Þjóðviljinn - 23.03.1980, Síða 16

Þjóðviljinn - 23.03.1980, Síða 16
16 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 23. mars 1980 'k i€& J &&&£./** * K'm&vsz œwi| Gaukstréð hafði staðiö þarna i skóginum frá þvi þaö var litiö fræ og þaö var langt siðan. óralangt. Nú var gaukstréö oröiö stórt og mikiö og breiddi Ur laufguöum greinum i allar áttir.Gaukstréö var stærsta tréö i öllum skóginum en samt var þaö of litiö fyrir allan þann fjölda af gaukum sem i þvi bjuggu. Hver einasta grein var þéttsetin gaukum. Lofthræddu gaukarnir sátu á neöstu greinunum, hræddu gauk- arnir hjúfruöu sig saman 1 næstu greinum. Veikbyggðu gaukarnir heldu sér dauöahaldi í greinarnar þar fyrir ofan. Enn ofar komu þeir gaukar sem hvorki voru veikbyggðir, hræddir né loft- hræddir og efst i gaukstrénu tón- uöu plássfreku gaukarnir. Nótt eina, þegar tunglið var í felum bakviö skýin og myrkriö grúföi sig yfir skóginn fóru pláss- freku gaukarnir á stjá. I þéttum hóp flugu þeir niöur aö rótum gaukstrésins og settust. Flýiö, fljúgiö, flýiö, vældu plássfreku gaukarnir um leiö og þeir hófu sig til flugs og slógu vængjunum utani neöstu greinamar. Lofthræddu gaukarnir vöknuöu upp viö vondan draum og hófu sig til flugs en lofthræöslan greip þá um leiö og þeir slepptu greinum gaukstrésins og þeir hröþuöu til jaröar. Gaukstréö vaknaöi. Hvaö var aö gerast? Eina svariö sem fékkst var gnauöiö i vindinum. Þegar morgnaöi og dagsljósiö haföi náö niöur aö rótum gauks- trésins sáu gaukamir félaga sina liggja lifvana á jöröinni. Þeir horföu á hvor annan meö spurnarsvip. Óttalegt, hvisluöu gaukarnir aö hvor öörum en gaukstréö skalf. I trjátoppnum sátu plássfreku gaukarnir og snyrtu á sér fjaör- irnar. Þaö liöu dagar og þaö liöu næt- ur og nótt eina I dumbungsveöri fóru plássfreku gaukamir aftur á stjá. Þeir leituöu uppi greinarnar þar sem hræddu gaukarnir bjuggu. Hægt og varlega læddu plássfreku gaukarnir sér inn á milli greinanna, drógu djúpt andann og skerandi iskur smaug gegnum fjaörirnar á hræddu gaukunum. Þeir hrukku upp i of- boði, misstu fótfestuna og hröp- uöu til jarðar. Gaukstréö glaövaknaöi á svip- stundu og þegar þaö sá hvaö gerst haföi, hristist þaö og skal af geös- hræringu. Gaukarnir i trénu vöknuöu og þegar morgnaöi sáu gaukarnir félaga slna liggja llf- lausa á jöröinni. Hvaö geröist? spuröu þeir hver annan. Þeirsem svaraö gátu þögönog gaukstréö sem ekkert vissi gat engu svaraö. Svo liöu vikur. Plássfreku gaukarnir undu sér vel en svo kom aö þvi aö þá vant- aöimeira olnbogarými. Nótt eina þegarvindurinn þaut i trjánum og tungliö var bakviö jöröina fóru þeir aftur á stjá. NU leituöu þeir uppi veikbyggöu gaukana. Og þegar vindurinn þaut framhjá gaukstrénu og bærði greinarnar, hoppuöu plássfreku gaukarnir á greinarendunum. Veikbyggöu gaukarnir höföu ekki krafta til aö halda sér og hröpuöu til jaröar. Gaukstréö hrökk upp meö andfælum. Nú hefur þaö gerst aftur, hugs- aöi þaö og histist og skalf svo gaukarnír sem eftir voru i trénu vöknuðu. Hvaö geröist? spuröu þeir sem fyrr. En þeir sem vissu svömöu engu og gaukstréö gat ekki svaraö,þvi Hjúkrunar- fræðíngar athugið Reykjavikurdeild H.F.t. heldur almennan félagsfund þriðjudaginn 25. mars kl. 20.30 i Átthagasal Hótel Sögu. Kynntar verða tillögur til fulltrúafundar og önnur áhugaverð málefni. Stjórnin. ! ■ ■■• . . ■ - , v fýp* Smásaga eftir Valdísi Óskarsdóttur GAUKSTREÐ þaö vissi ekki svariö. En þegar morgunsólin sendi fyrstu geisl- ana yfir skóginn sáu gaukamir félaga sina liggja sundurkramda á jöröinni. Þetta er óttalegt, sögöu gauk- arnir. Þetta er lifiö, sögöu plássfreku gaukarnir. Lifiö er grimmilegt, sögöu gaukarnir. Þannig er llfiö, sögöu pláss- freku gaukarnir. En gaukstréö grét. Ég er ekki starfinu vaxiö, hugs- aöi gaukstréö. Ég á aö vernda og veita þeim skjól sem I mér búa en éghef sofiö á veröinum og bmgö- ist trausti gaukanna. Gaukstréö grét, hristist og skalf i marga daga og gaukunum kom ekki dúr á auga. Þeir vom hræddir, en plássfreku gaukarnir hreiöruöu um sig á efstu greinun- um og létu sér liöa vel. Svo liöu vikur. Nótt eina þegar tungliö óö i skýjunum sagöi einn af pláss- freku gaukunum: Þaö væri stórkostlegt ef viö heföum allt tréö út af fyrir okkur. Viö þurfum olnbogarými, sagöi annar. Okkar er trjátoppurinn, Okkar er tréö, sagöi sá þriöji. Plássfreku gaukarnir kinkuðu kolli. Þeir voru sammála. Viö veröum aö skipuleggja vel, sagöi sá sem fyrst haföi talaö. Þvi þeir sem eftir eru, eru hvorki veikbyggöir, hræddir né loft- hræddir. 1 fjórar nætur þinguöu pláss- freku gaukarnir. A meöan faldi tunglið sig bakviö skýin og vind- urinnhvlldi sig I skógarjaörinum. Fimmtu nóttina var fullt tungl og á miönætti létu plássfreku gaukarnirtil skarar skriöa. Sker- andi væl og vængjasláttur fyllti nóttina. Gaukstréö vaknaöi slegiö óhug og gaukarnir skelfingu lostnir. Hvað er aö gerast? spuröu þeir hver annan. Gaukstréö hristist og skalf og gat ekki svaraö,en nú vissi þaö. Gaukarnir hnipruöu sig saman þétt uppaö trjástofninum og út á milli greinanna sáu þeir stóra svarta fugla fljúga hring eftir hring. Þeir flugu hraöar hraöar og skerandi væliö hækkaöi stöð- ugt. Gaukamir I trénu fylgdust meö fuglunum fljúga hring eftir hring þar til þá fór aö svima. Einn af öörum misstu þeir jafnvægiö og hröpuöu til jaröar, en stóru svörtu skuggarnir sem flugu umhverfis tréö, ráku upp fagnaöarskræki. Ég verö aö bjarga þeim sem eftir eru, grét gaukstréö og reyndi aö vefja greinarnar utan- um sjálft sig og gaukana I trénu. En laufgaðar greinarnar voru of þungar. Skyndilega hvarf tungliö bák- viö ský og nóttin varö svört. Vindurinn vaknaöi I skógar- jaörinum, hristi sig og skók og þaut svo af staö yfir trjátoppana. Hann reif og sleit i' trén og æddi áfram meö offorsi. Þegar hann kom aö gaukstrénu dansaöi hann nokkra hringi kringum þaö svo trjágreinarnar vöföust þétt upp aö stofninum. Plássfreku gaukamir soguöust meö I hringiöu vindsins og skullu til jaröar er vindurinn henti sér aö rótum næsta trés og reif þaö upp. Vindurinn steypti sér kollhnlsa og tók heljarstökk, en þegar morgnaöi var hann oröinn þreyttur. Hann rétt haföi þaö af aösmjúga yfir trjátoppana og ör- magna lagöist vindurinn til hvlldar I skógarjaörinum. Þegar sólin kom upp var ófag- urt um aö litast. Brotin tré og brotnar greinar og kringum nakiö gaukstréö lágu plássfreku gauk- arnir sundurslitnir á jöröinni. Varlega leysti gaukstréö sund- ur greinarnar, eina eftir aöra. og þegar sólin hvarf niður fyrir trjá- toppana I vestri stóö gaukstréö meö naktar kræklóttar greinar sem teygöu sig Ut frá trjástofnin- um. Gaukstréö hélt niöri I sér andanum og hlustaöi. Ekkert hljóö heyröist. Þaö var grafar- þögn I skóginum Hvar eru gaukarnir? hugsaöi gaukstréö. Varlega hristi þaö greinarnar. Sundurtættir gaukar hrundu niöur á jöröina viö rætur gauks- trésins. Þeir höföu oröiö á milli trjágreinanna og stofnsins. Gaukstréö hristist og skalf. Þaö hengdi niöur toppinn og grét. Þaö haföi brugöist. Sumardvöl í Árósum? Hver vill taka á leigu ibúð i Árósum tima- bilið 15. júni til 1. ágúst? Ibúðin er 113 fermetrar, þrjú herbergi og stór stofa, 2 baðherbergi, þvottavél og þurrkskápur inni i ibúðinni. Leigist með húsgögnum á 3500 Dkr. fyrir allan timann, allt innifalið, þ.á.m. simi. Lysthafendur hringi i sima 84827 eða skrifi til Þrastar Haraldssonar, Lottesvej 8,1 th. 8220 Brabrand, Danmark. UTBOÐ Rafmagnsveitir rikisins óska eftir til- boðum i eftirtalið efni: 1) 11 kV aflrofaskápa Útboð 80017-RARIK 2) 66 kV útiefni i aðveitustöðvar Útboð 80018-RARIK Útboðsgögn fást afhent á skrifstofu Raf- magnsveitna rikisins, Laugavegi 188, Reykjavik frá og með mánudeginum 24. marz 1980, gegn óafturkræfri greiðslu kr. 2000,- fyrir hvert eintak. Tilboðin verða opnuð kl. 14:00 þriðjudag 15. april n.k. (útboð 80017-RARIK) og kl. 14:00 mánudag 21. aprll n.k. (útboð 80018-RARIK) að viðstöddum þeim bjóð- endum er þess óska. Dyveke Helsted forstjóri Thorvaldsens-safnsins i Kaupmannahöfn heldur fyrirlestur með litskyggnum um Bertel Thorvaldsen þriðjudaginn 25. mars kl. 20:30 I fyrir- lestrarsal Norræna hússins. Verið velkomin NORRÆNA HÚSIÐ

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.