Þjóðviljinn - 23.09.1979, Qupperneq 10
10 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 23. september 1979
helganrídialíð
Ég hef mælt mér mót við Morten Lange klukkan
hálf f imm. Við komuna til Norræna hússins fæ ég hins
vegar upplýst að prófessorinn sé enn ókominn úr ferð
sinni til Akraness. Til að eyða tímanum sest ég inn á
kaffiteríuna og er rétt byrjaður að hnitmiða árás á
smurbrauð/ þegar Erik Sönderholm forstjóri hússins
kemur móður og másandi inn og segir mér að Morten
Lange hafi verið í herbergi sínu allan tímann.
Teikning og texti: Ingólfur Margeirsson
Blaöamanni er snarlega
hleypt inn i gestaherbergið og
tekur i hönd Langes og frUar
meðan hann reynir að kyngja
rúgbrauðsleifunum. Lange er
brosmi'dur og rauðbirkinn i
andliti, hvort sem það stafar af
islenskri haustsól eða hálf-
kláruðu viskiflöskunni á borð-
inu.
Svo erum við allt i einu farnir
að tala um sveppi. Morten, sem
er prófessor i náttúrufræöi og
einn helsti sveppasérfræðingur
Norðurlanda i dag, fræðir mig
um alls kyns ætisveppi i ná-
grenni Reykjavikur.
— Norðurlandabúar hafa
aldrei étið sveppi að neinu ráöi,
segir hann. Þaö er til orðtak
sem segir: „Bóndinn étur börk-
inn en ekki sveppinn”. Heldur
sultu menn I hel áður fyrr en aö
leggja sér sveppi til munns.
Bodil kona hans gengur um
gólf og ihugar alls kyns grös og
mosa sem hún hefur tint i ferð-
inni fyrr um daginn. Hún kinkar
kolli stöku sinnum eöa stingur
inn i einsatkvæðisoröum til að
undirstrika orð manns sins.
— Kona min er mosafræðing-
ur, segir Morten og brosir.
Lektor við Háskólann i Kaup-
mannahöfn.
— Faðir þinn, Jakob Lange,
var einnig þekktur náttúrufræð-
ingur. Þessi fræðigrein er
kannski arfgeng?
Morten horfir kankvislega á
mig.
— Ja, ég verð að viðurkenna
að ég er fimmta kynslóö náttúru-
Morten teygir sig i litskrúðug-
an bækling, slær honum upp og
segir svo: Já, hérna er það:
Lúmusveppur. Hann réttir mér
bókina og ég les: Lummusvepp-
ur. A latinu: Paxillus involutus.
— Þetta er dálitið undarlegur
sveppur, segir Morten. Þú getur
étið hann einu sinni og þá gerist
ekkert. En ef þú bragöar hann 1
annaö skipti þá er dauðinn vis.
En það er vist litil hætta á að ís-
lendingar leggi sér sveppi til
munns.
Undirritaður reynir nú að
taka upp hanskann fyrir
sveppasiöi landa sinna.
— En fornmennirnir lögðu sér
berserkjasveppi til munns til að
öðlast hreysti og vigamóð.
— Nei, nei, þetta er tóm vit-
leysa, segir Morten og kveikir
sér i vindli. Berserkjasveppur-
inn, sem kallaður er á dönsku
rauður flugusveppur, hefur allt
önnur áhrif en svonefndan ber-
serksgang. Þessi sveppategund
inniheldur hreint eitur, sem get-
ur framkallað alls kyns ofsjónir
hjá þeim sem snertir á honum,
en hleypir viðkomandi alls ekki
I vigaham. Þetta er snarvitlaust
nafn á islensku að kalla svepp-
inn Berserkjasvepp. Ég hugsa
að berserksgangurinn hafi
hreinlega stafað af mjöð-
drykkju! Þetta er dálitið leiðin-
legt, vegna þess að sveppaút-
skýringin er svo skemmtileg og
auðfengin. Ja, det er sku skam!
— En það eru margir æti-
sveppir á Islandi?
— Jú, jú! Fleiri tegundir af
svonefndum pipsveppum, sér-
staklega þar sem birki vex og
einnig I gömlum fjárhúsum og
1
■
Sveppafræði og sósíalismi
fræðinga. Þetta er engin ný
fluga i fjölskyldunni. Og dóttir
min er einnig náttúrufræðingur.
Faðir minn var sveppafræöing-
ur eins og ég, en afi var mosa-
fræðingur eins og konan min. í
dag eru fimm núlifandi náttúru-
fræöingar i fjölskyldunni.
Ég spyr sveppafræöinginn af
hverju Norðurlandabúar borði
ekki sveppi að öllu jöfnu.
— Það er enginn sem veit. Ef-
laust hafa þeir alltaf talið alla
sveppi eitraða, og það er nátt-
úrulega rétt, að sumir sveppir
eru eitraðir. Það er ekki far-
ið að borða sveppi i Skandi-
naviu fyrr en Karl Jóhann Svia-
konungur, sem reyndar var
franskur, tekur upp þennan sið
aö hætti evrópskrar yfirstéttar,
að Sviar byrja aö leggja sér
sveppi til munns. Og eins og ail-
ar góðar hugmyndir, sem yfir-
stéttin tekur upp, náði sveppaát
einnig kjölfestu hjá alþýðunni.
Það er ekki laust viö að sið-
ustu setningunni fylgi örlitill
hæðnistónn. Nú verður Morten
alvarlegur aftur.
— En enn þann dag i dag eru
Norðurlandabúar dauöhræddir
viö- sveppi. Hinsvegar er litið
um matareitrun af völdum
sveppa, og andlát sem orsakast
af sveppaáti eru nær óþekkt
fyrirbrigði á Noröurlöndum.
Hinsvegar deyja menn i Pói-
landi stundum vegna þess að
þeir hafa borðað rauðan flugu-
svepp, sem er baneitraður.
þess háttar stööum. Það eru
einnig margar tegundir æti-
sveppa i túnum. Yfirleitt eru
þetta stórir sveppir, þannig að
fimm stykki ættu að vera nóg i
soðið.
Þú ert reyndar með ágætis
bækling i höndunum, sem heitir
„Sveppakverið” og er eftir
Helga Hallgrimsson. Þar stend-
ur það helsta um islenska
sveppi.
Ég litá titilsiðu bókarinnar og
les: „Leiðarvisir um greiningu
á Islenskum stórsveppum, eink-
um matsveppum.”.
Morten Lange er ekki einung-
is frægur fyrir sveppafræði,
hann hefur tekiö virkan þátt I
dönskum stjórnmálum.
— Já, segir hann og hallar sér
aftur i rúminu. Ég var meðal
þeirra sem stofnuðu Sosialistisk
Folkeparti 1958 og sat á danska
Þjóðarþinginu i 15 ár. Þú getur
skrifað að við sem stofnuðum
SF vorum ekki dyggir bolsévik-
ar og klufum okkur út úr
Kommúnistaflokknum danska.
Við erum reyndar fyrsti visir að
Evrópukommúnismanum. SIÖ-
ar gekk samsvarandi alda yfir
mörg lönd Evrópu. Hermansson
i Sviþjóð var á sömu linu, en
honum var ekki kastað út úr
flokknum.
Og nú er bros Mortens einna
helst i ætt við glott.
— Hvernig stendur SF í dag?
— Uha, uha, heyrist i Bodil,
þar sem hún grúfir sig yfir grös-
in sin.
— Venstre hefur ef til vill gef-
ið SF ákveðiö tækifæri, en mér
finnst flokkurinn okkar hafa
klofnað allt of mikið I minni
pólitiskar einingar. Sem dæmi
getum við tekið að hluti flokks-
ins berst aðeins fyrir kvenna-
pólitik. Ég er ekki að segja að
jafnréttisbarátta eigi ekki rétt á
sér, en þetta kalla ég sértrúar-
stefnu, þegar þýöingarmiklum
málum er vikið tii hliðar. Mál
eins og umræða um efnahags-
legt lýðræði fellur alveg i skugg-
ann, umræða sem sósialisminn
byggist á. Við verðum að ræða
grundvöll okkar og horfa fram I
timann. Allt annað skiptir
minna máli.
— Og hvernig er efnahagslegu
iýðræði háttað i Danmörku á
liðandi stund?
— Vandamálin snerta einkum
hina praktisku framkvæmd.
Aöalatriðið er að launþegar
krefjist fullkomins lýðræðis I
efnahagsmálum. Sú efnahags-
stefna, sem hefur ekki rætur i
kröfum alþýðunnar.er tilgangs-
laus og forkastanleg. Þess
vegna er t.d. hin gamla krafa
kommúnista um heildarþjóð-
nýtingu úrelt og \ ekki áhuga -
verð.
— En áhrifin af danskri aðild
að EBE i ljósi reynslunnar?
— Það er efnahagskreppa I
heiminum I dag. Miðað við
skandinavisk lönd stendur Dan-
mörk þolanlega, þótt Sviþjóð
hafi kannski spjarað sig best, ef
til vill vegna þess að eiga ekki
aðild að EBE. Ég verð þó að
segja að aðild okkar að EBE
hefur styrkt danskan landbún-
að, þar sem auknir markaðir
hafa opnast. Hins vegar tel ég
að i framtiðinni ætti að koma á
laggirnar sameiginlegum nor-
rænum markaði fyrir landbún-
aðarvörur, en það hefur aldrei
verið til umræðu hingað til.
— Muntu snúa þér að stjórn-
málum að nýju?
— Nei!
Svarið er ótvirætt og óneitan-
lega sannfærandi.
— Ég hef ekki hugsað mér
meiri afskipti af pólitik. Ég lit á
mig fyrst og fremst sem vis-
indamann, og reyndar vann ég
alltaf sem slikur og hélt prófess-
orsembætti minu á meöan ég
sat á þingi. En i framtiðinni
mun ég einbeita mér að rann-
sóknum I fræðigrein minni. 15 ár
á þingi er alveg nóg. Þá hefur
maður gert skyldu sina.
— Þú hefur verið prófessor,
þingmaður og lést af embætti
rektors Kaupmannahafnarhá-
skóla i vor. Þú hefur lifað fjöl-
breyttu lifi?
Morten kimir.
— Ef maður breytir ekki til i
lifinu, drepst maöur úr leiðind-
um. En nú sný ég mér heilshug-
ar að rannsóknum og kennslu.
Það er að vissu leyti einnig
breyting. Umbreytingar eru
nauðsynlegar! Og það er hægt
að sinna hinum fjölbreyttustu
atvinnugreinum ef maður á
góðan og hraðskreiðan bil sem
hægt er að skjótast milli vinnu-
staða á.
— Er stúdentabyltingin end-
anlega dauð?
— Tja. Stúdentabyltingin
færði með sér aukiö lýðræði
stúdenta við háskóla. Gallinn
við hana var einungis sá, að stú-
dentarnir einblindu alltof mikið
á ákveðin málefni eins og aukna
aðild að stjórn háskólans. Þeir
hreinlega gleymdu öðrum þátt-
um eins og að tryggja sér efna-
hagslegan grundvöll. Stúdentar
búa við mjög slæman fjárhag i
dag. Lánin eru litil og óhagstæð
og erfitt er fyrir stúdenta að fá
sér vinnu. Og þessi hlið stúd-
entabaráttunnar hefur ekki
heppnast — þvert á móti.
Stúdentarnir geröu eina kór-
villu, þeir tryggðu sér ekki fylgi
alþýðunnar. Gjáin milli stúd-
enta og verkafólks hefur ekki
minnkað. En hún kemur til með
að gera það. Einfaldlega vegna
þess að i dag ljúka 50% ung-
menna stúdentsprófi. Talan er
reyndar 80% I New York. Þetta
gerir það að verkum að mennt-
un verður ekki lengur yfirstétt-
arfyrirbæri.
Þegar ég kveð þau hjón, biðst
ég afsökunar á þvi að hafa kom-
ið hálftima of seint vegna mis-
skilnings starfsmanna hússins
sem héldu að Morten Lange
væri ekki við.
— Morten Lange svikur aldrei
neitt sem hann hefur bundið
fastmælum, segir hann og opnar
fyrir mér dyrnar.
— ^Eru eitraðir sveppir á ís- Spjallað við fyrrv. rektor Hafnar-
iandi, spyr blaöamaður fávis- X U •/
j Skíyrhe rÞa5 háskóla, prófessor Morten Lange