Þjóðviljinn - 30.03.1980, Síða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 30. mars 1980
//Innanmein og útbrot Þjóð-
viljans" nefndist grein þeirra
Halldórs Guðmundssonar/ óskars
Guðmundssonar og örnólfs Thors-
sonar er birtist í blaöinu i gær. I
þeirri grein bentu þeir á ýmislegt er
miður fer í Þjóðviljanum og hvar
helstu veikleika hans sem dagblaðs
vinstrimanna væri að finna. I síðari
greininni fjalla þeir félagar um
leiðir til úrbóta og íhuga möguleika
annars konar blaðamennsku og
fréttaflutnings í sósíalísku dag-
blaði.
Halldór
Guðmundsson,
Óskar
Guðmundsson
og
Örnólfur
Thorsson:
Eini kosturinn er
annarskonar blað
Öðruvísi blað
Þaö er ekki nóg meö aö viö
séum á móti dagblööum — viö
viljum ööru visi dagblöö, svo
fariö sé frjálslega meö orö
Brechts. Viö viljum halda þvl
fram aö Þjóöviljinn ætti aö taka
til umræöu þau blaöamennsku-
legu vinnubrögö sem nú eru nær
allsráöandi á blaöinu. Þau eiga
sér aö mörgu leyti skiljanlegar
orsakir. Engu aö síöur er oröiö
timabært aö karlar og konur
spyrji hvort þau samræmist hug-
sjónum blaösins og stefnu, hvort
sú hætta sé ekki fyrir hendi aö
blaöiö taki i vaxandi mæli aö
„gelta meö hinum hundunum”
einsog einu sinni var sagt I
lesendabréfi af ööru tilefni.
Blaöiö likist æ meir hinum
blööunum um efni og vinnubrögö,
markaöslögmálin eru oröin þriöji
ritstjóri Þjóöviljans.
Þaö er ekki von á góöu þegar
fréttastjórnin þarf jafnan aö hafa
þarfir auglýsingadeildarinnar i
huga. Blaöamenn veröa aö varast
aö „styggja” þau fyrirtæki sem
hafa veriö, eru eöa geta oröiö
auglýsendur I blaöinu. Fyrirtæki
einsog Loftleiöir veita blaöa-
mönnum sérstaka fyrirgreiöslu
og leggja þar meö inn gott orö. Og
hver kannast ekki viö litt dulbúna
auglýsingakálfa dagblaöanna
(Þjóðviljalesendur muna sjálf-
sagt Kópavogsblaöiö, feröablööin
öll, sérritin og ýmsar aörar
„kynningar á myndarlegum
fyrirtækjum”, einkum þegar
sýningar eru á Artúnshöföa eöa I
Laugardalshöll). Nærri má geta
aö næmni.jafnvel ágætustu blaöa-
manna, fyrir annmörkum
auövaldskerfisins hlýtur aö dofna
I þægilegu langflugi yfir Atlants-
ála eöa rykmettuöu andrúmslofti
kokkteilboös (G. Sigurösson hf.
sjötugir).
Hún er annars merkileg þessi
keppni blaöanna um aö vera
hvert ööru lik. Hvergi birtist hún
skýrar en i helgarblööunum, sem
öll birta sömu efnisflokka. Þaö
hafa sjálfsagt óviöa i blaðaheimi
þessarar plánetu birst jafnmörg
viötöl viö jafn fáa, sem hafa jafn-
litiö aö segja á jafnmörgum
dálkum.
Þau vinnubrögö sem fyrr voru
nefnd byggjast aö nokkru leyti á
þvi að draga sem mest úr svo-
kölluöum „hlutdrægum og póli-
tiskum” fréttum. Skýr markalina
er dregin á milli pólitiskrar
umf jöllunar, sem einkum birtist i
leiöurum og klippi, stundum I
erlendum fréttaskýringum, og
eiginlegra „frétta”. 1 þessum
fréttum er siöan reynt aö slá
rikisfjölmiölunum viö i hlutleysi,
heist er brugöiö útaf linunni
þegar Flokkurinn á i basli eöa
þegar hægt er aö gefa leiötogum
annarra flokka selbita. Viö getum
kennt þessi vinnubrögö viö
borgaralega blaðamennsku og i
augum þeirra blaöamanna sem
vildu losna undan flokkspólitisku
fargi hlaut hún af skiljanlegum
ástæöum aö viröast til bóta, bera
meö sér aukiö frelsi þeim til
handa. I raun og veru byggjast
þessi vinnubrögö á þvi grund-
vallarviðhorfi að hægt sé að
greina fullkomlega aö staö-
reyndadóma og gildisdóma.
Blaðamaöurinn litur bá á sig sem
einhvers konar hlutláusan miöil
sem flytur lesendum mikilsverö-
ustu staöreyndir samtimans á
hlutlægan og nákvæman hátt. En
þaö er auðvelt aö sýna fram á aö
veruleikinn er ekki slikt staö-
reyndasafn að hægt sé aö valsa
um hann og velja bestu vörurnar
úr einsog i góöri kjörbúö. Séu
þessi viöhorf höfö aö leiöarljósi er
hætt viö aö menn láti hugmynda-
fræöi borgaralegs samfélags
segja sér hvaö sé fréttnæmt og
hvaö ekki, hverju beri aö slá upp
og hverju ekki, hvaö tilheyri
hinum opinbera pólitiska vett-
vangi og hvað vettvangi einka-
lifsins.
Þegar Georg gamli Lukacs gaf
út sitt umdeilda verk „Söguog
stéttarvitund” 1923 taldi hann þá
frægu skepnu firringuna óviöa
koma skýrar fram en i reglum
borgaralegrar blaöamennsku.
Þaö var skoöun Lukacsar aö i
kapitalisku samfélagi væri gjá
milli sjálfsvitundar mannsins og
vinnuafls hans, en þaö veröur aö
lúta ákveönum vélrænum
reglum. Þessi klofningur veröur
sérstaklega áberandi þegar
slikar reglur eru hafnar á stall og
gerðar aö dyggö sem andleg
framleiðsla á borð viö blaöa-
mennsku miöast viö. Sjálfsagt
könnumst viö öll viö dæmi þess aö
„mætustu” menn” i stétt blaða-
manna réttlæti lágkúruleg æsi-
fréttaskrif meö frösum um góöa
blaöamennsku, visi til fag-
mennsku sinnar (auk þess sem
almenningur er einsog vanalega
sakaöur um aö vilja þetta).
Dæmi um slik neikvæö einkenni
borgaralegrar blaöamennsku á
Þjóðviljanri eru mörg, sem von er
þegar aörir fjölmiölar móta
fréttamat hans I jafn rikum mæli
og raun ber vitni. Það nægir aö
leiöa hugann aö glæpa- og slysa-
fréttum (flestir blaöamenn
kannast sjálfsagt viö viökvæöiö:
Auövitaö birtum viö nafniö á
morgun, Visir var meö þaö i dag).
Gagnrýnislaus umfjöllun um
þessa málaflokka eflir auk þess
laga-og regluþankagang lesenda,
styrkir þaö viöhorf aö samfélagiö
sé likami sem þurfi aö hreinsa, og
dagblööin eins konar hvit blóö-
korn. Fyrir bragöiö gætir stund-
um áherslu I fréttamennsku sem
er andstæö allri hugmyndabar-
áttu sósialista.
Nýlegt dæmi er umfjöllun Þjóö-
viljans um þau margtuggöu Geir-
finnsmál. Á timabilinu 15.-27.
janúar birtust hvorki meira né
minna en 10 heilsiðugreinar þar
sem málflutningur var rakinn,
þess utan 5 uppsláttarfréttir á
forsiöu meö útdrætti úr pistli
dagsins. 18. janúar er fyrirsögn á
2. siöu „Þetta eru hættulegir
menn” og i myndatexta segir:
„Þóröur Björnsson rikissak-
sóknari lauk stórmerkilegri
sóknarræöu sinni...” Engu er
likara en aö islenskir blaöamenn
hafi hrifist með einsog áheyr-
endur aö þinghaldi Njáluá sinum
tima: Þykir þeim ýmist sókn
fremri en vörn eöa öfugt. Hér
veröur ekki einum blaöamanni
um kennt, þaö er fréttamat rit-
stjórnar sem ræöur ferðinni.
Auövitaö heföi veriö nær aö verja
þessum kröftum og plássi til
gagnrýninnar umræöu um
islenskt réttarkerfi, einangrunar-
vist eöa ágæti langrar fanga-
vistar yfirhöfuö, yfirheyrsluað-
feröir lögreglu eða til aö ihuga
ástæbur hinna óhemjulegu blaöa-
skrifa um þessi mál undanfarin
ár. Þegar fjölmiölar tóku viölika
syrpu um þau fyrir nokkrum
árum birti Þjóðviljinn leiðara til
að minna á mannúðlegri viðhorf
(Kjartan Clafsson), nú orðib er
slikum skoöunum holaö niöur i
lesendadálka sem haföir eru á
leyndardómsfullum stööum I
blaöinu (Birna Þóröardóttir).
Barðar bumbur
í stað endursagnarblaöa-
mennsku þar sem reynt er aö
fylgja fast á hæla hinna blaöanna
(þó Þjóöviljinn hafi minna rými)
er nær aö ihuga möguleika
annars konar fréttamats og
blaöamennsku. Blaöamennsku
sem i senn er upplýsandi og litur
á sig sem liö i þjóöfélagslegri
baráttu (af sanngirnisástæöum er
auövitaö rétt aö geta þess aö slik
viöleitni sér einstaka sinnum
dagsins ljós, en alltof tilviljunar-
kennt). Efnahagserfiöleikar
Þjóöviljans ættu aö veröa for-
ráðamönnum hans tilefni til þess
aö átta sig á þeirri staöreynd aö
hann getur aldrei haft viö hinum
blööunum á þeirra eigin vett-
vangi. Réttlæting tilvistar hans
og eini möguleiki felst i þvi aö
hann sé annars konar blaö. Og
þaö ekki I þeim skilningi aö hann
haldi sifellt á lofti sjónarmiöum
forystu Abl. i blekkingarkenndu
þjarki islenskra stjórnmála.
Jarösambandsins vegna getum
viö tekiö dæmi: Blaöamönnum
verði gefinn kostur á aö fylgja til-
teknu máli, mikilvægu i baráttu
fyrir ööru samfélagi (t.d. hús-
næöismálum) vel eftir meö
fréttum, viötölum og eigin frétta-
skýringum. Þvíverður svaraö til
aö þaö skorti mannskap, allir séu
svo önnum kafnir viö dagleg
hlaup til aö fylla spalta blaösins.
En ef Þjóöviljinn tæki upp vinnu-
brögö I þessum anda aö staðaldri,
þrátt fyrir þann þrönga kost sem
hann býr nú viö, þýddi það
auövitað um leiö aö hann yröi aö
hætta aö birta ýmsar þær daglegu
fréttir sem önnur blöö og rikis-
fjölmiðlar sinna hvort eð er betur,
aö ekki sé nú minnst á allan þann
bunka af undarlegustu fréttatil-
kynningum sem blaöinu berst
daglega. í stað þess að leggja
metnaö sinn i að vera „ekki siðri”
en hin blöðin, legði hann sig fram
viö aö vera öðruvísi á allan hátt.
Til þess þarf frumkvæöi rit-
stjórnar, rétt einsog þrýstingur
hennar veröur aö koma til ef
takast skal aö halda uppi liflegri
umræöu I dagskrárdálki blaösins.
Þaö sakar ekki að nefna fleiri
eiginleika sem sósialískt dagblaö
mættu prýða. Viö höfum minnst á
liflega og opna umræöu um
stjórnlistina og fleiri hluti, á
annars konar fréttamat og vinnu-
brögö, á beinna samband viö les-
endur, á sjálfsstjórnar. og lýð-
ræðismál. Þaö er lika sannfæring
okkar aö slikt blaö yröi aö stefna
aö þvi aö vera óháö auglýsendum
með öllu. Úr þvi minnst er á fjár-
mál: Þjóöviljinn mætti gera
sömu kröfur til sin og sósialistar
gera til annarra fyrirtækja —
opna bókhaldiö og gera heiöar-
lega grein fyrir stööu fjármála,
raunverulegri sölu og dreifingu.
Þaö er ekki nema sjálfsögö þjón-
usta viö þá velunnara blaösins
sem sifellt er veriö aö krefja um
peninga. Einsog nú er ástatt er
þaö með herkjum sem blaöamenn
fá aö fylgjast með rekstri blaös-
ins. Þar er komið aö ööru grund-
vallarviömiöi — hvernig væri aö
Þjóðviljinn reyndi svolitið aö
huga aö lýöræöi á vinnustað.
Þannig væru starfsfólki tryggö
áhrif á stefnu og innihald blaösins
og svo um hnúta búiö aö ekki væri
hægt ab taka ákvaröanir um
framtiöina án samráös viö það.
Eðlilegur partur af slfkri viöleitni
væri jafnlaunastefna á blaöinu.
Við erum þess fullvissir aö ef
tekist væri á viö verkefni einsog
þau sem hér hafa veriö rakin af
fullri alvöru og lesendum jafn-
framt gerö grein fyrir þeirri viö-
leitni, yröi Þjóöviljanum ekki fé-
skylft. Hafi menn á annaö borö
áhuga á aö gera hann aö lifandi
baráttumálgagni og opnum vett-
vangi allrar vinstrihreyfingar-
innar.
Vinstrimönnum bjóöast tveir
kostir á timum sem þessum
þegar ekki viröist blása byrlega
fyrir sósialiskri hreyfingu á
tslandi. Annar er sá að aölagast
kapitalisku samfélagi æ meir,
gera hugsjónirnar aö skemmti-
legum smáletursklausum I Lög-
birtingarblaöinu (sbr. þegar
Svavar Gestsson „tók viö ráöu-
neyti viöskiptamála” meö þau
orö á vörum aö auövitaö væri
rikiö tæki borgarastéttarinnar).
Hinn er sá aö halda áfram barátt-
unni á öilum vigstöövum, þó hún
veröi um stund smærri i sniöum;
safna I hugmyndasarpinn og
kynna sér nýjar baráttuaöferöir
og möguleika. Það er sannfæring
okkar aö islensk vinstrihreyfing
veröi fyrr eöa sföar aö eignast
þaö öðruvisi dagblaö (eöa annan
fjölmiöil) sem hér hefur veriö
rætt um. Hvort Þjóöviljinn veröi
slikt blaö er m.a. á valdi forráöa-
manna hans. Veröi áfram
hjakkaö i sama farinu munu þeir
einhvern tima komast aö þvi aö
þeir hafa hlaupið uppi vitlausan
strætisvagn, svo viö höldum
okkur við llkingarnar.
Óskar Guömundsson
örnólfur Thorsson
Halldór Guömundsson
„Þjóðviljinn
á að stefna
að því' að
vera óháð
auglýsendum
með öllu”
„Þjóðviljinn
á að opna
bókhald sitt,
og gera
heiðarlega grein
fyrir stöðu
fjármála,
raunverulegri sölu
og dreifingu”
„Dæmi um
neikvæð
einkenni
borgaralegrar
blaðamennsku á
Þjóðviljanum
eru mörg”
Tillögur um meðferð á grundvelli sjúkdómsgreiningar - Síðari hluti