Þjóðviljinn - 02.06.1979, Blaðsíða 15
Laugardagur 2. júnl 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIDA 15
Málefni aldraðra koma okkur öllum við og nú er ýmislegt á döfinni hjá Reykjavikurborg þeim til handa. Myndin er tekin á Hrafnistu I janúar sl.;það er greiniiega spenna
ispilinu. — Ljósm.: Leifur.
Rætt viö
Öddu Báru
Sigfúsdóttur
formann
heilbrigðis-
málaráös
MÁLEFNI ALDRAÐRA
í REYKJAVÍK
„Heilmikið ad gerast”
Oft er til þess vitnað að samfélagið á skyldum
að gegna við elstu kynslóðina sem sest er i helgan
stein. Gamla fólkið sem löngu hefur skilað sinu
dagsverki ætti að geta lifað áhyggjulaust og
ánægt á sinu ævikvöldi.
Við vitum öli að sú er ekki raunin. Allt of margt
aldrað fólk býr við bágar aðstæður, er einmana
og öryggislaust ef ekki bláfátækt.
Borgarstjórnarmeirihluti vinstri manna er eins
árs um þessar mundir. Hvað er hann að gera
fyrir aldraða? Við gengum á fund Öddu Báru
Sigfúsdóttur sem er form. heilbrigðismálaráðs og
leituðum fregna af framkvæmdum borgarinnar
öldruðum til handa.
— bað er heilmikið að
gerast i málefnum aldraðra ,
sagði Adda Bára. Dvalar-
heimili aldraðra er i byggingu
við Dalbraut. Þar er stór aðal-
bygging með ibúðum fyrir ein-
staklinga og einnig þrjú stök hús
með ibúðum fyrir hjón. Alls eru
þetta 18 hjónaibúðir og 46 ein-
staklingsibúðir.
Þarna verður veitt ýmis
konar þjónusta t.d. fullkomið
eldhús auk eldunaraðstöðu i
hverri ibúð. Hver einstaklingur
fær alla þá þjónustu sem hann
þarf og vakt verður allan sólar-
hringinn. I stærri byggingunni
er rúmgott anddyri, þar sem
verður verslun og hægt verður
að setjast niður og fá sér kaffi
og bjóða gestum með sér eða að
ræða við aðra ibúa.
1 dvalarheimilinu verður aö-
staða fyrir likamsþjálfun og
einnig föndurherbergi. Þetta
heimili er likt þvi sem opnað var
i vetur við Lönguhlið, en við
Dalbrautina verður meiri þjón-
usta.
Nœsta verkefni
— Þá er einnig verið að
teikna heimili fyrir 60 manns á
reitnum bak við Heilsuverndar-
stöðina. Það veröur næsta verk-
efnið. Þar veröur fólk sem þarf
á umönnun að halda og með
þvi verður væntanlega hægt að
sinna fólki sem er umhirðulitið i
heimahúsum.
I fyrra þegar ibúðirnar við
Lönguhlið voru auglýstar
bárust 210 umsóknir um 30
ibúðir. Það er þvi enn eftir að
bæta úr þörf margra. Þeir sem
sóttu um þá, þurfa ekki að sækja
um aftur, en bráðlega verða
ibúöirnar við Dalbraut
auglýstar.
Hafnarbúöir og
Arnarholt
— 1 Hafnarbúðum tekur
bráðlega til starfa dagdeild —
fólk kemur þá á morgnana og er
daglangt. Það nýtur læknisþjón-
ustu og fær hressingu. Þessi
þjónusta léttir á heimilum og
verður gamla fólkinu væntan-
lega einnig til ánægju.
— Það er veriö að endur-
skipuleggja starfsemi geðdeild-
arinnar i Arnarholti. Nú er farið
að keyra starfsfólkið úr og i
bæinrt og við það losnaði hús.
Borgarspitalinn er að sækja um
leyfi til ráðuneytisins til að fá aö
nota húsið sem hluta af spital-
anum. Þá verður hægt að taka
við 23 sjúklingum i viðbót. 1
tengslum við þessar breytingar
hefur verið unniö að endurskipu-
«
lagningu geðdeildarinnar.
Starfshópur vann að þessum
breytingum, en i honum var
meðal annarra yfirlæknirinn
Karl Strand. Þessar breytingar
eru i undirbúningi og búið að
samþykkja þær i stjórn spital-
ans.
Nýja slysadeildin
— Ef við vikjum nánar að
sjúkrahúsmálum þá er verið að
ljúka við nýja slysadeild sem
hefur reyndar verið allt of lengi
i byggingu, þar hafa áætlanir
staðist illa.
Það á að flytja i nýju álmuna i
sumar og þá verður ekki aðeins
um að ræða að slysadeildin fái
nýtt húsnæði til umráða, heldur
á það öngþveiti, sem skapast
vegna fólks sem þarf að fá
framhaldsmeðferð, að vera úr
sögunni.
Vaktþjónustan um helgar og á
nóttunni verður þarna til húsa
og fær betri aðstöðu.
Sundlaugin við
Grensásdeildina
Þá ber einnig að nefna aö búið
er að greiða úr flækjunni vegna
sundlaugar við Grensás-
deildina.
1 fyrra var deilt um
kostnaðarskiptinguna milli rikis
og borgar, en við gerð fjárlaga
fyrir þetta ár var endanlega úr
þvi skorið að rikið tekur fullan
þátt i þessari byggingu sam-
kvæmt lögum um sjúkrahús og
greiðir 85% af byggingar-
kostnaði.
Brautin er nú alveg bein og
gaman væri að geta tekið sund-
laugina i notkun á Ari fatlaðra,
1980.
—ká