Þjóðviljinn - 23.03.1980, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 23.03.1980, Qupperneq 3
Sunnudagur 23. mars 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Rætt VÍð Ásdísi Skúladóttur leikstjóra Týnda teskeiðin, leikrit Kjart- ans Ragnarssonar, gerir heldur betur viðreist um landið. t gær var sagt frá leikferð menntskæl- inga á Akureyri sem sýna þetta vinsæla leikrit hér i Reykjavik I kvöld, 23.3.,og norður á Sauðár- króki sýnir Leikfélag Sauðár- króks það á sæluviku. Þar er leik- stjóri Asdis Skúladóttir. Við hringdum i Asdfsi einn daginn í vikunni og spurðum frétta. — Við frumsýndum Týndu te- skeiðinni með pompi og prakt á sunnudaginn var, — sagði hún. — Höfundurinn var við- staddur, ásamt fleirum frá Leik- félagi Reykjavlkur, og þetta tókst mætavel. Siðan hefur leikritið veriö sýnt daglega og hafa m.a.s. verði tvær sýningar tvo daga. — Hvernig hefur þér likað dvölin og starfið á Sauöárkróki? — Dvöl min hér hefur verið einkar ánægjuleg og mér hefur fundist skemmtilegt að glima við þetta viöfangsefni. Það er gott að vinna með góðu fólki. Leikfélag Sauðárkróks á sér langa sögu að baki, og hér eru traustir meiðir, það sést á leikhópnum. Vali leik- ara var þannig háttað, að allir sem vildu starfa mættu á fund. Ég prófaði siðan fólkið, sem sennilega hefur verið á þriðja tug, og valdi úr. Þaö var á köflum þung raun. Nú, þeir sem ekki léku fengu allir störf við sýninguna. A ýmsu hefursvosem gengið við ýmsa að- drætti, og má þar nefna leit að ekta hauskúpu, uppstoppuöum hundi og góðu kjöti á frystibökk- um! En allt hafðist að lokum. Allir aðilar sem stóðu að sýn- ingunni hafa reynt að hafa allt skipulag sem best. Fram- kvæmdastjóri LS er Erling Orn Pétursson og hefur hann haldið dyggilega um tauma allrar stjórnunar, ásamt stjórn félags- ins, en formaöur þess er Helga Hannesdóttir. LS á tveggja hæða hús, sem heitir Leikborg, og þar æföum við fyrstu vikurnar, áður en við fórum á sviðiö I félags- heimilinu Bifröst. — Þú hefur starfaö við at- vinnuleikhús árum saman. Hvernig finnst þér að starfa með áhugamönnum? — Satt að segja finn ég lltinn Sviðsmynd úr Týndu teskeiðinni á Sauðárkróki. Týnda teskeiðin á Sæluviku skagflrðinga: Hauskúpa, uppstcppaður hundur og kjöt áfrysti- b&kum Hafsteinn Hannesson og Jón Ormar Ormsson (t.h.): Kjötiðn- aðarmaður? Hver djöfullinn er það?” mun á að starfa hér og hjá Leik- félagi Reykjavíkur. Hér eru sömu þrengslin á sviði, sama slæma aöstaöan fyrir allt starfsfólk, sömu gömlu fjárhagsvandræðin! En á báðum stööum eru menn hressir og vila ekki fyrir sér aö leysa vanda hvunndagsins, reyna viö erfiöað aðstæður að gera sitt besta. — Hvers vegna „Týnda te- skeiöin?” — Týnda teskeiöin er kjarn- mikið verk, og þrátt fyrir yfirborð gamanleiksins felur það i sér djúpan sannleik og áminningu til nútlmans. Bolti siðleysisins veltir upp á sig. Eitt óhæfuverkiö býður ööru heim. Fyrir öllu klabbariinu eru fundin rök, rök sem duga i veröld þar sem „glymskarattinn” endalaus, geldur og náttúrulaus er tekinn við af ihugun og virðingu fyrir endanlegum gæðum lifsins. Hér eru gæðin auður og metorð, og öllu skal fórnað. Tilgangurinn helgar meöaliö. Einn skriöur upp eftir baki annars, sama hvort um er að ræða „lágstéttalýð” eöa broddborgara. Engum er hlift. En þrátt fyrir þennan alvarlega tón er hér fyrst og fremst um aö ræöa grályndan gamanleik, sem ekki einungis ber i sér einkenni og stilbrögð „farsans”, heldur og tryllisins, og allt yfir i háþróað „drama”. Fyrst og fremst er þó um að ræöa dúndrandi gaman- leik. — Ertu þú eina aðkomumann- eskjan i sýningunni? — Nei, Jón Þórisson er leik- myndasmiöur, en viö tvö erum þau einu sem ekki búum hér á Króknum. Það hefur veriö ómet- anlegt að hafa Jón hér, fyrir utan það að leikmyndin er aldeilis frá- bær! Lillableikur grunnlitur á öllu svinariinu! Jón Ormar Ormsson er aðstoðarleikstjóri, þaulvanur leikhúsmaður og gjör- þekkir að auki allar aðstæður hér. Hann leikur lika Balda i sýning- unni. — Hvað tekur svo viö að sælu- vikunni afstaðinni? — Það er fyrir hugað aö fara i leikför um Norðurland og e.t.v. viðar. — ih Sýning á Sögu: Hár í hátísku „Hár ihátlsku” nefnistkynn- ingarsýning sem H.C.F. (Haute Coiffure Francaise) á tslandi stendur fyrir á Hótel Sögu nk. þriðjudagskvöld, en þar verður kynnt vortiskan frá Parls I hár- greiðslu. Þetta er i annaö sinn sem HCF á tslandi stendur fyrir slfkri sýn- ingu, sú fyrri var sl. haust, og er nú áætlað að halda sýningar vor oghaustiframtiöinni til að kynna fagfólki I hárgreiðslu og viö- skiptavinum þeirra það nýjasta hverju sinni. Sýningin hefst kl. 21, tekur um tvo tima og verður skemmtiatrið- um skotiö inn f dagskrána. Vand- aö verður til hljómlistar og lýs- ingar og fagmenn frá Blómi og ávöxtum skreyta salinn. Osta- og smjörsalan: Flytur í Árbæjar- hverfið Byggingu hins nýja húss Osta- og smjörsölunnar sf. að Bitru- hálsi 2, ernii að verða lokið. Búið er að taka I notkun allar birgða- geymslur hdssins og gert er ráð fyrir aö pökkun hefjist þar um næstu mánaöamót. Fyrirhugað er að skrifstofur og aöalstöðvar fyrirtækisins flytjist einnig ihina nýju byggingu nú um mánaðamótin. Viö flutningana breytist simi Osta- og smjörsöl- unnar og veröur 8-25-11. Aðalfundur Osta- og smjörsöl- unnar hefur verið boðaður föstu- daginn 18. april og verður haldinn i nýja húsinu aö Bitruhálsi 2. -mhg Ár trésins í Vesturbænum t tilefni af ári trésins efna tbúa- samtök Vesturbæjar til almenns fundar mánudagskvöldið 24. mars kl. 20:30 i Iðnó (uppi). Auð- ur Sveinsdóttir landslagsarkitekt flytur erindi um trjárækt i görö- um, sýnir myndir og svarar fyrir spurnum og starfshópar um um- hverfi og útivist og umferðarmál gera grein fyrir verkefnum sin- um. AUGLYSINGASTOFA KRISTINAH 8 .12 Tennur þínar byrja að myndast strax á 5. mánuði í móðurkviði. Þær eru í stöðugri uppbyggingu fram á þrítugsaldur. Grundvöllur góðra tanna byggist á: • Neyslu kalkríkrar fæðu, en mjólk og mjólkurafurðir em kalkríkustu fæðutegundimar sem vöi er á. • Reglubundnum máltíðum. • Góðri tannhirðu. • Regluiegu eftirliti tannlæknis. Hvemig er ástand þinna tanna? Brostu framan í spegilmynd þína og kannaðu málið. Tennumar lengí lífí!

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.