Þjóðviljinn - 06.07.1979, Síða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 6. júll 1979
Umsjón: Magnús H. Gíslasson
Frá Seyöisfiröi
Lokauppgjör
frá Vopnafirði og Seyðisfirði
Afli •Austf.iarða’báta á siöustui
vertið var nokkuð góður miðað'
við i fyrra þegar tekið er tillit til
þorskveiðibannsins um páskana
og gæftaleysis seinni part febrú-
armánaðar.
Samkvæmt bráðabirgðatölum
er afli sem kom á land á Aust-
fjörðum fjóra fyrstu mánuði árs-
ins áætlaður 17.320 lestir á móti
13.804 lestum á sama tima i fyrra,
eða aflaaukning um rúmlega
25%.
I þessum þætti verða gefnar
upp aflatölur frá Vopnafirði og
Seyðisfirði.
A Vopnafirði varð heildaraflinn
nokkuð meiri i ár en á siðustu
vertið þar á undan,en á Seyðis-
firði var landað nokkuð minni
afla á þessari vertið en oftast
áður og ber að rekja það til
lagfæringa sem gerðar voru á
hraðfrystihúsi þeirra Seyð-
firðinga i janúar, en þá var aðeins
10 tonnum af bolfiski landað á
Seyöisfirði.
A Vopnafirði landaði skuttogari
heimamanna Brettingur NS 50
nokkuð reglulega þennan tima
eða alls 11 sinnum og alls rúm-
lega 900 tonnum.
Fáir bátar lögðu upp á Vopna-
firði en tvo fyrstu mánuðina land-
aði Alda RE alls 10 sinnum en
Alda gerði út á linuveiðar.
1 mai og april Iönduðu nokkrír
bátar á annað hundrað tonnum.
Annars varð aflaskiptingin þessi
svo best verður séð.
Linu og netabátar róðrar ' afli
Alda RE 10 17.81
Þerna NS 10 57.21
Fiskanes NS 10 36,81
Rita NS 4 8,31
Skuttogarinn Veiöif. afli
Brettingur NS 50 11 941,51
Heildaraflinn á vert. 1978 — 1.1471
1979 — 1.233t
Frá Seyðisfirði eru geröir út‘
tveir togarar þeir Gullberg og
Gullver. Gullberg hefur aflað vél
það sem af er árinu; báðir togar-
arnir hafa landað tvisvar erlendis
þe. i janúar og febrúar þegar
frystihúsið á Seyðisfirði var
lokað. Gullberg landaði i bæði
skiptin i Bretlandi (Grimsby og
Hull) alls 203 lestum.
Gullver landaöi hins vegar i
Grimsby og i Færeyjum alls 199,4
Litil sem engin bátaútgerð hef-
ur verið frá Seyðisfirði þennan
tima en tveir linubátar Iönduðu
alls 9,7 tonnum i janúar eftir 7
róðra.
Þá landaði einnig togbáturinn
Ólafur Magnússon EA 250 tvisvar
i mars og april.
Annars varð aflinn þessi hjá
skipunum.
Togbátar veiöif. afli
Ólafur Magnuss. EA 2 181.81
Skuttogarar veiöif. afli
Gullberg NS 11 9 948.91
Gullver NS 12 9 772.41
Heildaraflinn á vertiðinni
1978 — 2.222 t
1979 —1.7791
Við losnuðum
seint við ísinn
Rætt við Sigurð Jónsson á Vopnafirði
„Það er sæmilegur reitingur
hjá bátunum núna, en annars hef-
ur þetta verið hálflélegt upp á sið-
kastiö” sagði Siguröur Jónsson i
Hraðfrystihúsinu Tanga á Vopna-
firöi i samtali við Þjóöviljann i
vikunni.
„Brettingur landaöi hérna i gær
110 tonnurú af ágætis fiski mest
megnis þorski held ég, annars hef
ég ekki séð matið ennþá. t siðasta
túr var togarinn á skrapi, en fór
siöan i smávegis botnhreinsun inn
til Akureyrar. Hjá bátunum hefur
þetta verið upp og ofan. Tveir af
stærri bæatunum fóru á vertið
fyrir sunnan i vetur þegar Isinn
hamlaði mestalla veiði héðan.
Smærri trillur sátu allar fastar
en upp á siðkastiö hefur aukist
dálitið af þeim hérna, en núna eru
þær að ljúka grásleppuvertiðinni
og það hefur bara gengið ágæt-
lega hjá þeim þrátt fyrir erfið-
leikana I vor.
Annars bjargaði það miklu hér
hjá okkur, að togarinn náöi alltaf
að komast I gegnum isinn, enda
var isinn meira á reki hér i firðin-
um en td. hérna I næstu fjörðum
þar sem hann sat alveg landfast-
ur fram eftir öllu. Það var nú
samt eins og viö ætluðum aldrei
að losna viö isinn, hann lónaöi hér
i firðinum fram og aftur undan
norðanáttinni og hélst alveg fram
undir maibyrjun.
Agætis atvinnuástand er hérna
hjá okkur núna, Það vinna um 140
manns hérna á Tanganum. Það
bjargaði þessu i vor að það kom
ágætis aflahrota strax og bátarn-
ir gátu haldið til veiöa eftir aö is-
inn hvarf. Þaö fylgir oft mikill
fiskur Isröndinni, svo var einnig
núna, en það dró fljótt úr fiskin-
um og hefur það verið lélegt upp á
siðkastið, en eitthvaö held ég að
þaö sé að rofa til eins og áður
sagði. Um veörið er ekkert gott að
segja, alltaf sami kuldinn úthag-
inn ekki orðinn grænn ennþá og
slæmt hljóö I bændum,” sagöi
Sigurður að lokum. -lg
Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands:
Óviðunandi með öllu
að leggja 1,2 milj. verðjöfnunargjald á meðalbónda
Sláturfélag Suðurlands hélt
aðalfund sinn þann 21. júni, að
Hótel Sögu I Reykjavik. Fundinn
sóttu 85 fulltrúar úr 43 deildum
félagssvæðisins, sem er frá Hvitá
i Borgarfirði að Skeiðarársandi i
austri.
A fundinum var að vanda lögð
fram vönduð ársskýrsla fyrir s.l.
ár og formaður, Gisli Andrésson
og Jón H. Bergs forstjóri fluttu
yfirlit og skýrslur um starfsemi
Sláturfélagsins. Fyrirtækið rak 7
sláturhús og 5 frystihús á félags-
svæðinu, ennfremur kjötvinnslu-
stöðvar sútunarverksmiöju, 9
smásöluverslanir og vörumiðstöð
fyrir ýmsar neysluvörur, sem
keyptar eru frá öðrum innlendum
og erlendum framleiðendum.
Heildarsala
Heildarsala fyrirtækisins nam
á s.l. ári 11.028 miljónum og hafði
aukistum 60% frá fyrra ári. Mest
var aukningin i sútunar-
Verksmiðju S.S., rúmlega
71%. Útflutningsverðmæti
sútunarverksmiðjunnar var á s.l.
ári um 440 miljónir, en innan-
landssala sútaðra skinna um 60
milj.
Helstu kostnaðarliðir í rekstri S.S.
Vöru-og hráefnisnotkun,..........
Greiddlaun, .....................
Annar rekstrarkostnaður,..........
Vaxtagjöld,.......................
Opinbergjöld,.....................
Afskr. bygginga, véla og tækja,...
Auk ofangreindra launa til
starfsliðs greiddi Sláturfélagið
rúmlega 210 milj. til ýmissa verk-
taka vegna viðhaldsvinnu og
nýrra framkvæmda.
Skömmu fyrir aðalfundinn var
lokið greiðslu fyrir innlagðar
sauðfjárafurðir á sl. hausti,
miðað við haustverðlags-
grundvöll, þótt verulegur hluti
afurðanna sé óseldur enn, en þvi
miður að frádregnu útflutnings-
verðjöfnunargjaldi.
Nýjar áætlanir
Nýjar áætlanir um framleiðslu
og sölu búvara hafa verið
kr. 7.557 milj.
kr. 1.498 milj.
kr. 1.173 milj.
kr. 499milj.
kr. 129milj.
kr. 103milj.
Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1979
Eigulegtista rit
Okkur hefur borist Sjómanna-
dagsblað Vestmannaeyja
1979. Ritstjóri þess og ábyrgðar-
maður er Sigurgeir Jónsson.
Ritið hefst með sönglaginu
Sjómenn Islands, eftir Mariu
Thorsteinson en ljóðið er eftir Jón
Magnússon. Lagið er tileinkaö
Sjómannadeginum I Vestmanna-
eyjum 1979. Þá kemur skemmti-
leg grein og fróöleg eftir
Sigurgeir Jónsson er
hann nefnir Þætti úr
Norðursjó, en á þeim slóðum
stundaöi Sigurgeir veiðar i tvö
sumur. Sagt er frá Matstöðinni
viö Skildingaveg en sú fiskmats-
stöð tók til starfa i april á s.l.
ári. Þegar við fundum
„Klöppina” nefnist frásögn
Eyjólfs Gislasonar frá Bessa-
stööum af róðri, sem hann fór i
frá Eyjum fyrir 52 árum, en
Eyjólfur er nú 82 ára. Birt er
ávarp, sem Friðrik Ásmundsson,
skólastjóri Stýrimannaskólans I
Vestmannaeyjum flutti á 40 ára
afmælisfagnaði Skipstjóra- og
stýrimannafélagsins Veröandi
hinn 27. des. s.l. Sagt er frá
Lúðrasveit Vestmannaeyja, sem
varö 40 ára þann 22. mars
s.l. Frásögn er af „Menningar-
degi sjómanna og fiskvinnslu-
fólks”, sem haldinn var i
Vestmannaeyjum fyrir ári slðan,
að tilstuðlan Menningar- og
fræðslusambands alþýðu. Arni
Guðmundsson frá Eiðum ritar
greinlna Þegar Surtsey reis úr
sæ. Vigfús frá Glslakoti segir frá
Furðulegri björgun, sem ekki
verður skýrð „með þvi, sem
kallað er hin kalda skyn-
semi”. Jón Einarsson skrifar um
Siöasta mótornámskeið Fiski-
félagsins I Vestmanna-
eyjum. Kristján Jóhannsson,
kennari, segir frá starfi Stýri-
mannaskólans skólaárið 1977-
1978. Þá er sagt frá Sjómanna-
deginum I Vestmannaeyjum
1978. Minnst er, i stuttum ævi-
ágripum, 24 Vestmannaeyinga,
sem látist hafa á timabilinu frá
21. mai 1978 til 19. mai 1979. Birt
eru yfirlit um vöruflutninga um
Vestmannaeyjahöfn á árinu 1978,
eftir Sigurö Jónsson og um ver-
tiðina i Vestmannaeyjum
1979. Hilmar Rósmundsson
skrifar Nokkrar hugleiðingar um
vetrarvertið 1979 og fram-
tiðina. Einstakur mórall um
borð, nefnist rabb við Ægi
Sigurðsson, matsvein á Þórunni
Sveinsdóttur. Kári Einarsson
ritar um Neðansjávarlagnir við
Vestmannaeyjar. Mikill fjöldi
myndaer i ritinu sem prentað er á
ágætan pappir og mjög vandað að
allri gerð.
Sjómannadagsblað
Vestmannaeyja er til sölu i Sjó-
búðinni við Grandagarð og
Bæjarnesti viö Miklubraut.
—mhg
tsleifur Ve 63, sem Sigurgeir Jónsson var á tvö sumur I Noröursjónum.
gerðar. Nú er gert ráð fyrir 1,3%
aukningu á innvegnu mjólkur-
magni. Heildarútflutningsbóta-
þörfin er um 5,8 miljarðar á
sauðfjársviðinu og 3,5 miljarðar á
nautgripaafurðir. Vöntun er
áætluð 3,8 miljarðar alls. Tekið
verður eftirfarandi verðjöfnunar-
gjald: dilkakjöt 190 kr. pr. kg.,
kjöt af fullorðnu 90 kr, pr.
kg. Verðmiðlunargjald á mjólk
verði kr. 10 á hvern innveginn ltr.
mjólkur, skv. ákvörðun
Framleiðsluráðs landbúnaðarins
og er þessu jafnað á alla fram
leiðendur sauðfjárafurða og
mjólkur, án tillits til hvernig sala
hefur gengið hjá einstökum
afurðasölufélögum. Þessi
skattur verður mjög þungbær ef
ekki verða gerðar aðrar ráð-
stafanir. Nokkrar umræður
hafa orðið um slátrunar-,
frystingar- og heildsöludreifingar
kostnað. Komið hefur fram, að
þessi kostnaður hefur haldist
hlutfallslega litið breyttur I ára-
tugi, um 20% af heildsöluverði,
þrátt fyrir sífellt auknar kröfur,
og er þetta hagstæðara en i öðrum
atvinnugreinum, svo sem sjávar-
útvegi og fiskiðnaði. Þar er
kostnaðarhlutfallið um 50%
vegna launa og annars rekstar-
kostnaðar.
Bændum sýnd óvirðing
Aöalfundur Sláturfélagsins
samþykkti að mótmæla harðlega
þeirri óvirðingu, sem alþingis-
menn sýndu bændastéttinni I vor,
er þeir með fjarvist sinni komu I
veg fyrir að Framleiðsluráö
landbúnaðarins fengi lántöku-
heimild til þess að létta bændum
aðlögun að fyrirhuguðum
skipulagsbreytingum i land-
búnaði. Fundurinn telur óvið-
unandiþað verðjöfnunargjald, 1,2
milj. á meðalbónda, sem stéttin
er þar með dæmd til að bera og
trúa þvi ekki, að það sé raunveru-
legur vilji Alþingis, að bændur
beri þaö einir. Þvi skorar fundur-
inn á Alþingi og rikisstjórn að
útvega fé, svo þessu gjaldi verði
létt af bændastéttinni.
I Sláturhúsum S.S. var á sl. ári
slátraö 182 þús. fjár, 8.800 naut-
gripum, 3.200 svínum og 1.620
hrossum.
• Kjötvinnsla félagsins fram-
leiddi og seldi kjötvörur fyrir
2.016 milj. kr. og nam aukningin
61% frá f.á.
Nýbyggingar —
Kjötmjölsverksmiðja
Helstu nýbyggingar á 'sl. ári
voru, að lokið var við frysti-
geymslur S.S. á Hvolsvelli, þar
sem hægt er að geyma um 90 þús,
skrokka af kindakjöti, og einnig
var lokiö endurbyggingu frysti-
húss S.S. að Kirkjubæjarklaustri.
Þá skýrði stjórnarformaður frá
þvi, að ákveðið væri að hefja i
sumar byggingu kjötmjöls-
verksmiöju til að nýta fitu, bein
og annan úrgang frá vinnslu-
stöðvum Sláturfélagsins. Veröur
verksmiðjan reist á eignarlóð S.S.
á Selfossi, vestan ölfusár, og er
■vonast til að verksmiðjan geti
hafið störf á næsta vori. Kostn-
aður er áætlaður um 200 milj. kr.
Kosningar
A aöalfundinum höfðu lokið
kjörtima sinum formaður félags-
ins GIsli Andrésson, Hálsi og
varaformaöur Jón Egilsson,
Selalæk, og voru báöir endur-
kjörnir til 3ja ára. Varastjórnar-
menn voru endurkjörnir Magnús
Jónasson, Stardal og
Siguröur Jónsson, Kastala-
brekku. Aðrir I stjórn eru:
Siggeir Lárusson, Kirkjubæjar-
klaustri, Helgi Jóhannsson,
Núpum og Sigurður Sigurðsson,
Stóra-Lambhaga.
í fundarlok flutti Ólafur E.
Stefánsson, nautgripsræktar-
ráðunautur erindi um holda-
nautastöðina i Hrisey og árangur,
sem þegar er orðinn þar. Er búist
við, að holdanautakjöts-
framleiösla um allt land geti haf-
ist með stofninum frá Hrisey á
næsta ári.