Þjóðviljinn - 02.06.1979, Page 1
UOÐVIUINN
Laugardagur 2. júni 1979 —124. tbl. 44. árg.
MJÓLKURSAM LÖGIN MEÐ HÓTANIR
Vinnslu hætt og
mjólk hellt niður
ef ekki leysist úr mjólkurfrœöingadeilunni
,,Það er óhjákvæmileg stað-
reynd að fyrr eða seinna verður
að hætta að taka á móti mjólk til
vinnslu ogef til vill veröur að loka
mjólkurbiíðunum og i framhaldi
af þvi að segja upp fastráðnu
starfsfólki. Bændur hafa ekki efni
á að hella niður mjólk og greiða
samt starfsfólki áfram fullt kaup,
án þess að það hafi verkefni. í
landbúnaðinum er að skapast
neyðarástand, sem ekki er séð
hvernig verður leyst.”
Þannig hljóöar kafli úr greinar-
gerð sem mjólkursamlögin
afhentu blaöamönnum á fundi i
mjólkurstöðinni i Reykjavlk I
gær.
A fundinum kom fram hjá
forsvarsmönnum samlaganna að
samlögin telja sér ekki fært aö
semja við mjólkurfræðinga nú
eins og ástatt er i þjóðfélaginu
„Þeir þe. mjólkurfræðingar, eru
tekjuhæsti starfshópurinn i
mjólkurbúunum og tekjuhækkun
hjá þeim hópi umfram aðra
myndi kalla á kaupha*kun hjá
öðru starfsliði mjólkurbúanna og
siðan siast út i allt launakerfið i
landinu. A meðan rikisvaldið er
aðreyna að ná tökum á veröbólg-
unni telja forráðamenn mjólkur-
samlaganna að þeir geti ekki
brotið isinn á þessu sviði,” segir i
greinargerð samtoganna,
Aðspuröir sögðust mjólkur-
samlagsmennirnir ekki hafa
orðið fyrir þrýstingi frá Vinnu-
veitendasambandi Islands
varðandi niðurhellingu á mjólk.
Það væri einhugur um þessar aö-
gerðir innan allra samlaganna og
mættu menn eiga von á að þær
kæmu til fljótlega eftir helgina.
Rikisstjórnin hefur rætt mikið
þessi mál að sögn samlagsmanna
en ekki hafa enn verið teknar
neinar ákvarðanir til að koma i
veg fyrir að mjólk verði hellt
niður.
Bændur telja sig tapa að
meöaltali 9.000 kr. á dag á hvern
meðalbónda þessa dagana vegna
þess hve stór hluti af mjólkinni
fer i vinnslu á ostum og smjöri
sem ekki eru lengur til neinar
útflutningsbætur fyrir.
Kaldasti
maí í
heila öld
Mai-mánuðurinn sem nú var að
liöa er langkaldasti maimánuður
sem komið hefur hér á landi síðan
mælingar hófust fyrir um það bil
100 árum. Munurinn á þessum
mánuði og þeim kaldasta hingað
til er á milli 1 og 2 gráður á þeim
stöðum, sem reiknaðir hafa verið
út i dag, og er það rúmri 4 1/2
gráðu kaldara en I meðalári. Að
sögn Þóris Sigurössonar veður-
fræöings var meðalhitinn i
Reykjavik núna 2.3 gráður, en
kaldasti mánuður til þessa var
maimánuður 1888, en þá var með-
alhitinn 3.3 gráður. 1 Stykkis-
hólmi hófust mælingar 1845 og
köldustu mánuðurnir hingað til
voru mai 1866 og 1906, en þá var
meðalhitinn 1.4 gráður. Núna var
meöalhitinn hins vegar 0.9 gráð-
ur.
A Akureyri var meðalhitinn
minus 0.3 gráður, á Raufarhöfn
minus 1.9 gráða og er þetta 6-6 1/2
gráðu kaldara en i meðalári.
Kaldasti mánuður sem mælst
hefur á Akureyri hingað til var
mai mánuður 1906, en þá var
meðalhitinn 1 1/2 gráða eða
tæpum 2 gráðum hlýrri en i ár.
A Höfn i Hornafirði var meðal-
hitinn í maí núna, 1 1/2 gráða,
sem er 4.7 gráðum kaldara en I
meðalári.
Vorið i heild, þ.e. april og maí,
eru þvi með þeim köldustu sem
komið hafa. 1 Reykjavik var þó
vorið 1949kaldara, þá var meðal-
hitinn 1.8 gráður, en nú 2.2 gráð-
ur.
-Þig
Margir
yilja LSD
1 gærkvöld var útrunninn um-
sóknarfrestur um stöðu yfir-
manns Lista- og skemmtideildar
sjónvarpsins. Að sögn Andrésar
Björnssonar útvarpsstjóra eru
umsækjendur um tiu talsins en
hann vildi ekki gefa upp nöfn
þeirra að svo stöddu, þar sem
umsóknir voru enn að berast I
gær.
Að þvi er Þjóðviljinn hefúr
fregnað eftir öðrum leiðum munu
eftirfarandi vera meðal umsækj-
enda: Bryndls Schram, Erlingur
Halldórsson, Tage Ammendrup,
Elinborg Stefánsdóttir, Ragnar
Jónsson, Jón örn Marinósson,
Hinrik Bjarnason, Róska og
Hrafn Gunnlaugsson.
—vh
Innan skamms frumsýnir Alþýðuleikhúsið nýtt Islenskt leikrit
sem nefnist „Blómarósir”. Höfundur er ólafur Haukur Sfmon-
arson en leikstjóri er Þórhildur Þorleifsdóttir. Þjóðviljinn leit
inn á æfingu fyrir skömmu og spjallaði við höfund og leikstjóra.
— Sjá opnu.
m ■ mm m mma mm ■ bm ■■ ■ mm ■ m ■ mi ■ ■ ■ ■■ ■ m ■ mm ■ csa
Vilhjálmur Jónsson, forstjóri Oiíufélagsins h.f.
Hvergi ódýrari olía
Flutningsgjöldin frá Sovétríkjunum eru mjög hagkvæm
„Ég held að það sé ekki neinn
möguleiki að kaupa ódýrari oliu
annarsstaðar en frá Sovétrlkjun-
um,” sagði Vilhjálmur Jónsson
forstjóri óllufélagsins hf. I sam-
tali við Þjóðviljann I gær. ,,Það
er skortur á óliu I heiminum, en
menn viröast eiga erfitt með aö
gera sér grein fyrir þvl.”
Vilhjálmur sagði að þessi
skortur heföi leitt til þess, að
stóru oliufélögin tækju ekki við
nýjum viðskiptamönnum. Þau
reyndu að láta viöskiptaaðilja
sinahafa þá oliusem þaugætu og
jafnvel draga heldur úr magninu.
ESSO miöaöi t.d. við afgreiðslu
siðasta árs og drægi slðan 10%
frá.
Sem dæmi um samdráttinn
nefndi hann að Texaco, sem er
þriðja stærsta ollufélag i heimi,
hefðu tilkynnt Flugleiöum, sem
hafa haft samning við þá I Frank-
furt, aö félagiö verði að loka öllu
þar og Flugleiðir geti ekki fengið
hjá þeim eldsneyti frá 1. júni.
Flugleiðir eru þvi að leita fyrir
sér hjá öörum ollufélögum um
þessar mundir og Oliufélagið
grennslaðist m.a. fyrir um hvort
Framhald á bls. 22
Kristinn
Finnbogason
náöi sínu
í Iscargo
Sjá frétt á sídu 3
pFá sk7pai'élög Té úr 'bönkúin í hérkostnað?]
Þjóðviljanum barst til eyrna I
gær að skipafélögin Hafskip og
Eimskip hefðu að undanförnu
fengið stórfelldan yfirdrátt hjá
Lands bankanum og (Jtvegs-
bankanum m.a. til þess að
standa undir herkostnaði I yfir-
standandi deilu þessara félaga
viö farmenn. Jónas Rafnar
bankastjóri (Jtvegsbankans
■ ■■■■■■nillBIHDI
kvað það af og frá að Hafskip
hefði fengið einhverja auka-
fyrirgreiðslu nú vegna verk-
fallsins, þvert á móti hefðu
viðskipti þess við bankann dreg-
ist saman siðustu vikur.
Bankaráð Landsbankans var
á fundi siðdegis i gær, en
Þjóðviljinn haföi samband við
Atla Viðar Jónsson yfirmann
nndðijui i uivcgbudiiKdiia rtiid viudi juiibbuii yiiriridnn
Hlaupareikningsdeildar Lands-
bankans. „Mér er óheimilt að |
gefa það upp. Ég get þvi hvorki "
svarað þessu með jái eða neii”, |
sagði Atli Viðar er Þjóöviljinn ■
spurði hvort Hafskip og Eim- J
skip hefðu fengið aukinn yfir- I
drátt hjá bankanum á siðustu I
vikum.
—ÞIG b
isniwstaiaasiamiKi wm
Rætt vid Gudmund
J. Guðmundsson
SJÁ SÍÐU 6
Vésteinn Lúdvíks-
son skrifar um
leiklistina í Ijósi
Prinsessunnar
á bauninni
SJÁ SÍÐU 7
Vidtal við gamlan
franskan sæúlf
frá Pompól, sem
strandaði við
Ingólfshöfða 1912
SJÁ SÍÐU 8
SJÁ SÍÐU 15
SJA SIÐU 4
Lúðvík Jósepsson
skrifar um afstöðu
Sjálfstæðisflokks-
ins til bænda
Rætt við Öddu
Báru Sigfúsdóttur