Þjóðviljinn - 24.02.1980, Síða 16
16 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 24. febrúar 1980
ÚTBOÐ
Aburðarverksmiðja rikisins óskar eftir
tilboðum i byggingu stálþilsbryggju i
Gufunesi i Reykjavik. Útboðsgögn verða
til sýnis á skrifstofu Áburðarverksmiðj-
unnar i Gufunesi frá og með mánudegi 25.
febrúar 1980 á venjulegum skrifstofutima -
og verða þau þar afhent væntanlegum !
bjóðendum gegn 80.000 kr. skilatryggingu. j
Tilboðum skal skila i lokuðu umslagi
merktu nafni útboðs eigi siðar en kl. 14.00, !
miðvikudaginn 9. april 1980, á skrifstofu i
Áburðarverksmiðju rikisins i Gufunesi
Reykjavik, og verða tilboð opnuð þar kl.
14.15 sama dag.
• i
ÁBURÐARVERKSMIÐJA
\Jg$] RÍKISINS ;
HÍK
ORLOFSHÚS
Bandalag háskólamanna minnir félags-
menn sina á, að frestur til að sækja um
orlofsdvöl næsta sumar i orlofshúsum
bandalagsins að Brekku i Biskupstungum
rennur út 29. febrúar n.k..
Frestur til að sækja um dvöl i orlofshúsum
Hins islenska kennarafélags rennur út 31.
mars.
Orlofshús þessara félaga er einnig hægt að
fá á leigu i vetur um lengri eða skemmri
tima
Bandalag háskólamanna Hið islensk?
kennarafélag
Tékkóslóvakía:
Nýjum
aðferðum
beitt
gegn
andófs-
mönnum
Lögregluyfirvöld í
Tékkóslóvakíu hafa nýlega
gripið til nýrra aðferða
gegn andófsmönrium þar í
landi. Farið er með hina ó-
þekku f jarri mannabyggð-
um og þeir skildir þar eftir
án matar eða peninga.
Margir af höröustu gagn-
rýnendum stjórnarkerfisins hafa
þurft aö ganga i marga daga áöur
en heimilinu var náö. Samkvæmt
andófsfréttastofunni Palach
Press, sem hefur aösetur i
London, hafa margir andófsmenn
oröiö fyrir árásum „óþekktra
glæpaflokka” á leiö sinni heim.
Þá upplýsti sama fréttastofa I
fyrri viku, aö sföustu fórnarlömb
þessarar refsitækni heita Rudolf
Battek og Ivan Kyncl. Báöir
voru handteknir af lögreglunni,
meöan þeir fylgdust meö leyni-
legri leiksýningu i Prag. Fyrst
var þeim ekiö til aöalbækistööva
lögreglunnar i borginni, og slðan
voru þeir fraktaöir til dreifbýlis-
svæöisins Bóhemiu, lðOkilómetra
frá borginni. Þar voru þeir skildir
eftir án viðurværis.
Toriusamtökin auglýsa
Samkvæmt samningi er Torfusamtökin
gerðu við Fjármálaráðuneytið f.h. rikis-
sjóðs þ. 20. nóv. 1979 hafa Torfusamtökin
fullan umráðarétt yfir nýtingu og upp-
byggingu Bernhöftstorfunnar.
Torfusamtökin auglýsa hér með eftir hug-
myndum um nýtingu þeirra húsa er uppi
standa, ásamt enduruppbyggingu þeirra
mannvirkja, sem hafa orðið eldi að bráð.
Ennfremur óska Torfusamtökin eftir við-
ræðum við þá aðila er kynnu að hafa
áhuga á afnotum á áðurnefndum húsa-
kynnum.
Þeir sem hafa áhuga á viðræðum við
stjórn Torfusamtakanna hafi samband við
formann samtakanna Þorstein Bergsson
Bræðraborgarstig 29, simi 21631, fyrir 5.
mars 1980.
GANGIÐ t TORFUSAMTÖKIN
Blikkiðjan
Asgaröt 7, Garðabæ
Onnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboö
SÍMI53468
Arni Björnsson þjóöhátta-
fræöingur mun fjalla um: Þróun
herstöövamálsins. Þar veröur
rakin saga herstöðvamálsins,
allt frá þvi bandariskur her kom
til landsins I siðari heims-
styrjöldinni. Getiö veröur helstu
áfanga I ásælni Bandarikjanna I
herstöövar hérlendis, og m.a.
fjallað um Noröur-Atlantshafs-
samninginn 1949 og varnar-
samninginn 1951 og siðari
þróun. Jafnframt veröur andóf-
inu gegn herstöövum og Nató,
bæöi innan þings og utan, gerö
skil og þýöing þess reifuö.
Elias Daviösson, kerfis-
fræöingur, mun flytja erindi er
hann nefnir: Hinir fjórir þættir
heimsvaldastefnunnar. Mun
Elias setja fram skilgreiningu á
hugtakinu heimsvaldastefna, og
gera grein fyrir hinum ýmsu
þáttum hennar, þ.e. efnahags-
legum, hernaöarlegum, stjórn-
málalegum og menningarlegum
og vixlverkunum þeirra. Þess-
ari umfjöllun er m.a. ætlaö aö
leiöa til aukins skilnings á þeim
öflum sem eru aö baki Noröur-
Atlantshafsbandalaginu.
Guömundur Georgsson lækn-
ir nefnir efniö sem hann mun
fjalia um: Hætta eöa vernd?
Vlgbúnaöur og varnir Islands.
Mun gerö grein fyrir þeim til-
gangi aöildar íslands aö Nató og
varnarsamningsins viö Banda-
rikin, sem haldiö er fram af
stjórnvöldum. Bent veröur á
haldleysi þeirra röksemda i
ljósi nútimavlgbúnaöar. Fjallaö
veröur um hættuna af her-
stöövum hérlendis og gerö grein
fyrir hugsanlegum skotmörk-
um, ef til styrjaldar kæmi og aö
lokum fjallaö um afleiöingar
kjarnorkuárásar á Islandi.
Asgeir Danielsson, kennari,
mun fjalla um: Efnahags- og
viöskiptatengsl hersins viö inn-
lenda aöila og félagsleg sam-
skipti. Mun Ásgeir ekki aöeins
reifa þau mál eins og þau hafa
þróast á siðustu árum, heldur
lita lengra til baka og taka m.a.
til umfjöllunar Marshallhjálp-
ina svonefndu. Ásgeir mun m.a.
gera grein fyrir gjaldeyristekj-
um af herstööinni og áhrifum á
atvinnulif.
Fræðslufundir
Samtaka
herstöðva-
andstæðinga
Samtök herstöðvaandstæðinga munu gangast fyrir
fræðslufundum, sem verða opnir öllu áhugafólki. A
þessum fræðslufundum verður fjallað um ýmsar hliðar
á aðild Islands að Norður-Atlantshafsbandalaginu og
herstöðvun Bandarikjamanna hérlendis, bæði í erindum
og umræðum.
Fundirnir verða í Sóknarsalnum, Freyjugötu 27, dag-
ana 27. febrúar, 5. mars, 12. mars og 19. mars og hef jast
kl. 20.30.
Fyrsti fundur:
Miðvikudaginn 27. febrúar
kl. 20.30 r Sóknarsalnum
að Freyjugötu 27.