Þjóðviljinn - 06.07.1979, Page 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 6. júll 1979
Hér má sjá Jónlnu Stefánsdóttur viö rannsóknir á lagmeti.
Aöstaöa til gerlafræöilegra rannsókna er allgóö á stofnuninni og hér
má sjá Sólveigu ólafsdóttur viö störf sin.
Matvælarannsóknir rlkisins annast einnig eftirlit meö drykkjarvatni
og sundlauga vatni og hér er Guölaugur Hannesson aö mæla klórmagn I
sýni frá Sundlaug Vesturbæjar.
Efnafræöistofan, sem nú er geymsla, kaffistofa og skrifstofa, þar sem engar fjárveitingar hafa fengist
til tækjakaupa.
Engin aðstaða er
til efnagreininga
Það var nóg að gera hjá
Matvæiarannsóknum
rikisins þegar blaðamenn
Þjóðviljans litu þar inn í
fyrradag.
Fyrir lágu tugir sýna af
niöursuðuvöru og lagmeti
sem hei Ibrigðiseftirlit
Reykjavikurborgar hefur
safnað undanfarna dagay í
framhaldi af beiðni Heil-.
brigðiseftirlits rikisins um
úttekt á slíku vörufram-
boði hér.
ÚBÚÐ ÓSKAST
Skólastjórahjón utan af landi óska að taka
3ja til 4ra herb. ibúð i Reykjavik á leigu
næsta vetur.
Upplýsingar i sima 93-2698 eftir kl. 17 eða i
sima 25406.
Blaðberar
óskast í
Afleysingar:
Kaplaskjólsvegur •
(8. — 22. júli)
Norðurmýri (8. — 14. júli)
Hjónagarðar (frá 10. júli)
/r/ðmu/M
Siðumúla 6, sími 813 &
Auglýsið í
Þjóðviljanum
DWDVIUINN
Fregnir Neytendasamtakanna
af skemmdu niðurlögðu lagmeti i
siðustu viku hafa heldur betur
vakið umræðu um matvælaeftirlit
i landinu en i könnun samtakanna
kom i ljós að á markaðnum er
gamalt og skemmt lagmeti sem
bæði er óneysluhæft og ósöluhæft.
Heilbrigðiseftirlit borgarinnar
hefur nú safnað talsverðu magni
af innlendum og erlendum dósa-
mat af þessu tagi og sagði Þór-
hallur Halldórsson forstöðu-
maður þess i samtali við Þjóðvilj-
ann að sýnin væru tekin úr 5 stór-
verslunum, sem liklegar þættu til
að hafa mikið úrval af þessum
vörum.
Sýnin eru send til Matvæla-
rannsókna rikisins sem er þjón-
ustustofnun fyrir heilbrigöis-
nefndir sveitarfélaganna og ann-
ast á gerlafræöilegar og efna-
fræðilegar rannsóknir á matvæl-
um fyrir þær.
Guölaugur Hannesson forstöðu-
maður Matvælarannsóknanna
sagði að þar væri þó einungis að-
staða til að framkvæma gerla-
fræðilegt eftirlit svo og þyngdar-
mælingar, en engin efnafræði-
stofa né tæki til efnagreiningar
eru til á stofnuninni, sem þó hefur
starfað i hartnær tvö ár. 1 hús-
rými þvi sem rannsóknarstofan á
að vera i standa nú himinháir1
staflar af kössum, auk þess sem
skrifstofa stofnunarinnar og
kaffistofa starfsfólks er hýst þar.
Sagði Guðlaugur að stofnunin
gæti engan veginn annast hlut-
verk sitt sem skyldi við þessar
aðstæður en fjárveitingar til
tækjakaupa hafa ekki fengist.
Alda Möller matvælaverk-
fræðingur á Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins annast efnafræði-
legan • hluta rannsóknanna og
sagði Guðlaugur að góð samvinna
væri milli þessara aðila, þó auð-
vitað væri æskilegt að stofnuninni
væri gert kleift að rækja hlutverk
sitt að fullu.
—AI
Rannsóknar-
stofan er
jafnframt
skrifstofa,
kaffístofa
og geymsla