Þjóðviljinn - 04.02.1979, Page 8

Þjóðviljinn - 04.02.1979, Page 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 4. febrúar 1979 Hérinn eöa kanínutáknið hefur alltaf verið vörumerki tímaritsins/ sennilega vegna örrar tímgunar dýrateg- undarinnar. KLÁM í plastumbúðum Hugh Hefner er ímynd 1 hins fullkomna glaum- j gosa: Rikur, framtaks-' samur og einhleypur. Konan til vinstri er hins vegar neysluvara. Playboy Þessi mynd birtist i fyrsta tölublaði Playboy fyrir 25 árum. Fyrirsæt- an hét Marlyn Monroe. Málssvari úrkynjaðra lifsvenja, dekraðra pabba- stráka, forsvari auðvalds og kynjafasisma. Þetta eru bara örfá fúkyrði, sem notuð hafa verið um bandariska herrablaðið ,,Playboy”. Engu að siður hefur þessi versti andstæðingur amerisku rauð- sokkahreyfingarinnar náð mikilli útbreiðslu og er blaðið gefið út i 20 miljónum eintaka. I ár eru liöin 25 ár frá þvi aö tlmaritiö kom fyrst Ut. Hlutafé var ekki svo ýkja hátt: 600 dollar- ar, en stefna sú sem hinn ungi rit- stjóri, Hugh Hefner, haföi mark- að, reyndist gróöavænleg. I dag er timaritiö orðið aö heilli keöju fyrirtækja, sem hafa spilavlti, hótel, klúbba og kvikmyndaiönaö á sinum snærum. Svart á hvítu tímaritió sívinsæla lifir og dafnar Síðasta tölublað stefnir í metútbreiðslu Þar má meðal annars lesa um: • Hrakfarir Höxa sem Þórarinn Eldjárn hefur fært 7 í letur. • Nánari fréttir af ævintýrum Walters Benjamín. • Dario Fo og Alþýðuleikhúsið sem trylla lands- menn um þessar mundir af sviði Lindarbæjar. • Hálfbílaðir nýlistarmenn bregða á leik. • Ljóðskáld hérlend og erlend slíta úr sér hjörtun. • Megas fílósóferar um ástina, og áfram mætti lengi telja. Fyrsta tölublað ’79 er í undirbúningi, en þar mun kenna margra óþverragrasa á rúmbotninum. Gefum ritskoðunar- og afturhaldssinnum landsins langt nef með því að stórefla tímaritið. Það fæst í bókaverslunum og hjá götusölum. Áskriftarsími 15442. Einnig geta menn gerst áskrifendur í höfuðstöðvum blaðsins, Gallerí Suð- urgötu 7, er sýningar standa yfir. Formúlan Hugh Hefner kom blaöi slnu á markaðinn á réttum tlma, og hann valdi einnig efni I blaöiö, sem var liklegt til sölu. Formúla Hefners var i grófum dráttum þessi: Lesandinn— sem auövitaö var karlkyns — átti aö geta lifaö sig inn I ákveöinn draumaheim. Hann var ungur og fallegur, rik- ur, afkastamikill og I góöri stööu. Hann var að sjálfsögöu ógiftur, en gat velt sér upp úr tilkippilegum stúlkum I tómstundunum. Og þarna erum viö komin aö kjarna Playboy-heimspekinnar: Kon- unni. Konu glaumgosans á ekki aö nein ómerkileg götudrós, hún á aðverakomin af góöri fjölskyldu, vera á tvltugsaldri og aö sjálf- sögöu á hún að vera sexi og falleg, og verðugt stööutákn glaumgos- ans. Fyrir utan þessa ytri kosti á stúlkan aö vera bllö og góö viö manninn og alltaf til I tuskiö. Hún á auövitað ekki aö hugsa sjálfstætt, en getur gjarnan komiö meö fyndnar athugasemdir. Aö- alstúlka hvers tölublaös er opnuskvísan, sem allir kannast viö, sem einhvern timann hafa stolist I tlmaritiö I Vesturveri. Fyrsta opnuskvisa Playboy 1953 var ung stúlka, sem siðar varö fræg undir nafninu Marlyn Monroe. Slöan hafa margar frægar kvikmyndaleik- konur látið mynda sig fyrir tlma- ritið, enda um ágætar aukatekjur að ræöa: greiðslan er aldrei undir 25 þúsundum dollara. Blaðamennskan Hugh Hefner vissi I upphafi, að þaö var ekki nóg að selja blaöiö á fögrum stúlkum. Þaö þurfti aö birta vandaö efni meö, þannig aö lesandinn gæti haft ástæöu til aö kaupa blaöiö. Hann fékk heims- fræga rithöfunda til að skrifa greinar og smásögur og lagöi mikiö upp úr ljósmyndum, teikn- ingum og umbroti. Meöal þekktra rithöfunda sem skrifað hafa I Playboy má nefna Ray Bradbury, Evelyn Waugh, John Steinbeck, P.G. Woodhouse, Alex Hailey (höfundur ,,Róta” og blaðamaður timaritsins i mörg ár), John Up- dike, GUnther Grass og Saul Bellow. Auk vandaöra smásagna má nefna viðtal mánaöarins, sem ævinlega er við heimsfræga per- sónu. Viötöl þessi eru iðulega mjög vel unnin og nær fullkomin út frá faglegu sjónarmiöi. En þrátt fyrir þetta vandaöa inn- blaösefni er Playboy fyrst og fremst blaö sem selur klám handa ameriskri millistétt, sem dreymir um aukna velgengni og frjálsara kynferöislif. Ýmsir spáöu Playboy stuttra lifdaga eftir aö konur i Banda- rikjunum hófu jafnréttisbarátt- una að einhverju marki. Þeir hafa þó ekki reynst sannspáir. I fyrsta lagi er lifskraftur Plaboy mikið undir auglýsendum komið, en fyrirtæki þau, sem auglýsa i timaritinu, selja flest dýrar munaöarvörur. I öðru lagi hefur ritstjórn blaösins ávallt gætt þess, að laga sig eftir aðstæöum, og þannig hefur konuimynd glaumgosans smám saman breyst. Opnuskvisan er ekki jafn framtakslaus og svefnherbergis- bundin sem fyrr, hún er orðin framtakssöm, vinnur úti og hefur meira aö segja skoðanir á hlutun- um. En þrátt fyrir þessar smávægi- legu breytingar er konan áfram leiksoppur mannsins og aöallina Hugh Hefners er sú sama og þeg- ar hann hætti hjá tímaritinu Esquire fyrir 25 árum og stofnaði Playboy: Aö selja klám i falleg- um ogsöluhæfum plastumbúöum. —im Ibúð óskast tíl leigu 4—6 herbergja ibúð óskast til leigu fyrir erlenda sjúkraþjálfara, sem starfa á Landspitalanum. Upplýsingar hjá yfir- sjúkraþjálfara Landspitalans, simi 29000. Skrifstofa rikisspitalanna. AUGLÝSINGASÍMI ÞJÓÐVILJANS ER 81333 • • A SUMNUDAGSKVOLDIM ■ T J W p Bjóddu sjálfum þér (. . . og ástvini þínum, efþú ert IjJT B i ■ B ^ m W BT B W % í þannigskapi) út ad borða ámatstofuna „Á nœstu grösumil á sunnudagskvöld. _ Við bjóðumþá upp á óvenjulegt (óvenju gott!) MATSTOFAN / Laugavegi 42 kalt borð fyrir aðeins 2000 kr. ogþú (þið) borðar (borðið) eins ogþig (ykkur) lystir. „ÁNÆSTUGRÖSUM”/ 3.hæó

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.