjóraverkfallið stendur þó
enn, og er jafnvel búist við að það
verði lýst opinbert á morgun. Af
þessum sökum eru flestar hafnir
lokaðar og er farið að gæta hrá-
efnaskorts hjá mörgum verk-
smiöjum.
Margar matvöruverslanir eru
hálftómar og bændur hafa skorað
á vörubllstjóra að færa sér fóöur
handa skepnum sem lepja
dauöann úr skel.
James Callaghan forsætis-
ráðherra hraðaöi sér heim frá
Guadelope þar sem hann hefur
verið I sex daga á fundum með
Carter Bandarlkjaforseta,
Schmidt kanslara V-Þýskalands
og Giscard d’Estaing forseta
Frakklands . Sagði hann við
heimkomuna aö I fjarveru sinni
heföi oft jaðrað við að lýst heföi
verið yfir neyðarástandi á Bret-
landi vegna verkfallanna.
Margaret Thatcher ihalds-
formaður tók I likan streng þar
sem hún sagöi aö neyöarástand
væri óumflýjanlegt ef vörubll-
stjórar gerðu verkfall sitt opin-
bert. Ennfremur skammaði hún
verkalýðinn fyrir skort á
ábyrgöartilfinningu.
Enn barist
í Kambodíu
Utanrikisráðherra Tœlands
fœr bréf frá Ieng Sary
Baktiar
tRAN:
Andstaða
gegn
Baktiar
eykst
TEHERAN, 10/1 (Reuter) —
Akvörðun keisarans i iran um að
gefa auöæfi sin (innanlands) til
Pahlavisjóösins virðist ekki hafa
brætt hjörtu andstæöinga hans.
Þrátt fyrir kuida og snjó i Te-
heran fóru nokkrir hópar út á
götur til að itreka stuöning sinn
viö Khomeiny trúarleiötoga. Lög-
reglan hleypti af skotum til aö
dreifa hópnum.
Otvarpið skýrði einnig frá mót-
mælum I öörum borgum, en þau
fóru friðsamlega fram.
Mikil snjókoma olli rafmagns-
leysi I Teheran I dag.
A morgun kemur þingið saman
og mun þá reyna á hvort rlkis-
stjórn Baktiars nýtur stuönings
þess. Neðri deild þingsins mun
hlýöa á forsætisráðherra á
morgun, en sú efri á laugardag.
Talið er að hann muni mæta
mikilli andstöðu.
Ef rikisstjórnin fær aö lifa,
eykst möguleikinn á að keisarinn
bregðisér til útlanda. Hins vegar
verða þær raddir æ háværari að
herinn muni hrifsa til sin völdin ef
keisarinn fer út fyrir land-
steinana.
Ritstjóra rænt
í Buenos Aires
BUENOS AIRES, 10/1 (Reuter)
— Ritstjóri vikublaösins La Sem-
ana i Argentinu hefur nú bæst i
hóp hinna fjöldamörgu Argen-
tinumanna sem horfiö hafa á
valdatima Jorge Videla.
ARANYAPRATHET, Tælandi,
10/1 (Reuter) — Yfirmaöur úr
utanrikisráöuneyti Pol Pots sendi
þær fréttir til Tælands i dag, aö
hersveitir Pol Pots beröust nú viö
innrásarherina einkum I austur-
og suðausturhluta Tæiands þar á
meöal I útjaöri Phnom Penh. Er
þetta fyrsta fréttin sem berst frá
stuöningsmönnum Pol Pots sföan
þjóöfrelsishreyfing Kambodiu
náöi höfuöborginni á sitt vald.
Vestrænir diplómatar I Bang-
kok telja þó að bardagarnir færist
-vestar.
1 dag afhentu fimm hermenn
Pol Pot-stjórnarinnar bréf á
landamærunum frá Ieng Sary
utanrikisráöherra til Upadit
Pacharyangkun kollega slns I
Tælandi. Ekki hefur verið gefið
upp hvers efnis bréfiö var, en til-
gátur hafa verið uppi um að fariö
hafi verið á leit við yfirvöld
Tælands að þau veittu mönnum
úr Pol Pot-stjórninni pólitiskt
hæli.
Tælenskir landamæraveröir
skutu I dag á hóp hermanna Pol
Pots sem reyndu að komast yfir
landamærin rétt fyrir sunnan
borgina Aranyaprathet I Tælandi.
I landinu eru nú þegar 140.000
flóttámenn frá Indóklna og hafa
yfirvöld lýst þvl yfir að þau geti
ekki tekið viö fleirum.
Forsætisráðherra og utanrikis-
ráðherra Tælands ræddu við
Hoang Bao Son sendiherra Vlet-
nams I Bangkok I dag, en ekki
hefur verið greint frá innihaldi
þeirra viöræðna hvað þá niöur-
stööu.
Byltingarráð Þjóðfrelsis-
hreyfingar Kambodlu hefur nú
hlotið viðurkenningu Vletnams,
Laos og allra Austur-Evrópurlkja
aö Rúmenlu undanskilinni.
Segjast Rúmenar fordæma
erlenda ihlutun hvar sem er I
heiminum.
Blaðberar
óskast
Vesturborg:
Melhagi
Sólvallagata
Túngata
Austurborg:
Akurgerði
Sunnuvegur
MOÐVJUm
Siðumúla 6, simi 8 13 33