Þjóðviljinn - 04.02.1979, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 04.02.1979, Blaðsíða 16
16 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 4. febrúar 1979 i rósa- garðinum útigangsmönnum fækkar , Skólameistari M1 i hús. Fyrirsögn i Dagblaöinu Að kunna fagið Þórir Maronsson aöstoöaryfir- lögregluþjónn sagöi i samtali viö Þjóöviljann aö sér virtist fagmannlega hafa veriö staöiö aö ráninu aö mörgu leyti. Unnur simstjóri telur sig hafa oröiö vara viö dularfullan mann á vappi i kringum húsiö daginn áöur, en ef þar hefur veriö um ræningjann aö ræöa telur Þórir þó ekki fag- mannlega aö staöiö i fámenninu I Sandgeröi. þjóóviljinn. Hræðsla við gúmmítékka Þess skal getiö hér aö Unnur segir sig hafa dreymt fyrir ráninu fyrir nokkru slöan. Var hún þá stödd á skrifstofunni þar sem peningaskápurinn er og stóö þá allt I einu svört vera yfir henni og sagöi: „Ég vil fá allt nema ávis- anirnar.” Glumdi siöan lengi i eyrum hennar: „allt nema ávis- anirnar, allt nema ávisanirnar.” Þjóöviljinn. Að skjóta refi fyrir rass Fundist hefur refaskott (til aö hafa um hálsinn) aö Sunnuvegi i Hafnarfiröi. Eigandi vinsamlega hringi i sima xxxxx. Dagblaöiö. Franskar hreyfingar... Þaö er ljóst að Steindór Hjörleifsson, leikstjóri sleppur fremur létt frá þessu verki. Hann viröist þó sleppa einu grund- vallarsjónarmiöi, aö göngulag manna og tjáning er meö öörum hætti I hverfum Parisarborgar en i Breiðholtinu. Leiklistargagnrýni i Timanum. ... og klæðaburður Leikmynd og búningar Messi- önu Tómasdóttur eru tima- skekkja. Má m.a. nefna, aö bygg- ingar eru nýjar og hreinar, bera ekki blæ margra alda borgar inn á sviöiö, jafnvel ekki táknmál þessa alls, og fatnaöurinn er stil- laus og ekkert sérlega franskur aö voru mati. Þó var holræsamaöurinn skemmtilega klæddur. Or sömu gagnrýni. Uppeldi í verðbólguþjóðfélagi Þaö er nú einu sinni svo aö* börnin skila þvi oftast meö vöxt- um sem þau hljóta I uppeldinu. Timinn Afleiðingar af vinstri meirihluta? Þegar svo Jón Steinn fékk loks- ins sima núna i janúar heföi hon- um verið sagt aö veröiö á nýjum sima væri komiö upp I 70 þúsund krónur og 23 þúsund krónur auka- lega kostaöi aö fá simann rauöan. Hann sagöist hins vegar aldrei hafa fengiö aö vita aö fyrir slikt væri aukagjald. Þvi sæti hann núna uppi meö rándýran rauöan sima þvi aö þvi fylgdi aukagjald aö skipta aftur yfir i gráan. Dagblaöiö. Undarlegt uppátæki „Ég fór i vinnuna meö bros á vör”. Fyrirsögn i Visi Bannað að spila með ís ER TRENT SMOCK LÖGLEGUR LEIKMAÐUR MEÐ ÍS? Fyrirsögn i VIsi. VERÐLAUNAMYNDAGATA ÞJOÐVILJANS Dregið um verðlaunahafa! pí+s 0<k SkfZZ /° v / fosru ■0 Allt fram á siöustu daga hafa lausnir veriö aö berast á verð- launamyndagátu ÞjóÖviljans sem birt var i blaöinu á gamlársdag. Ætlunin var aö draga um vinnings- hafa 20. jan. en vegna mikillar þátttöku var ákveöiö aö biöa meö það þar til nú. Fjölmargar réttar lausnir bárust og auösjSanlegt aö margir hafa haft gaman aö þvi að glima viðmyndagátu Haralds Guö- bergssonar. Ráöning gátunnar er svohljóö- andi: IHALDIÐ I REYKJAVIK FÉLL AÐ LOKUM A VERKUM SINUM OG SLÆR ÞVl FÖSTU AÐ SLIKT HENDI EINNIG NÚVERANDI BORGARSTJÖRN. LATUM ÞAÐ BIÐA. Þegar dregiö var úr réttum lausnum kom upp nafn Þórarins Magnússonar, Iiaöarstig 10, Reykjavik. Verölaunin aö upphæð kr. 20.000 kr. biöa hans á ritstjórn Þjóðviljans, Siöumúla 6. Til ham- ingju! Þriðji hver burstar tennumar vitlaust Þriðji hver maður burst- ar tennurnar vitlaust, og veldur þeim þaraf leiðandi skemmdum. Tíundi hver maður burstar tennur sín- ar svo galið, að af leiðingin er alverlegir gallar á glerj- ungi tannanna. Þessar upplýsingar komu ný- lega fram á tannlækningaráö- stefnu i Stokkhólmi. Tveir sænsk- ir tannlæknar hafa rannsakaö tennur 800 persóna á aldrinum 16 til 65 ára meö tilliti til þeirra skemmda, sem veröa á tönnum, þegar þær eru burstaöar á rangan hátt. Þeir halda þvi þó fram, aö þetta hafi ekki I för meö sér svo alvarlegar skemmdir, aö viö- komandi missi tennurnar. Engu aö siöur eyöast tennurnar fljótar en ella viö ranga burstun. Sviarn- ir telja, aö betra sé aö bursta tennurnar vitlaust en aö bursta þær alls ekki, en það albesta sé náttúrlega aö bursta þær rétt. Þvi riöur á aö læra aö beita burstan- um rétt til aö foröast skemmdir á glerjunginum. Nugga, nugga, nugg! Sænsku tannlæknarnir tveir mæla meö tveimur aöferðum viö burstun. I fyrsta lagi þykir svo- nefnd nugg-aöferö ágæt og I ööru lagi er mælt meö snúningsaðferö- inni. Aöur en þessum aöferöum er lýst nánar, skal tekiö fram, aö aöalatriöið er aö bursta tennurn- ar þannig, aö burstinn nái aö leika um „þrönga staöi” og burst- aö sé á mótum tannkjöts og tanna, þvi þar byrja tann- skemmdir yfirleitt. Nú skal hin- um merku aðferðum lýst. Nugg-aöferöinbyggist á þvl, aö tannburstanum er komiö fyrir á fyrirætluöum staö, (þá helst • „þröngum stað”) og slöan er burstanum nuggaö fram og til- baka. Snúningsaöferöin byggir hins vegar á aö burstanum er snúiö, en ávallt i átt frá tannkjöti. Tannkremið Aö bursta tennurnar reglulega er besta aöferöin til aö komast hjá óþægindum eins og tannpinu og tannskemmdum. Hins, vegar þykir æskilegt aö reka endahnút- • inn á þessa fyrirbyggjandi aögerö meö þvi aö nota tannþráö og tannstöngla. I staö langra haröra tannbursta er fólki ráölagt aö nota stutta, mjúka bursta. Þó aö röng notkun tannbursta valdi mestum skemmdum á glerjungi, er afar þýöingarmikiö aö velja sér rétttannkrem. Þaö er nefnilega slæmt fyrir tennurnar aö vera burstaöar meö tann- kremi, sem inniheldur of mikiö af slipiefnum. Þeir tannlæknakumpánar telja þó, aö aöalatriöiö i sambandi viö betri tannverndun sé upp- lýsingarherferö, sem kenni al- menningi rétta tannburstun. Sé þér annt um tennur þinar, þá hugsaöu þig um tvisvar áöur en þú stingur burstanum upp i þig. (Úr DN) : Hún drap nauðgarann NEW YORK, (Reuter) — 17 ára stúlka stakk nauðgara sinn til bana i vikunni i New York. Maðurinn hafði nauögað stúlk- unni á fáfarinni götu i Brooklyn. Siöan ætiaöi hann aö stinga hnif i hana, en hún gat náö hnifnum af' honum og stakkhún hann siöan i hálsinn svo hann hlaut dauða af. Stúlkan er nú á sjúkrahéi og hefur það bærilegt eftir atvikum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.