Þjóðviljinn - 19.01.1979, Blaðsíða 8
8SÍÐA —ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 19. janúar 1979
Föstudagur 19. janúar 1979 [ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
LtTÐVÍK JÓSEPSSON:
Lúövik Jósepsson: Deilur okkar Alþýöubandalags-
manna viö órólegu deild kratanna — 'viö Vilmundana i
Alþýöuflokknum — eru fyrst og fremst um afstööuna
til kaupmáttar launa.
Ekkert orð var eins mikið notað í kosninga-
baráttunni s.l. sumar af Alþýðuflokksmönn-
um og orðið kjarasáttmáli. A þessu orði var
stagast af öllum frambjóðendum Alþýðu-
flokksins á f ramboðsf undum og í blaðagrein-
Benedikt Gröndal
sleit stiórnarmynd-
una rv iðraeðu m á
þeirri kröfu að allt
kaupgjald yrði lækk-
að með lögum um 7%
án nokkurra bóta.
um, og um þetta töfra-orð gerðu kratar síðan
litprentaðan sérstakan flugmiða, sem dreift
var til allra kjósenda.
Kjarasáttmáli kratanna var þeirra leið út úr
efnahagsvandanum, var þeirra leið til að
vinna bug á verðbólgunni og að þeirra sögn
eina leiðin til að stjórna landinu af einhverju
viti.
Kjarasáttmáii kratanna var vissulega for-
vitnilegur. Hann boðaði eitthvað nýtt, eitthvað
sem máli skipti, eitthvað sem gæti falið f sér
lausnina á þeim mikla vanda, sem allir töluðu
um og viðurkenndu að þyrfti að leysa.
En hvað var þessi kjarasáttmáli, sem krat-
arnir töluðu um og boðuðu af svona mikilli
áfergju? Um það var spurt oft og mörgum
sinnum í kosningabaráttunni, en svör fengust
lítil sem engin, en engin þannig að hægt væri
að skilja þau, eða henda reiður á þeim.
lög-
binding
á
kaupi
Dálítið skýrist— kjarasáttmáli gat þýtt kaup-
hækkun
Fyrir kosningar töluðu þeir Alþýðuflokks-
menn gjarnan um kjarasáttmála um leið og
þeir viðurkenndu að ekki væri hægt að stjórna
landinu svo vel færi, án þess að haft yrði náið
samstarf og samráð við samtök launafólks
um allt það sem varðaði aðgerðir í efnahags-
og atvinnumálum. Auðvitað gerði slíkur mál-
flutningur kjarasáttmálann ennþá aðgengi-
legri og áhugaverðari einkum fyrir launafólk.
En svo voru alþingiskosningar um garð
gengnar og stjórnarmyndunarviðræður hóf-
ust. Þá var kominn sá tími, að Alþýðuf lokks-
menn yrðu að skýra sinn kjarasáttmála/yrðu
aðgera fulla grein fyrir því hvað þeir ættu við
með þessu kosninga-slagorði sínu. Fyrsta
áþreifanlega sönnunin um merkingu þessa
kjarasáttmála kratanna kom fram þegar
Benedikt Gröndabformaður Alþýðuf lokksins,
sleit stjórnarmyndunarviðræðum við Alþýðu-
bandalagið og Framsókn á þeirri kröfu að
jafnhliða 15% gengisfellingu yrði allt kaup-
gjald lækkað með lögum um 7% án nokkurra
bóta.
Þá var ekki lengur talað um, að nauðsynlegt
væri að hafa fullt samráð við samtök launa-
fólks um aðgerðir i efnahagsmálum, né held-
ur að kjarasáttmálinn frægi ætti að leysa
ef nahagsvandann.
Það skal þó tekið f ram í þessu sambandi, að
Gröndal var ekki sá í hópi Alþýðuflokks-
manna, sem ákaf astur var að leysa ef nahags-
vandann með kauplækkun. Enginn sem í við-
ræðum flokkanna stóð gat um það efast, að
Kjartan Jóhannsson, varaformaður flokksins,
var í þeim efnum Benedikt miklu fremri.
Og síðar hefur einnig komið I Ijós, að Vil-
mundur Gylfason er þóenn ákafari en Kjart-
an í kröf um sínum um kauplækkun og lögbind-
ingu kaups.
Og það er einmitt Vilmundur, sem nú hef ir
best gefið skýringu á því hvað Alþýðuflokk-
urinn meini með kjarasáttmála.
• I öllu því mikla þrefi, sem Aiþýðuflokk-
urinn hefur haldið uppi, síðan ríkisstjórnin
var mynduð, um ráðstafanir í efnahags-
málum, er í rauninni aðeins eitt atriði sem
efnislega skiptir einhverju máli, en það er
krafan um kauplækkun, annaðhvort með
nýrri vísitölu, sem mæli minni hækkanir en
nú, eða með beinni lagasetningu, sem
ákveði tiltekna lækkun á launum.
Allt þrugl kratanna um „heildstæöar tillögur” Alþýöuflokksins og um „langtima-áætlun” hans um
baráttu gegn veröbólgu, er meiningarlaust.
4 v . 4
Vilmundur segir: Kjarasáttmáli er lögbinding
á kauplækkun.
í öllu því mikla þref i, sem Alþýðuf lokkurinn
hef ir haldið uppi, síðan ríkisstórnin var mynd-
uð, um ráðstafanir í efnahagsmálum, er í
Enginn sem i viðræð-
um flokkanna stóð
gat um það efast að
Kjartan Jóhannsson
varaformaður flokks-
ins var ákafari en
Benedikt að leysa
efnahagsvandann —
með kauplækkun.
rauninni aðeins eitt atriði sem efnislega
skiptir einhverju máli, en það er krafan um
kauplækkun, annaðhvort með nýrri vísitölu,
sem mæli minni hækkanir en nú, eða með
beinni lagasetningu, sem ákveði tiltekna lækk-
un á launum.
Þessi krafa Alþýðuflokksins kom fyrst
fram, þegar ríkisstjórnin gerði sínar fyrstur
efnahagsráðstafanir í september, en þá setti
hann það sem skilyrði að endurskoðun vfsitöl-
unnar yrði lokið fyrir 20. nóvember, svo ný
vísitala gæti mælt kauphækkun 1. desember.
Síðan kom krafan um það, að af 14.1% kaup-
gjaldsvísitölu 1. desember skyldi aðeins
greiða út í kaup 3.6% og auka niðurgreiðslur
um 2.5%.
Annað átti að faila niður, eða sem nam 8% í
kaupi, án alira bóta.
Og þegar allt þetta hafði brugðist hjá þeim
Alþýðuf lokksmönnum þá sögðust þeir myndu
stöðva afgreiðslu f járlaga, nema gengið yrði
inn á kröfur þeirra um ýmsar ráðstafanir í
efnahagsmálum.
Flestar voru kröfur þeirra f jarstæðukennt
bull og höfðu enga þýðingu. En í þeim um-
ræðum, sem þessum umbrotum fylgdu, komu
fram ýmsar athyglisverðar skýringar á
kjarasáttmála-boðskap þeirra Alþýðuflokks-
manna.
Vilmundur var sá í þeirra hópi sem mest
talaði og það var hann sem afhnjúpaði sig og
að minnsta kosti verulegan hlut hins nýja
krataf lokks, svo rækilega að ekki þarf lengur
að efast um hvað þeir kratar eigi við með
kjarasáttmála og samráði við launafólk.
Hér skulu tilfærð nokkur af um-mælum Vil-
mundar úr þingræðum hans, varðandi þessi
mál.
Þegar Vilmundur gerði grein fyrir tillögum
Alþýðuf lokksins um ráðstafanir í efnahags-
málum þann 27. nóvember sagði hann:
„Kjartan Jóhannsson, hæstvirtur sjávarút-
vegsráðherra, kynnti í ríkisstjórninni tillögur,
sem náðu til ársloka 1979. Þær tillögur gengu
út á það að setja þak á launahækkanir, 4% á
þriggja mánaða fresti, sem hefði þýtt leyfi-
legar kauphækkanir á árinu allt að 20%."
Hér er ekki lengur töluð nein tæpitunga um
kjarasáttmála og samráð, heldur um að lög-
binda kauplækkanir án tillits til verðlags-
hækkana.
® Við gerum kröfur um það, að þau ákvæði
stjórnarsamkomulagsins, sem segja að
vernda skuli þann kaupmátt launa, sem
samið var um í júnísamningunum 1977,
standi að fullu, og við krefjumst þess að
þannig sé staðið að stjórn efnahagsmála að
full atvinna haldist.
Auðvitað hefði 4% hækkun á þriggja mán-
aða fresti þýtt 17% hækkun á árinu en ekki
20% eins og Vilmundur segir en sú skekkja er
ekki meiri en venjulegt er í hans málf lutningi.
Hefði verðlagshækkunin numið 30% á ári,
sem telja verður líklegt, sem lágmark,hefði
hér verið um 13% beina kauplækkun að ræða.
I sömu ræðu segir Vilmundur:
„Þegar við kynntum tillögur okkar um
heildstæða áætlun í efnahagsmálum fyrir árið
1979, þá vorum við spurðir, hvort hér væri ekki
um bort á kjarasáttmála að ræða, vegna þess
að lögð var til lögbinding. Auðvitað þýðir
kjarasáttmáli ekki að það fari fram valdaaf-
sal Alþingis til þrýstihópa. Kjarasáttmáii get-
ur aldrei þýtt það. Á alvörustundum getur
auðvitað og kemur iðulega upp það ástand, að
löggjafínn verður að taka af skarið. Kjara-
sáttmáli þýðir iðulega að löggjafinn setur
rammalöggjöf, t.d. í kjafamálum..."
Hér sjá menn svart á hvítu hvað þeir kratar
meina með kjarasáttmála. Hjá Vilmundi þýð-
ir hann lögbinding á kaupi. Það hef ir þá verið
kjarasáttmáli af kragagerð, sem ríkisstjórn
Geirs Hallgrímssonar var að framkvæma á
fyrrihluta ársins 1978.
Og enn segir Vilmundur:
„Það hefði verið rétt ákvörðun að binda
kaupgjald með þeim hætti, sem við höfum lagt
til, og leggja aðrar ákvarðanir samkv. frekari
lýsingu i hendur ríkisstjórnarinnar."
Þessi dæmi, sem hér hafa verið tilfærð, úr
ræðu Vilmundar, sýna svo ekki verður um
villst, hver stefna hans er og órólegu deildar-
innar í Alþýðuf lokknum. Þaðer um þessa lög-
bindingar- og kauplækkunarkröfu Alþýðu-
flokksins, sem deilurnar hafa staðið.
Allt þrugl þeirra um „heildstæðar tillögur"
Alþýðuflokksins og um „langtíma-áætlun"
hans um baráttu gegn verðbólgu er meining-
arlaust.
Við okkur Alþýðubandalagsmenn stendur
engin deilda um stjórn á fjárfestingu, um
skatt á verðbólgugróða, um niðurskurð á
reksturskostnaði ríkisins, um að standa gegn
skuldasöfnun erlendis, um ráðstafanir gegn
„neðanjarðarhagkerfinu" o.s.frv., o.s.frv.
Deilur okkar Alþýðubandalagsmanna við
órólegu deild kratanna, — við Vilmundana í
Alþýðuflokknum, er fyrst og fremst um af-
stöðuna til kaupmáttar launa.
Við gerum kröfum um það, að þau ákvæði
stjórnarsamkomulagsins, sem segja að
vernda skuli þann kaupmátt launa, sem samið
var um í júnísamningunum 1977, standi að
fullu, og við kref jumst þess að þannig sé stað-
ið að stjórn efnahagsmála að full atvinna sé
tryggð.
Vilmundur Gylfason:
„Það hefði verið rétt
ákvörðun að binda
kaupgjald með þeim
hætti, sem við höfum
lagt til..."
Tillögur okkar í efnahagsmálum liggja fyr-
ir. Þær eru í samræmi við samþykktir verka-
lýðshreyfingarinnar. Þær eru líka raunhæfar
tillögur, tillögur sem miða að minnkun verð-
bólgu, að réttlátari skiptingu þjóðartekna,að
fullri atvinnu, að auknum félagslegum rétt-
indum, eflingu íslenskra atvinnuvega og stór-
átaki til framleiðniaukningar í atvinnuvegum
landsins.
Við segjum, einu sinni fyrir allt, að Vil-
mundar-rugl, kauplækkunarkröfur kratanna,
og marklaust bull um þessi skilyrði og hin af
hálfu Alþýðuf lokksins hafa engin áhrif á okk-
ur í Alþýðubandalaginu.
Viðstöndum heil að núverandi ríkisstjórn,
og við stöndum fast á því að hún vinni á þeim
grundvelli sem um var samið.
Geti Alþýðuf lokkurinn ekki sætt sig við slík
vinnúbrögð er best að hann taki upp sitt lang-
þráða samstarf við íhaldið.
Ur sýningu tslenska dansflokksins á ballettinum Sæmundi Klemens-
syni i ÞjúOleikhúsinu i haust (Ljúsm. Leifur).
í FYRSTA SINN:
íslenskur ballett-
flokkur fer utan
Um heigina fer islenski dans-
fiokkurinn i sýningarfcrö til
SviþjúOar og Noregs ásamt
hljúmsveitinni Þursaflokknum og
sýnir þar islenska balletta eftir
Ingibjörgu Björnsdúttur. Ballett-
flokkurinn hefur fengiö styrk frá
Norrænu leiklistarnefndinni til
fararinnar og veröur þetta I
fyrsta sinn, sem tslenskur ballett-
flokkur sýnir erlendis.
Fyrstu sýningar dansflokksins
veröa á Södra Teatern I Stokk-
hölmi á mánudags- og þriöju-
dagskvöld en siöar mun
Flokkurinn sýna I Gautaborg og i
Oslö.
Meginuppistaða sýningarinnar
er ballettinn Sæmundur Klem-
ensson, sem Ingibjörg Björns-
döttir samdi viö tönlist Þursa-
flokksins og hefur veriö sýndur i
aaust I Þjóöleikhúsinu og vakiö
mikla athygli. Þá hefur Ingibjörg
Samiö tvo stutta balletta I tilefni
feröarinnar, einnig viö tónlist
Þursaflokksins og nefnast þeir
iHættu aö gráta hringaná og í
Gálgahrauni. TIu dansarar taka
þátt i sýningunni: Asdis Magnús-
dóttir, Birgitta Heide, Helga
Bernhard, Guörún Pálsdóttir,
Ingibjörg Pálsdóttir, Ingibjörg
Björnsdóttir, Kristin Björns-
dóttir, örn Guömundsson, ólafur
Ólafssonog Björn Sveinsson.
Tónleikar í
Norræna
húsinu
Sunnudaginn þann 21. janúar
kl. 20:30 halda tveir ungir banda-
riskir listamenn hljómleika i Nor-
ræna húsinu i Reykjavik.
Ronald Neal fiöluleikari er pró-
fessor og formaöur strengja-
deildar viö Southern Methodist
University i Dallas i Texas. Hann
hefur haldiö hljómleika I mörgum
helstu borgum Bandarikjanna,
fariö I hljómleikaferöir til Suöur-
Ameriku og leikiö inn á hljóm-
plötur. Hann stundaði nám viö
Eastman tónlistarháskólann og
viö Juilliard i New York. Kenn-
arar hans voru Carroll Glenn og
Ivan Galamian.
Brady Millican var fæddur i
Texas og hóf pianónám 8 ára
gamall. Kennarar hans hafa
verið Eugen List, en meö honum
hefur hann leikiö inn á hljóm-
plötur, Leon Fleisher og Jörg
Demus. Millican hefur stundaö
Þursaflokkurinn flytur alla tón-
listina I sýningunni en I flokknum
eru Egill ólafsson.sem jafnframt
er söngvari, Karl Sighvatsson,
Þóröur Arnason, Tómas Tómas-
son og Asgeir Óskarsson.
Ballett byggður
á íslenskri smásögu
Norræna leiklistarnefndin
hefur einnig veitt Þjóöleikhúsinu
styrk til þess aö fá hingaö i fébrú-
ar finnska danshöfundinn Marjo
Kuusela.sem hingað kom i fyrra
meö flokk sinn Raatikko og sýndi
ma. ballettinn Sölku Völku.Kuus-
ela vinnur nú að samningu
balletts fyrir íslenska dans-
flokkinnbyggöan á Islenskri smá-
söguogmun hún stjórna þessum
ballett sinum hér I Þjóöleik-
húsinu.
Einnig veitti leiklistarnefndin
finnskum aöilum styrk til þess aö
bjóöa Þjóðleikhúsinu meö leikrit-
iö FRÖKEN MARGRÉT til
Helsinki um páskana. Veröur
leikritið sýnt á Lilla Teatern en
þaö er sem kunnugt er Herdis
Þorvaldsdóttir sem fer meö hlut-
verk kennslukonunnar i
sýningunni.
Ronald Neal fiöluleikari
nám viö Eastman tónlistar-
háskólann, Royal College of
Music og New England Conserva-
tory. Sem stendur vinnur hann aö
doktorsritgerö við háskólann i
Boston. Hann hefur feröast viöa
um Bandarikin og England sem
einleikari og meö kammertónlist.
A efnisskrá tónleikanna veröa
sónötur eftir Brahms, J.S. Bach,
Chopin og César Frank.