Þjóðviljinn - 12.01.1980, Side 9
8 SIÐA — ÞJÓÐVÍLJINN Laugardagurinn 12. janúar 1980.
Laugardagurinn 12. janúar 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
Vigdís h innbogadóttir afhendir Þorsteini o. siepnensen blómakörfu ilok frumsýningar, t.v. leikstjórinn og höfundur leikmyndar.
Sverrir Hólmarsson
skrtfar um W
w m, r WHEP% K '
%
\Jmá % '^9
Harmþrungið skop
Guörún Asmundsdóttir, Þorsteinn ö. Stephensen, Gisli Halldórsson og
Jón Sigurbjörnsson i Kirsuberjargaröinum.
sýmr
Kirsuberjagarðinn
eftir Anton Tsjékov
Leikstjóri og þýöandi:
Eyvindur Erlendsson
Leikmynd: j
Steinþór Sigurösson
Höfuðsnillingur seinni tima
ieikritunar, Anton Tsjékov, lauk
við kórónuna á lifsverki sinu,
Kirsuberjagarðinn, árið 1904.
Árið eftir að þessi fagri og
átakanlega skoplegi óöur um
siðustu daga deyjandi stéttar var
frumsýndur i Listaleikhúsinu i
Moskvu undir stjórn Stanislavski
gerði fólkið i Rússlandi uppreisn
gegn þessari úrkynjuðu og úreltu
stétt. Sjaldan hefur nokkur lista-
maður veriö jafnnæmur fyrir
straumum samtiðar sinnar og
Tsjékov og þetta verk er einum
þræði hárnákvæm og djúpsæ
greining á sögulegum breyting-
um, siðustu leifar lénsveldis eru á
hvörfum og borgarastétt er að
taka völdin. Þetta kemur einkar
skýrt fram i samskiptum þeirra
systkina Ljúbov og Leonids við
gamla þjóninn Firs annars vegar
og hins vegar kaupmanninn
Lopakhin. Milli þeirra og Firs eru
ennþá hin gömlu persónulegu
tengsl landeigandans og hins
ánauðuga undirsáta, milli þeirra
og Lopakhins rikir spenna sem
meðal annars kemur fram i þvi
að þau systkinin skilja ekki eðli
peninga i kapitalisku samfélagi
og allar tilraunir Lopakhins til aö
skýra þaö út fyrir þeim hljóta aö
mistakast.
En þetta er auðvitaö aðeins ein
hlið verksins, það segir okkur
einnig margvislega miklu al-
mennari hluti um mannleg sam-
skipti. 1 fullkomnum trúnaði sin-
um viö hversdagslegt raunsæi
lýsir Tsjekof þvi hvernig mannleg
örlög skipast viö atvik sem á yfir-
borðinu virðast litilvæg, en hann
notar lika skáldlegt táknsæi til aö
undirstrika dýpstu merkingar-
þætti verksins, svo sem kirsu-
berjagarðinn sjálfan og hið dular-
fulla hljóð sem heyrist i öðrum
þætti, strengurinn sem brestur.
Afstaða Tsjekofs til persónanna
markast annars vegar af samúð
og skilningi á góöum eigindum
þeirra en hins vegar af
miskunnarlausu skopi sem
afhjúpar sjálfsblekkingar þeirra
og fánýta viðleitni. Verk hans eru
harmleikir i þeim skilningi að
persónurnar berjast vonlausri
baráttu við öfl sem þær ekki
skilja til neinnar hlitar, en þessi
harmleikur er færður fram með
ærnu skopi, áhorfendum er ætlaö
að hlæja með kökk i hálsi.
Þvi mun enginn mótmæla að
Tsjekof er erfiöur i uppfærslu.
Þar kemur margt til. Kirsu-
berjagarðurinn er mannmörg
sýning en þar eru engin aukahlut-
verk, hvert einasta eitt er jafn
mikilvægt til þess að allir þættir
leiksins komist til skila. En það
sem erfiöast hefur reynst viður-
eignar er að finna rétta leið milli
harms og skops. Tsjékof sjálfur
kallaði Kirsuberjagarðinn farsa,
og þótt það eigi kannski ekki að
taka bókstaflega vildi hann með
þvi leggja áherslu á hina skop-
legu hlið verksins og reyndist það
ekki aö ófyrirsynju þvi að oft-
sinnis hafa verk hans veriö
uppfærð af yfir-fljótandi tilfinn-
ingasemi, en slikt er hin argasta
mistúlkun.
Eyvindur Erlendsson er liklega
handgengnastur Tsjekof is-
lenskra leikhúsmanna, og djúpur
skilningur hans á skáldinu leynir
sér ekki i sýningu Leikfélagsins
nú, sem er vafalaust besta Tsjé-
kofsýning sem hér hefur sést.
Eyvindi hefur tekist mjög vel að
rata þann erfiða milliveg sem
áður var um getið, sýningin
verður aldrei þrúgandi tilfinn-
ingasöm og áhorfandanum sifellt
ljós skopleg hlið persónanna.
Hann hefur einnig sýnt þá natni
við smáatriöi sem nauðsynleg er
til að sýningin heppnist. Og siðast
en ekki sist hefur hann lagt mikla
rækt við andblæ og hrynjandi
leiksins og náö á sýninguna fögru
og hugnæmu yfirbragði. Hér nýt-
ur hann góðs stuðnings af einkar
hagkvæmum og fallegum tjöldum
Steinþórs Sigurðssonar og
meistaralegri lýsingu Daniels
Williamssonar. Leikmyndin er að
visu stilfærðari en natúralisk að-
ferð höfundar gerir ráö fyrir en
aðfinnslur i þá veru eru tæplega
réttmætar i þessu tilviki.
Það yrði of langt mál hér að
telja upp alla leikendur, þó að full
ástæða væri til. En hiklaust má
fullyrða að leikhópurinn sé mjög
samhæfður og jafn og miklu
bregður fyrir af verulega góðum
samleik.sem er það sem Tsjékof
stendur og fellur með. Sem dæmi
má nefna upphaf annars þáttar
þar sem þau Hanna Maria Karls-
dóttir, Jón Hjartarson, Soffia
Jakobsdóttir og Kjartan
Ragnarsson sýna okkur einsemd-
ina i samveru þjónustufólksins
með óborganlegum hætti, eða þá
samtal Lophakins og Trofimofs i
fjórða þætti þar sem aö styrkur
og veikleikar þessara tveggja
persóna vega snilldarlega salt i
hárfinum meðförum Hjalta
Rögnvaldssonar og Jóns Sigur-
björnssonar. Hjalti nær yfirleitt
ótrúlega næmum tökum á
persónu Trofimofs, sem er afar
mikilvægt fyrir sýninguna, þar
sem jafnhættulegt er að taka
þessa persónu of alvarlega sem
boðanda sannleikans eins og það
erað visa honum á bug sem skop
legum dugleysingja. Hjalti girti
fyrir þetta hvort tveggja með leik
sinum.
Það var auðvitað mikil dýrð að
sjá Þorstein ö. Stephensen i hlut-
verki Firs og túlka hrumleika,
einfeldni og utanveltuhátt þessa
góðviljaða manns svona fallega.
Gisli Halldórsson var átakanlega
skoplegur Leonid og vóg fallega
salt milli hjartagæsku og ráðleys
is þessa manns. Guðrún As-
mundsdóttir, sýndi okkur hlýju og
einlægni Ljúbov á geðþekkan hátl
en skorti nokkuð á aö sannfæra
mig um ástriðuhita konunnar.
sem hlýtur þó að vera mjög snar
þáttur i persónunni.
Um þýðingu Eyvindar á verk-
inu er ég ekki fyllilega dómbær
vegna vanþekkingar algerrar á
frummálinu, en ég hygg að hún sé
afar athyglisvert verk og hún er
að minnsta kosti mjög litrikur og
lifandi texti á sviði.
1 heild var þetta yndisleg sýn-
ing sem á eftir að lifa lengi i
minningunni.
Sverrir Hólmarsson.
Ákærðu
í Geirfinns-
málinu
Guðmundar
og Geirfinns
málin:
komið málum þótti mönnum hægt
miða hjá islensku> ; rannsóknar-
lögreglunni i málinu. Harðar
blaðadeilur risu út af þvi, þar á
meðal afar harðar ásakanir Vil-
mundar Gylfasonar núverandi
dómsmálaráðherra, á hendur
Olafi Jóhannessyni, sem Vil-
mundur ásakaði um að hylma
yfir með ýmsum þrjótum, er
hann taldi tengjast þessu máli.
Ólafu'r brást hart við og bar af sér
bæði i orði og verki. Hann gekkst i
þvi að til landsins vár fenginn
þýskur rannsóknarlögreglumað-
ur, sem kominn var á eftirlaun og
honum, ásamt islenskum rann-
sóknarlögreglumönnum, var
fengin rannsóknin i hendur.
Guðjón játar
Karl Heinz Schutz kom tillands-
ins i júni og fór langur timi hjá
honum i að kynna sér það sem
komið hafði fram i málinu. Að
auki blandaðistsvo inn i morðmál
sem upp kom skömmu eftir að
hann kom til landsins og leysti
hann þá gátu á tveimur eða
þremur dögum og þótti vel af sér
vikið.
I Geirfinns-málinu gerðist aftur
á móti fátt, þar til 12. nóvember
1976 að Guðjón Skarphéðinsson
var færður til yfirheyrslu. Höfðu
þau Erla, Sævarog Kristján nefnt
nafn hans 46 sinnum við yfir-
heyrslur. Guðjón hafði verið yfir-
heyrður stuttlega i mai 1976 en
sleppt strax á eftir.'En 12. nóvem-
ber var. hann hnepptur i gæslu-
varðhald.
Við yfirheyrslur játaði svo Guð-
jón og skýrði frá þvi hvernig hann
ásamt þeim Kristjáni Viðari og
Sævari Ciecielski hefðu orðiö
Geirfinni Einarssyni að bana i
Dráttarbrautinni i Keflavik 19.
nóv. 1974. Þegar játning Guðjóns
lá fyrir játuðu þeir Kristján og
Sævar lika og Erla að hún hafi
verið þarna viðstödd og vltaö
hvað gerðist.
A þessum játningum var ákær-
an gegn þeim svo byggð. Siðar
gerðist það að Sævar Kristján og
Erla drógu játningu sina til baka,
en Guðjón ekki. Einnig dró
Tryggvi Rúnar játningu sina um
þátttöku i morðinu á Guðmundi
Einarssyni til baka. Mun þarna
hafa verið um að ræða lögfræði-
klæki, þar sem sönnunargögnin,
þ.e.a.s. likin vantaði.
Þeir sem játuðu á sig morðið á
Geirfinni sögðust hafa grafið likið
upp i Rauðhólum, en þrátt fyrir
mjög itarlega leithefur það aldrei
fundist, og ekki heldur lik Guð-
mundar Einarssonar, sem þeir
sögðust hafa grafið i Hafnar-
fjarðarhrauni.
Við réttarhöldin i héraði, var
það eitt helsta haldreipi verjenda
sakborninga, að sönnunargögnin
hefðu ekki fundist og þvi væri það
algerlega ósannaö aðþessir menn
væru látnir auk þess sem þeir
höfðuðu sterklega til þess, að sak-
borningar, utan Guðjón höfðu
dregið játningar sinar til baka.
Og nú er það sem sagt á.mánu-
daginn kemur, sem málflutn-
ingur þessa viðamikla máls hefst
fyrir Hæstarétti. Astæðan fyrir
þvi hvað það hefur dregist að taka
máliö þar fyrir er hversu mál-
skjalabunkinn er giðarlega mikill
og máliö allt viðamikið.
— S.dór
Koma nú fyrir Hæstarétt
sókn málanna, rangar sakagiftir,
skjalafals og auðgunarbrot.
Geirfinns-málið
Sjálfsagt er öllum enn i fersku
minni allt það sem gerðist i kring-
um þessi tvö viðamiklu sakamál
en sökum þess að þau koma nú
fyrir Hæstarétt og munu þar
hljóta endanlegan dóm, þykir við
hæfi að rifja upp það helsta sem
gerðist.
Það var að kvöldi hins 19.
nóvember 1974 að Geirfinnur
Einarsson verkamaður úr Kefla-
vik fór til fundar við einhverja
menn, áð þvi er hann sagði áður
en hann lagði af stað til þessa ör-
lagarika stefnumóts. Hafði ein-
hver maður hringt heim til Geir-
finns og áttu þeir stutt samtal. Þá
heyrðist Geirfinnur segja, ,,ég
var búinn að koma” og siðan ,,ég
kem”. Fór hann siðan aö heiman
og hefur ekkert til hans spurst
siðan.
Leirstyttan
Þegar Geirfinnur kom ekki
heim um nóttina tilkynnti eigin-
kona hans lögreglunni um hvarf
hans og var hafin skipulögð leit aö
honum 21. nóvember. Þessi leit
stóð yfir allt fram á mitt sumar
1975 án nokkurs árangurs. Sendi-
ferðabifreið kom mikið viö sögu i
þessari leit, eins og fólk eflaust
man eftir, sem og maður nokkur
sem kom inn i Hafnarbúðina i
Keflavik um svipað leyti og
hringt hafði verið heim til Geir-
finns aö kvöldi 19. nóv.
Starfsstúlkur i Hafnarbúðinni
gáfu lýsingu á þessum manni og
var eftir fyrirsögn þeirra gerð
leirmynd af manninum og mynd
af henni birt i blöðum. En það var
alveg sama hvað gert var, rann-
sóknarlögreglumennirnir i Kefla-
vik, sem önnuðust rannsókn
málsins urðu einskis visari og má
segja að málið hafi lognast útaf er
leið fram á árið 1975.
Sævar og Erla handtekin
Siðan gerðist það, að þau Sævar
Ciecielski og sambýliskona hans
Erla Bolladóttir voru handtekin
og úrskurðuð i gæsluvaröhald 12.
desember 1975 rúmu ári eftir
hvarf Geirfinns. Astæðan fyrir
þvi að þau voru handtekin var sú,
að þau voru grunuð um að hafa
svikið fé út úr Pósti og sima. Við
yfirheyrslu játuðu þau á sig þetta
fjársvikamál, sem var mjög stórt
i sniðum. Þau höfðu svikiö út 950
þúsund krónur með póstávisun.
En nú tóku hjólin heldur betur
að snúast. Ekki er vitað til aö
neinn grunur hafi fallið á Sævar
hvað viö kom hvarfi þeirra Guö-
mundar Einarssonar og Geirfinns
Einarssonar. Samt gerðist þaö 22.
desember 1975, að Sævar Cieciel-
ski játar á sig morð, hann hafi,
ásamt Kristjáni Viðari og
Tryggva Rúnari drepið Guömund
Einarsson, 27. janúar 1974 i húsi
einu i Hafnarfirði. Kristján Viðar
var þegar i stað handtekinn og
hnepptur i gæsluvarðhald, en
iTryggvi Rúnar var þá á Litla
ilHrauni að afplána fangelsisdóm.
málflutningur
hefst á
mánudaginn
14. janúar
Albert Skaftason var einnig
hnepptur í gæsluvarðhald.
A árinu 1975 hafði fyrrum sam-
býliskona Sævars fundist látin i
flæðarmálinu skammt frá Vík i
Mýrdal, en einhverra hluta vegna
var það mál mjög litið rannsakaö,
þótt öllum sem til þekktu þætti
það mál i hæsta máta grundam-
legtv
Þeir Sævar, Kristján Viöar og
Tryggvi sögðu við yfirheyrslu að
ieir hefðu urðaö lik Guðmundar
Einarssonar „einhversstaöar”
;uður i Hafnarfjarðarhrauni og
/iðurkenndi Albert Skaftason að
lafa ekið fyrir þá „einhverju”
iuður i Hraun, en sagðist ekki
íafa vitaö hvað það var.
l\Aeinsæri
Um þessar mundir tók hvarf
Teirfinns Einarssonar að bland-
ist inn i þetta mál og sögðu þau
Erla og Sævar að þau vissu
iverjir væru valdir að hvarfi
Teirfinns Einarssonar. Bentu þau
i 4 menn i þvl sambandi, þá Ein-
ar Bollason, hálfbróðir Erlu,
Valdimar Olsen, starfsmann Þór-
;afés, Sigurbjörn Eiriksson og
Magnús Leopoldsson starfsmann
Klúbbsins. Þvi verður að skjóta
lér inn i, að árið 1975 kom upp
’eysilega stórt smyglmál, svo
nefnt „spiramál” á Suðurnesjum,
;em af einhverjum orsökum
:ékkst aldrei rannsakað til fulls
)g gufaði upp i málsmeðferð.
Vljög fljótlega var hvarf Geir-
'inns sett i samband við þetta
mál, þótt aldrei sannaðist neitt I
þeim efnum. Það var 26. janúar
1976, sem Einar, Magnús og
Valdimar voru handteknir og úr-
skurðaðir i gæsluvarðhald en 10.
'ebrúar sem Sigurbjörn var
landtekinn.
Ruglingslegur framburöur
Allur framburður þeirra Erlu,
Sævars og Kristjáns varðandi
Geirfinnsmálið var mjög
ruglingslegur og bar þeim ekki
saman og urðu jafnvel margsaga.
En svo gerðist það 2. mai 1975 að
Erla Bolladóttir játar að hafa
arðið Geirfinni að bana, eftir að
honum hafi verið misþyrmt
hroðalega i Dráttarbrautinni i
Keflavik. Kvað hún Sævar hafa
rétt sér riffil og sagt sér aö skjóta
Geirfinn, sem hún kvaðst hafa
gert.
Þar með hafði málið tekið alveg
nýja stefnu og 9. mai var þeim
fjórmenningunum sleppt úr
gæsluvarðhaldi.
En málið var ekki þar meö i
höfn. Þau Erla Sævar og Kristján
voru svo margsaga um þetta mál,
að engin leið þótti að byggja á
framburði þeirra. Þegar hér var
A mánudaginn kemur, hefst
fyrir Hæstarétti málflutningur i
viöamestu afbrotamálum þessar-
ar aldar hér á landi, hinum svo
nefndu Guðmundar- og Geirfinns-
málum, en héraðsdómur i þeim
féll 19. desember 1977 og var mál-
inu, cins og öllum morðmálum
visað til Hæstaréttar.
Þeir sem hlutu dóm i héraði 19.
des. 1977 vegna þessara mála
voru:
Kristján Viðar Viðarsson ævi-
langt fangelsi.
Sævar Marinó Ciecielski, ævi-
langt fangelsi.
Tryggvi Rúnar Leifsson, 16 ára
fangelsi.
Guðjón Skarphéðinsson, 12 ára
fangelsi.
Erla Bolladóttir, 3 ára fangelsi.
Albert Klahn Skaftason, 15
mánaða fangelsi.
Þeir Kristján, Sævar og
Tryggvi voru allir fundnir sekir
um morðið á Guðmundi Einars-
syni, en Kristján, Sævar og Guð-
jón um morðið á Geirfinni
Einarssyni. Albert Skaftason
fyrir að tálma rannsókn á morði
Guðmundar Einarssonar og fyrir
sölu og neyslu fikniefna. Erla
Bolladóttir fyrir að tálma rann-
Guðjón Skarphéðinsson.
Karl Heinz Schutz, þýski rannsóknarlögreglumaðurinn, sem talinn er hafa upplýst Geirfinns-málið að
fullu. Fyrir framan hann er hin mjög svo umdeilda leirmynd af manninum, sem hringdi úr Hafnarbúð-
inni i Keflavík að kvöldi 19. nóv. 1974.
Erla Bolladóttir
Kristján Viðar Viðarsson
Sævar ðlarinó Ciecielski
i