Þjóðviljinn - 06.10.1979, Side 13

Þjóðviljinn - 06.10.1979, Side 13
Laugardagur 6. október 1979 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 13 um helgina Úr kvikmyndinni „Svört grima” eftir Halldór Asgeirsson Nýstárleg kvik- myndasýning Á morgun, sunnudag kl. 21 sýn- ir Halldór Asgeirsson kvikmynd sina „Svört grima” I Garöbúð Gamla Garði. Hún var gerð i Paris og á tslandi sumarið 1978 og er kvikmyndin af gjörningi. Verður þeim gjörningi siðan haldið áfram á kvikmyndasýn- ingunni sjálfri. Með kvikmynd- inni verður lifandi tónlistarflutn- ingur, þ.e. 9 manna hljómsveit leikur tónlist, sem sérstaklega var samin fyrir kvikmyndina. Hljómsveitina skipa: Jóhanna Næstu vikur verður í Lista- safni tslands sýning á 17 grafikverkum eftir breska mynd- listarmanninn Stanley William Hayter. Verkin eru gerð á tima- bilinu 1951 -1978, flest ætingar og koparstungur. S.W. Hayter er fæddur i London 1901 og lagði stund á efnafræði og jarðfræði og lauk háskólaprófi i þeim greinum. Ennfremur stundaði hann listnám i London og Parús. Árið 1926 flutti hann til Parisar og stofnaði þar hiö þekkta Atelier árið 1927. Hann var búsettur i New York á árunum 1940-50 og gaf þar út bókina New Ways of Gravure, en frá 1950 hefur hann búið I Paris. Hayter hefur að mestu helgað Þórhallsdóttir (flauta, tréspil) Eirikur Baldursson (selló), Stein- grimur Eyfjörð Guðmundsson (kontrabassi), Bergþóra Jóns- dóttir (fiðla), Asdis Valdimars- dóttir (vióla), Björn Karlsson (ásláttur) Völundur Óskarsson (altósaxófónn), Hjalti Gislason (sópransaxófónn, kornet), Torfi Hjaltason (altsaxófónn), Aðgang- ur er ókeypis.Sýningin er á veg- um Funda- og menningarmála- nefndar Stúdentaráðs. sig grafik, gert mikilsverðar rannsóknir i þeirri grein og fundið upp nýjar tækniaðferðir. A s.l. sumri flutti hann fyrirlestur um grafik á vegum Listasafns íslands. Er Hayter talinn einn merkasti brautryðjandi á sviði nútima- grafikur og hefur hlotið marg- vislega viðurkenningu fyrir list sina, bæði verðlaun og heiþurs- merki. Fjölmargir nemendur hafa stundað listnám undir hand- leiðslu hans, þar á meðal nokkrir islenskir listamenn. Sýningin verður opin á venju- legum sýningartima Lista- safnsins, þ.e. sunnudaga, þriðju- daga, fimmtudaga og laugardaga Opið hús í Iðn- skólanum Eins og áður hefur verið skýrt frá hér I blaðinu verður „opið hús” I Iðnskólanum i Reykjavik i dag kl. 13-18, i tilefni af 75 ára afmæli skól- ans. Nemendur og kennarar Iðnskólans fórna laugardeg- inum i að kynna gestum og gangandi starfsemi skólans. Þarna er kjörið tækifæri fyrir unglinga sem hyggja á dðnnám, að koma og skoða skólann og kynna sér alla námstilhögun. Margir aörir hafa eflaust áhuga á aö sjá hvernig iðnfræðsla gengur fyrir sig nú á dögum. -ih Perusala í Kópa- vogi Lionsklúbburinn Muninn i Kópavogi efnir til perusölu nú um helgina. Hagnaði verður varið til að styrkja þau málefni sem klúbburinn vinnur nú aðallega að: endurnýjun á ieikföngum barna á Kópavogshæli og kaup á sérstökum sjúkrabör- um handa Hjálparsveit skáta i Kópavogi. Félagar munu ganga i hús og bjóða perurnar til sölu. i fréttatilkynningu frá þeim segjast þeir vonast til að Kópavogsbúar láti ljós sitt skina að þeirri heimsókn lok- inni. Land og fólk hjá Ragnari Lár í dag opnar Ragnar Lár málverkasýningu í Galleri Háhól á Akureyri. Syninguna nefnir hann „Land og fólk” og ættisúnafngift að gefa til kynna innihald hennar. A sýningunni verður fjöldi verka unnin i oliu, akrii, vatnslit, svartkrit, brúnkrft, túss og fleira. Þetta er fyrsta einkasý ning Ragnars á Akureyri en hann er félagi i Myndhópnum, sem stofnað- ur var sl. vetur.Ragnar hef- ur haldið margar einkasýn- ingar áður, hér á landi og er- lendis ogtekið þátt i samsýn- ingum. Sýningunni lýkur um aðra helgi. Ragnar Lár. kl. 1.30 - 4.00. — Blessaður farðu ekki nær. Ég þekki týpuna. Hún er i giftingar- hugleiðingum. Breski graflkmeistarmn Stanley WDliam Hayter. Listasafn Islands: Bresk grafíksýning Finninn Olavi Lanu er meðal þeirra sem sýna á Kjarvalsstöð- um. Hann er þekktur fyrir svonefndan „umhverfisskúlptúr”, þ.e. myndverk sem hann setur upp úti i náttúrunni og lætur falla inn I umhverfið. Hér er ein mynda hans. Kjarvalsstaðir: Síöasta helgin A morgun lýkur sýningunum tveimur sem verið hafa á Kjar- valsstöðum að undanförnu: Norræn list i Feneyjum og Leik- myndin. Sýningin Norræn list i Feneyj- um er, einsog áður hefur verið sagt frá hér i blaðinu framlag Norðurlanda til Biennalsins i Feneyjum i fyrra. Þar sýna Sigurður Guðmundsson, Lars Englund (Sviþjóð), Frans Wider- berg (Noregi), Olavi Lanu (Finn- landi) og Danirnir Stig Brögger, Hein Heinesen og Mogens Möller, sem sýna sameiginlegt verk. Leikmyndin er sýning fjórtán islenskra leikmyndasmiða á leik- tjöldum, búningum og leikmun- um og gefur þar margt forvitni- legt á að lita. Sýningin veitir all- góða innsýn inn i töfraheim leik- hússins. Sýningarnar eru opnar i dag og á morgun kl. 14-22. Sýning í Stúdenta- kjallaranum t dag verður opnuð I Stúdenta- kjallaranum, félagsstofnun stúdenta við Hringbraut, sýning á verkum Friðriks Þórs Friðriks- sonar, Margrétar Jónsdóttur, Bjarna Þórarinssonar og Stein- grims Eyfjörð Kristmundssonar. Funda- og menningarmála- nefnd Stúdentaráðs stendur fyrir sýningunni sem upphaflega var sett uppi GalerieS:tPetri I Lundi i Sviþjóö s.l. vetur, á vegum Galleri Suðurgötu 7. Stúdentakjallarinn er opinn t sýningarskránni er að finní þessa mynd eftir Margréti Jóns- dóttur. alla virka daga kl. 10.-23.30 og á sunnudögum kl. 14-23.30. Skátadagur við Réttarholtsskóla Skátadagurfyrir ibúa i Smáibúða-,Bústaöa og Fossvogs- hverfi verður haldinn á sunnu- daginn n.k. við Réttarholtsskóla, kl. 14-18. Ætlar Skátafélagið Garöbúar meö þessum degi að kynna skátastarfið i sérstakri skátatjaldbúö sem reist verður við skólann. Skátarnir hvetja ibúa hverfisins til aö koma og skoða tjaldbúðirnar og fá sér skátakakaó i leiðinni. Skátar munu sýna almenn skátastörf. Innritun nýrra félaga fer fram á sama tíma. Arsgjald fyrir 9-10 ára er kr. 4000, en fyrir 11 ára og eldri kr. 5000. Allir „gamlir” skátar eru einn- ig velkomnir, segir i frétt frá skátunum.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.