Þjóðviljinn - 02.03.1980, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 02.03.1980, Blaðsíða 2
I A hverjum degi fer ég til læknis og fæ ljós og nudd til aö vinna J bug á atvinnusjúkdómi blaBamanna, prjónakvenna, gullsmiBa, flugfreyja og fleiri stétta sem mætast þarna á biBstofunni meö herBarnar á eyrunum og herkjur f munnvikjunum. Á hverjum degi fer ég síBan beint heim og skrifa pistla eöa bækur, prjóna og j sauma, mála og skrapa, i stuttu máli, gref markvisst undan góö- verkum nuddkonunnar og sjUkrasamlaginu. Á boröinu i biöstofu læknisins liggur blaB. Þetta er tizkublaB á , fertugsaldri, en þar sem hin blöBin eru Arsrit Landspósta, ■ FélagsblaB Fnykeyöa, Vitafréttir og BaráttublaBauki Beitu- ræktarmanna, þá er þetta eina blaöiö sem er lesiö. ÞaB ber þaB I meö sér. • Á forsföu er mynd af Belsenfanga I samkvæmissamfestingi, I flegnum, þröngum, aöskornum og knöppum mjög. Þessi hormán er mynduö I hástökki sem á ekkert erindi viö klæöaburöinn, hnén nema viö hnakkann, munnurinn er spenntur upp i gleöiópi, jafn- J vel háriB ris af kátinu. Handleggirnir standa beint upp. Eftir I skamma grönskun er ljóst aö svona horgrindarhökt getur ómögulega haft þrek til aö gassast þetta upp I loftiö og þvi hlýtur myndin aB vera tekin þannig aö hún hefur veriö lögB til á gólfinu og látin æpa ,,01é” um leiö og smellt var af. Hárinu er tyllt upp á grind. Ljósmyndarinn stendur efst I tröppu. Undir þessum tuttugu og fjórum pundum af mannveru er ■ flenni forsiöutálbeita: Spikiö er vikiö. Þar undir: Sjö aöferöir til aö megra sig. Þýska, en þaö er tjáningarmál þessa blaös, er alls ekki min I sterka hliö. Aö auki er ég svo óstundvis aö ég þarf ekki aö biöa, ■ þaö er alltaf beöiö eftir mér. Þar til I dag aö eitthvaö gekk svo hrapallega úr skoröum á nuddstofunni aö ég fékk aö biöa agnar- ögn. A meöan fletti ég þessu eina timariti. Fyrst las ég auglýsingar. Sápur, svitalyktareyöir, baBolIur, | brúsaúBi. 011 þýska þjóöin og hlbýli hennar viröast ilma af furu- I' nálum. Þegar ég var orBin leiö á þessu rambi I Svartaskógi, kastaöi ég mér út I þaö þrekvirki aö lesa megrunarkúrana. Spikið er vikið Ég er ein af þeim heppnu manneskjum sem vega 50% of mikiö. Heppin, ef ég skyldi lenda á eyöieyju, nauölenda langt frá mannabyggö, allar rollur eyöast á einum degi, eBa ganga I sér- trúarflokk sem fastar I fjörutlu daga einu sinni I mánuöi. Þar fyrir utan er ég ekki heppnari en svo aö eitt sinn þegar mig vant- aöi hátiöabúning stakk viBhaldiö mitt upp á Belgjageröinnii, „þeir eru vanir aB sauma tjöld”. Þess vegna bar vægur, mjög vægur, áhugi mig gegnum hina þjóöversku kúra. Fyrstir voru undrakúrarnir, og allrafyrstur Hinn Nýi Undrakúr. AB morgni: SkoliB munninn. I hádeginu: Hálft greipaldin. í kaffinu: Ein sneiö hrökkbrauö, glas af vatni. Kvöldveröur: Skoöiö myndir af veizluréttum. Þessu. fylgdi full ábyrgö aö sá sem héldi kúrinn myndi léttast um þrjú klló á viku og sjöttu vikuna um þrjú og hálft, en þá var reiknaöur inn I dæmiö þyngdarmissir þegar tennurnar dyttu úr. Tækist manni aB standast þolraunina I átta vikur mátti búast viö ööru bónuspundi þegar háriB félli af. SIBan kom bananakúrinn. í morgunverB tvo banana, I hádegi þrjá, tvo I kaffi og einn aö kvöldi. Atta bananar, samtals 1200 hitaeiningar. Mér kom strax I hug Mikki Mús og vinur hans sem lentu á suöurhafseyju þar sem eina fæBan var bananar. Þeir fengu steikta banana meö bananamús, soBna banana meö bananasósu, grillaBa banana, splittaöa banana, bakaBa banana, og eftir þrjá daga gubbuöu þeir ef einhver sagöi „banan i” Næstur var hinn frægi og vanmetni kartöflukúr. Hann kraföist þess aö maöur gæti vegiö mat sinn. 300 grömm I morgunverö, 600 i hádegi, 400 I kaffi og 200 aB kvöldi. Bakaöar, soönar, hráar, músaöar, grillaöar, stappaöar. Þetta myndi án efa vinna bug á tveim kllóum á viku. Ég trúi því vel. A þriBja degi fengi mig enginn til aB opna munninn af hræöslu viö aB einhver stingi I hann kartöflu. Þar næst gleöifregnir: Hvltvínskúrinn. ótakmarkaö af hvlt- vlni I öll mál og ekkert, alls ekkert annaö. Innhverf Ihugun þris- var á dag I sóffanum. Til aö breiBa yfir þegar maBur gæti ekki staöiö I fæturna. Þetta var ekki svo fráleitt. Ég fletti til aö gá hvort þaö stæöi nokkuB um aB ef manni geöjaöist ekki aö hvltvíni mætti nota koniak. Þaö mátti ekki. En ekki var öll von úti. Ný kenning: Ofmettun. Boröa skyldi pund af karamellum daglega i átta daga. Þá brygöist líkaminn ósjálfrátt viB og neitaöi aB taka viö fæöu þar til karamellurnar væru runnar af aö viöbættum þeim þunga sem þær höföu hlaöiö á. Þegar matarlyst kæmi aftur, þá var bara aö boröa pund af karamellum daglega I átta daga... og þá brygBist tannlækna- reikningurinn ósjálfrátt en snarplega viö. SIBastur trónaöi hinn yfirvegaöi, skynsamlegi kúr. Minna og rétt. Tvær ristaöar brauösneiöar meB mögrum osti, kaffi, appelslnusafi, greipaldin, gulrót, harösoöiö egg, mjólkurglas I morgunverö. 250 grömm rækjur, tvær þunnar kálfakjötssneiöar, tvær bakaöar kartöflur, ein jógurt, tólf tómatar, eitt salathöfuö, ávextir aö vild I hádeginu. HrökkbrauB, ostur, kál, ávextir I kaffinu. A kvöldin allt þaö sem mátti boröa yfir daginn. Og meö þessu fuglafæöi mátti léttast um klló á viku. Hægt, markvisst og heilsusamlegt. Ég grét. Ef ég boröaöi allt þette megrunarfæöi myndi ég þyngjast um kiló á viku. Ég hallaöi blaöinu og horföi á konuna sem lá á forstöunni. 1 hvilftinni milli mjaömabeinanna mátti greina útllnur þarmanna. ÆBarnar á bringunni stóöu út úr henni. ÞaB mótaBi fyrir lungúnum milli rifjanna. Hendurnar þekktust á naglalakkinu. Og ákvaö aö blöa þar til einhver finnur upp megrunarkúr sem samanstendur af kakó meö rjóma, buffum meö bearnaisesósu, svlnasteik meB brúnuöum kartöflum, rjómals og irish coffee. Þá, hormangarar, mun ég leggja mig alla fram. Þangaö til, I minningu Robinson Krúsó.. Daviö Sigurösson hefur selt Fiat-um- boöiö eins og fram hefur komiö I fréttum siöustu daga. Kaupandi er Birgir Frimannsson, sem rekiö hefur verktakafyrirtækiö Verk og byggBi á sinum tima hús viö Auö- brekku 44—461 Kópavogi sem ætl- aö var fyrir starfsemi fyrirtækis- ins. Astæöurnar sem gefnar eru upp vegna sölu Daviös eru heilsufars- legar, en margir telja að annaö spili einnig inn i. M.a. er Davlö sagður sitja uppi meö mikinn lag- er af varahlutum og ööru tilheyr- andi sem illseljanlegt er. Verðið, sem mun vera nokkur hundruð miljónir mun einnig grunsamlega lágt. Fiat-verksmiöjurnar á Italiu veita söluumboð til annarra landa I aöeins eitt ár I senn, og halda margir aö Daviö ætli sér aðeins aö losna viö umboöið I nokkur ár, meöan varahlutalagerinn er aö seljast upp. Siöan muni hann fá umboöið aftur. Alla vega er hann aö byggja mikið verslunarhús- næöi viö Smiðjveg i Kópavogi, sem upphaflega var ætlað fyrir Fiat-umboöiö... Erlendur Einarsson forstjóri SIS er maður voldugur innan Samvinnuhreyf- ingarinnar þó vinsældir hans séu misjafnar. Sögur ganga nú um það að staöa Seölabankastjóra sé aö losna, og þvi verið fleygt, aö það standi til aö sparka Erlendi upp á við.... Ekki sakar aö geta þess aö þaö er Tómas Arnason viðskiptaráöherra sem veitir stöðuna... Við umræöur á Alþingi i fyrri viku um frestun á störfum Alþingis kvartaöi Matthlas Bjarnason yfir þvl aö ráöherrar heföu verið mik- iö fjarverandi frá þingstörfum siöustu daga. Hann sagöist þó vilja nefna eina undantekningu sem væri maöurinn viö ofninn! Hér átti Matthias viö Svavar Gestsson félagsmálaráöherra en hann nýtur þeirra „forréttinda” að geta yljaö sér viö ofninn enda klestur upp við hann i þeim þrengslum sem nú eru á Alþingi. Ellerr Schram er nú sestur I ritstjórastól Vísis eins og menn hafa ekki komist hjá að lesa i blöðunum. Honum veröur væntanlega mikill vandi á höndum, þvl aö undan- förnu hefur mikib af góðu starfs- fólki flúiö ritstjórnarskrifstofurn- ar, ekki slst vegna pólitiskra rit- stjóra sem viröast orönir ómiss- andi á VIsi. Ánnar höfuöverkur mætir Ellert: Stööugt minnkandi upplag blaösins. Fimmtudagsblaöiö mun hafa veriö prentaö I 16 þúsund eintökum,en svo neöarlega hefur Vlsir ekki komist árum saman. Til samanburöar má benda á aö Dagblaöiö kemur út I 25—26 þúsund eintökum... Upplag blaöa, vel á minnst. Matthias Jo- hannessen ritstjóri Morgunblaös- ins var eitt sinn spuröur hve stórt upplag Morgunblaösins væri dag- lega. „Yfir 40 þúsund”, svaraöi Matti aö bragöi. „Og mun upp- lagiö stækka enn meira I fram- tlöinni?”, spuröi viökomandi. „Nú er þaö bara pillan sem kem- ur I veg fyrir stækkun Morgun- blaösins,” svaraöi ritstjórinn stuttlega. Daviö: Haltu mér, slepptu mér. Ellert: Þungur róöur framundan Matthias: Bara pillan Erlendur: Nýr Seölabankastjóri? Nokkrir blaöamenn Þjóðviljans voru staddir I Menningarstofnun Bandarikjanna um slöustu helgi, en þar var haldin mikil ráðstefna íslenskra blaðamanna meö tveimur erlendum gestum, Bonnie Angelo, ritstjóra Time og Life i London og H. Altschull, fyrrum ritstjóra New York Tim- es. Eftir fyrirlestrana var boðið upp á kokteil og skolaði tveimur Þjóðviljablaðamönnum upp i um- ræðuhring þar sem sendiherra Bandarikjanna hérlendis var þungamiðjan I. Að loknum hefð- bundnum kveðjum stakk annar blaðamannanna þvi hógværlega aö sendiherranum að hann kann- aðist eflaust ekki viö svona smá- blaö eins og Þjóöviljann. — ööru nær, hrópaði sendi- herrann, hann er þýddur sérstak- lega fyrir mig á hverjum morgni!!! Meira um Matthías. Þegar Ölafur Hauksson núverandi ritstjóri Samúels byrjaöi að feta hiö vand- farna einstigi blaðamennsk- unnar, sótti hann um starf hjá Morgunblaðinu. Leið hans lá til Matthiasar ritstjóra sem var önn- um kafinn og tók bón Ólafs óstinnt upp, og sagði að engan blaöa- mann vantaði á Morgunblaðiö. Ólafur spurði þá kurteislega hvort hann gæti gefið sér einhver ráð til að verða góður blaða- maður. — Lestu Sturlungu, hrópaöi Matthias og skellti huröinni.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.