Þjóðviljinn - 12.01.1980, Qupperneq 15
Laugardagurinn 12. janúar 1980. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15
Hjónakornin Mary og Jonathan. Andstreymi þeirra lýkur annaö
kvöld.
Andstreymi lýkur
Annað kvöld kemur á skjá-
inn þrettándi og síðasti þáttur-
inn i ástralska framhalds-
myndaflokknum Andstreymi.
Flokkur þessi virðist njóta
talsverðra vinsælda, enda um
margt athyglisverður. Hann
er framleiddur samkvæmt
„sápu-óperu” uppskriftinni
frægu: mátulegt sambland af
spennu og væmni i hverjum
þætti og einhver gegnumgang-
andi þráður til að halda fólki
viö efnið. Aðalpersónurnar
eru ósköp elskulegt fólk, sem
maður getur vel hugsað sér aö
hafa inni i stofu hjá sér á
sunnudagskvöldum.
En það sem gerir hann at-
Sjónvarp
kl. 20.45:
hyglisverðan er kannski fyrst
og fremst umhverfið sem per-
sónurnar hrærast i, og er okk-
ur svo framandi og fjarlægt
bæði i tima og rúmi.
Hingaðtil hefur mikið mætt
á Mary og Jonathan og hreint
alveg lygilegt hvaði alltaf ræt-
ist úr á endanum.
Það kæmi mér þvi mjög á
óvart ef þau réðu ekki við það
andstreymi sem mætir heim
annað kvöld. ~'h
Gott
laugar-
dags-
kvöld
Óli H. Þorðarson stjórnar i
kvöld útvarpsþætti með blönd-
uðu efni, sem hann nefnir
„Gott laugardagskvöld”.
— Ég ætla að fjalla svolltið
um lesendabréf i dagblöðum,
— sagði Óli, — og byrja þá á
þvi að rifja upp sögu Velvak-
anda, sem er liklega elsti les-
endadálkurinn og hefur birst-
að staðaldri siðan uppur 1950.
Fyrsti umsjónarmaður Vel-
vakanda var Bjarni Sigurös-
son frá Mosfelli, og mun ég
ræða við hann i þættinum.
En það er ekki aðeins
Morgunblaðið, sem birti les-
endabréf, og ég mun taka fyrir
lesendadálka hinna blaðanna
og lesa úr bréfum sem þar
voru birt i gær, föstudag.
Óli H. Þórðarson býður gott
laugardagskvöld.
Útvarp
kl. 20.30
Jörundur mun eitthvað láta
til sin heyra i þættinum, og
siöan verður viötal við Sigur-
dór Sigurdórsson blaðamann
um Spánarferðir og fleira.
Sigurdór hefur verið leiösögu-
maður á Spáni undanfarin
sumur.
Loks er ætlunin að reifa
nokkuð það stóra deilumál,
hvort nýr áratugur sé hafinn
eða ekki. -ih
Þáttur um A1 Capone
Sunnudaginn 13. janúar kl.
15.00 verður fluttur 2. þáttur-
inn úr flokknum „Stjórnmál
og glæpir” og nefnist hann
„Söguljóö unt Chicago, dag-
skrá um gullöld bófanna”.
Höfundur er Hans Magnus
Enzensbcrger, en Viggo Clau-
scn hefur búið til útvarpsflutn-
ings. Þýðinguna geröi Jón
Viðar Jónsson, en flytjendur
eru: Erlingur Gislason, Hó-
bert Arnfinnsson, Gisli Al-
freðsson, Hclgi Skúlason, Gisli
Húnar Jónsson, Klemenz
Jónsson og Jónas Jónasson,
sem jafnframt er stjórnandi.
Flutningur þáttarins tekur 58
minútur.
A þriðja og fjórða áratug
þessarar aldar réðu bófafor-
ingjar lögum og lofum i einni
stærstu borg Bandarikjanna,
Chicago. Harðvitug barátta
var milli þeirra innbyrðis um
yfirráðasvæði. Væri einhver
ekki nógu „þægur”, var hon-
um komið fyrir kattarnef,
helst svo litið bar á.
Frægastur þessara foringja
var A1 Capone. Hann leit út
sem vel metinn kaupsýslu-
„Maöurinn á bakvið” — A1
Capone.
Útvarp
kl. 15.00
maður, gekk i fötum eftir nýj-
ustu tisku, oft með rós i
hnappagatinu, gerólikur þeim
raunverulega Capone, sem lét
drepa mörg hundruð manns.
Sjálfur var hann alltaf
„maðurinn á bak við”, hand-
langarar hans unnu verkin.
Hringið í síma 8 13 33 kl. 9-5 alla virka
daga eða skrifið Þjóðviljanum
Síðumúla 6, 105 Reykjavík
tfrá
■
lesendum
Reykvíkingar hafa á
undanförnum árum verið
að uppgötva, að það er
hægt að f ara út úr bænum
á veturna. Skíðaferðir i
Bláfjöll njóta sívaxandi
vinsælda, og er það vel.
Það er nefnilega f leira til
í heilbrigðisþjónustu en
spítalar og almennings-
iþróttir eru einkar vel til
þess fallnar að bæta
heilsu manna.
Þessvegna finnst
manni það skjóta nokkuð
skökku við, að það skuli
vera jaf ndýrt og raun ber
vitni að fara með fjöl-
skylduna á skíði upp i
Bláfjöll. Fyrir fjögurra
manna fjölskyldu kostar
það nú u.þ.b. 13.000 krón-
ur, ef keypt eru dagskort.
Skiðalyfturnar i Bláfjöllum
eru reknar af mörgum sveitar-
félögum, þ.á.m. Reykjavik og
er ekki ofsagt að hálf þjóðin
standi á bak við þetta fyrirtæki.
Samt er dýrara að fara i lyft-
urnar þar en hjá KR-ingum á
skiðasvæðinu i Skálafelli. Þar
kostar dagskortin 2.200 kr. en
2.800 i Bláfjöllum. Eitt iþrótta-
félag getur semsé selt þessa
þjónustu ódýrar en hálf þjóðin.
Mer finnst það lágmark að
krakkar fái fritt i lyfturnar i
Bláfjöllum. Þannig mætti auð-
velda fjölskyldum að komast á
skiði sem oftast.
G
Bryndís
svarar
Ég hef fyjgt þeirri
reglu að láta afskipta-
lausar umsagnir um
,,Stundina okkar" i les-
endadálkum blaðanna,
hvort heldur þær eru til
lofs eða lasts.
En þegar farið er að
væna mig um kynþátta-
fordóm í garð gyðinga, ;
gef ég ekki orða bundist.
Ég hef sjálf alla tið verið
mikill aðdáandi gyðinga
vegna sögulegra afreka :
þessarar þjóðar í þágu 1
menningar, visinda og
lista. Ég get því fallist á,
að fyndni á þeirra kostn-
að sé gáleysisleg, ef hún
er tekin alvarlega.
1 þessu samhengi sakar ekki
að geta þess, að forfeður minir i
föðurætt sem settust að hér á
landi við upphaf 19. aldar voru
gyðingakaupmenn frá Schles-
vik-Holsein. Og gott ef ég er
ekki gyðingur i móðurætt lika
(þeir segja að gyðingar hafi
bætt blóð Bergsættar). Sem slik
ætti ég etv. að taka umrædda
„gyðingabrandara” til min. Ég
er hinsvegar ekkert móðguð við
Binna. Hafa ber i huga, að til
eru hundruð safnrita með
„skotabröndurum” „irafyndni”
o.s.frv. Við skulum ekki vera of
hátiðleg. Myndin i gær var af Þorleifi Haukssyni, útgáfustjóra Máls og
Bryndis Schram Menningar.
Dýrt að fara á skíði í Bláíjöll