Þjóðviljinn - 06.10.1979, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 06.10.1979, Blaðsíða 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 6. október 1979 I DAG M.A. ifiiíiiiíiiiiitegííiíí: \ iJSigíSíííSÍíííiíiíiííS :::;:^:::::::::::::;:::::;i:i;i:i:i;i:::i:i:i:i:S Uppgjör milli lýöræöis og einræöis” Umbúðalaust viðtal við Boga Hallgrimsson, einn af þremur fyrrverandi skólastjórum I Grindavik, sem mjög eru í sviðs- i;i;i;i;i;i;i;i:i;i;ii Hvernig er aö keyra raffbíl? Eru rafmagnsbflar farartæki framtiðarinnar? Hvernig er að keyra þá? Er hægt að „spyrna” þeim? Lesið allt um þá i Helgar- blaðinu m Steve McQueen Leikarinn Steve McQueen er einn af fáum þeirrar stéttar sem er jafn vinsæll hjá körlum og kon- um. Ævisaga hans er rakin i stuttu máli i Helgarblaðinu. ,,Hissa þegar eitthvaö nær ffram aö ganga” Spjall við Hólmfriði Arnadóttur, S v *> framkvæmdastjóra Sambands 8BP aéjHLNi veitinga- og gistihúsaeigenda, ji sem segist ekki ætla að verða elli- l dauð i þvi starfi. 1* J ! Brauó úr : r- r loónu Sveinbjörn Jónsson, iofnasmiðj- unni, hefur gert tilraunir meö furðulegustu hluti. Hann ræðir suma þeirra I liflegu Helgar- blaðsviðtali. Xm-\ s'- MINNING: Karlinna G. Jóhannesdóttir og Jón Jónsson, klœöskeri Það varð skammt milli þeirra hjónanna, Karlinnu og Jóns. Hún andaðist 10. ágúst siðastliðinn, en hann andaöist fyrsta þ.m. Bæöi voru þau komin til aldurs, hann nær niræður en hún sex árum yngri. Karlinna og Jón bundust hvort öðru i leynum árið 1913, en sama ár fór hann utan til Lundúna og þar varð hann innlyksa styrj- aldarárin og komst ekki heim til Islands fyrr en árið 1919, en þá gengu þau i hjónaband. Þau hjónin bjuggu samfleytt á Isafirði þar til þau fyrir tveim ár- um brugöu búi sakir heilsubrests og fkittu til Hverageröis, en þar voru og eru tvær dætur þeirra bú- settar. Ég var drenghnokki þegar ég fyrst komst i kynni við þau Karl- innu og Jón. Astæöan var sú að þau höfðu einstaka unun af aö rækta jörðina. Og þá hagaöi svo til að rétt fyrir ofan Eyrina, eins og kaupstaðurinn var byggður i þá daga, var jarðskiki sem oft varð vilpa. Þennan skika tóku þau hjónin ab girða og rækta og fengu sér til aðstoðar piltunga og var ég einn i þeim hópi. Ég man að mér og ýmsum okkar jafn- aldranna þótti lítið gaman að pjakka með skóflu, en samt varð nú eitthvað úr verki. Slðar meir gerði ég mér grein fyrir að það var eldmóður þeirra hjónanna sem orkaði á okkur þótt viö skiljanlega gerðum ekki okkur það ljóst þegar við vorum að róta i moldinni. Þegar ég síðar komst til vits og ára og varð róttækur sósialisti urðu kynni min af þeim hjónum náin og ég segi eins og er : Þau kynni hafa alltaf verið mér’mjög kær. Þau voru bæði óvenjulega heilsteyptar manneskjur. Mann- úðarhugsjónin var rikur þáttur i fari þeirra og alla tiö unnu þau sleitulaust i samræmi við hana. Máttur efnalitilla hjóna vestur á ísafirði I baráttunni gegn órétt- læti og ójöfnuði var kannski ekki ýkja mikill en þau geröu það sem þau gátu, vel minnug þess að margt smátt gerir eitt stórt. Þeim h jónum féll aldrei verk úr hendi, ungaðárum starfaöi Karl- inna við hjúkrum sjúkra á spitalanum á ísafiröi en vann sið- ar venjuleg húsmóðurstörf auk þess sem hún lagði mikla vinnu i jarðrækt. Störf hennar á heim- ilinu voru æði mikil þvi gesta- gangur var mikill. Hjónin voru sifellt að skjóta skjólshúsi yfir raargan manninn og voru þá börnin oft látin vikja úr rúmum sinum. Þeg- ar Jón stálpaðist lagði hann land undir fót og fór heiman f rá sér, úr Dýrafirði þar sem hann m.a. hafði mikið samneyti við afasinn Sighvat Borgfirðing, til tsafjarð- ar og lagði fyrir sig klæöskeraiðn. Eftir komu sina frá Englandi stundaði hann allskonar vinnu bæði á sjó og i landi, en siðustu áratugina vann hann á vegum bæjarfélagsins — auk þess sem hann var sífellt að yrkja jörðina. Kreppuárin 1930-1940 voru ár mikilla erfiöleika, jafnt á Isafirði sem annarsstaðar. Ekki sist urðu þau ár erfið fyrir þá verkamenn og verkakonur sem voru róttæk i stjórnmálum. Margs er aö minn- ast frá þessum áratug. Gamall vinur minn og þeirra hjónanna, Guðmundur Bjarnason, verka- maður, lýsti ýmsu þvi sem geröist á tsafirði i ágætri minningargrein sem hann skrifaði í Þjóöviljann I tilefni af andlátiKarlinnar. Ég vil bæta við einu atviki vegna þess aö þaö lýsir svo vel viðbrögðum þeirra Karlinnu og Jóns þegar i móti blés. A þessum árum kastaðist oft i kekki á fundum í Verkalýösfélag- inu Baldri á milli forystumanna krata annarsvegar og róttæks verkafólks hinsvegar. Kratarnir höfðuþátögl oghagldirá félaginu og svo fór að þeir létu reka eina verkakonu og þrjá verkamenn úr þvi. Einn hinna brottreknu var Jón Jónsson. Hann og þau Karl- inna tóku á málinu með jafnaðargeði og jafnvel með brosi á vör, höfðu þó fyrir ung- börnum að sjá. Og þau héldu áfram aö tóra, og þau héldu áfram að vera bein i baki. Mér hefur hinsvegar verið sagt að sumir af foringjum kratanna hafi bognað vegna þessa atviks, þegar fram liðu stundir — svona innra með sjálfum sér. Þau Karlinna og Jón voru hamingjusamar manneskjur, skapgerð þeirra var þannig að þau sköpuöu sér sjálf hamingju, orðtakið ,,hver er sinnar hamingjusmiður” er örugglega bæði satt og rétt. Þau eignuðust fjögur böm sem öll eru vel gerö, vinnusöm og ósérhlifin. Ein- hversstaðar stendur að eplið falli sjaldan langt frá eikinni. Þeim systkinum, mökum þeirra og barnabörnum sendi ég kærar kveðjur. Haukur Helgason Eitt sinn skrifaði Þórbergur Þórðarson i bréfi til vinar sins Vilmundar Jónssonar aö þrennt væri gott um tsafjörö aö segja. Eitt af þvi var að þar byggi skemmtilegasti klæðskeri á land- inu. Þessi klæðskeri var Jón Jónsson. Hann er i dag til moldar borinn. Fljótlega eftir að ég flutti til tsafjarðar 1972 fór ég að sækja þar pólitiska fundi og tók þá strax eftir knálegum, lágvöxnum manni með yfirvararskegg sem kom oft með skarpar og fyndnar athugasemdir á fundunum. Mér var sagt að þar færi Jón klæðskeri eða skraddari eins og hann var lika kallaður. Ég fékk strax áhuga á að kynn- ast nánar þessum glaðbeitta, litla manni og bráðlega varð ég heimagangur i litla, notalega húsinu að Fjarðarstræti 29 hjá þeim Jóni og konu hans Karlinnu Jóhannesdóttur. t lágtimbruðu húsi þeirra andaði allt af mann- legri reisn. Þar var gestrisni i há- vegum höfð, glaðvært viðmót, hreinskiini, siðfágun og trú á fagrár hugsjónir. Ég sá það alltaf betur og betur hvert lán það var aðfá aðkynnastþeim.Ognúhafa þau safnast til feðra sinna með nokkurra vikna millibili. Jón Jónsson var fæddur að Höfða I Mýrahreppi i Dýrafirði 4. febrúar 1890 og var þvi kominn fast að nlræðu er hann lést. For- eldrar hans voru Margrét Sig- hvatsdóttir og Jón Sigurðsson, ættaður úr Arnarfirði. Margrét var dóttir hins merka fræðaþuls Sighvats Borgfirðings sem bjó lika á Höfða á uppvaxtarárum Jóns. Mér fannst ég kynnast í Jóni einhverju afar sjaldgæfu. Frá- sagnarlist hans var sprottin upp úr aldagamalli islenskri hefð. Hún var kjarnmikil, ávallt glett- in, stundum römm og mjög vest- firsk. Ungur sat hann viö fótskör Sighvats afa sins og nam hin fornu fræði, en Sighvatur hafði afturá móti numið ungur af Gisla Konráðssyni i Flatey. Sá var þó munurinn á Sighvati og dóttur- syninum aö hinn siöarnefndi fékkst aldrei við skriftir en lét hina munnlegu frásögn nægja. Jón sagði að I sinu ungdæmi hefðu Dýrfiröingar verið hrjúfir ogharðir og ekkert verið að skafa utan af hlutunum. Þeir voru beiskir af margra alda basli. En þá var vorþeyr i lofti. 1 Dýra- fjörðinn komu nokkrir Þingeying- ar með hugsjónir bindindis- og ungmennafélagshreyfingarinnar, og af þeim hreifst Jón mjög. Sama áriö og Jón fæddist reistu Norðmenn hvalveiðastöð á Höfða og ólst hann upp I sambýli viö þá og læröi norsku reiprennandi. Þetta umhverfi mótaöi Jón og hann varö staöráöinn I að afla sér meiri menntunar. Fimmtán ára gamall fór Jón til tsafjarðar og réði sig i klæðskera- nám til Þorsteins Guðmundsson- ar sem rak þar stórt verkstæði. Laukhann náminu á 5 árum. Arið 1913 rak ævintýra- og menntunar- þráin hann til Englands og varð hann þar innlyksa alla fyrri heimsstyrjöldina og komst ekki heim á ný fyrr en 1919. Starfaði hann að iðn sinni í London en notaði jafnframt hvert tækifæri til að mennta sig. Sótti hann kvöldskóla og nam bibliufræði og varð manna fróðastur i þeim og einnig lagði hann stund á fiölu- nám. Þegar hann kom heim til ts- lands var hann þvi orðinn vel menntaður heimsborgari og eng- inn kotungsbragur á honum. Jóni Jónssyni var margt til lista lagt. Meðal þess sem hann hafði lært i Englandsdvölinni var heilsufræði og hjálp i viðlögum og eftir heimkomuna varð hann samstarfsmaöur og aðstoðar- maður Vilmundar Jónssonar læknis um skeiði, Auk klæðskera- iðnarinnar fékkst hann við marg- visleg störf til sjós og lands. A þriðja áratug aldarinnar gekkst hann fyrir þvi að tsfirðing- ar stofnuðu garöyrkjufélag og komu upp skrúögaröi. Var hann siöan potturinn og pannan i garö- yrkjumálum kaupstaðarins og sá um langtskeiö um garöana i bæn- um. Einnig varð hann slikur sér- fræðingur i holræsalögnum á tsa- firði að ávallt var kallað til hans ef einhver vandamál komu upp i tengslum viö þau. Jón var ákaflega skemmtinn maður og hvers manns hugljúfi. Hann lék oft meö Leikfélagi tsa- fjarðar og var frægur fyrir að herma eftir. Hann var hugsjónamaður, barðist ,‘yrir þvi aö klæða landið gróöri, var bindindismaður af lifi og sál og snemma hreifst hann af hugsjónum jafnaðarstefnunnar. Þar skipaði hann sér I raðir hinna róttækustu og þótti þaö fara vel saman við trú sina á kenningar Jesú Krists. Eftir að Kommúnistaflokkur tslands var stofnaður árið 1930 tók hann þátt I öllu starfi hans og fundir tsafjarðardeildarinnar voru haldnir á heimili þeirra Karlinnu i Fjarðarstrætinu. Jón gat þó aldrei sætt sig við efnis- hyggjuákvæði I stefnuskrá flokksins og gekk þvi aldrei form- lega I hann. Róttækni Jóns var ekki vel séö meðal forystumanna Alþýðu- flokksins á tsafiröi og á kreppu- árunum var honum vikið úr Verkalýðsfélaginu Baldri ásamt þeim Eyjólfi Arnasyni, Halldóri Ólafssyni og Karitas Skarp- Framhald á 18 siðu

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.