Þjóðviljinn - 23.03.1980, Síða 14

Þjóðviljinn - 23.03.1980, Síða 14
14 SIDA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 23. raars 1980 SUÐUR Á SPÁNI ófáir eru þeir islend- ingar sem heimsótt hafa spænskar sólarstrendur á undanförnum áratug. Eiga þaöan Ijúfar minningar, sumar kannski óljósar og þokukenndar en hvað um þaö. Flestir koma endur- nærðir aftur, eins og brenndir snúðar heim (segir i dægurlagatextan- um). Klæddir ódýrum rúskinnsjökkum og með nokkra vínbelgi í ferða- töskunum. Ungu stúlkurn- ar rjóðar í kinnum eftir stutt en laggóð kynni við Antonio, Miguel eða hvort hann hét einfaldlega Pepe. Hótel Espaha Flestir hafa Islendingar komið til Spánar og eytt sumarfriinu á Sólarströndinni, þe. Costa del Sol. Gengiö á milli diskóteka á suðrænu sumarkveldi, þar sem „frjáls kúba” er svo til gefins og prúðklæddir travoltar gefa kvöld- inu gildi. Þá er snúið heim á hótelið og stigið upp næsta morgun og skokkað niður á strönd. Hvort ég hef komið til Spánar! segir fólk. Sumir eru stórhrifnir af Spáni en aörir segja að landið sé ekkert sérstaklega sþennandi, Ekkert nema túristar (þám. þeir sjálfir). Fæstir hafa þó kynnst öðru en strandarbitum þeim þar sem tákaldir Norðurlandabúar svala þorsta sinum eftir sól og áfengi. Þar sem fólk kemst næst draumaheimi auglýsinganna, — maraþon-sólbað og lauflétt ástar- ævintýri áður en snúið er heim i rigninguna og bankann. Þar sem öll tungumál heyrast nema helst tunga innfæddra. Þar sem Þjóðverjarnir halda vernd- arhendi yfir landvinningum sin- um við sundlaugina og ölvaöir Islendingar sem aðrir Norðurlandabúar verða prúðum löndum sinum til skammar með óheflaðri framkomu sinni. Fæstir verða varir við að i landinu búi þjóð sem kölluö er Spánverjar. Að aðalatvinnuvegur þjóðarinnar eru ekki þjónsstörf og hreingern- ingar, hvað þá að til séu giftir karlmenn. Rauða ströndin Þótt ótrúlegt hljómi, þarf ekki að aka lengur en i 1—2 klst. frá Torremolinos og Malaga til að komast i svo til alspænskan heim. Þar sem meiri hluti fólksins talar spænsku á andalúsiskan hátt. Þar sem vinnulúnir menn sötra moscatel á kaffihúsum i stað glaðlyndrar norrænnar æsku á blikkandi diskótekum. Þrátt fyrir innreið erlends túrisma og auömagns á lifiárum Francos fyrirfinnast þau svæði þar sem Spánn er spænskur. Þó ererfitt aö segja hversu lengi þaö ástand helst óbreytt, þar sem æ fleiri jarðarskikar lenda i hönd- um erlendra fasteignabraskara, sem siðan selja þá löndum sinum fyrir tvöfaldan pris. Fyrir ári voru bæjarstjórnar- kosningar á Spáni. Eftir stóran sigur sósialista og kommúnista á sólarströndinni, fékk hún viður- nefniö rauða ströndin, Costa Roja. Erfitt er þó að gera sér háar hugmyndir um miklar breytingar, þar sem fasteignir i feröamannabæjum eru að miklu leyti i eigu erlendra aöila. Má þar nefna lúxusbæinn Marbella sem S.dór skrifaði um I Þjóöviljann i fyrra. Kjörinn borgarstjóri þar er kommúnisti, en I Marbella búa auöjöfrar frá Arabalöndum sem Aðaltorgið i Sayalonga. Þrátt fyrir aö tveir mánuðir væru liðnir frá bæjarstjórnarkosningum voru húsveggir prýddir áróðursplakötum Þarna er hinn spænski Geir, Suárez miðjumaður.útum alla veggi, — á- hangendur hans höfðu þó ekki erindi sem erfiði, bæjarstjóri Sayaionga var kosinn úr röðum sósialista. Skyggnst bak við tjöld túrismans á sólarströnd Hjónin sem minnst er á I greininni. Lengst til vinstri er ein dóttir þeirra sem hlotið hefur þð náð að fá að ganga i skóla. öðrum löndum og það við ójarðneskan munað. Er erfitt að imynda sér, aö einn litill kommúnistaborgarstjóri geti hróflað viö miklu i bæ sem er i eigu erlendra peningakarla. Langur vinnudagur Þorp og bæir i Andalúsiu eru mjög þéttbýlir. Kalkhvit húsin eru byggð upp hvert aö öðru og eru sum hver rhargra alda gömul. Segja má að á þökum húsanna sé annar bær. Þar hanga föt til þerris, blóm vaxa i pottum og beðum og tröppur tengja mishá þökin. Svo við snúum okkur að jöröunni aftur, þá er bilaumferð þar svo til óhugsanleg. 1 fyrsta lagi eru göturnar þröngar, i öðru lagi brattar og i þriðja lagi eru þær oft i þrepum. Eins og i öðrum bæjum býr þarna alls konar fólk. Einhver rekur barinn, annar markaðinn (i bænum Cómpeta á presturinn nærfataverksmiöju!), en flestir eru bændur. Þeir eiga jarðar- skika þar sem þeir rækta vinber, ólifur, möndlur og ýmis konar ávexti. A hverjum morgni ganga þeir með múlasna sinn i 1—2 klst. frá húsi sinu, yfir fjöll og bratta út á jörð sina. Vinnudagurinn hefst um átta-leytiö en tólf klukku- stundum siðar er lagt af staö heim á leiö. Ef dregin er frá Séð yfir fjallshliðar Andalúsiu og Miðjarðarhafið. siesta (miðdegísblundur sólar- landabúa) er vinnudagur bóndans i Andalúsiu 9—10 klst. Við þær má svo leggja timann til og frá vinnustað! Goösagnir um leti suðurlanda- búa hrundu sem spilaborg þegar ég sá vinnulúnar hendur manna þeirra sem bogruðu yfir vinvið timum saman undir steikjandi sól. Mamma er enn í eldhúsinu Rétt eins og atvinnuhættir eru hefðbundnir er verkaskipting á heimilinu það ekki siður. A meöan bóndinn plægir og púlar stendur kona hans á heimili þeirra inni i bænum. Býr börnin i skóla, kaupir inn, „hirðir umhverfi sitt” og gerir flest það sem norræn kynsystir hennar þekkir svo voðalega vel. Sú tið er ekki alveg liðin að foreldrar taki börn sin snemma úr skóla til að hjálpa við púliö, en almenningsálitið hefur lagst á sveif gegn sliku. Fólk er almennt orðið meðvitað um gildi mennt- unar og vill að börnin njóti þess sem það fór sjálft á mis við. Ég hitti tiu manna fjölskyldu þar sem fjögur elstu börnin höfðu verið send áfram til náms i Málaga og voru þar af þrjár dæt- ur! Geri aðrir betur, — enda þótti þetta einstakt. Þroskaheft börn voru nokkuö áberandi og er skýringin helst sú að ekki séu til stofnanir til að geyma þau á. Þörf er fyrir hendur þeirra við landbúnáðinn og eng- um i mun að losna við þau. Bæirnir skiptast i vigi sósial- Antonio er óiæs vinbóndi og heitur kommúnisti þótt teoriur og aörir töfrastafir séu honum lokuð bók.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.