Þjóðviljinn - 20.10.1979, Síða 15

Þjóðviljinn - 20.10.1979, Síða 15
Laugardagur 20. október 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15 Jóhann Ingl Gunnarsson, landsliöseinvaldur: „Þah er ekki vafl á þvi aft viö erum á uppleih.” íþróttir um helgina Blak Siöasta umferö Reykjavikur- mótsins veröur n.k. mánudags- kvöld og leika þá ÍS og Þróttur og Vikingur og Fram. Fyrri leikurinn hefst kl. 20 i Hagaskól- anum. Heil umferö var á mótinu sli fimmtudag og uröu úrslit þessi: Vikingur — Þróttur 0:3 (5-15, 13- 15 og 8-15) Fram — IS 3:2 (13-15, 10-15, 15-13, 15-8 og 16-14) í kvennaflokki sigraöi Vikingur Þrótt 3:0. Staöan á Reykjavikurmótinu er nú þessi: Þróttur 2 2 0 6-0 4 IS 2115-42 Fram 2 11 3-5 2 Vikingur 2 0 2 1-6 0 Islandsmótiö I blaki hefst 3. nóvember n.k. meö keppni i 1. og 2. deild karla. Körfuknattleikur Laugardagur: Fram — KR, úd., Hagaskóli kl. 14. UMFG — Þór, 1. d. ka., Njarövlk kl. 15. Sunnudagur: Valur — 1R, úd., Hagaskóli kl. 13.30 Armann — Þór, 1. d. ka., Haga- skóli kl. 15 Judo Haustmót JSI veröur háö á morgun I Iþróttahúsi Kennara- háskólans og hefst keppnin kl. 14. Handknattleikur Einn leikur veröur I meistara- flokki karla á Reykjanesmótinu og eigast þar viö Grótta og Stjarnan. Leikurinn fer fram I íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi og hefst kl. 16. sæti keppniimar” Spjallað við Jóhann Inga um HM unglinga o.fl. Unglingalandsliöið i handknatt- leik, sem skipaö er leikmönnum 21 árs og yngri, heldur til Dan- merkur á mánudaginn. Þar er ætlunin aö taka þátt I heims- meistarakeppni þessa aldurs- flokks. Á þriðjudag verður leikið gegn Portúgölum, daginn eftir gegn Sovétmönnum og á fimmtu- deginum gegn Hollandi. Föstu- daginn nota strákarnir tii þess að hvila sig, þvi á laugardeginum leika þeir gegn Vestur-Þjóðverj- um og loks á sunnudeginum gegn Saudi-Arabiu. — Ég hef ýmsar upplýsingar um mótherja okkar t.a.m. aö Þjóöverjarnir eru geysisterkir og þjálfar þá enginn annar en Vlado Stenzel, sem geröi A-landsliöiö aö heimsmeisturum. Rússarnir eru enn betri og til glöggvunar á styrkleika þeirra má fullyröa aö þeir erubetri en tékkneska lands- liöiö, sem lék hér i vikunni, sagöi Jóhann Ingi Gunnarsson, þjálfari og einvaldur unglingalandsliösins islenska I stuttu spjalli I gær. — Hvað setjið þið markið hátt I keppninni? — Viö stefnum aö ná 3. sætinu og leika siöan um 9.-12. sætiö I keppninni, sem i rauninni er staöa islenskshandbolta i dag. En aöalatriöiö er aö strákarnir fái reynslu I svona erfiöri keH)ni, reynslu sem komi þeim aö notum siöar meir i alþjóölegri keppni. — Viö teljum þessa keppni nán- ast jafnmikilvæga fyrir islenskan handknattleik og B-keppnin á Spáni var s.l. vetur. Þýðir þetta aö stefnubreyting hefur orðið hjá HSl varöandi ung- iihngahandknattleikinn? — Já, viðhorfin hafa breyst hjá HSI þvl áöur var einblint á A-landsIiöið. Þaö hafa kannski opnast augu margra þegar A-lið- inu gekk hvaö verst i Danmörku, aö á sama tima gekk unglingaliö- inu vel. NU hafa handknattleiksáhuga- menn séð teikn þess að við séum á leiö UtUr lognmollunni, sem ein- kennt hefur handboitann undan- farin ár. — Þaö er ekki vaii á þvl aö viö erum á uppleiö. Aherslan hefur Framhald á 17 siöu Unglingalandsliðið 1979 ásamt þjálfara, Hðsstjóra og fararstjóra. „Þórunni Alfreðsdóttur var synjað um styrk þrátt fyrir að hún só iþróttamanneskja, sem um áraraðir hefur sýnt ótviræð afrek.” I^iþró Sinnuleysi stjórnenda Afreksmannasjóðs ÍSÍ Iþróttasíðunni barst fyrir skömmu bréf frá áhugamanni um framgang sund- íþróttarinnar, sem kýs að kalla sig skussa. Hann tekur á ýmsum málefnum sundsins og fér bréfið óstytt hér á eftir. Um þessar mundir eru allar svokallaðar vetrariþróttir að hefjast þó reyndin sé oröin sú I öllum alvöruiþróttagreinúm að þær eru æfðar allt árið um kring. Fyrir utan hinar sigildu boltaiþróttir á veturna, eins og handboita og körfubolta, sem nokkuð hefur verið fjallað um hér I Þjóðviljanum að undan- förnu, væri rétt að minnast á fleiri iþróttagreinar sem láta minna yfir sér, en eru þó engu að siður snar þáttur i iþróttalifi landsmanna. Sundiþróttin er nú að komast á fulla ferö eftir u.þ.b. mánaðarhvild og mikiö og öfl- ugt starf á siðasta starfsári. Þrátt fyrir lokun Sundhallarinn- ar eru æfingar hafnar i Laugun- um og Sundlaug Vesturbæjar og út um allt land þar sem aöstæö- ur eru fyrir hendi. keppnisiþrótt I dag eru að byrja frá grunni meö sitt væntanlega afreksfólk ef marka má þann árangur sem náöist á Unglinga- meistaramóti Islands á Sauðar- króki i haust. Þar voru unnin allathyglisverð afrek eins og hjá Guörúnu Femu i Ægi og Eövaröi Þór Eövarössyni, IBK. Annars er þaö aldeilis umhugsunarefni hversu marg- ir afreksmenn okkar i sundi hætta svo fljótt sem raun ber vitni. Bara á s.l. 2 árum hafa okkar fræknustu menn hætt meö öllu og nægir aö benda á fólk eins og Þórunni, Hermann og Axel Alferösbörn, Guönýju Guöjónsdóttur, Steinþór Guö- jónsson o.fl. Þaö er ekki svo litil blóötaka fyrir Iþróttagreinina og vert að hafa I huga þegar um heildararangur er aö ræöa. heimsmeistaramóti I sundi, hún hefur sett langflest Islandsmet kvenna I sundi frá upphafi og verið valin oftast Islenskra iþróttamanna sem Iþrótta- maður ársins I sinni grein. Þaö er kannski ekki aö undra aö þótt tslenskir sundmenn hugsi sig tvisvar áöur en þeir leggja á sig miklar æfingar þeg- ar slikt sinnuleysi er fyrir hendi ásamt ööru andstreymi innan iþróttarinnar sjálfrar. Skussi Sviptingar í félagsskipt- um Miklar sviptingar eru I félagaskiptum sundmanna þvi Armenningar hafa misst 2 af slnum bestu sundmönnum yfir til Ægis, þá Halldór Kristiansen og Brynjólf Björnsson. Þá hafa tveir efnilegustu sundmenn Akurnesinga hafið æfingar meö Ægi, en þaö eru þeir Ingi Þór og Ingólfur Gissurarson. Þeir stunda nú nám I Reykjavik. Þaö er þvl greinilegt aö flest þau félög sem iöka sund sem Furðurleg ákvörðun Af- reksmannasjóðs Þá hefur þvi veriö fleygt aö sund sem keppnisiþrótt eigi ekki upp á pallboröiö hjá æöstu forystumönnum Iþróttamála, þvl Sundsambandiö eitt af 7 sem sóttu um styrk úr Afreks- mannasjóöi ISI var synjaö um hann þrátt fyrir þá staðreynd aö þar var um aö ræöa Iþrótta- manneskju, Þórunni Alfreös- dóttur, sem um áraraöir hefur sýnt ótviræð afrek. Hún var fyrst lslendinga til aö taka þátt I

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.