Þjóðviljinn - 02.03.1980, Side 5
STARF
OG KJÖR
m
Sunnudagur 2. mars 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Amk. 40 þúsund manns með
LAUN ■ 250-300 þúsund kr. mánaðarlaun
Þessi lágu laun eru
ÞJ ÓÐ ARÓSÓMI
„Það lifir enginn af dag-
vinnukaupinu einu saman,
amk. ekki í minni stétt." —
„Það gerir enginn ráð
fyrir að dagvinnan nægi,
eftir- og næturvinna er
orðin þjóðareinkenni og ég
held að forystumönnum
okkar í verka lýðsfélögun-
um þyki þetta alveg
normalt ástand." — Þú
þarft ekkert að spyrja að
því, það lifir engin
fjölskylda á 250 þús. á
mánuði."
Þetta og margt fleira I sama
dúr hafa margir viðmælendur
minir i þættinum Starf og kjör
sagt viö mig i vetur. Sameiginlegt
öllu þessu fólki er vonleysi og
vantrú á aö von sé um betri tíma i
náinni framtiö. „Lifvænleg laun
fyrir 8 stunda vinnudag” viröist
vera oröin klisja sem enginn tek-
ur alvarlega, hvorki atvinnu-
rekendur né launamenn. Einn
aldraöur verkamaöur sem ekki
vildi hafa viö mig viötal, þegar til
kom, taldi verkamannaláunin
ekkert skárri en þau heföu veriö
þegar hann vann viö höfnina fyrir
um 30 árum. Ég mótmælti og
benti honum á allar skýrslurnar
og töflurnar um kaupmáttar-
aukningu launa sem ööru hverju
birtust i blööum. Mér er svar
hans mjög minnisstætt en hann
sagöi eitthvaö á þessa leiö: „Mér
er alveg sama um allar töflur og
linurit.viö étum ekki þess háttar á
minu heimili. Mig vantar meiri
peninga, ég sé varla pening þó ég
vinni nótt sem nýtan dag. Konan
min er ekki heilsuhraust og getur
hvorki unniö i frystihúsi n e
skúraö og viö erum 6 i heimili.”
Var þetta draumurinn?
Ég held aö fyrstu forgöngu-
mönnum verkalýöshreyfingar-
innar brygöi i brún mættu þeir
lita upp úr gröfum sinum. Var
þaö þetta þjóöfélag sem þá
dreymdi um i upphafi baráttunn-
ar fyrir meira en hálfri öld? Nei,
þá dreymdi um þjóöfélag þar sem
dagvinnulaun nægöu ekki einasta
fyrir nauöþyrftum manna heldur
einnig til þess aö launamenn gætu
lifaö eölilegu fjölskyldu- og
menningarlifi. t þeirra augum
var þaö ekki menning aö vinna
10—12 stundir á dag og aö auki um
helgar og vitaskuld höföu þessir
menn rétt fyrir sér. Þaö er ekki
aöeins menningarleysi aö vinna
svona eins og skepnur heldur er
þaö stórhættulegt andlegri og
likamlegri heilbrigöi manna.
Hvers konar lif er þaö sem lifaö
er á fjölmörgum heimilum þar
sem börn eru?
rétt eins
og lúsin
var og
kamrarnir
fyrrum
Báöir foreldrar vinna úti
langan vinnudag. Börnin veröa aö
bjarga sér sjálf, þau sem stálpuö
eru, þau umgangast næstum
eingöngu jafnaldra, tala varla
nokkurn tima viö fulloröiö fólk
þvi aö til þess er enginn timi,
skólinn gerir til þeirra sömu kröf-
ur og geröar voru þegar reglan
verslunar- og skrifstofustörf en
hér veröur einungis gerö grein
fyrir launatöxtum afgreiöslu-
fólks. Langflest afgreiöslufólk er i
3.-5. launafl. og eru launin frá
246—270 þús. Þau hækka eftir
fimm til sjö ára starfsaldur upp i
292 þús. I öllum þremur flokkun-
um.
Hærri laun en þetta fær svo
afgreiöslufólk sem vinnur aö
einhverju leyti mjög sérhæfö
störf eöa þarf aö hafa umtals-
veröa vöruþekkingu. Hærra en i
7. flokk er þó ekki hægt aö komast
og launin þar eru kr. 296.526 og
hækka eftir fjögurra ára starf I
kr. 320.618.
Ég held aö þessar tölur tali sinu
máli og ég er alveg viss um aö
engum dettur i hug aö fjölskyldu
nægöi innan viö 300 þús, til fæöis
og klæöa hvaö þá meira. Aöeins
matur handa fjögurra til fimm
manna fjölskyldu er minnst frá
130—180 þús. á mánuöi, sbr.
neytendakönnun Dagblaösins.
Helga Sigurjómdóttir skrifar
var sú aö alltaf væri móöirin
heima og vitaskuld er þaö undir
hælinn lagt hvort þau standist
þessar kröfur. Oft gera þau þaö
ekki og fá bágt fyrir.
Laun: 231—309 þús.
Kannski finnst einhverjum ég
taki heldur djúpt i árinni. Þaö
hafi þaö allir gott á Islandi, eöa
hvaö meö allan þann fjölda sem
„fer i siglingu árlega” eins og
kunningi minn einn sagöi viö mig
á dögunum, þegar þessi mál bar á
góma.
Ég er hérna meö launataxta
nokkurra fjölmennra verkalýös-
félaga og ég held þeir segi þaö
sem segja þarf máli minu til
stuönings. Allar tölur eru miöaö-
ar viö febrúarlaun og þær „rúnn-
aöar af”.
1 löju, félagi verksmiöjufólks
eru launin frá 231—255 þús. á
mánuöi. Langflestir hafa 247 þús.
Verkakvennafélagiö Framsókn
og Dagsbrún. Lægstu laun 231
þús., hæstu 267 þús. Launaflokk-
arnir eru 5 og algengastir eru 2.,3
og fjóröi flokkur og launin þar eru
á bilinu 243—253 þús á mán.
Starfsmannafélagiö Sókn.
Lægstu laun 249 þús. og hin hæstu
275 þús. Auk þess eiga konurnar
kost á aö sækja sérstök námskeiö
sem haldin eru á vegum félagsins
og hækka viö þaö I launum um 7%
og þær sem vinna viö meiriháttar
hreingerningar fá 8% hærri laun.
v>rslunarmannafélag Reykja-
víkur. Innan vébanda þess eru
sem kunnugt er þeir sem vinna
Hagstofa fslands:
470—490 þús fyrir f jóra
A Hagstofu Islands fékk ég þær
upplýsingar aö fjögurra manna
fjölskyldu séu reiknaöar um
470—490 þús. kr. á mánuöi i
þurftarlaun og samkvæmt
útreikningum Lánasjóös Isl.
námsmanna er námsmanni
(einstaklingi) ætlaöar 242,500
þús. mánaöarlega. Eigi hann
maka og tvö börn tvöfaldast
þessi upphæö nemur þá 485 þús.
Námsmenn fá samt ekki nema
85% þessarar upphæöar aö láni aö
frádregnum eingin tekjum en þaö
er önnur saga og veröur ekki rak-
in hér.
Hvaö segja þessar tölur okkur?
Þær segja þaö aö i siöuöu
þjóöfélagi eru laun á almennum
vinnumarkaöi allt aö helmingi
lægri en viöurkennt er af opin-
berum aöilum aö þurfi til aö hafa
rétt I sig og á. Allt launakerfiö er
þannig, aö I reynd fer fram vinnu-
þrælkun á Islandi, sem varla mun
eiga sinn llka þó viöa væri leitaö
um heimsbyggöina.
Hversu margir?
Og hér er ekki um litinn hóp
manna aö ræöa. Til aö gera sér
einhverja grein fyrir fjöldanum
kannaöi ég félagsmannatal I
áöurnefndum félögum og llka
leitaöi ég mér upplýsinga um kjör
BSRB manna en allnokkur hópur
þeirra hefur 300 þús. á mánuöi og
þaöan af minna.
Áriö 1976 voru fullgildir meö-
limir ASl 47200. Nýrri tölur eru
ekki til, þar sem nákvæmt félaga-
tal er ekki gert nema fyrir ASl
þingin, en þau eru haldin aö öllum
jafnaöi á þriggja ára fresti. Þetta
ár voru karlar 26935 eöa 57% og
konur 20265, eöa 43%.
1. janúar 1978 voru fullgildir
félagar I Verslunarmannafél.
Rvk. 8379. Konur voru 5278 eöa
63% félaga og karlar 3100 eöa
37%.
Sóknarkonur eru amk. hátt á
þriöja þús. og iönverkafólk
nálægt 4000. Mér vannstekki timi
til aö taka meö I þessa könnun
Farmanna- og fiskimannasam-
bandiö en þar eru áreiöanlega
nokkur hundruö sem heyra til
þessum hópi.
Nýjustu tölur um fjölda bæja-
og rlkisstarfsmanna eru þessar:
Heildarfjöldi 15476, konur eru
8717 eöa 57% og karlar 6759 eöa
43%. Tölurnar um rikisstarfs-
mennina eru frá þvi um sl. ára-
mót — heildarfjöldi 11217 — en frá
þvi I nóv sl. um starfsmenn
bæjarfélaganna. Þetta eru þó
ekki hárnákvæmar tölur þar
sem alltaf er eitthvaö af laus-
ráönu fólki og fólki sem vinnur á
sérstofnunum svokölluö-
um (Hjartavernd, Styrktarfél.
lamaöra og fatlaöra o.fl.)
Laun I 7 lægstu launaflokkum
eru á bilinu 230—309 þús. 1 þess-
um flokkum eru samtals 2274 þar
af konur 1599 eöa rúm 70% og
karlar 675 eöa 30%.
60—70% konur
Bæöi hjá V.R. og ASl var mér
tjáö aö óllklegt væri aö hlutföll
karla og kvenna heföu raskast
neitt verulega á þeim tlma sem
liöinn er siöan talningin var gerö.
Hins vegar gæti starfsmanna-
fjöldi eitthvaö hafa aukist og á
þetta fyrst og fremst viö ASl þar
sem tölurnar þaöan eru komnar
nokkuö til ára sinna. Ljóst er þó
aö þaö er stór hópur manna, sem
vinnur fyrir mánaöarlaunum
sem eru allt niöur I 246 þús. Til
þessa hóps má svo til án undan-
tekninga telja allar konur I ASl —
um 20.000 — og alla karlmenn
sem vinna almenna verkamanna-
vinnu auk iönverkamanna. Þeir
eru um 10000. (Heimild: Skrif-
stofa ASl). Viö þessar tölur má
bæta allmörgum far- og fiski-
mönnum.
Hjá V.R. liggja ekki fyrir tölur
um skiptingu fólks eftir launa-
flokkum, en Magnús L. Sveinsson
framkvæmdastjóri V.R. sagöi aö
mikill meirihluti félagsmanna
væri I lægstu launaflokkunum og
heföi undir 300 þús. i mánaöar-
laun. Þar höfum viö þvi ekki færri
en 6000 manns.
Gróft reiknaö telst mér þvl til
aö samtals sé um aö ræöa milli 38
og 40 þúsund manns, sem hefur
Helga Sigurjónsdóttir.
þessi lágu laun þar af konur i
miklum meirihluta, sennilega
60—70%. Þess ber aö geta aö hér
er um starfsmannafjölda aö ræöa
en ekki stööufjölda, en sem
kunnugt er vinna margar konur
ekki fullan vinnudag.
227 þús. handa öryrkjum
með tvö börn
Ellilifeyrir einstaklings ásamt
tekjutryggingu, heimilisuppbót
og frium sima er kr. 182.175 og
ellilifeyrir hjóna er kr. 258.639.
75% öryrki meö tvö börn er hins
vegar enn verr staddur. Hann fær
ekki nema kr. 226.946 á mánuöi.
Þverpólitísk samstaða
valdaaðila
Hvar er öll velferöin. ég bara
spyr. Hún er alla vega ekki i sjón-
máli, þvl aö nú höfum „vér heyrt
erkibiskups boöskap” — Ekkert
svigrúm til grunnkaupshækkana
meöan veriö er aö telja veröbólg-
una niöur (Ragnar Arnalds
fjármálaráöherra). Mér viröist
veröbólgan hafa veriö
stjórnmálamönnum heilmikill
hvalreki, nú má kenna henni alla
klækina eins og strákunum
foröum. En hver óvitlaus maöur
sér vitanlega aö verbólgan gerir
ekki kjarasamninga — eöa hvaö
var fyrir veröbólgu — (sbr. fyrir
Krist) Entust dagvinnulaun þá
betur? Kannski eitthvaö en engu
sem nemur.
Þessi lágu laun eru þjóöar-
ósómi rétt eins og lúsin var þaö og
kamrarnir fyrrum. Fólk er farið
aö trúa, aö viö hér „á mörkum
hins byggilega heims” veröum aö
sætta okkur viö svona slæm kjör,
atvinnuvegirnir þoli ekki hærri
launagreiöslur. Ég trúi þessu
ekki eöa hvernig má þaö vera aö
vélvæöing atvinnuveganna komi
verkafólki ekki til góöa nema I
minna likamlegu erfiöi og I bætt-
um húsakosti? Þaö er trúa mln aö
þvi aöeins sé hægt aö halda
launafólki svona niöri aö til komi
viötæk þverpólitisk (afsakið
oröskripiö) samstaöa allra þeirra
valdaaöila i landinu sem þetta
kerfi bitnar ekki á og/eöa þeirra
sem beinllnis hagnast á þvi.
Sé þaö hins vegar rétt aö ekki sé
hægt að halda uppi atvinnurekstri
á Islandi nema meb forkastan-
lega lágum launum, þá eigum viö
ekki rétt á aö kallast sjálfstæði
þjóö. Þá „eigum viö ekki heima
hér, ættum að fara héðan burt,”
svo aö ég taki mér I munn orð
Halldórs Laxness. (Sjálfsagöir
hlutir, Rvk. 1945.) — hs
The Merchant of Prato
Francesco di Marco Datini. Iris
Origo.
Penguin Books 1979.
Seint á siðustu öld fundust 150
þúsund bréf og verslunarnótur
Datinis og úr þessum heimildum
hefur marchesa Iris Origo unniö
bók, sem er meðal þeirra sem
draga upp besta og skýrasta
mynd af mati manna og lifnaðar-
háttum á siðmiööldum á ítaliu.
Og svo er þessi samantekt náin
persónuleg ævisaga Datinis. Höf-
undi hefur tekist aö skrifa bók
sem færir daglegt lif italsks kaup-
manns inn á gafl hjá þeim sem
bókina lesa og persóna þessa
skemmtilega kaupmanns veröur
manni minnisstæö þvi aö hann er
einkar viöfeldinn og vel aö sér
bæöi um listir og bókmenntir
sinna tíma, tima Boccaccios
Sacchettis.
Eugene Onegin
Alexander Pushkin. Translated
by Charles Johnston with an
introduction by John Bayley.
Penguin Books 1979.
Þetta verk hefur veriö nefnt
skáldsaga ibundnu máli, og er
Pushkin
þab. Þýöing Johnstons þykir með
miklum ágætum og þaö er hrein
unun að lesa þessa skemmtilegu
ljóöaskáldsögu. Þetta verk er oft
talið vera undanfari rússnesku
skáldsagnanna siöar á öldinni.
Vladimir Nabokov hefur þýtt
verkib I prósa og komiö til skila
nákvæmri merkingu þess, en þá
vantar talsvert, þegar listrænum
tökum Pushkins sleppir. Þýöand-
inn bætir úr, meö þvl aö ná tóni
Pushkins, en þaö kostar bæöi hár-
finan smekk og mikla iþrótt.
The Rise and Fall
of the House of Medici.
Christopher Hibbert.
Penguin Books 1979.
Hibbert hefur skrifað margar
ágætar ævisögur og rit um þýö-
ingarmikla atburöi mannkyns-
sögunnar. 1 þessari bók, sem kom
I fyrstu út 1974, rekur hann sögu
Medici ættarinnar I Florenz frá
upphafi og allt til andláts hins siö-
asta Medici 1737. Hibbert segir
hér á skemmtilegan hátt viö-
buröarika ættarsögu, sögu af
skynugum kaupmönnum og
okrurum, sem uröu hertogar og
landstjórnarmenn og tengdust
konungsættum Evrópu. Sagan
hefst meö valdabaráttunni i Flór-
enz og endar með fordrukknum
og úrkynjuöum rúmliggjandi
vesaling, sem lá fullur I rúminu I
áratug.
Meöal þeirra ættmenna voru
ýmsir ágætir menn og sá kunnasti
var Lorenzo il Magnifico. Þeir
frændur komu upp ágætum lista-
söfnum og bókasöfnum, fegrúöu
borg sina og höföu ágæta lista-
menn I þjónustu sinni. Sem páfar
reyndust þeir ættmenn ágætlega,
ást þeirra á listum og bókmennt-
um markaöi kirkjustjórn þeirra.
Saga Hibberts er vel skrifuö og
mjög læsileg.