Þjóðviljinn - 09.05.1979, Síða 3
Miövikudagur 9. mai 1979 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3'
Lúðvík Jósepsson rekur ástædur þaklyftíngarinnar
Tómas Árnason og kjara-
dómur rédu feröinni
— án þess að stjórnarflokkarnir eða ríkisstjórnin í heild
jjallaði um málið með eðlilegum hœtti
Framsóknarráöherrarnir undir
forystu Tómasar breyttu skyndi-
lega um afstööu til þaksins.
Eins og fram kemur í
forsiðutilvisun# lætur Tóm-
as Áranson fjármálaráð-
herra að því liggja að það
hafi verið Alþýðubanda-
lagið sem sé ábyrgt fyrir
því að hinu margumrædda
þaki á launabætur hafi
verið aflétt. Af því tilefni
hefur Lúðvík Jósepsson
formaður Alþýðubanda-
lagsins óskað að gera
athugasemdir við þau um-
mæli í átta liðum, þar sem
hann hrekur fullyrðingu
f jármálaráðherra:
Framsókn fyrst
1. Ráöherrar Framsóknar-
flokksins og þá fyrst og femst
Tómas Arnason reifuðu það
nokkrum sinnum f rlkisstjórn i
upphafi þessa árs aö þeir vildu af-
létta visitöluþakinu. Þessu mót-
mæltu ráöherrar Alþýöubanda-
lagsins harölega og uröu þau
mótmæli til þess aö rikisstjórnin
féll frá samþykkt um þaklyftingu.
Ólafur yildi lyfta
2. í þeim drögum aö efnahags-
málafrumvarpi sem ólafur
Jóhannesson forsætisráöherra
lagöi fram 12. febrúar sl. var um
þaö bein tillaga að visitölubætur á
laun skyldu greiddar upp allan
launastigann og lögbundnu visi-
töluþaki þar meö aflétt. Alþýðu-
bandalagiö mótmælti þessu
ákvæöi eindregiö og fékk þvl ráö-
iö aö þaö var fellt ot úr frumvarp-
inu i endanlegri gerö þess. Þaö
fer ekkert á milli mála aö ráð-
herrar Framsóknarflokksins
snérust i þessu „þakmáli” þegar
einnaf forystumönnum Fram-
sóknarflokksins og frambjóöandi
flokksins í Reykjavlk, Valdimar
Kr. Jónsson, varö formaöur i
Bandalagi háskólamanna, en það
samband haföi mjög ólmast gegn
vlsitöluþakinu frá þvi I haust.
Þakiö af,sögöu kratar
3. Alþýðuflokkurinn var svo
ákafur i aö koma efnahagsmála-
frumvarpi ólafs Jóhannessonar
fram, aö hann krafðist þess aö
þaö yröi samþykkt óbreytt og
jafnvel efnt til þjóðaratkvæöa-
greiöslu um þaö. Engum blööum
var þvi um þaö aö fletta, aö Al-
þýöuflokkurinn studdi þar meö
þaklyftingu.
Fellt út úr frumvarpi
4. Eins og áöur sagöi var þaö
samkvæmt kröfu Alþýöubanda-
lagsins aö þessi áform um aö
greiöa visitölubætur á laun upp úr
launastigunum voru felld út úr
efnahagsfrumvarpi Olafs
Jóhannessonar.
Dæmalaus úrskurður
5. Hinn dæmalausi úrskuröur
Kjaradóms kom svo 4. mars sl.
Þar ákvaö meirihluti dómsins,
þrlr embættismenn, aö þakinu
skyldi lyft af launum félaga I
Bandalagi háskólamanna. Þessi
meirihluti dómsins taldi sig hafa
vald til þess að rifta landslögum,
meö tilvisan til þess aö meirihluti
ráöherra I rikisstjórninni —
Framsóknarmenn og Alþýöu-
bandalagsmenn — höföu áöur lýst
stuöningi viö afnám þaksins,
Reykjavikurborg haföi frá ára-
mótum greitt fullar visitölubætur
á öll laun, og aö óréttmætt heföi
verið aö iönaöarmenn og yfir-
menn á farskipum væru undir
þaki vegna álagsgreiöslna sem
þeir nytu. Verter aö nefna I þessu
sambandi aö minnihluti dómsins
— 2 menn og þar á meðal Jón
Sigurösson þjóöhagsstjóri — töldu
ekki fært að ganga á móti lands-
lögum meö þessum hætti.
Tómas brá við hart
6. Þegar úrskuröur Kjaradóms
lá fyrir, bregöur Tómas Arnason
fjármálaráöherra hart viö og
básúnar út yfir alþjóö aö i krafti
þessa dæmalausa dóms skuli
lyfta þakinu af öllum opinberum
starfsmönnum og greiöa full laun
aftur til 1. janúar. Þetta ákvaö
Framhald á 14. siöu
Lúövik Jósepsson: Afstööu meiri-
hluta kjaradóms heföi átt aö visa
til æöri dómstóla.
Mjólkurfræðingar:
Samningur frá 1977
aldrei undirritaður
1 gær var haldinn annar fundur-
inn i kjaradeilu mjólkurfræöinga.
Ekkert markvert geröist á fund-
inum, en mjólkurfræðingar hafa
boöað verkfall frá og meö 14. mai
n.k. hafi samningar ekki tekist.
Þjóöviljinn haföi samband viö
Jóhann Gunnarsson mjólkur-
fræðing I Borgarnesi og spuröi
hann nánar út i kröfur mjólkur-
fræöinga.
Jóhann sagöi aö kröfurnar
væru þrjár. I fyrsta lagi aö fá
kjarasamninginn frá 1977 frá-
genginn og undirritaöan. Frá
þessum samningi hefur aldrei
veriö gengiö endanlega og hann
hefur ekki enn veriö undirritaöur.
Þetta stafar af þvi aö mjólkur-
fræöingar afléttu verkfalli áður
en náöist aö prenta heildarsamn-
inginn, og er hann þvl með viöbót-
um hér og þar, þar sem atvinnu-
rekendur hafa verið aö krafsa of-
an í hluti sem þeir hafa samþykkt
við samningaboröiö, sagði Jó-
hann. — Ef viö náum ekki þessari
sjálfsögöu kröfu fram, þá er
spurning hvort verkalýösfélög
geta yfirleitt aflétt verkfalli fyrr
en búiö er aö prenta samninga og
báöir aöilar eru búnir aö undir-
rita þá. Atvinnurekendur eru
þarna jafnvel aö bjóöa upp á tvo
til þrjá óþarfa verkfallsdaga
meöan veriö er aö ganga frá
samningum.
Þá erum viö meö kaupkröfur
sem eru samtals upp á 18.3%. Þar
er I fyrsta lagi áð fá alla pró-
sentuskeröingu leiörétta, þ.e. aö
þær prósentutölur sem talaö er
um I kjarasamningnum frá 1977
séu látnar gilda. í þriöja og slö-
asta lagi er krafa um aö viö fáum
borgaöar fyrir þaö aukanám sem
stundað er erlendis 20% kaup-
bætur I staö 10%. Þessi krafa er
einfaldlega til komin út frá þvi, aö
þetta er dýr einkaskóli I Dan-
mörku sem ríkiö veitir engin
námslán né styrki út á, og verö-
um viö þvi aö stunda námiö al-
gerlega á eigin kostnaö.
Sú hefur þvi miöur oröiö raunin
upp á slökastiö I æ rlkari mæli, aö
mjólkurfræöingar hafa ekki tekiö
þennan skóla vegna þess aö þeir
hafa einfaldlega reiknaö þaö út aö
þaö borgi sig ekki fjárhagslega.
Þennan skólakostnaö teljum viö
aö atvinnurekendur eigi aö borga
sökum þess aö þaö hlýtur aö
koma þeim til góöa aö hafa sem
best menntaða fagmenn, sagöi
Jóhann aö lokum. _ig.
Á 2ja manna herb. með hand-
laug og útvarpi. Bókasafn, verslun
og setustofa. Sturtur, gufubað og
íþróttasalur. Stutt í sund. Dagblöð
og sími. Rómuð náttúryfegurð.
Fæói________________
Stakar máltíðir eða afsláttar
matarkort, hálft eða fullt fæði.
Sjálfsafgreiðsla.
Böm_________________
Frítt fæði með gistingu fyrir
börn orlofsgesta til 8 ára aldurs.
Matur á hálfvirði fyrir 8—12 ára.
Fyrir einstaklinga, starfshópa,
fjölskyldufagnaði og hópferðir.
Pantið með fyrirvara.
Ráðstefnur-fundír-námskeið
Fyrir allt að 150 manns. Leitið
upplýsinga og verðtilboða.
Pantanirog upplýsingar
91-17377 Reykjavík til20.maí.
93- 7500 Bifröst eftir 20.maí.
Orlof stímar 1979 2ja manna herb.
uppselt
16.—17. júní Nœturgisting
18.—22. júní 4. daga orlof 15.700
22.—29. júní viku orlof 28.700
uppselt
2.—9. júlí viku orlof 32.700
9.—16. júlí viku orlof 37.700
16.—23. júlí viku orlof 37.700
23.—30. júlí viku orlof 37.700
30.—6. ágúst viku orlof 37.700
6.—12. ágúst 6. daga orlof 28.700
12.—17. ágúst 5. daga orlof 20.700
uppselt
20.—27.ágúst viku orlof 24.700
íslenskur orlofsstaður