Þjóðviljinn - 21.03.1980, Side 12

Þjóðviljinn - 21.03.1980, Side 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 21. mars 1980 Minning SSi Fótegsmálastofnun | g j Reykjavíkurborgar DAGVISTUN BARNA, FORNHAGA 8 SIMI 27277 F orstöðumannastöður Staða forstöðumanns skóladagheimilisins við Dyngjuveg og staða forstöðumanns skóladagheimilisins Auðarstræti 3 eru lausar til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 12. april. Fóstrumenntun áskilin. Laun samkvæmt kjarasamningum borg- arstarfsmanna. Umsóknir sendist til skrifstofu Dagvistunar,Fornhaga 8, en þar eru veittar nánari upplýsingar. Laus staða Laus er til umsóknar staða deildarstjóra á skattstofu Vestfjarðaumdæmis á ísa- firði. Skriflegar umsóknir sendist undirrituðum fyrir 10. april n.k. Isafirði 14. mars 1980. Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi KEFLAVIKURBÆR óksar að ráða starfskraft til aðstoðar félagsmálafulltrúa.Laun skv. kjarasamn- ingi STKB. Umsóknir sendist undirrituðum fyrir 15. april n.k. Bæjarstjórinn i Keflavik Reykjadalur Sjúkraþjálfi Öskum eftir að ráða sjúkraþjálfa til starfa við barnaheimili vort i Reykjadal, mán- uðina júni, júli og ágúst; má hafa með sér barn. Upplýsingar hjá forstöðukonu, Háaleitisbraut 13 Stjórn Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra Söluskattur Viðurlög falla á söluskatt fyrir febrúar- mánuð 1980, hafi hann ekki verið greiddur i siðasta lagi 25. þ.m. Viðurlög eru 4% af vangreiddum sölu- skatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag eft- ir eindaga uns þau eru orðin 20%, en siðan eru viðurlögin 4,5% til viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. degi næsta mánaðar eftir eindaga. Fjármálaráðuneytið, 20. mars 1980. Gunnar Þórðarson frá Grænumýrartungu 19.2.1890 — 11. mars 1980 i bókinni Strandamenn sem Jón Guftnason tók saman og út kom 1955 segir svo: Gunnar (Valgeir) Þóröarson, f. 19. febr. 1890. Foreldrar: Þórður Sigurösson I Gilhaga og sióar I Grænumýrartungu og kona hans Sigrióur Jónsdóttir. Stundaöi nám I unglingaskóla á Heydalsá. Bóndi i Grænumýrar- tungu siöan 1913. Keypti jöröina af eiganda Mela 1924 og byggöi þá þegar fbúðarhds úr steinsteypu. Reisti nokkru siöar rafmagnsstöö meö vatnsafli til ljósa og suöu. Geröi og allmiklar ræktunar- framkvæmdir. Hefur gegnt fjöl- mörgum trúnaöarstörfum : Hreppsnefndarmaöur um 30 ár formaöur fasteignamatsnefndar, formaöur i stjórn kaupfélags og sparisjóös Hrútfiröinga. Hefur átt sæti i sauðf jársjúkdómanefnd. Fulltrúi á Búnaöarþingi um skeið. Kosinn i stjórn Búnaöar- félags Islands 1954. Hefur alUengi átt sæti i miöstjórn Framsóknar- flokksins. Kona: Ingveldur (f. 7. mai 1894) Björnsdóttir frá Fossi I Hrútafirði Björnssonar. Dætur þeirra: Sigrföur átti Ragnar Guö- mundsson i Grænumýrartungu, Steinunn átti Benedikt Jóhannes- son á Saurum I Laxárdal. Fóstur- synir þeirra: Þóröur Guömunds- son og Björn Svanbergsson, bræörasynir Gunnars. Viö sveitungar hans kölluðum hann raunar aldrei annaö en Gunnar I Grænumýri og munum svo enn gera, þegar við minnumst hans. Þaö er með bóndann eins og strákinn á mölinni, sem ber þorp- ið með sér hvert sem hann fer. Bóndinn ber grænumýrina sina með sér, hvert sem hann fer, og þessigrænamýrifylgir honum lif- andi sem látnum. Ég heyrði það i Utvarpinu fyrir nokkrum vikum, aö Gunnar i Grænumýri væri niræöur. Nú fyrir nokkrum dögum heyrði ég það, að hann væri látinn. Þeim fækkar nú óðum þessum gömlu sveitungum minum sem ég lifði og starfaði með ýmist sem sam- herjum, eða mótherjum, meöan ég var i blóma lffsins eða á létt- asta skeiði. NU hefur Karon, sá frægi ferjumaður þeirra Forn- Grikkja, ferjað Gunnar í Grænu- mýri yfir móðuna miklu. Ég sagði áðan aö samferða- menn minir þar nyröra hefðu ver- ið bæði samherjar minir og mót- herjar. Ég væri hræsnari ef ég reyndi að fela þaö aö Gunnar f Grænumýri heföi verið mótherji minn. Við elduðum löngum grátt silf- ur á fjórða áratugnum, þótt það orðalag eigi ekki viö, en það mætti likja þvi viö taflmennsku og oft dáðist ég að þvi, hvaö leikir hans voru þaulhugsaðir. Hann sigraði mig oftast og gæti ég sagt margar sögur þvf til sönnunar. Skal hér aðeins rifjuð upp ein þessarar tegundar. Ég kom einu sinni inn á aöal- fund Kaupfélags Hrútfirðinga, ekki sem fulltrúi, heldur sem valdalaus og áhrifasnauður félagsmaður. Þar flutti ég tillögu um breyt- ingu á lögum félagsins og talaði fyrir henni. Raunar þóttist ég vita, aö tillagan myndi veröa felld og liklega hef ég gert það af ein- hverri strfðni aö bera hana fram. Fundarstjóri bar svo tillöguna undir atkvæði. Þá segir Gunnár: „Það er ekki nauðsynlegt að greiða atkvæði um tillöguna.” Allir fundarmenn skildu hvaö þeim bar að gera aö einum undanskildum. Hann greiddi at- kvæði á móti. Þannig var tillagan felld með einu samhljóða at- kvæði. Var ég manninum þakk- látur fyrir, því minn hlutur varð þó ögn skárri fyrir vikið. Þetta sem nú hefur verið sagt, ætti að vera sönnun þess, hve Gunnar var skarpgáfaður og gat lagst djúpt i sinni pólitisku tafl- mennsku. Þó ég hafi um mfna daga oft átt i glettingum viðýmsa menn mér meiri og oft beðið lægra hlut, hafa sllkar glettingar venjulega endað með þvi, að upp af þeim hefur sprottið góður kunningsskapur og jafnvel vinátta. Er Gunnar þar engin undantekning. Við höföum að visu ekki oft tækifæri til að hittast eftir aö hann flutti úr hér- aðinu, en þá sjaldan að fundum okkar bar saman, fór vel á með okkur og ég fann þá betur en áð- ur, hve hin meðfædda kfmnigáfa hans átti sér djúpar rætur og ég held lika að lifsskoöanir okkar hafi þá legið miklu nær hvor ann- arri en áður var. Gunnar var þjóökunnur maður. Grænamýri var áður en sam- göngur komust I nútimahorf i þjóöbraut. Fáir sem lögðu upp á Holtavörðuheiöi að norðan, sneiddu þar hjá garði. Sama má raunar segja um þá, sem komu af heiðinni sunnan frá oft væstir og illa til reika. En Gunnari var fleira vel gefið en aö vera góður gestgjafi og hjálparhella nauöleitarmanna. Hann var bóndi I þess orðs besta skilningi eða samkvæmt þeim skilningi sem menn lögðu i það orð fram yfir miðja þessa öld. Hannræktaði og hýsti jörð sina á þann hátt er best geröist á þeim tima, er hér um ræðir. Þegar hann brá búi og flutöst til höfuöstaðarins hefur hann áreiöanlega flutt grænumýrina með sér. Bændastéttinni helgaði hann alla starfskrafta sina meðan heilsan entist. Gunnar var einn af mörgum merkisberum hinnar islensku bændamenningar. Allt hefur sinn tima, segir heilög ritning. Gunnar hefur átt þvi láni aö fagna, að burtkallast úr þessum heimi, rétt I þann mund sem orðið bændamenning er oröiö að skammaryröi og gár- ungagamni I munni márgra þeirra sem telja sig til þess fædda og i' heiminn borna að búa til nýja islenska menningu. Nú er Grænamýrin i eyði. En hver veit, já, hver veit, nema aö Gunnari hafi veriö leyft að taka meö sér yfir móðuna miklu sina grænumýr^ hafandi hana sér til afþreyingar og augnayndis i hin- um himnesku tjaldbúöum. Ég myndi aö minnsta kosti vilja bera fram þá frómu ósk honum til handa. SkúliGuðjónsson, Ljótunnarstöðum Geðverndarfélag íslands ^Ígeoverni^^ gengst fyrir ▼ Námsstefnu um geðheilbrigðlsmál i ráðstefnusal Hótels Loftleiða hinn 22. mars 1980. Dagskrá: kl. 10.00 Námsstefnan sett: Oddur Bjarnason læknir. kl. 10.15-11.00 Hvert get ég leitað? Ingibjörg Pála Jónsdóttir ráðgjafi Geðverndarfélags- ins. Hugleiðingar um úrbætur. Jón G. Stefánsson læknir. kl. 11.00-11.45 Vandi aðstandenda: Sigrún Júliusdóttir félagsráðgjafi og Jóhanna Þrá- insdóttir blaðamaður. Matarhlé. kl. 13.00-13.45 Foreldrar og börn: Álfheiður Steinþórsdóttir sálfræðingur, Guðfinna Ey- dal sálfræðingur og Guðni Garðarsson for- maður Umsjónarfélags einhverfra barna. kl. 13.45-14.30 Starfið og geðrænir erfiðleikar: Gylfi Ásmundsson sálfræðingur og Matthias Guðmundsson verkstjóri. kl. 14.30-15.15 Fyrirbyggjandi aðgerðir: Þórey Guðmundsdóttir félagsráðgjafi og Maria Gisladóttir geðhjúkrunarfræðingur. kl. 15.15 Námsstefnunni slitið: Oddur Bjarna- son læknir. öllum er heimill ókeypis aðgangur. fl sölu 3ja herb. ibúð i 3. flokki Byggingarfélags alþýðu. Félagar sendið umsókn á skrif- stofu félagsins, Bræðraborgarstig 47, fyrir 15. april 1980. Stjórnin.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.