Þjóðviljinn - 06.02.1980, Qupperneq 16
UOBVIUINN
Mi&vikudagur 6. febrúar 1980
Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9 — 20 mánudaga til
föstudaga, kl. 9 — 12 f.h. og 17 — 19 e.h. á laugardögum.
Utan þess tima er hægt að ná I blaðamenn og aöra starfs-
menn blaðsins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81257 og
81285, afgreiðsla 81527 og Blaðaprent 81348.
Q-! Kvöldsími
O a er 81348
Umsátrið er dýrt spaug
Olíukaup í Saudi-Arabíu?
Hráolíutunnan
dollara
Sumir safna frimerkjum, —
aðrir sektarmiðum vegna stöðu-
mælabrota. Hér má sjá Borgþór
Kjærnested fréttamann en
miðana hefur hann væntanlega
fengið fyrir umsátur sitt um
alþingishúsið síöustu dagana.
Ljósm.-eik.
Saudi-arabar hafa gefið
til kynna að þeir séu reiðu-
búnir að selja íslendingum
700.000 tonn af hráoliu.
Jóhannes Nordal formaður
olíuviðskiptanefndar sagði
i samtali við Þjóðviljann í
gær, að þetta tilboð hefði
borist hingað fyrir
nokkrum vikum fyrir
milligöngu sendiráðs
islands i Washington.
Oliuviðskiptanefnd baö sendi-
ráöið fyrir alllöngu að ræða við
nokkra aðila, einkum vestan-
hafs. Rætt var við fulltrúa
Venezúela og Mexikó m.a. og
einnig haft samband við Saudi-
Arabiu, sem er með stórt sendi-
ráð i Washington. Siðan kom boð
frá Saudi-aröbum um að þeir
væru reiðubúnir til viöræðna um
samning um hráoliukaup.
Verðið á hráoliunni yröi miðað
við opinbert verð i Saudi-Arabiu,
sem er nú 26 dollarar á tunnu.
Saudi-Arabia er langstærsti
oliuútflytjandinn meðal OPEC-
riiyjanna og hefur jafnan verið
méð lægsta verðið af þeim
rikjum.
1 ráði er að óska ef.tir
viðræðum við Saudi-araba iog
mun islensk viðræðunefnd að
likindum halda til viöræðna i
Ryat i Saudi-Arabiu á næstunni.
Ekki er enn búið að skipa menn i
þessa viðræðunefnd og ekki
hefur heldur verið ákveðið
hvenær þær hefjast.
Jóhannes Nordal var að þvi
spurður, hvort hann teldi hrá-
oliukaup frá Saudi-Arabiu góðan
kost fyrir okkur. ,,Það er engu
hægt að slá föstu um það,” sagði
hann. „Það er að ýmsu leyti væn-
legur kostur að kaupa hráoliu á
opinberu verði, ef hægt er að
gera hagstæða samninga um
flutninga og hreinsun á þeirri
oliu.”
Ef af þessum kaupum yröi,
færi ihreinsun oliunnar fram i
Vestur-Evrópu og jafnvel á
Norðurlöndum. Að sögn
Jóhannesar Nordal er óvist að
arabarnir séu reiöubúnir að
samþykkja hvern sem er i þeim
efnum og t.d. getur verið að þeir
vilji ekki að stóru oliufélögin
annist hreinsunina.
Norðurlandaþjóðirnar hafa
gert samninga af þessu tagi við
Saudi-Arabiu og Danir eru að
vinna að slíkum samningi núna.
Jóhannes Nordal sagði að
tiðinda væri að vænta eftir 3-4
vikup. ,,Þó að þetta liti álitlega
út, kann að taka nokkurn tima að
vinna að samningum, kanna
möguleika til að hreinsa þessa
oliu og meta ýmsa þætti þessa
máls,” sagöi hann. -eös.
Azo-litarefni í lyfjum:
Geta valdið ofnæmi
og e.t.v. krabbameini
Lyf með þessum litarefnum algeng hér; en eru bönnuð í Noregi og Svíþjóð
Flest lyf innihalda litar-
ef ni og er þaö oftast gert til
aögreiningar. Gallinn á
notkun litarefna i þessum
tilgangi er sá, að sum
þeirra eru skaðleg og á það
sérstaklega við um azo-
litarefni. Þetta kemur
fram í grein i Lyfjafrétt-
um.
Eitt þessara azo-litarefna.
Tartrazin, hefur verulega til-
hneigingu til að valda ofnæmi. Oft
er um að ræða einstaklinga, sem
hafa asprinofnæmi og eru of-
næmiseinkenni af völdum þess-
ara tveggja efna svipuð, þ.e.
astma, útbrot, bjúgur, nef-
rennsli o.s.frv. Annað Azo-litar-
efni, Amaranth, liggur undir
sterkum grun um að geta valdið
krabbameini og byggist þessi
grunur á niðurstöðum dýratil-
rauna. önnur azo-litarefni eru
einnig talin varasöm.
Hér á landi eru seld fjölmörg
lyf, sem innihaida litarefni af
þessum flokki, en algengustu
litarefnin nefnast Amaranth,
Azo Rubin, Ponceau, Sunset,
Yellow og Tartrazin.
1 nokkrum löndum eru hafnar
aðgerðir gegn notkun allra azo--
litarefna i lyfjum. I Noregi og
Sviþjóð hefur notkun allra azo-
litarefna verið bönnuð i lyfjum
siðan 1. janúar 1979. 1 Banda-
rikjunum verður frá 26. júni 1980
skylt að merkja meö sérstakri
viðvörun öll lyf, sem innihalda
Tartrazin.
1 Lyfjafréttum er vakin at-
hygli lækna óg lyfjafræðinga á
þessu vandamáli og á það bent,
að I flestum lyfjaflokkum er hægt
að velja lyf, sem ekki innihalda
þessi litarefni. -eös
Sauöfé
fækkar
mest
Gimnar einangrj
~ í skjóli þess þrýstum
*
Í(Ur/Ílmilar Uíl
torseta í c
hvorki af e r~„,
JlTUl IVl v Ptlmi Jónwwn:
rrenmálef1 Vil kanna m<:
'fjíUir _ _ stjórnarmynd
Sautján
fréttir um
Gunnar
Lesendum Morgunblaös-
ins mátti ljóst verða i gær,
að aldrei hafa önnur eins
tiðindi gerst hér á landi og
stjórnarmyndunarvið-
ræður undir forystu
Gunnars Thoroddsens.
Blaðiö birti hvorki meira
né minna en sautján fréttir
og greinar um Gunnar og
hans mál i gær.
Vilmundur leyfir þingmönnum að kíkja í möppurnar:
Sendir þingmönnum
afrit af bréfum sínum
Vilmundur Gylfason
dómsmálaráðherra virðist
kominn á þá skoðun að
nauðsynlegt sé að auka
pappírsfarganið á Alþingi
með þvi að senda þing-
mönnum afrit af bréfum
þeim er ráðuneytið ritar
öðrum stofnunum. Vil-
mundur steig fyrsta skref-
ið i þessa átt í gær er hann
lagði fram á Alþingi afrit
af bréfi sem dómsmála-
ráðuneytið hefur sent
ríkissaksóknara varðandi
simareikninga Jóns G. Sól-
ness fyrrv. alþingismanns.
Greinargerð Vilmundar
hljóðar svo:
„Dómsmálaráðuneytið hefur
30. janúar 1980 ritað rikis-
saksóknara svofellt bréf:
Á sl. ári kom fram i umræðum
á Alþingi og i umfjöllun fjölmiðla,
að yfirskoðunarmenn rikis-
reiknings höfðu óskað athugunar
rikisendurskoðunar á misfellum
i sambandi viö fylgiskjöl með til-
teknum reikningum, er Jón G.
Sólnes, þáv. alþingis maður,
hafði fengið greidda hjá Alþingi
og/eða Kröflunefnd. Fram er
komið, að umræddu rannsóknar-
efni hefur ekki verið lokið, þrátt
fyrir að staðreynt mun hafa ver-
ið að umræddar misfellur hafi
átt sér stað. Er þess óskað að
þér, herra rikissaksóknari,
hlutist til um, eftir þvi sem við
verður komið, að umrætt ranns-
óknarefni verði tæmt, þannig að
þaö geti fengið lögmælta með-
ferð, sem efni standa til.” þm.
Banaslys í
Banaslys varð i Reykjavikur-
höfn á mánudagskvöld. 25 ára
gamall Reykvikingur ók fram af
svokallaðri Loftsbryggju á bil
sinum og drukknaði. Engir
sjónarvottar voru að slysinu en
um kl. 23.30 sáu vegfarendur bil-
ljós i sjónum og geröu lögregl-
unni viðvart. Fóru kafarar strax
á vettvang en maöurinn var
látinn er hann náöist upp. Engir
höfninni
farþegar voru i bílnum.
Þessi sami bill hafði um
klukkutíma fyrr lent i smá-
árekstri á Kaplaskjóísvegi en
ökumaðurinn ók i burt frá slys-
stað. Siðdegis i gær hafði ekkert
nýtt komið fram i málinu og
rannsóknadeild lögreglunnar
haföi ekki leyfi til-að gefa upp
nafn mannsins.
—GFr.
en hrossum minnst
Forðagæsla er starfandi
á vegum Búnaðarfélags
Islands og til hennar berast
skýrslur um heyfeng og
ásetning úr öllum sveitar-
félögum landsins.
Með úrtaki úr forðagæslu-
skýrslum undanfarin ár hefur
jafnan verið kannaö um áramót
hverjar hreyfingar hafa orðiö
milli ára á bústofni og birgðum
fóðurs. Fleiri spyr ja nú um þetta
en áöur og er ekki óeðlilegt, þvi
að misærið á árinu 1979 hefur
óneitanlega haft sin eftirköst.
Bráðabirgðauppgjörið nær
yfir 56 hreppa i sex sýslum,
fjórum norðanlands og tveim
sunnanlands. Tölur þær, sem
fengist hafa við umrædda
könnun , eru þessar:
Nautpeningi hefur fækkað um
8.68% frá fyrra ári. Mjólkurkúm
hefur fækkaö um 6.80% frá fyrra
ári. Sauðfé hefur fækkað um
10.68% frá fyrra ári og
Hrossum hefur fækkað um 6.07%
frá fyrra ári.
Viö hliðstæöar kannanir
undanfarin ár hafa talsvert
færri hreppar veriö i saman-
burði en nú og fundnar tölur þó
mjög nærri þvi, sem endanlega
gilti um landiö allt. Má þvi ætla,
að svo reynist einnig nú. -mhg.