Þjóðviljinn - 20.10.1979, Síða 12
12 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 20. oktdber 1979
alþýöubandalagiö
Landsþing ÆnAb
Reykjavik helgina 20. og 21. okt.
Landsþing Æskulýösnefndar Alþýöubandalagsins verður sett að
Freyjugötu 27 (húsnæði Starfsmanna félagsins Söknar ) laugardaginn
20. nk. kl. 10 árdegis.
Dagskrá þingsins verður þessi:
Laugardagur:
1) Lúðvfk Geirsson form. ÆnAb flytur skýrslu nefndarinnar fyrir liðið
ár.
2) Arthur Morthens flytur framsögu fyrir tiilögu ÆnAb um stofnun sér-
stakra æskulýðssamtaka innan Abl.
3) Umræður og skipting I starfshópa.
a) Stofnun æskuiýðssamtaka.
b) Stjórnmálaástandið og fyrirhugaöar þingkosningar.
c) önnur mál.
Sunnudagur:
1) Starfshópar skila áliti.
2) Umræður, afgreiddar ályktanir og tillögur þingsins, kosningar og
þingslit.
Félagar eru beönir aö tilkynna þátttöku slna til Starfsmanns ÆnAb
Benedikts Kristjánssonar Grettisgötu 3, I síma 17500.
ÆnAb.
ÁbR
Sjálfboðaliðar
Stjórn Alþýðubandalagsins I Reykjavik hvetur félaga til þess að skrá
sig til sjálfboöaliðastarfa til undirbúnings Alþingiskosningunum.
Skráning sjálfboðaliöa er I slma 17500.
Stjórnin
AbR
Félagsgjöld
Félagar I Alþýðubandalaginu I Reykjavík sem skulda árgjöld fyrir 1978
og/eða 1979 eru hvattir til að greiða þau sem fýrst á skrifstofu félagsins
aö Gretisgötu 3. '
Stjórnin
Alþýðubandalagsfóík Vesturlandi
AÐALFUNDUR kjördæmisráðs ABL á Vesturlandi veröur haldinn I
Rein Akranesi laugardag 20. og sunnudag 21. október n.k. Fundurinn
hefst ki. 14.00 á laugardag.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf. Nefndarkosningar, þar meö kosning upp-
stillingarnefndar.
2. Lagabreytingar.
3. Stjórnmálaástandiö. Framboösmál ofl.
Nefndastörf veröa á laugardagskvöld og sunnudagsmorgun.
Fundi verðui fram haldið kl. 13.30 á sunnudag. A dagskrá veröur þá:
1. Nefndaálit.
2. Skipulag kosningabaráttunnar, (útgáfustarfsemi og verkaskipting).
3. Kosning stjórnar og fundarslit.
Félagar eru hvattir til að fjölmenna. (Þeir sem lengra eru aökomnir
geta gist I Rein og hafi þá með sér búnað til þess.)
Stjórn kjördæmaráðs
Alþýðubandalagsfélag Fljótsdalshéraðs
Aöaifundurfélagsins verður haldinn laugardaginn 20. október kl. 16 í
fundarsal Egilsstaðarhrepps á Egilsstöðum.
Dagskrá:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Venjuleg aðalfundarstörf.
3. Kosning fulltrúa á flokksráösfund og I kjördæmisráð.
4. Lagabreytingar.
5. Staðan i stjórnmálunum — kosningaundirbúningur.
HelgiSeljan áfundinn.
Félagar fjölmenniö. stjórnin
Kjördæmisþing Alþýðubandalagsins
i Suðurlandskjördæmi
verður haldiö ISelfossbíóilaugardaginn 20. og sunnudaginn 21. okt. n.k.
og hefst kl. 14.00 20. okt.
Dagskrá:
1. Venjuleg aöalfundarstörf.
2. Forvals- og framboösmál.
3. Stjórnmálayfirlýsing.
4. útgáfumál.
5. Verkefni kjördæmisráðs og komandi kosningar.
6. önnur mál.
Stjórnin
Alþýðubandalagið á isafirði
Aðalfundur Alþýöubandalagsins á Isafirði veröur haldinn n.k. sunnu-
dag 21. okt. kl. 16.00 I Vinnuveri Mjallargötu.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Stjórnmálaástandiö og komandi alþingiskosningar. Kjartan Ólafs-
son hefur framsögu.
3. önnur mál.
Kjördæ misþing Alþýðubandalagsins
i Norðurlandskjördæmi eystra
verður haldinn I Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18 Akureyri, laugardag og
sunnudag 20. og 21. okt..Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. For-
vals-og framboðsmál. 3. Afvinnumál. 4. Verkalýðsmál. 5. Útgáfumál.
6. Ýmsar álytanir. 7. Onnur mál. Þingiðsett kl. 13 á laugardeginum 20.
okt..
Stjórnin.
Alþýðubandalagið á Reyðarfirði
Félagsfundur verður haldinn laugardaginn 20. október kl. 17.00 I Fé-
lagslundi. — Hjörleifur Guttormsson kemur á fundinn. — Fjölmenniö.
— Stjórnin.
Frá Kambseli til
Keflavíkur
Minningarorð
um Amór Sigurjónsson,
Brunnhól, A-Skaft.
Þeim fækkar nú óðum mln-
um gömlu og góðu samstarfs-
mönnum sem unnu að félags og
menningarmálum fyrir sveit sína
og hérað. í dag var einn af þess-
um mætu mönnum borinn til
grafar Arnór Sigurjónsson
Brunnhól sem enn taldist á góö-
um starfsaldri, eða 53 ára. Þar er
hniginn góöur drengur með áhuga
á öllu sem betur mátti fara og
aukið gat gengi fólksins* er mikil
eftirs já aö honum, fyrst og fremst
fyrir konu, börn, aldraða for-
eldra, annaö venslafólk, sveit
hans og félagsmálastarf Austur -
Skaftfellinga þar sem hann I
broddi fylkingar var til þess kjör-
inn af sveitungum sínum og öðr-
um héraðsbúum sem þar þurfa að
skipa málum.
Nú er Brunnhólsbóndinn geng-
inn til grafar. Við sem ef tir stönd-
um mænum til hans I anda eins og
til fleiri þegar leiðir skilja og
þökkum honum allt.
Ég hafði alltaf gaman að ræöa
við Arnör, hann var léttur I máli
vel gefinn og tók létt á þó maður
gerði sér til gamans og léti tvl-
ræð orð falla; þaö var I samræði
viö hans skapgerð.
Foreldrar Arnórs eru Sigurjón
Einarsson fæddur I Odda á Mýr-
um (sú jörð fallin úr byggö) og
Þorbjörg Benediktsdóttir frá Ein-
holti ein af hinum mörgu systkin-
um Gunnars Benediktssonar
prests og rithöfundar. Koma þau
hjón mjög við félagsmálasögu
Mýrahrepps og A-Skaftfellinga,
fyrst sem ungmennafélagar og
siöar hvort um sig eftir stöðu,
hann I verkahring karla en hún I
verkahring kvenna og höfðu þar I
mörgu forystu. Sigurjón mætir
sem fulltrúi Mýradeildar I
K.A.S.K. á fyrsta fulltrúafundi
þess 25. og 26. mal 1920. Fleiri
fulltrúafundi I K.A.S.K. átti hann
eftir að sækja. Þá sat hann
marga bændafundi sem fulltrúi
slns búnaðarfélags, einnig fundi
Búnaöarsambands Austur-Skaft-
fellinga, og I mörg ár fulltrúi
Austur-Skaftfellinga á Stéttar-
sambandsfundi bænda, neitaði
slðast kosningu aldurs vegna.
Oddviti hreppsnefndar Mýra-
hrepps frá 1947 til 1970. Þorbjörg
kemur mikið viö starfsemi kven-
félagsins á Mýrum og aðra starf-
semi sem konur hafa beitt sér
fyrir þar. Það hefur veriö með
hana eins og fleiri góöar konur,
hún hefur stuttbónda sinn I starfi,
og þvi' meir sem meira hefur
reynt á.
Einar faðir Sigurjóns var
hreppsstjóri Mýrahrepps frá
1916 til 1946 og oddviti frá 1905 til
1917, endurskoðandi K.A.S.K. i
fleiri áratugi svo fátt sé nefnt af
hans opinberu störfum. Kona
Einars Ingunn Jónsdóttir ágæt
húsfreyja og studdi þann málstað
kynsystrasinna sem betur mátti,
komin af þeirri ætt sem telur að
ég hygg flesta A-Skaftfellinga i
sinni ætt. Ég nefni aðeins þessi
nöfn til að rifjauppafhvaða bergi
Arnór er brotinn.
Arnór var fæddur I Kambsseli
Alftafirði 16. júli 1926, ég hygg
innsta bæ til dala sem þar er 1
byggð. Fjallahringurinn um-
hverfis bæinn hefði eflaust heillað
hug hins unga manns ef hann
heföi veriö búinn að fá fulla
skynjun aldurs vegna. A þessu
harðbýla afdalakoti lágu fyrstu
æskusporin. Margur sumardag-
urinn kom þar fagur sagði Sigur-
jón og kyrröin sem þarna rlkti
var ógleymanleg. Lika gátu kom-
iö þarna haröir hríðarbyljir, en
þeir gleymdust þegar sólin skein.
Égheld eftir tveggja ára dvöl I
Kambsseli hafi þau hjónin f lutt aö
Flugustöðum meö fjölskyldu
slna.ogbjuggu þareittár. Þaðan
lá leiðin I æskustöðvarnar Brunn-
hól á Mýrum. Þar er Sigurjón
kominn I ábúendatal 1931 og býr
þá með föður sinum, en fær brátt
nýbýli úr jörðinni og nefnir býlið
Arbæ. Þetta gerist 1936-1937. Ein-
ar og Stefán sonur hans fhittu frá
Brunnhóli með fjölskyldur sinar.
Stefán 1944 en Enar 1946 og er
Sigurjón þá einn ábúandi á þess-
um jöröum. 1956 eru Sigurjón og
Arnór sonur hans búnir aö kaupa
jarðirnar af Einari og það ár fer
Arnór að búa á Brunnhóli. Eftir-
lifandi kona hans er Ragna Sig-
uröardóttir, þriöji ættliður frá
Stefáni Eirikssyni hreppstjóra
og alþingismanns frá Arnanesi,
en föðurafihennar var Eymundur
Jónsson Dilksnesi þjóðhagasmið-
ur, vel hagmæltur og sagnaþulur
góður. Til Amerlku fór hann upp
úr aldamótum, var nokkur ár en
kom heim aftur með eitthvað af
fjölskyldu sinni og srttist að á
Höfnhjá Siguröi syni sinum. Hans
hagleikshendur komu sér vel
syðra eins og hér heima, bæði
sem smiður og meö liknsamar
læknishendur; má af þessu sjá að
Ragna er af góðum komin, enda
sver hún sig I ættina með greind
og myndarskap. Hún var bónda
sinum sterk stoð á lflsleiðinni, þó
liklega aldrei verið honum jafn
mikiðeins og I banalegunni þegar
hann helsjúkur lá ýmist á
sjúkrahúsi I Reykjavik, eða á
heimili sem þau mynduðu sér
þar. Hátt i ár vék Ragna aldrei
frá manni sínum en beið og von-
aði hins besta fyrst, en með
hverjum degi sem leið dvínaði
vonin uns yfir lauk 15. september
s.l. Þá kom fram þróttur ættar-
innar, þá reyndist hún manni sin-
um mest. Hann andaðist á
sjúkrahúsinu I Keflavik.
Þegar þau Arnór og Ragna byrj-
uðu búskap á Brunnhóli byggðu
þau öll hús aö nýju, Ibúðarhús,
fjós fyrir 25 kýr, fjárhús fyrir 250
kindur. Þá juku þau mjög ræktun
bæði á söndum og framræstu
landi. Búskapurinn blómgaðist
vel bústofninn var arðsamur
einkum kýrnar, munu þær sum
árin hafa skilað um hæstri nyt til
mjólkursamlags A-Skaftfellinga
áHöfn. Mátti afkoma þeirra telj-
ast góð á bænda visu.
Brátt eftir að Arnór hóf búskap
var hann kvaddur til opinberra
starfa af sveitungum sinum og
héraðsbúum. Hann sat I hrepps-
nefnd Mýrahrepps og var
oddviti hennar um tlma. Neitaði
að hafaþað starf á hendi
lengur. Fleiri félagsstörf hafði
hann á héndi innan sveitar
sinnar þó hér séu ekki tal-
in. Marga bændafundi sat hann
sem fulltrúi sins búnaöarfélags,
einnig á aöalfundum Búnaðar-
sambandsins;þá mætti hann sem
fulltrúi Mýradeildar á aöalfund-
um K.A.S.K. og nú siðast I stjórn
þess er hann lést. Hann var I
stjórn Graskögglaverksm. I Flat-
ey. Þetta stutta ágrip af störfum
Arnórs sýniraöhann hefur fetaði
spor feðra sinna sem forystumað-
ur sveitar sinnar og héraðs, og ef
aldur hefði leyft hefði það sýnt
það enn betur.
Arnór var góður eiginmaður,
ástrlkur faðir og trúr þeirri köllun
þar sem hann var kvaddur til
starfs fyrir almenning. Þau
Ragna og Arnór eignuðust þrjár
dætur, Þorbjörg húsfreyja á ein-
um bænum á Hala Suðursveit,
heitbundin Fjölni Torfasyni. Búa
félagsbúi með Steinþóri bróður
Fjölnis og konu hans ólöfu Guð-
mundsdóttur. Þorbjörg er fyrsti
varaþingmaður Alþýöubanda-
lagsins I Austurlandskjördæmi.
Kennari að mennt. Agnes Sig-
gerður, heitbundin Magnúsi Sig-
urðssyni, er að ljúka mennta-
skólanámi. Búsett I Njarövik.
Svava, lauk námi 1 Skógaskóla i
vor. Kom þá heim og vann aö búi
foreldra sinna f fjarveru þeirra á-
samt annarri stúlku. OfliAu þær
heyjanna i' sumar fyrir bústofn-
inn. Hún er yngst systranna.
Þann 22. september var Arnór
jarðsettur við Brunnhólskirkju aö
viðstöddu miklu fjölmenni.
Sóknarpresturinn séra Fjalarr
Sigurjónsson jarðsöng og hélt á-
gæta likræöu yfir honum I kirkj-
unni. Jaröarfarardagurinn var
hægur og kyrr, hann minnti á
manninn sem verið var að
kveðja. Að siöustu sendi ég öllum
aöstandendum Arnórs innilegar
samúðarkveðjur. Megi blessun
Drottins sem lengst hvila yfir
minningu hans.
Hala 22/9 1979.
Steinþór Þórðarson
• Blikkiðjan
Asgaröi 7, Garðabæ
Önnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíöi.
Gerum föst verðtilboö
SIMI53468
M íbúð óskast
Einhleypur maður óskar að taka á leigu
ibúðarhúsnæði.
Upplýsingar i sima 72276.