Þjóðviljinn - 20.10.1979, Síða 5

Þjóðviljinn - 20.10.1979, Síða 5
Laugardagur 20. október 197» ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Verkföll í Argentínu Buenos Aires (Reuter) Útgefendur argentisnska stérblabsins „Cronica” settu I gær mánabar verkbann á starfsmenn, sem svar viö 70 prósent kauphækkunarkröf- um 1.000 starfsmanna blaðs- ins. Starfsmennirnir höföu far- ið i skæruverkföll í vikunni, til að knýja á um samninga. Croniva-verkfallið er það nýjasta i kjaradeilum i Argentinu, en u.þ.b. 6.000 launamenn eiga nú f deilum við atvinnurekendur. Kaupkröfur nema frá 30 til 70 prósentum, og leitast verkalýðsfélög viö að halda i veröbólguna, sem mun að öllum likindum nálgast 170 prósent á þessu ári. Franska þingið fellir tekjuskatts- hækkanir Paris (Reuter). Gaullistar greiddu s.l. fimmtudag ásamt sósial- istum atkvæði gegn frum- varpi rikisstjórnarinnar um tekjuskattshækkanir. Var frumvarpið fellt 1 franska þinginu með 340 atkvæðum gegn 119. Gaullistar sem eru hægri-sinnaðir og hafa átt aöild að meirihlutanum I franska þinginu, sögöust hafa greitt frumvarpinu mótatkvæði vegna þess aö áformaöar hækkanir kæmu verst niður á lágtekjufólki. Undir forystu Jaques Chirac hafa gaullistar tekið upp gagnrýna afstöðu til rikisstjórnarinnar frá þvl i júni' s.l. Chirác gagnrýndi rikisstjórnina harðlega I ræöu á fimmtudag, fyrir að hafa ekki tekist að draga úr atvinnuleysi i Frakklandi. Fflabeins- ströndin stödvar kakósölu Jbidjan (Reuter). Stærsti kakóframleiðandi heims.Fflabeinsströndin, tók I gær fyrir allan útflutning á kakóuppskerunni vegna verðlækkana á heimsmark- aðnum. Viðskiptaráðuneyti Fila- beinsstrandarinnar tók þessa ákvörðun vegna „óút- skýranlegrar verðlækkunar á heimsmarkaðnum”, og lagði fyrir framleiðendur aö selja aðeins innanlands og safna birgðum. Gildir út- flutningsbannið til áramóta. ítalskir flugumferðarstjórar hœtta störfum: Vflja losna undan herskyldu Róm (Reuter) Fiugumferð á italiu stöðvaöist i gær, þegar flugumferðastjórar hófu verkfall um óákveöinn tima. Stöðvunin hefur viötæk áhrif á flugumferö I Suður- Evrópu og i Mið-Austurlöndum. Flugvélar sátu strandaðar strax og italskir flugumferða- stjórar lögðu niöur störf. Flug- félög sem annast millilandaflug höfðu ærinn starfa við að endur- skipuleggja ferðir, þannig aö komist yrði hjá viðdvöl á ítaliu. Langflestir flugumferöastjórar á ltaliu hafa til skamms tima til- heyrt italska flughernum. Hafa þeir að undanförnu Itrekað kröfur um að verða leystir frá her- skyldu, til að geta myndaö verka- lýðsfélag m.a. I þvl skyni að geta gert kröfur um kauphækkanir. Meðalkaup italskra flug- umferðarstjóra nemur um 256.000 Isl. krónum á mánuði, að sögn þeirra. Einn þeirra sagði við fréttamann Reuter: „Nær helmingur okkar vinnur auka- störf til að eiga fyrir lifibrauðinu. Eg hef lægra kaup en sá sem sér um hreingerningarnar i flug- turninum.” Italska varnarmála- ráöuneytið segir hins vegar að meðalkaup flugumferöarstjóra sé 302.000 Isl. krónur á mánuöi. Flugumferöarstjórarnir eiga i raun ekki lagalegan rétt á að fara i verkfall eða leggja niöur störf. Um störf þeirra gilda herlög, og neitun um að hlýða skipunum I italska hernum varöar allt að eins árs fangelsi. Flugvélar erlendra flugfélaga sem staddar voru á ttallu i gær, komast fyrirsjáanlega ekki frá landinu fyrr en flugumferðar- stjórar hefja störf á ný. Olíuverd og pólitík trak hefur slegist i hóp með Iran og Llbýu, og hækkað oiiu- verð. I dag tekur gildi 10 prósent verðhækkun á oliu frá trak, og hefur trak þá náð þvl hámarki sem OPEC-rlkin komu sér saman um i júnl. Talsmenn oliu-auðhringa I Bandarikjunum sögðu frétta- mönnum Reuter, að hækkanirnar að undanförnu muni eflaust valda hækkunum á útsöluveröi bensrns og annarra olluafuröa. 1 Washington skýrði oliumála- ráðherra Saúdi-Arabiu, Sheikh Ahmed Zaki Yamani, hópi full- trúa oliuframleiðenda frá því aö hann byggist ekki við verulegum verðhækkunum á fundi OPEC 17. desember n.k. Aöeins ef tran drægi úr oliuframleiöslu, mætti búast við verulegum hækkunum, sagði Yamani. Sheikh Yamani sagðist vilja losna við hina tviþættu verðlagn- ingu OPEC-rikjanna, en hún fást iþviaösetter fastveröá oliu frá Sheikh Yamanl Saudi-Arabiu, en öðrum OPEC-rikjum sett leiöbeinandi hámarksverð. Saúdi-Arabla selur tunnumálið á 18 dollara, en hámarksveröið er 23.50 dollarar. Iran og Libýa hafa þegar fariö fram úr hámarkinu. A blaðamannafundi I Washing- ton krafðist Sheikh Yamani þess af Bandarilcjunum, aö þau hættu aö selja vopn til tsrael. Fylgir yfirlýsing þessi i kjölfar kröfu utanrikisráöherra Saúdi-Arabíu, Saúd Al-Faisal prins, aö rlkis- sfjórn Carters féllistá aö stofnaö yröi sérstakt palestinskt rlki á hluta þess landsvæðis sem tsrael ræður nú. Saúdl-Arabla er stærsti oltu- framleiðandi heims og kemur mestur olluinnflutningur Banda- rikjanna þaöan. ,,Ef það yrði friöur I Mið-Austurlönum, þá mynduð þið undrast allar góðu afleiðingarnar, þar á meöal I oliu- málum” sagði Sheikh Yamani á blaðamannafundinum. Alþjóðahvalveiðiráðið: Bann við búrhvaladrápi stað- fest Sextán aöildarrfki hvalveiöi- en Jápan, Perú og Sovétrlkin ráösins höfnuðu umleitan Sovét, guldu já viö. Cambridge, Englandi (Reuter). Hvalveiðiþjóðirnar höfnuðu umleitan Sovétrfkjanna að losaö yrði um bann við veiðum á búr- hvölum, sagöi Aiþjóðlega hval- veiðiráðið i gær. Sovétrikin eiga stærsta flota verksmiðjuskipa sem stunda hvalveiöar, og höföu farið þess á leit við meðlimariki hvalveiöi- ráösins, að mega veiöa 1.500 búr- hvali á næstu vertíö. Hvalveiöiráðið bannaði i júnl alla notkun verksmiðjuskipa við hvalveiðar. Snertir bannið einkum Sovétrikin og Japan. SAVE THE WHALES! \ % Hvalveiöar hafa nær útrýmt sumum hvalastofnum. Aðildarriki Alþjóðahvalveiðiráðsins viija takmarka búrhvalavelðar. Sameinuðu þjóðirnar: Söfnun tíl aðstoðar Kampútseu ii mniii—tw~i« Sameinuðu þjóðunum (Reuter). Aform Sameinuðu þjóðanna um aö senda mat og birgðir fyrir 110 miljónir dollara til Kampútseu, hafa fengið jákvæðar undirtektir rikisstjórnarinnar sem Vietnam og So vétrikin styðja, segja áreiðaniegar heimildir. Kurt Waldheim, aðalritari Sameinuðu þjóðnna, bað i gær þjóöir heimsins um framlög til vistasendinga til KampUtseu. Hann sagði að á næstu mánuöum þyrftu Barnasjóöur S.Þ. og Alþjóðlegi Rauði krossinn á 110 miljónum doUara aö halda til matar og lyfjakaupa. „Ég legg á það mikla áherslu, að allar rikis- stjórnir bregðist við af fyHstu samúö og rausn, til aö mæta þessari gífurlegu þörf á aðstoö”, sagði Waldheim. Aðstoöin miðast einvörðungu við neyð fólksins i Kampútseu, en dregist hefur að hrinda henni I framkvæmd, vegna þess að nauð- synlegt þótti að tryggja aö vista- sendingarnar lentu ekki I höndum hinna tveggja strlðandi herja I Kampútseu, sagöi Kurt Wald- heim. Hluti aðstoðarinnar mun renn til þeirra þúsunda flóttamann sem enn streyma inn I Thailam Embættismenn séu mér hlidhollir, segir Carter Washington (Reuter) Embættismenn sem styöja for- setaframboð Kennedy öldunga- deiidarþingmanns ættu að fá sér aðra vinnu ef þeir fylgja ekki stefnu Carters Bandarikjaforseta sagbi talsmaöur Hvitahússins s.l. iaugardag. Kennedy er flokksbróöir Carters og býður sig fram á móti honum I yfirstandandi forkosn- ingum til forseta kjörs I Banda- rikjunum „Viö teljum aö þeir, sem ekki styðja stefnu þessarar rlkis- stjórnar, ættu að fá sér vinnu annars staðar”, sagði Rex Gran- um, talsmaöur Bandarlkja- forseta. Hann bætti viö, að rikis- starfsmönnum heföi ekki veriö send formleg viðvörun. Einn af starfsmönnum Carters sagði Reuterhinsvegar að „Hvíta húsiö hefði tjáð ráðuneytisstjórum og öörum að þeim væri ætlað að starfa fyrir núverandi ríkis- stjórn”. Færri ferðamenn til Spánar Madrid (Reuter) Mikib dró úr ferbalögum til Spánar mánuðina júií, ágúst og september miðað við siðasta ár. Ferðalangar til Spánar I júll voru 16,2 prósentum færri I ár en i fyrra. t ágúst voru þeir 15,4 prósentum færriog I september 5 prósentum færri. Talsmenn feröamólayfirvalda á Spáni telja orsakir samdráttar- ins vera veröbólgu, sterka stööu pesetans og ofbeldisaðgerðir i landinu. Vilja starfa í sátt og samlyndi Manila (Rcuter) Bandariskir og sovéskir geimfarar lýstu á mánudag yfir, aö ekkert rúm sé fyrir átök milli þjóða úti i geimn- um, og ab Sameinuðu þjóð- irnar ættu ab sjá um lög- gæslu þar. t Manila hófst s.l. mánu- dag alþjóbleg ráðstefna um þann þátt læknavisinda sem lýtur aö fiug- og geimferö- um. A blaöamannafundi hafði William Thornton orð fyrir geimförunum Jeliseij- éf, Jegorof og Slayton: „Mörg riki sem lúta mis- munandi hugmyndafræöi hafa átt náið samstarf á Suö- urskautinu. Ég tel aö við rannsóknir á geimnum get- um við á sama hátt starfað saman I sátt og samlyndi.” |j Boris Jegorof tók undir þessi orö kollega slns.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.