Þjóðviljinn - 26.05.1979, Qupperneq 15
Laugardagur 26. mal 1979 :*»JÓÐVILJINN — SIÐA 15
íþróttir
íþróttir (|
EITT OG
ANNAÐ
Aðalfundur
Aöalfundur Handknatt-
leiksdeildar Breiöabliks
veröur haldinn i dag kl. 17 i
Hamraborg 1 (3. hæö).
Félagar eru hvattir til aö
mæta.
Aðstoðarmaðurinn
kominn úr
leiðangrinum
Einn aöstoöarmanna Jupp
Derwall, vesturþýska lands-
liösþjálfarans, fór til Sviss á
þriöjudaginn gagngert til
þess aö njósna um islenska
liöiö.
í gær kom aöstoöar-
maöurinn hingaö til lands
hlaöinn upplýsingum, sem
vinna átti úr i gærkvöldi. I
dag sjáum viö síöan hvernig
þessi gagnasöfnun hefur
gengiö.
tirsliíakeppni
þriþrautarinnar
tJrslitakeppni i þríþraut
FRl og Æskunnar fer fram
sunnudaginn 27. mai oghefst
hún kl. 14.00. Keppnin fer
fram á Laugardalsvelii i
Reykjavik um leiö og
keppnin i 1. hluta Meistara-
móts Islands.
Þessi keppni hefur alltaf
fariöfram á Laugarvatni, en
núna er þaö ekki hægt þar
sem völlurinn þarer ekki til-
búinn til keppni.
Fimleikasýning
1 tilefni af 70 ára afmæli
ungmennafélagsins Aftur-
eldingar, Mosfellssveit,
veröur fimleikasýning i
iþróttahúsinu aö Varmá kl.
17 i dag.
Allt fremsta fimleikafólk
landsins mætir á sýningu
þessa og sýnir listir sinar.
Aukin aðsókn
Vegna snjóaleysis hefur
skiöalyftum i Bláfjöllum nú
veriö lokaö og starfsemi
þeirra hætt.
Fleira fólk hefur komiö i
Bláfjöll en nokkru sinni fyrr.
A þetta bæöi viö um aösókn I
skiöalyftur og i göngu-
brautir. Vafalaust má telja
aö bætt aöstaöa eigi hér
stóran hlut að máli. Sérstak-
lega hefur stólalyftan veriö
mikiö aödráttarafl og hefur
hún I hvivetna reynst eins og
best verður á kosiö. Einnig
hefur veriö lögö áhersla á
lagningu göngubrauta, sem
hefur veriö mjög vinsælt.
ÍSF stofnað
Stofnfundur Iþróttasam-
bands fatlaöra var haldinn
17. mal s.l. aö Hótel Loft-
leiöum og voru þaö 12
héraössambönd, sem stóöu
aö stofnun þess, en þaö er nú
fullgildur aöili aö 1S1.
1 fýrstu stjórn Iþróttasam-
bands fatlaöra voru kjörin:
Siguröur Magnússon,
skirfstofustj.,formaöur, Páll
B. Helgason, orku-og endur-
hæf ingalæknir, Höröur
Barödal, endurskoöandi,
Sigriöur Nielsdóttir, Iþrótta-
kennari, og Olafur Þ.
Jónsson, nuddmaöur.
Þorsteinn ólafsson átti mjög góöan leik I markinu gegn Sviss á þriöjudaginn, og I dag er lfklegt aö hann hafi ekki minna aö gera. Myndin hér
aö ofan var tekin af kappanum á æfingu I fyrradag, og er ekki slakað á i æfingunni.
Island — Vestur-Þýskaland á Laugardalsvelli kl. 14:
„Ég býst við mjög
skemmtílegum leik
sagði Helgi Daníelsson, formaður landsliðsnefndar
„I rauninni eigum við
litla möguleika gegn hinu
sterka þýska liði ef við
erum raunsæir, en svona
vináttuleikur vill oft verða
öðruvisi heldur en ef um
keppni er að ræða. Þannig
losna menn oft við
spennuna sem einkennir
keppnisleikina og fyrir
bragðið verður fótboltinn
betri. Já/ ég þori að lofa
skemmtilegum leik," sagði
Helgi Daníelsson, for-
maður landsliðsnefndar i
gærkvöldi þegar Þ jv. hafði
samband við hann.
Knattspyrnuáhugamenn hafa
mikiö velt vöngum yfir þvi hvern-
ig Islenska liðið veröur skipaö á
morgun, og i framhaldi af þvf
spurðum viö Helga hvort ekki
væri bUið aö velja byrjunarliöiö.
— Nei, ég get ekkert sagt um
þetta, þvi liöiö veröur ekki til-
kynnt fyrr en á fundi meö
strákunum I fyrramáliö. Þetta er
ekki eins og I gamla daga þegar
ég var I þessu, þvl þá fengum viö
bréf meö margra mánaöa fyrir-
vara og þar var sagt hvort maður
væri aöalmaöur eöa varamaöur.
Svo mörg voru þau orö, en Þjv.
ætlar að geta sér til um byrjunar-
liöið. Athuga ber þó aö Þjv. hefur
litla spádómsgáfu, sbr. getrauna-
spár:
Markm.: Þorsteinn Ólafsson.
Varnarm.: Arni Sveinsson,
Jóhannes Eövaldsson, Marteinn
Geirsson og Jón Pétursson.
Miöjum.: Janus Guölaugsson,
Atli Eövaldsson, Guömundur
Þorbjörnsson og Ingi Björn
Albertsson. Framlinum.: Pétur
Ormslev og Jón Oddsson.
Leikurinn hefst I dag á Laugar-
dalsvelli kl. 14.00 og er fyllsta '
ástæöa til þess aö hvetja fólk til
þess aö fjölmenna á völlinn og sjá
þessa vestur-þýsku knattspyrnu-
snillinga I viöureign viö okkar
stráka.
—IngH
Þórsarar sigruðu
Fylkismenn töpuöu tveimur
dýrmætum stigum i baráttunni i
2. deildinni i gærkvöldi þegar þeir
töpuöu fyrir Þór á Akureyri, 2-3.
Þórsarar voru betri aöilinn i
leiknum allan timann og verö-
skulduöu sigurinn.
Það sem e.t.v. réöi úrslitum var
brottrekstur Hilmars Sighvats-
sonar I fyrri hálfleiknum og þurfti
Fylkir aö leika meö aöeins 10
mönnum eftir þaö.
Oll mörk Þórsara skoraði Guö-
mundur Skarphéöinsson, en hann
hefur sýnt mjög góöa leiki þaö
sem af er keppnistimabilinu.
IngH
s
Ovænt tap Þróttar
Iþróttir um helgina
KNATTSPYRNA
Laugardagur:
Stærsti viöburöurinn á knatt-
spyrnusviöinu veröur án efa
landsleikur Islands og Vestur-
Þýskalands, fyrrum heimsmeist-'
ara. Leikurinn hefst kl. 14.00 á
Laugardalsvelli.
Aörir bitastæöir leikir eru þess-
ir:
Selfoss — Austri, 2.d., Selfossi kl.
16.00
Sunnudagur:
Þróttur — Reynir,
kaupst. kl. 14.00
2.d., Nes-
FRJALSAR
IÞRÓTTIR
Islandsmótiö I tugþraut karla
veröur haldiö á Laugardalsvelli á
morgun og hefst keppni kl. 15.00.
Einnig er áformað aö keppa I
fimmtarþraut og e.t.v. fleiri
greinum.
Nokkra furöu vekur, aö vertlö
frjálslþróttamanna hefst meö
keppni I tugþraut. Reyndar verö-
ur nokkuð um keppnir I f jölþraut-
um I sumar og þetta mót llklega
hugsaö sem undirbúningur fyrir
þær.
Þróttarar fengu Eyjamenn i
heimsókn á Melavöll á fimmtu-
daginn og var fyrirfram búist viö
því, aö Vcstmannaeyingarnir
yröu Þrótturum ekki Þrándur I
Götu. Annaö kom þó á daginn, þvi
IBV fór meö bæöi stígin meö sér
til Eyja eftir aö hafa sigraö 2-0.
Þróttararnir voru miklu ágeng-
ari i' byrjun og sóttu nokkuö stíft,
en tókst ekki aö skora. Reyndar
tókst Þorvaldi Þorvaldssyni að
skora, en markiö var dæmt af
vegna rangstööu og voru ekki all-
ir á einu máli um þann dóm.
Sveinn Sveinsson sá hins vegar
um aö koma tuörunni í Þróttar-
markiö á löglegan hátt meö lang-
skoti, sem var þaö laust aö
boltinn datt inn fyrir linuna, 1-0.
Leikurinn jafnaðist I seinni
hálfleiknum, en lltil hætta skap-
aöist upp viö mörkin. A 59 min.
skoruöu Eyjamenn aftur og var
þar Ömar Jóhannsson aö verki
eftir mikil mistök markvaröar
Þróttar, 2-0.
Leikurinn var heldur leiöinleg-
ur, og má segja, aö menn hlakki
tilaökomastá grasiö.
Mánudagur:
FH — UBK, 2.d., Kaplakrika kl.
20.
GOLF
Hin árlega þotukeppni Flug-
leiöa hjá Golfklúbbnum Keili,
verður haldin á Hvaleyrarvelli
þann 26. og 27. mai. Þotukeppnin
er fyrsta stiga-mót sumarsins og
veröa allir bestu kylfingar lands-
ins meöal þátttakenda. Leiknar
veröa 36 holur meö og án forgjaf-
ar, og hefst keppnin kl. 8,30 laug-
ardaginn 26. mai.
SVISS— ISLAND I SJÓN-
VARPINU
I iþróttaþættinum I dag veröur
leikur Islands og Sviss sýndur, en
hann fór fram á þriöjudaginn.
Nokkurt þref varö um leikinn, en
allt fór þó vel aö lokum, og Bjarni
sagöist vera nokkuð viss um aö
viö fengjum aö sjá leikinn. Á und-
an veröa myndir frá EM i fim-
leikum kvenna.
Úr ensku knattspyrnunni verö-
ur sýndur leikur WBA og Man-
chester United.