Þjóðviljinn - 09.11.1979, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 09.11.1979, Blaðsíða 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 9. nóvember 1979 PIOOVIUINN Máigagn sósíalisma, verkalýðs- hreyfingar og þjóðfrelsis (Jtgefandl: (Jtgáfufélag Þjóftviljans Framkvrradastjóri: Eiöur Bergmann Riutjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson. FrétUftjóri. Vilborg Harbardóttir Umijónarmaöur Sunnudagsblaós: Ingólfur Margeirsson. Rekstrarstjóri: (Jlfar Þormóösson Auglýsingastjóri: Rúnar Skarphéöinsson Afgreiöslustjóri: Valþór Hlööversson Blaöamenn: Alfheiöur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Guöjón FriÖriks- son, Ingibjörg Haraldsdóttir, Magnús H. Gíslason, Sigurdór Sigurdórsson. Erlendar fréttir: Jón Asgeir Sigurösson tþróttafréttamaöur: Ingólfur Hannesson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Jón Ólafsson Ctlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Sævar Guöbjörnsson Handiita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar. Safnvöröur: Eyjólfur Arnason Auglýsingar: Sigriöur Hanna Sigurbjörnsdóttir, Þorgeir ólafsson Skrifstofa: Guörún GuÖvaröardóttir. Afgreiösla: Einar GuÖjónsson, Guömundur Steinsson, Kristín Péturs- dóttir. Slmavarsla: Ólöf Halldórsdóttir, Sigriöur Kristjánsdóttir. Bflstjóri: Sigrún Báröardóttir Húsmóöir: Jóna Siguröardóttir Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir Utkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn GuÖmundsson Ritstjórn, afgreiösla og auglýsingar: Síöumúla 6, Reykjavfk.simi 8 13 33. Prentun: Blaöaprent hf. Óttinn við A Iþvðubandalagið • Aldrei hafa árásir íhaldsmálgagnanna á Alþýðu- bandalagið og frambjóðendur þess verið eins heiftarleg- ar og fyrir þessar kosningar sem nú fara í hönd. Þessi heift íhaldsins í garð Alþýðubandalagsins stafar af því aðafturhaldsöflinóttastþaðað Alþýðubandalaginu tak- ist að skapa það einingarafl launamanna sem dugi til þess að standast yfirvofandi árásir auðstéttarinnar á lífskjör landsmanna. Til þess að ráðast gegn Alþýðu- bandalaginu hafa íhaldsöflin reynt að þyrla upp talna- moldviðri af margvíslegum toga. Þar er vandlega reynt að fela hvað gerðist í tið ríkisstjórnar Geirs Hallgríms- sonar og Olafs Jóhannessonar og þar er ekki minnst einu orði á ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Alþýðu- flokksins. Þögn þeirra talsmanna íhaldsins kemur hins vegar upp um vondan málstað. Staðreyndir opinberra talna sýna að kaupmáttur launa hefur þvf aðeins náð að batna að Alþýðubandalagið hafi veriö aðili að ríkis- stjórnum landsins — íhaldsstjórnir hafa jafnan skert kaupmátt launanna. Þögn íhaldsins um fortíðina er því sláandi fyrir það gegndarlausa skrum sem nú mætir kjósendum í kosningabaráttunni. Ennþá athyglisverðari er þó þögn íhaldsins um framtíðina, en það er ætlan Sjálfstæðisflokksins eftir kosningar að afnema verðbæt- ur á laun eins og gert var 1960. Þá voru verðbætur á laun bannaðar með lögum. Þessar staðreyndir verða kjósend- ur að hafa vel f minni. • Sérstaklegga er brýnt að launafólk geri sér vel Ijóst hvað í húfi er nú þegar allirkjarasamningar’eruíausir eða að losna. Komi Alþýðubandalagið sterkt út úr kosn- ingunum 2. og 3. desember verður staða launafólks einn- ig sterk í kjarabaráttunni sem á eftir fer. Komi Alþýðu- bandalagið veikt út úr kosningunum verður staða launa- fólks í kjarabaráttunni erf ið. Það eru þvf sem nú eins og alltaf áður bein tengsl milli kjarabaráttunnar og kosn- ingabaráttunnar. Þaðeru tengsl sem enginn launamaður má gleyma f þvf áróöursmoldviðri sem nú er þyrlaö upp né f þeim árásum sem íhaldið gerir nú að Alþýðubanda- laginu. Moldviðrið er vottur um óttann við Alþýöu- bandalagið. —s. Gleymum ekki reynslunni frá 1974 • f þessari kosningabaráftu hefur Framsóknar- flokkurinn reynt að sklrskota fil vinstri manna. Það gerði hann Ifka 1974. Tveimur mánuðum eftir kosn- ingarnar 1974 var hann þó kominn í stjórn með Sjálf- stæðisflokknum. Sú stjórn samþykkti stórfelldasta kauprán sem komið hefur fram á þessum áratug sem senn er á enda. Framsóknarlokkurinn ritar nú um það í málgögn sín að samanlagt þurfi Alþýðubandalagið og Framsóknarf lokkurinn 29 þingmenn til þess að hindra að ríkisstjórn íhaldsins og Alþýðuf lokksins komist til valda. f kosningunum 1974 fengu stuðningsflokkar vinstri stjórnarinnar 30 þingmenn, en íhaldið og kratarnir einn- ig 30 þingmenn. Þá var að vísu komið í veg f yrir íhalds- og kratastjórn. En þá fór Framáóknarf lokkurinn f stjórn með íhaldinu í staðinn tveimur mánuðum eftir kosning- ar. • Staðreyndin er sú að báðir milliflokkarnir heyja sfna kosningabaráttu meðtiiliti til þessaðþeir geti gengið inn i rfkisstjórn með ihaldinu. Þess vegna treystir fhaldið þvf aðeiga allskostar við hvorn þeirra sem er. Vegna reynsl- unnar frá 1974 þurfa launamenn að gera sér Ijóst að nú þarf sem aldrei fyrr að efla einn sterkan flokk launa- manna gegn fhaldinu og aðstoðarf lokkum þess. • Gleymum ekki reynslunni frá 1974. Pétur heldur áfram að hretlamarkTerðt - Sjá IJirttttr á 11. BoyKjavtk - rutRij6rn 8UOOO - Auglysingwr 1 B.'ICXi AfgrmAalt. og ðttkrift HGIIOO ■ KvoUfBltnar 80A87 a 863£ b.6 tr ckkt ,tkia* gl**tI.,ot vti.tit.ltir ttat rr tíl .ufiMyMli. ! tt.mplöjunut. rtitctmtuU tt.E Ólafur Jóhannesson heimsæklr fyrirtæki i borginni: ,FöIkiö tekur heimsöknum mínum ágætlega”! Pólitík? Ja, svei því. Framsóknarmenn hafa tamift ■ sér nokkuö einkennilega tónteg- | und i kosningabaráttunni. Þeir m láta eins og þeir séu eiginlega ■ ekki að stunda pólitik, heldur ■ eru þeir einhverskonar hlut- Z laust afl i miöju þjóölifsins sem I hafi þvi hlutverki aö gegna aö ■ umbera aöra stjórnmálaflokka | og koma 1 veg fyrir aö þeir ■ fremji allt þaö illt sem I þeim ■ býr. JJ Frambjóöendur hafa t.d. ver- ■ iö mikiö á ferli á vinnustööum I hériReykjavik. Olafur Jóhann- „ esson, sem nú er kominn á möl- ■ ina eins og fleiri i pólitiskum ■ skilningi, hann gerir slikt hiö J sama. En hann tekur þaö auö- I vitaö skýrt fram aö hann er ■ „ekki aö þrengja upp á þaö | (fólkiö) neinni pólitik”. Nei, guö m sé oss næstur, svo ókurteis er ■ framsóknarforinginn ekki. * Hann er, eins og hann segir Z sjálfuri Timanum I gær.barasta I ,,aö sjá fólkiö og sýna mig... og ■ skoöa og kynnast fyrirtækjun- I um”. Þessu fylgir, aö öll eru ■ fyrirtækin ágæt og merkileg. ■ ólafur hefur oröiö: : Hve gott og : fagurt m „Ég skoöaöi ágæt fyrirtæki i ■ gær og Hampiöjan, sem ég * heimsótti i morgunn er mjög ■ myndarlegt fyrirtæki og stór- I kostlegur vöxtur sem þar hefur ■ átt sér staö. Mér leist alveg frá- | bærlega vel á alla starfsem- ■ ina”. ■ Þetta er i anda greinar sem " næsti maöur viö Ölaf, Guö- Z mundur G. Þórarinsson, skrif- I aöi á dögunum; hann kallaöi ■ okkar áratug áratug Framsókn- I ar. Þar meö var allt þaö sem já- ■ kvætt mátti finna á lslandi tlnt ■ til (Noröurlandamet i lyfting- J um munu þó hafa gleymst) og ■ meö einum eöa öörum hætti .1 tengt viö þaö aö Framsóknar- 5 flokkurinn hefur setiö i þremur I rikisstjórnum samfleytt. Eins ■ er sú fyndna frásögn af skoöun- I arferöum Ólafs sem prýöir for- " siöu Timans i gær; þaö er svo ■ sem ekkert fullyrt, en aö baki ■ liggursúdjúpsálarfræöi.aö losa ■ Ólaf Jóhannesson viö leiöinlegt I samhengi eins og pólitik (fuss- ■ um svei) og raötengja hann viö I eitthvaöjákvætt: viö glæsilegan " vélakost — og fallegar stúlkur ■ viö vélarnar eins og segir i hug- ■ ljúfum myndatexta I Timanum i J gær: „Þaö er ekki aöeins glæsi- I legur vélakostur sem er til ■ augnayndis i Hampiöjunni”. Viö spáum þvi, aö einhvern- ■ timan á næstunni munum viö R.. sjá Olaf á forslöu Timans meö heilt dagheimili i kringum sig: Leyfiö börnunum aö koma til min.... Brot á mannasiðum ögri nefnist einn af dálkahöf- undum Alþýöublaösins (sem viröast allir hafa sama stil, hvernig sem á þvi stendur). Hann skorar á Þjóöviljarit- stjóra að hefja siövæöingu á blaöi sinu. Þaö vanti mikiö á aö almennir mannasiöir séu i heiöri haföir á þeim bæ, segir ögri. ögri segir lika aö þaö þurfi ekki aö leita lengra en i haus Þjóöviljans „Þar stendur aö blaöiö sé sérstakur málsvari þjóöfrelsis. Um leiö er auövitaö veriö aö gefa I skyn aö öll önnur blöö og aörir flokkar séu þaö ekki. Og þá er stutt i landráöa- brigslin...” Þetta er hin merkasta kenn- ing, og boðar mikla siöferöis- byltingu i nafngiftum og eink- unnaroröum. Viö getum haldiö áfram og sagt sem svo, aö þaö séu brot á m annasiðum ef flokk- ur kallar sig Sjálfstæöisflokk — þáer hannaögefa iskyn aö allir aörir flokkar séu á móti sjálf- stæöi. Sá sem kallar sig jafn- aöarmann er hinn versti slúbb- ert: hann er aö bera þaö upp á pólitiska grannasina aöþeir séu forréttindasinnar og yfirgangs- menn. Sjálf heiti Þjóöviljans og Alþýöublaösins eru móðgun viö þjóöina og alþýöuna og Morgun- blaöiö eitt sleppur; þaö gefur ekkertannaötilkynna en aöþaö komi út á morgnana. (Og þó; er blaöskrattinn þar meö aö segja aö önnur blöö geti þaö ekki?) Tóntegundir Viö skjótum þessu aö ögra til umhugsunar. Aö þvi er varöar landráöabrigshn, þá veit ögri vel, aö I meira en 30 ár hafa þeir sem eruá móti her og Nató kallaö Natóvini tilræöismenn viö sjálfstæöi þjóðarinnar, kanadindla og þar fram eftir götum. Natóvinir hafa kallaö herstöövarandstæöinga hand- bendi Rússa og tilræöismenn viö frelsilandsins. 1 ýmsum tónteg- undum. Þetta hefur verið ákveöinn talsmáti i pólitfk sem blaöamenn nútimans hafa ekki skapaö. Og þá er spurt: hverjir nota hannoghverjir ekki? Svari hver fyrir sig. Hitt er svo annað mál, aö hægri pressan hefur alltaf haft vinninginn i svivirðingunum. ; AUt frá þvi aö hún sló tóninn og kallaöi sr. Sigurbjörn Einars- son, slðar biskup, en þá Alþýðu- flokksframbjóöanda og Þjóö- varnarfélagsmann „smuröan agent Moskvu”. -áb Skartgripaverslun Jóns Sig- mundssonar er nú 75 ára Fyrir skemmstu átti ein elsta skartgripaverslun bæjarins, kennd við stofn- anda sinn Jón Sigmunds- son, 75 ára afmæli. Versl- unin tók sér kjörorðið „Fagur gripur er æ til yndis" og hefur reynt að fylgja þvf eftir fremstu getu. Er verslunin var 50 ára gaf hún út bók um islenska gullsmiöi eftir Björn Th. Björnsson listfræöing. Þaö er bók um Islenska gullsmlöi frá upphafi byggöar til vorra daga. Sllkt rit hefur ekki komiö út fyrr á vora tungu og þvi einstakt I bókmenntum okkar. Verslunin hefur löngum veriö viö aöalgötur bæjarins, lengst var hún viö Laugaveg 8, og munu margir minnast hennar þaöan. Nú er hún i Iönaöarhúsinu viö Hallveigar- stig. Forstööumaöur fyrirtækisins er nú Slmon Ragnarsson gull- smiöur, sonarsonur stofnanda þess, Jóns Sigmundssonar. I tilefni afmælisins hefur versl- unin brugbiö til nokkurra nýjunga. Hún hefur látiö gera safn gullhringa undir kjöroröinu Demantur er almenningseign, sem er eins og nafniö bendir til, safn gullhringa sem sýna aö demanturinn óskasteinn kon- unnar geti veriö á viöráöanlegu veröi fyrir hvern sem er. Er þetta athyglisvert safn sem mönnum er boöiö aö sjá I versluninni nú afmælisdagana.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.