Þjóðviljinn - 09.05.1979, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 9. mai 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIDA 5
Erling Blöndal Bengtsson
Páll P. Pálsson hljómsveitarstj
Dansk-islenski sellómeistarinn
Erling Blöndal-Bengtsson er ein-
leikari með Sinfónluhljómsveit-
inni á tónleikum hennar annað
kvöld og leikur sellókonsert eftir
Lutoslavski. Hann hefur Erling
leikið 29 sinnum á tónleikum
áður, þar af fjórum sinnum undir
stjórn höfundar sjálfs, og verður
þetta þvi I 30. skipti sem hann
leikur verkið.
Stjórnandi á þessum tónleikum
er Páll Pampichler Pálsson, fast-
ráðinn hljómsveitarstjóri
Sinf ónius veitar inna r.
Auk sellókonsertsins eru á
efnisskrá tónleikanna Oberon for-
leikurinn eftir Weber, Rokokotil-
brigði Tjaikovskis og Sinfónia nr.
7eftir Gunnar Bucht. Þeir verða i
Háskólabiói og hefjast að venju
kl. 20.30.
A myndinni eru eigendur Gaflsins I Hafnarfirði Jón Pálsson og
Einar Sigurðsson ásamt eiginkonum.
Ný veitingastofa í Hafnarfirði
Veitingahúsið Gaflinn i
Hafnarfirði opnaði nýlega
veitingastofu við Reykjanes-
braut. Jafnframt henni er rek-
in önnur veitingastofa að
Reykjavlkurvegi 68 og hefúr
hún verið starfrækt s.l. þrjú
ár.
Með nýju veitingastofunni
opnuðust möguleikar til að
senda út mat til fyrirtækja I
einangruðum hitabökkum og
hefur sú nýjung mælst vel fyr-
ir. Einnig er það nýmæli i
starfsemi fyrirtækisins að
leigja út 2 samkomusali til
fundahalds og annars mann-
fagnaðar. Tekur annar salur-
inn u.þ.b. 130 manns en hinn
um 30.
Erling Bl-Bengtsson með Sinfóníunni
Flytur scllókonscrt eft-
ir Lutoslavski í 30. sinn
Kópavogsskólarnir: Vor í bæ
Skólarnir I Kópavogi munu
nú í fyrsta sinn gangast fýrir
vorhátið skólanna i bænum
dagana 9,—13. mai. Markmið
háti'ðarinnar er að gefa nem-
endum skólanna tækifæri til
að hittast og flytja efni sem
æft og undirbúið hefur verið i
skólunum I vetur. Hér er um
að ræða samhæfða skemmti-
dagskrá þar sem kórar, dans-
flokkar og leikhópar úr
skólunum munu koma fram
auk fjölda hljóðfæraleikara og
annarra. Einnig munu djass-
band Skólahljómsveitar
Kópavogs og Hornaflokkur
Kópavogs taka þátt i hátið-
inni.
Hátiðin verður haldin i
Iþróttahúsi Kársnesskóla og
eru fyrstu þrir dagarnir,
9—11. mai, eingöngu ætlaðir
nemendum skólanna.
A laugardag 12. mai kl. 14.00
og 16.00 og sunnudag 13. mai
kl. 14.00 og 16.00 eru hinsvegar
foreldrar og aðrir bæjarbúar
velkomnir og eindregið hvatt-
ir til að koma, sjá og heyra.
3
s»
Sri Chinmoy
kynntur
Kynningarfundur um ind-
verska yoga-meistarann Sri
Chinmoy og yoga-leið hans
verður haldinn i Norræna hús-
inu fimmtudaginn 10. mai kl.
20. Aðgangur er ókeypis og
allir sem áhuga hafa
velkomnir.
Um Sri Chinmoy segir m.a. I
kynningarbæklingi, að hann sé
fæddur i Bengal 1931. Tólf ára
gerðist hann meðlimur i
ashrami eða andlegu sam-
félagi þar sem hann dvaldist
næstu 20 ár við iðkun
hugleiðslu og öfluga andlega
þjálfun. Hann varð fyrir
margháttaðri djúpri trúar-
legri reynslu og öðlaðist
hugljómun. 1964 kom hann til
Bandarikjanna til að miðla af
reynslu sinni og hefur siðan
komið á fót andlegum setrum
vlðsvegar um Bandarikin,
Kan.ada, S-Amerlku,
Sri Chinmoy
V-Evrópu og Astraliu. Þá hef-
ur Sri Chinmoy gefið út fjöl-
margar bækur um hugleiðslu
og andleg mál og haldið fyrir-
lestra viðfjölda háskóla. Hann
leiðbeinir I hugleiðslu tvisvar i
viku fyrir starfsfólk og full-
trúa hjá Sameinuðu þjóðunum
og hugleiðslum hans er út-
varpað daglega um stöðvar
vlðsvegar um Bandarlkin.
ATVINNUHORFUR SKÓLAFÓLKS í SUMAR:
Ástandið viröist
svipað og í fyrra
þó eru ekki
öll kurl
komin til
grafar
Samkvæmt skráningum á
Ráðningarstofu Reykjavikur-
borgar virðist ástandið i atvinnu-
horfum skólafólks vera svipað og
var á sama tima i fyrra, þrátt
fyrir nokkurn ugg um aukið at-
i vinnuleysi vegna samdráttar á
i flestum sviðum.
2. mai s.l. höfðu 857 einstak-
; lingar 16 ára og eldri látið skrá
sig hjá Ráðningarstofunnii en
sambærileg tala frá 9. mai I fyrra
er 894. Þetta kom m.a. fram I
svari Guðmundar Þ. Jónssonar,
' formanns atvinnumálanefndar
Reykjavlkurborgar við fyrir-
spurn frá borgarfulltrúum Sjálf-
stæðisflokksins s.l. fimmtudag i
borgarstjórn.
1 fyrirspurninni var vitnað til
blaðaviðtala við Guðmund og
garðyrkjustjóra borgarinnar, þar
sem fram kom að erfitt ástand
virtist framundan i atvinnu-
málum skólafólks. Spurt var um,
hvort þessi vandi hefði verið
kannaður af hálfu borgaryfir-
vaida og hvernig ætlunin væri að
bregðast við honum.
1 svari Guðmundar kom fram
að atvinnumálanefnd hefur rætt
þessi mál á nokkrum fundum
sinum að undanförnu, en skrán-
ing skólafólks hófst á Ráðningar-
stofunni i aprilbyrjun. M.a. hefur
nefndin samþykkt að verja allt að
3,5 milj. króna til undirbún-
ings ýmiss konar framleiðslu
sem hentað gæti skólafólki, en
einnig hefur verið kannað hversu
marga skólanema borgin og
fyrirtæki hennar geta ráðið I
sumar skv. gildandi fjárhags-
áætlun. Þá hefur verið leitað til
ýmissa aðila i byggingariðnaði og
eins til fiskvinnslufyrirtækja úti á
landi, því auk þess að ráða skóla-
fólk i vinnu til borgarinnar, hefur
Ráðningarstofan milligöngu um
ráðningu unglinga i vinnu áhinum
almenna vinnumarkaði. Sagði
Guðmundur Þ. Jónsson að skýr
mynd af ástandinu, — framboð á
vinnu og eftirspurn skólafólks
Skólanemar við gatnagerö
eftir vinnu — lægi ekki fyrir
ennþá, en búast mætti við að svo
yröi á fundi nefndarinnar nú i
þessari viku. Þó sýnist sem eftir-
spurnin sé svipuð og i fyrra, en
um framboöið er öllu óljósara.
I fyrra voru ráðnir til
Reykjavikurborgar um 760 skóla-
nemar en skv. gildandi fjárhags-
áætlun verða þeir aðeins um 300 i
ár. Guðmundur sagði að lokum,
að brýnt væri að sérstök fjár-
veiting fengist til þess að hægt
yrði að útvega fleiri skólanemum
vinnu á vegum borgarinnar, en sá
háttur hefur verið hafður á
undanfarin ár.
Allmargir borgarfulltrúar tóku
til máls við þessa umræðu og voru
þeir á einu máli um að borgar-
stjórn yrði að taka þessi mál
föstum tökum og leggja til sér-
staka fjárveitingu svo forða
mætti stórfelldu atvinnuleysi
skólanema i sumar. Gætti i máli
flestra svartsýni um að hinn
almenni vinnumarkaður tæki til
sin jafnmargt skólafólk og undan-
farin ár vegna samdráttar I
framkvæmdum. —AI