Þjóðviljinn - 06.07.1979, Side 2
2 StPA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 6. júll 1979
Bandalag hægri
flokka í Portúgal
Afsegja stjórnarsamstarf við
Sósíalistaflokkinn
5/7 — Þrir meira eða minna
hægrisinnaðir portúgalskir
stjórnmálalflokkar tilkynntu i
dag, að þeir hefðu komist að sam-
komulagi um aö vinna saman i
baráttunni fyrir næstu þingkosn-
ingar. Flokkar þessir eru mið-
demókratar, en svo nefnist helsti
ihaldsflokkur Portúgals, sósial-
demókratar, sem þrátt fyrir
nafnið eru i Reuters-frétt sagðir
til hægri við miðju og svokallaður
Aiþýðuflokkur konungssinna,
sem einkum berst fyrir þvi aö
endurreisa konungdæmi i Portú-
gal.
Stjórnarkreppa er nú i Portúgal
eftir að utanþingsstjórn Carlos
Mota Pinto varð að segja af sér,
en afsögnin mun einkum hafa
stafað af þvi að honum samdi
ekki við vinstriflokkana, Sósial-
istaflokkinn og Kommúnista-
flokkinn. Þessir flokkar hafa til
samans meirihluta i þinginu.
Hægriflokkarnir þrir segja
bandalag sitt til þess ætlað aö
hnekkja þingmeirihluta vinstri-
flokkanna og að sögn talsmanna
flokkanna þriggja er þaö af og frá
að þeir gangi til stjórnarsam-
starfs við Sösialistaflokkinn.
Samstarfið nær þó ekki lengra
en svo, að hægriflokkarnir þrir
munu bjóða fram hver i sinu lagi i
næstu þingkosningum, en hins-
Soares (til vinstri) og C'unhal,
leiðtogar Sósialistaflokksins og
Kommúnistaflokksins; — hægri-
flokkarnir hyggjast hnekkja
þingmeirihluta þeirra.
vegar hafa þeir oröið sammála
um að sameinast um einn fram-
bjóðanda I næstu forsetakosning-
um, sem eiga að fara fram 1981.
Miðdemókratar hafa 41 þing-
mann og sósialdemókratar 36 af
263 alls i núverandi þingi. Hinn
konungssinnaði Alþýöuflokkur er
hinsvegar fylgislitill og á engan
fulltrúa á þingi.
Tökum að okkur
viðgerðir og nýsmiði á fasteignum.
Smiðum eldhúsinnréttingar; einnig við-
gerðir á eldri innréttingum. Gerum við
leka vegna steypugalla.
Verslið við ábyrga aðila
TRÉSMIÐAVERKSTÆÐIÐ
Bergstaðastræti 33, simar 41070.
Blikkiðjan
Ásgarði 7, Garðabæ
önnumst þakrennusmíði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmiði.
Gerum föst verðtilboð
SÍMI53468
Elsku litli sonur okkar og bóöir
Heimir Snær
Úthaga 11, Selfossi
lést á Barnaspitala Hringsins 4. júli
Lilja Hannibalsdóttir
Halldór Hafsteinsson og
systkini hins látna
Hjartkær sonur okkar
Guðmundur Jón Þórðarson
Reykjaborg, Mosfellssveit,
lést af slysförum 4. júli.
Fyrir hönd unnustu og systkina og annarra vandamanna-
Freyja Norödaht
Þórður Guðmundsson
Sandinistar á farartækjum, sem þeir hafa tekið herfangi frá hersveit-
um Somoza.
Sandinistar í
mikilli sókn
Liðsforingjar Somoza segja hann
enn studdan af USA
5/7 — Hersveitir Somoza virðast
nú viöast hvar fara halloka I bar-
dögunum i Nicaragua en ekkert
lát virðist ennþá á hörkunni i
bardögunum. Fréttamaður Reut-
ers i Managua hefur eftir heim-
ildarmönnum viösvegar um land
að Sandinistar sæki nú fram á öll-
um vigstöðvum og muni vera að
búa sig undir nýja sókn til höfuö-
borgarinnar.
Sandinistar halda áfram að
styrkja aðstöðu sina i noröurhluta
landsins, sem mun að mestu leyti
þegar á þeirra valdi, og tóku ný-
verið bæinn Santo Tomas, sem er
i norðvesturhéruðunum skammt
frá landamærum Hondúras. Sið-
ustu þrjá dagana hafa hersveitir
Somoza gert örvæntingarfull á-
hlaup i þvi skyni að stöðva sókn
Sandinista bæöi fyrir sunnan og
norðan höfuðborgina, en þær at-
lögur virðast hafa mistekist til
þessa. Sókn, sem Somoza hafði
boðaö og sagði að ætlað væri aö
hrekja skæruliðana i suðurhéruð-
unum suður yfir landamærin inn I
Kostariku, viröist til dæmis ekk-
íram
ert hafa komist I ganginn ennþá.
Flugvélar Somoza vörpuðu i gær
sprengjum á bæi rétt við kosta-
rikönsku landamærin.
1 San José, höfuöborg Kosta-
riku, komu i gær fram á blaða-
mannafundi fimm liðhlaupar úr
„þjóðvarðarliöi” Somoza, þeirra
á meðal tveir ofurstar. Fóru þeir
höröum orðum um Somoza
stjórnina fyrir sprengjuárásir
hennar á óbreytta borgara. Þeir
staöfestu þær fullyrðingar Sand-
inista að E1 Salvador og Gúate-
mala létu Somoza i té vopn og
skotfæri og væru riki þessi til þess
knúin af Bandarikjunum.
Að sögn talsmanns Somoza -
stjórnarinnar er nú William
Bowder, sendimaður Bandarikja-
stjórnar, i Kostariku og ræöir við
fulltrúa Sandinista, aö likindum i
þvi skyni að fá þá til að sættast á
vopnahlé með þeim kostum, að
stuðningsmenn Somoza haldi að
einhverju leyti völdum og itökum
i Nicaragua, jafnvel þótt höfuö-
paurinn sjálfur hverfi af sjónar-
sviðinu.
Komeiní gegn
vinstrisinnum
5/7 — Atök aukast nú i Iran milli
Komeinis erkiklerks og stuðn-
ingsmanna hans annarsvegar en
hinsvegar skæruliðasamtakanna
Múdjahedin.semað sögn eru bæöi
vinstrisinnuö og trúarlega þenkj-
andi. Skæruliðar Múdjahedin
gengu vel fram i bardögunum i
Teheran i febrúar, þegar keisara-
stjórninni var steypt.
Nú hefur einn af forustumönn-
um Múdjahedin, Mohammed
Resa Saddati að nafni, verið
handtekinn og saka núverandi
yfirvöld hann um njósnir fyrir So-
vétrikin. Félagar hans neita að
hann sé sekur og segja að hanp
hafi einungis haft samband viö
sovéska sendiráðiö i Teheran að
skipun ráðamanna byltingarinn-
ar, i þeim tilgangi að fá hjá sendi-
ráðinu lista yfir njósnara banda-
risku leyniþjónustunnar CIA i
borginni, en ekki kemur fram i
fréttinni hvort hann haföi erindi
sem erfiði. Félagar Saddatis
segja einnig aö hann hafi sætt
pyndingum i fangelsinu.
Geysif jölmennir mótmæla-
fundir voru i gær haldnir I
Teheran til stuönings Saddati og
Múdjahedin. I dag voru þrir Mú-
djahedin-félagar handteknir af
Komeini-varðliðum I hinni helgu
borg Kún, og eru þeir sakaðir um
að hafa varpað sprengju á æf-
ingasvæöi Islamskra byltingar-
varðliða, en svo eru varðliðar Ko-
Talleghani, hinn frjálslyndi trú-
arleiðtogi i Teheran — býöur
hann Komeini byrginn?
meinis nefndir. Æstur mannfjöldi
réðist á aðalstöðvar Múdjahedin i
Kúm og braut þar allt og braml-
aði.
Makmúd Talleghani ajatolla,
sem er sagður heldur frjálslyndur
og vinstrisinnaur, tekur aö
nokkru svari Múdjahedin, enda
eru synir hans þar meöal liðs-
manna. Hann hefur aðsetur i
Teheran. Átök þessi eru talin
merki um vaxandi spennu milli
Komeinis og vinstrisinna.
Lögvernd gegn
tölvum
3/7 — Svissneska stjórnin til-
kynnti i dag að hún hyggðist
innleiöa ný lög, sem heimil-
uðu þarlendum rikisborgur-
um að ganga úr skugga um,
hvaða upplýsingar um þá
væru i vörslu yfirvalda.
Sagði talsmaður dómsmála-
ráðuneytisins að samkvæmt
þessum fyrirhuguðu lögum
mættu menn leiðrétta allt
það, sem ranghermt kynni
að vera i skýrslum yfirvalda
um þá, og taka burt ónauð-
synleg atriði.
Talsmaðurinn sagði enn-
fremur að sívaxandi fjöldi
tölvubanka gerði slik lög
nauðsynleg. Að sögn tals-
manna ráöuneytisins eru
svipuð lög um friöhelgi
einkalifs manna gagnvart
yfirvöldum þegar I gildi i
Bandarikjunum, Sviþjóð,
Kanada og sumum fylkja
Vestur-Þýskalands.
Hjálp til
nicaragiskra
flóttamanna
5/7 — Alþjóðleg kaþólsk
hjálparstofnun, Caritas Int-
ernationalis, hefur sent hjálp
að verðmæti 1.5 miljón doll-
ara til þess að sjá um 60.000
flóttamönnum i Nicaragua
fyrir fæði, fötum og þaki yfir
höfuöið til bráðabirgða. Auk
þess hefur Caritas sent
300.000 dollara aðstoð til nic-
aragiskra flóttamanna I
Hondúras og Kostariku,
grannrikjum Nicaragua.
Tjöruborgar-
klerkur kviðinn
út af ETA
5/7 — Ferðaskrifstofa
prestsins i Tjæreborg, ein sú
stærsta i Danmörku, gaf I
dag viðskiptavinum sinum,
þeim sem pantað hafa ferðir
til meginlands Spánar, kost á
að taka i staðinn ferðir til
ýmissa annarra landa og
staða, svo sem Grikklands,
ttaliu, Mallorca og Ibiza. Er
þetta gert vegna óttans viö
sprengingar Eta.
Skæruliðar
sleppa
bankamönnum
5/7 — Tveir Bretar, báðir
starfsmenn Lloyds Bank Int-
ernational, voru látnir lausir
á mánudaginn eftir sjö mán-
aða fangavist hjá vinstri-
sinnuðum skæruliðum i E1
Salvador. Slepptu skærulið-
arnir þeim eftir að bankinn
haföi greitt fyrir þá lausnar-
gjald, sem krafist var. Þeir
segjast hafa sætt ágætri
meðferð i fangavistinni,
meira að segja fengið uppá-
haldsviskiið sitt og mikla
lesningu til að drepa timann.
Kristileg
kvenna-
ráðstefna vill
fóstureyðingar
5/7 — Kristnar konur frá 31
landi skoruöu I dag á kirkjur
heimsins að vinna að þvi að
fóstureyðingar yrðu lögum
samkvæmt algerlega frjálsar.
Var þetta samþykkt á kvenna-
ráöstefnu á vegum Heims-
kirkjuráðsins, sem nærri 300
kirkjufélög eiga aðild aö.
Ráöstefnan hafði mannrétt-
indi til umfjöllunar, og i sam-
þykktinni segir að hver kona
ætti að hafa rétt á aö ákveða
sjálf á „eigin siðferöilegum,
siðfræðilegum, trúarlegum
og/eða efnahagslegum grund-
velli” hvort hún léti eyöa
fóstri eða ekki.