Þjóðviljinn - 22.07.1979, Side 5
Sunnudagur 22. júli 1979. ÞJÓÐVILJINN — SiÐA 5
bækur
■■■■■■■■■■■■■■
Geography of World Af-
fairs.
J.P. Cole. Fifth Edition. Penguin
Books 1979.
Þessi uppflettibók ætti að vera
flestum þeim gagnleg, sem þurfa
eða vilja afla sér vitneskju um
heiminn og ástand ibúa og lands-
hagi. Hér er mikill fróðleikur
samansafnaður og birtur á
greinargóðan hátt.Ýtarlegur inn-
gangur fjallar m.a. um hagtölur
almennt og gildi þeirra, svo og
um kortagerð og stærðarhlutföll
landsvæða. Siðan rekur höf. hag-
fræðilegt ástand rikja og land-
svæöa frá 1500 og allt til 1945,1 3ja
kafla er að finna rikjatal, fólks-
fjölda og framleiðslu hinna ýmsu
rikja, fjórði kafli fjallar um efna-
hagslegt og menningarlegt
ástand hinna ýmsu rikja svo og
fólksfjölda. Sérstakir kaflar eru
um orkuneyslu, hráefni, sam-
göngur, f járfestingu, áætlanir um
fólksfjölda og framleiðslu, orku-
þörf og afrakstur hinna ýmsu at-
vinnugreina. Höfundur lýsir þró-
un nokkurra rikja og svæða, bæöi
þróaðra og vanþróaöra. Höfund-
ur fjallar um þessi viðamiklu efni
i alls 16 köflum, töflur og skrár
eru prentaðar I texta.
Ritið er tæpar 500 blaðsiður og i
bókarlok er skrá yfir önnur rit
sem snerta efniö. Þetta er ágæt
handbók og handhæg til frum-
nota.
Thomas Hardy
Far from the Madding Crowd —
Tess of the D’Urbevilles — Jude
the Obscure — The Return of the
Native. Penguin Books 1979.
1978 voru fimmtiu ár liöin frá
dauða Hardys og af þvi tilefni gaf
Penguimltgáfan út vandaða út-
gáfu verka þessa höfundar i The
Penguin English Library. Við-
fangsefni Hardys i Far from the
Madding Crowd voru þeir fjötrar
sem árstiðirnar, veður og vindar
reyrðu þá sem með erfiðu yrktu
jöröina og gættu hjarða og voru
jafnframt bundnir skilyrðislaus-
um kröfum þess þrönga samfé-
lags, sem þeir byggðu. Landbún-
aðarkreppan á Englandi á árun-
um 1870-80 hafði djúpstæð á hrif á
Hardy og mótaði verk hans.
Hann leit með söknuði til þeirra
tima, sem menn minntust sem
,,the merry old England”, en þeir
tímar voru þá allir á dögum iðn-
væðingar og samkeppni. I Tess
hrinda kröfur samfélagsins Tess
út i opinn dauðann. 1 Jude the Ob-
scure kemur gleggst fram skoð-
un höfundar á algjöru þýðingar-
leysi þess að berjast gegn við-
teknum venjum og samfélags-
kröfum steinrunnins samfélags
sveitanna. I Return of the Native
ér dregin upp mynd hins árstiða-
bundna lifs bóndans og einnig
lýst þeirri öryggiskennd, sem
fylgir þeim lifsmáta.
Lifsskoðun Hardys mótaðist af
svartsýni. Hann taldi manninn
vera fjötraðan umhverfi sinu og
samfélagi og tilraunir hans til
frjálsara lifs væru dæmdar til
þess aö mistakast. Menn voru
bundnir örlögunum. Þessi lifs-
skoðun varö Hardy þungbær og
markaði stilsmáta hans. Honum
tókst ekki alltaf að tjá þann eld
tilfinninga sem bjó meö honum án
þessað ofhleðslu gætti i stilnum.
Hardy leit á sjálfan sig sem
skáld og bestu ljóö hand eru mjög
persónubundin og mettuð söknuöi
fyrri tima. Alls gaf hann út rúm-
lega tug ljóðabóka, þar á meöal
The Dynasts 1903-08, sem þótti
merkilegt verk á sinni tið.
Penguin-útgáfan gaf einnig út
Selected Poems Hardys i útgáfu
Davids Wrights 1978.
Mikil
eldfjalla-
svœði á
Venusi
Fjall sem er hærra en Mount
Evrest hefur fundist á plánetunni
Venus, upplýsa bandariskir
, visindamenn. Ekki nóg með það,
heldur stendur fjallið á hásléttu
sem er að minnsta kosti jafn
mikil um sig og Tibet og liggur
norðan megin við tvö eldfjalla-
svæði sem þekja jafn stórt land-
svæði og Hawaii-eyjar.
Þessar merku upplýsingar voru
sendar til jarðar frá radartækjum
Pionergeimfarsins bandariska
sem er á braut um reikistjörnuna.
Það var dr. Gordon Pettingill frá
Massachusetts Institut of
Technology, en þar var radarinn
hannaður, sem veitti þessar upp-
lýsingar á ársfundi bandariska
jarðeðlisfræðifélagsins fyrir
nokkru. Radarinn var gerður með
þaö i huga að veita upplýsingar
sem leynast bak við hinn þykka
skýjahjúp Venusar.
inka
LAUSNÁ
VANDA
BÓKA-
MANNSINS
Ferðafólk
Höfum byrjað einsdagsferðir okkar milli
Reykjavikur og Akureyrar um Sprengi-
sand og Kjöl.
Farið er frá Umferðarmiðstöðinni i
Reykjavik sunnudaga og miðvikudaga kl.
08.00 norður Sprengisand og frá Ferða-
skrifstofu Akureyrar suður Kjöl þriðju-
daga og föstudaga kl. 08.30
Ferðir þessar seljast með fæði og leiðsögn
og gefst fólki tækifæri á að sjá og heyra
um meginhluta miðhálendisins, jökla,
sand, gróðurvinjar, jökulvötn, hveri, sum-
arskiðalönd og margt fleira i hinni litriku
náttúru íslands.
Hægt er að fara aðra leiðina eða báðar um
hálendið eða aðra leiðina um hálendið og
hina með áætlunarbilum okkar um byggð,
og dvelja norðanlands eða sunnan að vil^
þvi enginn er bundinn nema þann dag sem
ferðin tekur.
Nánari upplýsingar gefa B.S.Í., Um-
ferðarmiðstöðinni i Reykjavik, simi 22300
og Ferðaskrifstofa Akureyrar við Ráðhús-
torg Akureyri simi 24425 og 24475 og við
Norðurleið h/f., simi 11145.
Inka bóka- og möppuhillurnareru
hannaðar til notkunar bæði á skrit-
stofum sem heimahúsum. Inka
hillurnar sóma sér með hvaða hús-
gögnum sem er, hvort sem þær eru
opnar eða með hurðum. Inka hillur
fást í tveim dýpfum smíðaðar úr eik í
þrem viöarlitum.
Sért þú í vandræöum með hirslur
heima eða á skrifstofunni þá færðu
varla betri lausn en Inka hillueiningar.
Biðjið um litprentaöa myndalistann.
KRISTJRfl
SIGGGIRSSOO HF.
LAUGAVEG113, REYKJAWK. SÍMI 2587D
UMBOÐSMENN HÚSGAGNAVERKSMIÐJU KRISTJÁNS SIGGEIRSSONAR HE
STAÐUR NAFN STAÐUR NAFN
Akranes: • Verzlunin Bjarg h f ólafsfjöröur: • Verzlunin Vatberg h.f.
Akureyri. • Augsýn h.f. Ólafsvík: • Verzlunin Kassinn
• örkin hans Nóa Reykjavík • Kristján Siggeirsson h.f.
Blönduós: • Trésmiöjan Fróöi h.f. húsgangaverzl.
Bolungarvík: • Verzlunin Virkinn • JL-húsiö
Borgarnes: • Verzlunín Stjarnan Sauöárkrókur: • Húsgagnaverzlun
Hafnarfjöröur: • Nýform Sauöárkróks
Húsavík: • Hlynur s.f. Selfoss: • Kjörhúsgögn
Keflavík: • Húsgagnaverzlunin Siglufjörður: • Bólsturgeröin
Duus h.f. Stykkishólmur: • JL-húsiö
Neskaupstaöur: • Húsgagnaverzlun Vestmannaeyjar: • Húsgagnaverzlun
Höskuldar Stefánssonar Marinós Guömundssonar
Alþýðuleikhúsið
óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra frá
1. sept. n.k.
Umsóknir sendist i pósthólf 45, Reykjavik
fyrir 1. ágúst.
FERÐAVÖRUR
Sólstólar, stillonlegt bak kr. 13.061,00
Sólstólar kr. 6.714,00
I Tjaldborð og stólar kr. 16.149,00
Tjaldstólar kr. 1.700,00
Sólbeddar kr. 10.964,00
I Vindsængur fró kr. 4.419,00
Grill kr. 8.162,00
! Gaseldunartæki, 2ja hólfo kr. 24.716,00
I Svefnpokar fró kr. 15.066,00
I Dakpokor fró kr. 11.076,00
STÓRMARKAÐURINN
SKEMMUVEGl 4A
\