Þjóðviljinn - 26.05.1979, Síða 2
/
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 26. maf 1979
LÍTIÐ GAGN AÐ HAFA OP-
IÐ LENGUR EN SKEMMT-
UNIN MÁ STANDA
Þetta er sannarlega skarplega athugað
og ber þess vott að skrifstof ustjóri dóms-
málaráðuneytisins er ekki aðeins lögfróður,
heldur og spakvitur.
Aftur á móti segir Sveinbjörn Bjarnason
lögregluvarðstjóri að ólíklegt væri að það fólk
sem sæti að sumbli á veitingahúsum að
næturþeli væri í sama mund að drekka í
heimahúsum, þ.e.a.s. ef um sama fólkið væri
að ræða, undir fyrirsögninni:
ÞÝÐIR EKKI AÐ PUKRAST
Á BAK VIÐ STAÐREYNDIR
Af bölvísindum
Frá því að ég var unglingur og lengst af
mínum æviferli, hefur það verið útbreidd
skoðun fræðimanna að hið svokallaða brenni-
vínsböl sé afleiðing þess hve drykkfelldir
menn eru. Hins vegar hafa skoðanir sérf róðra
í þessum efnum gerbreyst á síðari árum, enda
hafa þessi mál verið reifuð og rannsökuð af
meiri gaumgæfni uppá síðkastið helduren
flestar aðrar greinar „raunvísinda".
Þegar ég var að alast upp var talið að sá
maður hefði, ef til vill, tilhneigingu til að
verða ölkær, sem fyndist tilvalið að kíkja
aðeins í glas, ef hann vaknaði timbraður fár-
veikur, skítugur, skeggjaður, með glóðarauga
á báðum, hungraður, skuldugur, já fallítt,
konan farin að heiman, búið að reka hann úr
vinnunni,ógeðsleg hóra hjá honum í skítugu
bælinu, allir húsmunir brotnir og bramlaðir,
lögreglan að reyna að brjóta upp hjá honum
hurðina af því hann var grunaður um að hafa
drepið einhvern, rottur og kakkalakkaher-
sveitir uppum veggi og engin tæki nærtæk til
að svipta sig lífi.
( þá daga var sá maður talinn svolítið vfn-
hneigður, sem tók, þegar svona var á statt
svartadauðaf lösku undan koddanum , teygaði
hana vel niðurfyrir axlir, lagðist síðan aftur
útaf, svolitla stund — ekki of lengi — og naut
þess að vera — án þess að hafa svo mikið sem
farið framúr — orðinn bláedrú, heilbrigður,
hreinn, rakaður, mettur og skuldlaus, búinn að
fá vinnuna aftur, unaðsleg fegurðardís við
hliðina á honum milli tandurhreinna rekkju^
voða, lögreglan farin, af því að enginn hafði
verið drepinn, rottur og kakkalakkar horfin
eins og dögg f yrir sólu og í stuttu máli (að vísu
eftir þrjá gúlsopa í viðbót) komin lífsgleði í
staðinn fyrir sjálfsmorðsþanka.
Sérfræðingar í áfengisbölvísindum fyrri
tíma litu sumir hverjir svo á að slíkur maður
ætti við áfengisböl að stríða og að jaf nvel væri
hægt að rekja áfengisbölið til þeirra manna,
sem hefðu jafn gaman af því að lyfta glasi á
góðri stund og sá sem að f raman er lýst.
Nú hafa afturámóti skoðanir sérfræðinga á
þessum málum gerbreyst og mun það í dag
talið sönnu nær að áfengisbölið sé af félags-
legum toga spunnið, eins og raunar flest
annað, sem komið er frá Svíþjóð.
Dagblaðið gerði í miðjum mánuðinum mjög
yfirgripsmikla könnun á þessu máli og var
það gert með þeim hætti að rætt var við f lesta
af þeim, sem láta þessi mál til sín taka annað-
hvort vegna starfs síns eða af einskærum
áhuga.
Aðalniðurstaða þessarar rannsóknarblaða-
mennsku virtist í sem stystu máli sú, að
áfengisvandamálið væri ekki drykkjuskapur,
heldur opnunar- og lokunartími öldurhúsa.
Hér gefst ekki færi á að gera neina tæmandi
úttekt á hinum merku niðurstöðum sem birt-
ust í merkum viðtölum um þetta mál málanna
í dag, þarna í Dagblaðinu, en stórar og viða-
míklar fyrirsagnir um málið geta þó varpað
nokkru Ijósi á málið.
Sjálfur skrifstofustjóri dómsmálaráðu-
neytisins er til dæmis ómyrkur í máli, en
kjarni þess, sem hann hefur um málið að
segja birtist í stórfyrirsögninni:
Það að ekki þýðir að pukrast bakvið
staðreyndir hef ur Sveinbjörn áreiðanlega lært
af dýrmætri reynslu sem leynilög-
reglumaður.
Þá er stór fyrirsögn frá Afengisvarnarráðir
AUKIÐ FRAMBOÐ
EYKUR NEYSLU
Þessi spaklegu orð eru sannarlega í tíma
töluð og ættu íslendingar að geta af þeim
getið sér til um hvers vegna þjóðin étur slík
ókjör af kindaketi og sméri, en Reykvíkingar
hafa næstum lagt niður neyslu á dönskum
bjór.
SJÁLFSAGT AÐ LEGGJA
NIÐUR
HALFTÓLF-R EG LU N A
segir hinsvegar framkvæmdastjóri Þórskaff-
lisi’og hefur undirrituðum þá helst dottið í hug
að taka upp TóLFREGLUNA eins og gert var
í öskubusku, en þá má áfengisbölið ekki vera
komið á það stig að gestirnir týni skónum sín-
um, þegar þeir yfirgefa staðinn.
Semsagt,áfengisbölið er félagslegt opnunar-
og lokunarspursmál veitingahúsa og á
sáralítið skylt við það hvort menn drekka eða
drekka ekki, heldur hitt hvar, hvenær og hvers
vegna þeir gera það. Þess vegna er það lausn-
in á öllum áfengisvanda íslensku þjóðarinnar
að opna barína allan sólarhringinn svo fólk
hætti að drekka og taka undir orð
æðstatemplarans i Áfengisvarnarráði
Djömmum nú útum borg og bý,
börunum má ei gleyma,
því áfengisbölið er útaf því
að aliir drekka heima.
Floisi
Millisvæðamótið í Lucerne
Helgi kominn á skrið
Guðmundur efstur í A riðli með 4 vinninga og og Margeir með vænlega biðskák
Helgi ólafsson vann
skákir sinar við Karlsson
í 5. umferð og Lobron í 6.
umferð. Eftir það er
hann kominn með 3,5
vinninga og er í öðru sæti
í riðlinum. Guðmundur
Sigurjónsson vann bið-
skák sina við Hoen, vann
Kagan í 5. umferð og
gerði jafntefli við Haman
i þeirri sjöttu. Margeir
Pétursson tapaði biðskák
sinni við Hubner, á væn-
lega biðskák gegn Hoen
úr 5. umferð en tapaði
fyrir Kagan í 6. umferð.
Guftmundur er efstur I A
riðlinum, en Hiibner er aöeins
hálfum vinningi á eftir honum
og á biöskák þar sem öruggur
vinningur virðist blða hans. Að
öðru leiti vlsast á töflur.
Sigur Helga ólafssonar yfir
Karlsson frá Svlþjóð á fimmtu-
daginn var sérlega glæsilegur.
Helgi fórnaði mönnum á báða
bóga þannig aö ekki stóð steinn
yfir steini hjá Karlsson.
Litum nú á skákina.
Hvftur: Lars Karlsson, Sviþjóð.
Svartur: Helgi Ólafsson.
Sikileyjarvörn lokaöa af
brigöið) eöa hvaö!
1. Rf3-c5
2. g3-Rc6
3. Bg2-g6
4. 0-0-Bg7
5. e4-d6
6. c3-e5
7. Ra3-Rge7
8. Rc2-Db6
Staöan I A-riðli
1 V z. 3 y. £ 6. 7. K ?■ 0 //. l/ÍM
S'. fa/navt/ / Vz 0 k k. Z/í
z. //. fafíne ir.LfiMO o 'k o / ýí 2
3 T WObSBRG s.þ </z k ,bi Vz Á
V. 3. 5oo5 i/. þý$k V / biá o o fi Z'/i+bit
5T V. HflMMBg Sifiss k o / o o o rk
é. (f Si^u^jó^ss. ÍSL. k 'Á % / / V
7 /»■ 7%71/RSÍDN ísl . 'Á Á o bit 'O /-t'bií
<f rf MKTHENSoHfi/ Stiss o 'Á Zz bú / 2+bd
9. /?. t/ÚBVSR vþýsis / / ýí / íit 3/g.tbif
/o. tfoEtS //oReúúE / / o bií o 2'AtLii
£ 5. k'fizfiv í&rtfiEL. Vz / o /
9. d3-0-0 16. a4 — Hfe8
10. Rd2-Be6 17. R2a3 — Had8
11. Rc4-Dd8 18. Hfel — h6
12. De2-d5 19. Dc2 — a6
13. exd5-Rxd5 20. Bci — Rce7
14. Be3-b6 21. De2 — Rc6
15. Hadl-Dc7 22. Dc2 — Kh7
(Svartur hefur aö sjálfsögöu
engan áhuga á jafntefli)
23. h3 — f5
24. Db3 — Hb8
25. f4
(Nú byrjar ballið!)
Framhald á l’S siöu
Staðan I B-riðli:
jS fáúILL. z. 3. V 6. 7: 8. ?■ 0- // \/ÍM m.
/. y. RfWTRUEÚ fíyÆ k 0 íá b ;S brf /ztlbii
Z. f/. bLnrssDU ísl . k /í y / / *Á *k
3. C. f/or P moEt: / /l o // / 3
V. í. fCRELSSot/ s.hsáO bii o / • / / (9 3 fbit
5. C. LogRctJ V.þýsK. wí o Á 0 k •Á i/t -fbi/
é y. tsRut/Fno ísete. bíi / 0 / / /
7. /■ LtBeezotJ ísKrel 0 k bit /z /z '/'/l tírf
e. L . TkcRiriRtt V.þí’iE. /z / 'Á /z 3
<?. !/■ /ELyiEES HoREúue 0 / 0 1o$ k r/ztbií
/o. 0. DuecfsTEt/f Dvst. /z 0 •k 0 'Á k z
&■ IV. Hi/G sviss /z o / o /z 2/z