Þjóðviljinn - 06.07.1979, Page 16
MOBVIUINN
Föstudagur 6. júH 1979
Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9 — 20 mánudaga til
föstudaga, kl. 9 — 12. f.h. og 17 — 19 e.h. á laugardögum.
Utan þess tima er hægt að ná i blaðamenn og aðra starfs-
menn blaðsins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527,
81257 og 81285, afgreiösla 81482 og Blaöaprent 81348.
C 81333
LAUFÁSBORGARMÁLIÐ:
Gróöur
yin í
V estur-
bænum
Að baki verkamannabústað-
anna við Hringbraut og Hofs-
valiagötu er stór auð Ióð sem
hingað til hefur verið litið notuð
nema sem fótboltavöllur og
„róló”. Þarna er skjól fyrir
vindum, gróðursælir garðar
blasa við og þar mætti skapa
hið ákjósanlegasta útivistar-
svæði.
Það var einmitt það sem Pétri
Péturssyni datt i hug, en hann
átti heima á þessum slóðum
sem ungur maður. Hann viðraði
hugmyndina við félaga sina i
Ibúasamtökum Vesturbæjar
sem tóku henni vel og fengu
franskan garðarkitekt til að
gera tillögu að skipulagi lóðar-
innar.
1 gær boðuðu þeir Pétur
Pétursson þulur, Magnús Skúla-
Hér vilja tbúasamtök Vesturbæjar skipuleggja garð. Magnús Skúlason, Stanislas Bohic og Pétur
Pétursson kynntu I gær tillögu að útivistarsvæði á lóðinni bak við verkamannabústaðina við Hring-
braut.
son arkitekt og Stanislas Bohic
arkitekt blaðamenn á sinn fund i
garðinum að baki verkamanna-
bústaðanna. Þar á vegg hékk
tillagan sem felur i sér, að
gangstigar verði lagðir um lóð-
ina, tré og runnar gróðursett,
komið fyrir bekkjum, tjörn með
heitu vatni til að sulla i og fleira
það sem verða má ungum sem
öldnum til gleði á góðum dög-
um.
Tillagan var lögð fyrir aðal-
fund ibúa verkamannabústað-
anna sem tóku heldur vel i hana,
en hafa áhyggjur af kostnaðin-
um. íbúar á svæðinu eru margir
við aldur og hafa þvi ekki bol-
magn til að standa undir kostn-
aðinum.
Það er þvi hugmynd Ibúa-
samtakanna að leita til borgar-
innar um efnivið eða vinriu og til
ibúa hverfisins að þeir leggi
eitthvað af mörkum til að koma
verkinu i framkvæmd auk þess
sem ætlunin er að fá bygginga-
nefnd verkamannabústaða til
þátttöku.
Hugmyndin að baki tillögunn-
ar er að skapa útivistarsvæði
sem standi öllum ibúum borgar-
innar opið, þar veröi hægt að
halda tónleika og aörar sam-
komur, til að auðga lifið i borg-
inni.
Pétur Pétursson minnti á að
þegar verið var að ræða um
byggingu verkamannabústað-
anna á alþingi rétt upp úr 1930
var slfkt kallað tilfinninga væl af
rikjandi stétt; vonandi væri
betra að eiga við yfirvöld nú.
—Ká.
Frestað í borgarstjóm
Borgarstjórn frestaði I gær-
kvöldi eftir tveggja tlma umræð-
ur staðfestingu á ákvörðun fé-
lagsmálaráðs um ráðningu Elin-
ar Torfadóttur sem forstöðu-
manns Laufásborgar. Tillögu-
maður um frestun var Sjöfn Sig-
urbjörnsdóttir. Mun endanleg af-
greiðsla þessa máls ráðast I borg-
arráði næstu daga þar sem borg-
arstjórn hefur nú tekið sér sum-
arfri.
Umræðurnar fjölluðu ekki
nema að litlu leyti um hæfni um-
sækjenda og var það mál allra
sem til máls tóku að bæði Elin og
Dröfn Ölafsdóttir væru vel að
stöðu þessari komnar. Hins vegar
greindi menn á um afgreiðslu
málsins i borgarkerfinu og sér-
staklega það hvort auglýsa hefði
átt stöðuna eða hvort Dröfn heföi
þegar verið ráðin i hana, þegar
hún var auglýst.
Markús örn Antornsson deildi
hart á þá afstöðu meirihluta fé-
lagasmálráðs að neita frestun
málsins en Gerður Steinþórsdótt-
ir formaður ráðsins sagði að öll
gögn hefðu legið frammi, mikill
meirihluti hefði verið fyrir ráðn-
ingu Elinar Torfadóttur, sökum
langrar starfsreynslu hennar og
félagsmálastjóri hefði lagt á-
herslu á að málinu yrði hraðað.
Þá var á borgarstjórnarfundin-
um lesin greinargerð borgarlög-
manns um afskipti hans af mál-
inu, svo og greinargerð Bergs
Felixsonar forstöðumanns dag-
vistarheimilanna sem falið var að
leita álits lögmannsins á þvi hvort
auglýsa bæri stöðuna. Bar þess-
um greinargerðum ekki saman,
þar sem borgarlögmaður kveðst
hafa bent á að leita mætti eftir þvi
til borgarráðs að það veitti stöð-
una án auglýsingar, en megin-
reglan væri þó að auglýsa bæri
stöðuna. I fundargerðum og
greinargerð Bergs kemur hins-
vegar eingöngu fram það álit
borgarlögmanns að auglýsa beri
stöðuna og á þvi byggðist sú á-
kvörðun dagvistarnefndar.
Markús örn Antonsson sagði að
vegna þess sem á undan væri
gengið bæri borginni siðferðileg
skylda til aö veita Dröfn ólafs-
dóttur stöðuna, en Gerður Stein-
þórsdóttir lagði áherslu á að
ráðning Drafnar væri hvergi
bókuð og hún hefði enga skriflega
tilkynningu fengiö um að hún
hefði verið ráðin. Gerður sagði að
það væri sama hvernig menn
skildu umræður i nefndum eða
túlkuðu þær, starfsmannaráðning
hefði ekki farið fram nema hún
væri bókuð og samþykkt og ætti
nýráðinn starfsmaður þá að fá
pappira upp á ráðningu sina.
---AI
r
L
IJstamaður Bram van Velde:
Gefur Lista-
safni íslands
65 grafíkverk
1 fyrra komu skilaboð frá
hollenska listamanninum Bram
van Velde um að hann hefði hug
á að bjóða Listasafni tslands 50
grafisk verk eftir sig. Listamað-
urinn, sem lengst af hefur veriö
búsettur i Paris er einn af
fremstu núlifandi listmálurum
og var gjöf hans þegin með
þökkum. Þegar allt kom til alls
urðu verkin 65 að tölu og verður
sýning á þeim opnuð af Ólafi Jó-
hannessyni forsætisráðherra á
sunnudaginn kemur. Meöal við-
staddra verða listamaðurinn
sjálfur og forseti tslands.
Bram van Velde er fæddur ár-
iö 1895 og hefur veriö talinn
standa nærri svokölluðum
Coprahóp og hafa m.a. skrifað i
sýningarskrár hans þeir Asger
Jörn og Alechinsky. Irska leik-
ritaskáldið Samuel Beckett er
náinn vinur van Velde og hefur
oft skrifað um hann. A einum
stað segir hann að Bram van
Velde hafi oröiö fyrstur til að
seilast eftir þvi sem aldrei verð-
ur höndlað, fyrstur til aö viður-
kenna þá staðreynd að það að
verða listamaður er að mistak-
ast eins og enginn annar þorir
að leyfa sér.
Myndirnar sem van Velde
Bram van Velde er einn af þekktustu núlifandi myndlistarmönnum.
Hann verður sjálfur viðstaddur er sýning á listaverkagjöf hans
verður opnuð á sunnudag.
hefur gefið Listasafni Islands
eru allar lithografia. Listamað-
urinn kemur hingað ásamt fjór-
um vinum sinum þ.á m. Jacqu-
es Putman, sem manna mest
hefur starfað aö þvi að kynna
hann. Sýningin verður opin til
29. júli frá 13.30 — 22 daglega.
—GFr
Kvöldsími 81348
Gleðitíðindi fyrir
barstyðjendur:
Miðviku-
dagar ekki
lengur
þurrir
Með þessari breytingu á reglu-
gerð er stefnt að meira frjálsræði
en þó með það fyrir augum að á-
fengisdrykkja aukist ekki, sagði
Steingrímur Hermannsson dóms-
málaráðherra á blaðamanna-
fundi sem hann boðaði f gær um
, rýmkaðar reglur á opnunartim-
um veitingahúsa. Mörg nýmæli
eru f hinni nýju reglugerð sem
tekur gildi mánudaginn 16. júli
n.k. enþaösem mestum tfðindum
sætir er þó að hér eftir verða mið-
vikudagar ekki þurrir lengur
heldur verðurheimilt að selja vin
á þeim sem aðra virka daga.
Dansleikir og önnur samkvæmi
mega nú standa til kl. 3 á föstu-
dögum og laugardögum og á
kvöldum fyrir alla almenna fri-
daga. Aðra daga er heimilt aö
hafa opiö til kl. 1 eftir miðnætti
eins og áður hefur verið. Hingað
til hefur aðeins verið heimilt að
hafa opið til kl. 2 á laugardögum.
Bari má nú opna klukkan 18 að
kvöldi I stað 19 áður, en áfengis-
Framhald á blaösiðu 14.
Hækkun á
unnum
kjötvörum
Verðlagsnefnd samþykkti ný-
lega á fundi sinum hækkun á unn-
um kjötvörum. Nemur hækkunin
16-22% eftir tegundum. Rikis-
stjórnin hefur þegar staðfest
hækkunina sem kemur i kjölfar
hækkunar á landbúnaðarvörum.
Fregnir hafa borist af miklum
hækkunum á kaffi á heimsmark-
aöi, en ennþá hafa ekki verið
teknar neinar ákvarðanir um
hækkun hér.
Að sögn Björgvins Guömunds-
sonar form. verðlagsnefndar,
verður sennilega rætt um kaffið á
næsta fundi nefndarinnar á mið-
vikudag, en litið hef ur verið keypt
af baunum á þessu hækkaða
verði.
— ká
Vinnumiðlun Flug-
leióa tekin til starfa:
Allmargir
hqfafengið
starf
Vinnumiölun Flugleiða sem
ákveðið var að stofna vegna þess
stóra hóps sem félagið sagði upp
um daginn er nú tekin. tQ starfa,
og að sögn Sveins Sæmundssonar
blaðafulltrúa hafa allmargir af
þeim sem sagt var upp þegar
fengið starf.
Ýmis fyrirtæki hafa leitaö hóf-
anna hjá Vinnumiöluninni vegna
þess að hér er yfirleitt um mjög
góða starfekrafta að ræöa og
sagði Sveinn að Flugleiöum væri
þökk á þvl að fleiri fyrirtæki sem
vantaði starfsfólk heföi samband.
Vinnumiðlunin er rekin á stjórn-
unarsviði Flugleiða og veitir
henni forstöðu Grétar Br.
Kristjánsson lögfræðingur.
— GFr