Þjóðviljinn - 13.01.1979, Blaðsíða 12
'12' SIÐA — ÞJÓDVILJINN Laugardagur 13. janúar 1979
sunnudag
Efni m.a.s
Memúrrúr á bak við „bœinn rauða”
Þremenningarnir
frá Neskaupssad
„Sjálfstæðiskraf-
an þarfnast ekki
rökstuðnings við”
Helgarviðtalið er við Pétur Reinert
sjávarútvegsráðherra Fœreyja
Ný gerð
Landnámu
Björn Þorsteinsson prófessor skrifar
um Kortasögu íslands eftir
Harald Sigurðsson.
I minningu Halldórs Stef-
ánssonar: Greinar eftir (
Halldór Laxness, Ólaf
Jóhann Sigurðsson og
Magnús Kjartansson
Auk þess í
Sunnudagsblaði:
• Úr almanakinu — Jón Ásgeir
Sigurðsson skrifar
• Fingrarím fjallar um bítlaæðið
• Ingibjörg Haraldsdóttir skrifar
um kúbanskar kvikmyndir
• Svavar Gestsson viðskiptaráð-
herra svarar Ólafl Jónssyni
vitaverði
Um helgina
Græna lyftan
1 Hlégarði
Leikfélag Morfellssveitar
frumsýndi á fimmtudaginn var
gamanleikinn Grænu lyftuna eftir
Avery Hopwood. Leikstjóri er
Kristin Anna Þórarinsdóttir.
önnur sýning var i gærkvöldi,
og þriöja sýning er i dag kl. 5 i
Hlégarði.
Sigurður
Þórir
sýnir á
Akranesi
Sigurður Þórir Sigurðsson opn-
ar i dag sýningu á grafikmyndum
I Bókhlöðunni á Akranesi.
Sigurður hefur ekki áður sýnt á
Akranesi, en þetta er 7. einkasýn-
ing hans. Aður hefur hann sýnt i
Reykjavik, Kaupmannahöfn og
Þórshöfn i Færeyjum. Hann hefur
einnig tekið þátt i mörgum sam-
sýningum hér heima og erlendis.
Myndirnar eru allar unnar i
grafik, ogi þeim er lögð áhersla á
aö draga fram andstæður þjóðfé-
lagsins.
Sýningin veröur opnuð kl. 2 i
dag. Hún verður opin frá 2-10
laugardag og sunnudag, en virka
daga frá 5-10. Henni lýkur sunnu-
daginn 21. jan. Myndirnar eru til
sölu.
Sirkus í Suðurgötunni
Guðbergur Auðunsson, listmál-
ari, opnar i dag, iaugardag.
óvenjulega sýningu I Galleri
Suðurgata 7. Sýningin er óvenju-
leg að þvf leyti, að Guðbergur
sýnir þarna myndverk, sem gerð
eru með ljósmyndum af venjuieg-
um og dvenjulegum hiutum ár
daglega lifinu, sem mynda
skemmtilegar og listrænar heild-
ir, án þess að mannshöndin hafi
komið þar nærri.
Guðbergur nefnir sýninguna
Sirkus. En meðþví á hann við hið
fjölbreytilega umhverfi, sem
hann byggir myndir sinar á. Um-
hverfi hversdagsleikans, sem má
lita á sem einhverskonar Sirkus
— fjölleikahús, ef vel er að gáð.
Þetta er fjórða einkasýning
Guðbergs, en hann hefur áður
sýnt m.a. að Kjarvalsstöðum. A
sýningunni sýnir Guðbergur 30
myndir, sem allar eru til sölu
fyrir „viöráðanlegt verð” eins
og listamaðurinn komst að orði i
samtali við blaðamenn.
1 sýningarskrá ritar ölafur
Haukur Simonarson formálsorð
m.a. um þann eiginleika Guð-
bergs að geta séö skemmtilega
hluti útúr hversdaglegum um-
AMlHIMjM
m
hverfishlutum — sér og öðrum til
ánægju.
Sirkusinn verður opinn fyrir al-
menning, daglega kl. 2-10 um
helgar og 4-10 hversdagslega.
Þetta er fyrsta sýningin i Galleri
Suöurgata 7 á þessu ári.
Breyttur
sýningar-
tími hjá
Fjala-
kettinum
Um þessa helgi sýnir
Fjalakötturinn, kvikmynda-
klúbbur framhaldsskólanna,
hina frægu grisku mynd
FERÐALEIKHÚSIÐ. Þar
eð myndin er mjög löng —
sýningin tekur tæpa fjóra
tima — verða aðeins tvær
sýningar á morgun, sunnu-
dag: kl. 4 og kl. 8. Laugar-
dagssýningin verður hins-
vegar kl. 5 I dag, einsog
venjulega.
Fólk er eindregið hvatt til
aö láta ekki lengd myndar-
innar á sig fá, þvi hér er um
merkt listaverk að ræða.
ih
Grafík í
Norræna
húsinu
í bókasafni og anddyri
Norræna hússins stend-
ur nú yfir sýning á 20
grafikmyndum eftir
verðlaunahafa i nor-
rænni samkeppni sem
stofnunin Kunst i skolen
i Danmörku gekkst fyrir
á liðnu hausti.
Verðlaunahafarnir eru tiu, allir
frá Danmörku: Jörgen Brynjolf,
Erik Hagens, I.P. Groth Jensen,
Anne Marie Mejlholm, Berta
Moltke, Vera Myhre, Leif Kvist-
gaard Olsen, Poul Skov Sörens-
sen, Ole Sporring og Tage Stein-
toft.
Félagið Islendk grafik sér um
sýninguna hér á landi, en hún er
farandsýning. Sýningin er opin á
venjulegum opnunartima bóka-
safnsins 14-19 á virkum dögum,
en 14-17 á sunnudögum. Henni
lýkur 21. jan.
Svava Nlelsdóttir og Bjarki Bjarnason f Grænu lyftunni.
ih