Þjóðviljinn - 30.03.1980, Blaðsíða 7
Sunnudagur 30. mars 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
#mér
datt þaö
í hug
Jóna Sigurjónsdóttir skrifar:
Spumingar vakna
Þaö er komiö, já þaö er á-
byggilega komiö, þetta árlega
svikavor, sem narrar túlipan-
ana uppúr freranum og litiu
duglegu Lduna hingaö heim. Þá
fer allt feita fólkiö i snar-megr-
unarkúr, góöar húsmæöur gera
vorhreingerningu og skipta um
gardinur, hinar kaupa sér bara
ny pottablóm. Svo kemur
Páskahretiö góöa, sem ekki hef-
ur brugöist svo lengi sem elstu
menn muna.
Þá fyllast allar kirkjur lands-
ins af prúöbúnu fólki, sem krýp-
ur I auömýkt og meötekur blóö-
fórnina úr mjúkri hendi prests-
ins, sem er skrýddur einsog
magadansmær i upphafi sjö-
slæöudansins.
Svo fara allir heim og boröa
sunnudagslæriö.
Kæru félagar, ég biö afsökun-
ar á þessum hjartnæma for-
mála mlns lítilfjörlega erindis,
en mér er ekki sjálfrátt; ég verö
alltaf svona væmin viö árstiöa-
skiptin.
— 0 —
Þaö hefur veriö fátt um fina
drætti I dagblööunum undanfar-
iö. Eintómt kjaftæöi um vændi,
þar hafa allir tekiö til máls
nema vændisseljandinn, vænd-
isskaffandinn og vændisþiggj-
andinn. Þaö væri mjög fróölegt
aö heyra af þessum aöilum ef
þeir vildu gjöra svo vel aö birt-
ast á ritvellinum.
Um daginn fann ég undarlega
setningu I ágætri minningar-
grein, þessi minningargrein var
prentuö i am.k. tveimur blöö-
um án breytinga eöa athuga-
semda, hún er svona: „Noröri
Norörason bóndi á Nyrörimýri
var fæddur á Dýjum I Noröur-
mýri 13. nóvember 1886, dáinn 1.
mai' slöastliöinn og voru þá liöin
115 ár frá þvi foreldrar hans
giftust, mun þaö vera nokkuö ó-
venjulegt.”
Þetta finnst mér skrýtiö, ég
meina þetta meö hvaö hjóna-
band foreldra hins framliöna
hefur veriö langt. Sú spuming
hvort þvi ljúki nokkurn tima
heldur fyrir mér vöku og minnir
mig á eiliföina i heimi Mormón-
anna.
Svona smáar eru minar á-
hyggjur á þessu ljúfa falska
vori; þaö er skömm aö þessu
relli.
— 0 —
Fyrir nokkrum árum las ég
auglýsingu frá stóm fyrirtæki,
óskað var eftir ræstingarkonu,
en þaö var algjört skilyröi fyrir
stööuveitingunni aö hún væri
ekki eldri en — nákvæmlega 41
árs.
A þriðjudaginn sá ég auglýst
eftir starfskrafti, sérlega tekiö
fram i undirfyrirsögn, ungri
— i vorsins
Ijúfa blæ
stundvisri stúlku meö greindar-
visitölu um eöa yfir 110.
Hvernig atvinnurekandi, sem
á fjölritunarstofu ætlar aö mæla
þetta er mér hulin ráögáta.
Maöur getur skiliö trikkiö meö
ummálin og aldurinn — en þetta
finnst mér óhugnanlegt. Hafiö
þiö nokkurn tima heyrt þess
getiö aö atvinnurekandi þyrfti
að ganga undir gáfnapróf til aö
fá t.d. heildsöluleyfi? Getur
nokkur umsækjandi um vinnu
gert kröfur til atvinnuveitanda
sins umfram kaup á réttum
gjalddaga og ljós og hita á
vinnustaö — ef þörf krefur? Mér
er spurn.
Annars verö ég aö láta þess
getiö aö ég hef ekki hugmynd
um hvaö þessi tala táknar, en
húnhlýtur aö vera bara pinulitil
fyrst aö hin visitalan, sem
stjórnar okkur öllum er farin aö
ganga 600.
Viö sjáum oft i dagblööunum
auglýsingar sama efnis og þá
sem hér fer á eftir:
„Giftur maöur i góöri stööu
óskar eftir nánum kynnum viö
káta konu á besta aldri, t.d. 25-
35 ára. Fjárhagsaöstoö kemur
til greina, ef um semst. Svar
sendist á afgreiöslu blaösins
merkt „6”.”
— 0 —
Eftir hverju er maöurinn aö
sadcjast? Viö þurfum ekki mikiö
imyndunarafl til aö geta upp á
þvi.
Ef manninum veröur aö ósk
sinni o g hann kemst i náin kynni
viö kátu konuna, veröur hann
auövitaö ákaflega hamingju-
samur, hanastoltiö hans eflist
ogstyrkist og þegar þaö kvisast
I kunningjahópnum aö hann sé
farinn aö halda framhjá meö
kátri konu á besta aldri, fer áö-
ur en varir aö bjarma um hann
og þaö kemst á kreik aö hann sé
mesta kvennagull. A þessu stigi
málsins gerist hann stundum
hestamaöur. Þaö oröspor aö
vera kvennamaöur, kvennagull,
hefur alltaf þótt gott og þá ekki
spurt hvernig til þeirrar nafn-
bótar sé stofnaö.
En hvernig fer fyrir kátu kon-
unni, sem svarar auglýsingu
mannsins og tekur upp viö hann
náin kynni?
Hún fær ekki hrós fyrir aö
vera piltagull. Hún er litin illu
auga og henni eru valin hin
verstu viöurnefni, svo mannorö
hennar er skaddaö um aldur og
ævi... Almenningsálitiö er henni
fjandsamlegt, þó góölátlega sé
brosaö aö manninum, sem tekur
þátt I þessum leik meö henni.
Honum er fyrirgefiö, henni
aldrei.
Þaö er skoöun min aö viö kon-
ur eigum ekki minni þátt I þess-
ari skoöanamyndun en karl-
menn. Sérstaklega vil ég nefna
alþjóölegt samtryggingarfélag
eiginkvenna, sem sér I hvers-
konar lausung og framhjáhaldi
ógnun við þjóðfélagsstööu slna.
— 0 —
Byrjun þessa árs hefur veriö
stórkostleg og hafa gerst meö
vorri þjóö mörg undur og stór-
merki. Hvern heföi grunað aö
Gunnar Thoroddsen ætti eftir aö
veröa forsætisráöherra i vinstri
stjórn?
Fólk er enn ekki búiö aö ná sér
eftir stuöningsyfirlýsingu Guö-
mundar J. viö forsetaframboö i-
haldsforkólfsins og heildsalans
Alberts Guömundssonar.
Hvernig má þaö vera aö for-
maöur Verkamannasambands
Islands, maöur, sem um ára-
raöir hefur barist I fremstu vig-
linu I baráttu láglaunafólksins,
þar sem kjarabaráttan hefur æ-
tiö veriö höröust, hvernig má
þaö vera aö sá maöur vilji nú
nota völd sin og viötæk áhrif til
aðkoma Albert Guömundssyni i
æöstu valda- og viröingarstöðu
lýöveldisins?
Svar óskast.
ÞANNIGVANN
KORTSNOJ
ekki hörfað til c7 þar eö b7-peöiö
er óvaldaö.)
21. ... Bb6
22. d5!
Baráttujaxlinn ódrep-
andi/ Viktor Kortsnoj/
virðist á góðri leið með að
endurvinna réttinn til að
skora á Anatoly Karpov
heimsmeistara í skák. I
siðustu viku vann hann 9.
einvígisskákina við Tigran
Petrosjan og með því iauk
einvígi þeirra félaga.
Kortsnoj vann 2 skákir, 7
urðu jafntefli en Petrosjan
tókst ekki að vinna eina
einustu skák. Oftsinnis
hafði hann góð færi/en svo
virtist þegar á reyndi að
honum brysti þrek og/eða
kjark.
Eftir einvigiö gaf Kortsnoj út
nokkrar stórkarlalegar yfirlýs-
ingar um hæfni sina, og gat þess
auövitaö i leiöinni, aö hann myndi
vinna réttinn til að skora á Karp-
ov rétt eins og aö drekka vatn.
Hvaö sem ööru liöur þá er Korts-
noj á þessari stundu langsigur-
stranglegasti keppandinn i
Askorendaeinvigjunum. Reynsla
hans I þessum einvigjum er sllk
að enginn annar keppandi getur
státaö af sliku, nema þá ef vera
skyldi Spasski. Tigran Petrosjan
hefur nú I þremur undangengnum
Askorendakeppnum veriö stööv-
aöur af Kortsnoj og hlýtur honum
aö leiöast þaö þvi frómir menn
telja hann eiga möguleika I hvern
annan keppanda. Sigurskák
Kortsnoj var einkar sannfærandi.
Hann náöi þegar frumkvæöinu og
varö brátt allsráðandi á boröinu,
vann peö, og slöan annað, og þá
var Armeniumanninum nóg boöiö
og gafst upp. Veröur fróölegt aö
vita úr hvaöa embætti hann verö-
ur núna rekinn þvi eins og kunn-
ugt er þá varö hann aö láta af rit-
stjórastarfi „64” siöast þegar
hann tapaði fyrir Kortsnoj.
9. einvígisskák:
Hvitt: Viktor Kortsnoj
Svart: Tigran Petrosjan
Drottningarbragö
1. c4-e6 7. e3-Be7
2. Rc3-d5 8. h3-0—0
3. d4-Rf6 9. Bd3-He8
4. Rf3-Rbd7 io. Dc2-Rf8
5. cxd5-exd5 ii. o__0_0!
6. Bf4-c6
(A þennan hátt vann Timman
Karpov i Bugonjo 1978. Hann
þeytti fram peöunum á kóngs-
væng og náöi óstöövandi sókn.)
11. ...-Bb4 14. Bf4-De7
12. Kbl-De7 15. Re5!
13. Bg5-De6
(Þaö væru taktisk mistök hjá
Kortsnoj að falast eftir jafntefli
meö þvi aö endurtaka leiki.
Hann hefur greinilegt frumkvæöi
og getur án verulegrar áhættu
teflt til vinnings.)
15. ...-Re4
16. Rxe4!-dxe4
17. Bc4
(Auðvitaö ekki 17. Bxe4 f6 o.s.frv.
1 framhaldinu er e4-peöiö eitraö
af þessari ástæöu einni.)
17. ...-Be6 20. Db3-Ba5
18. Bxe6-Rxe6 21. Rc4!
19. Bh2-Rf8
(Nú fara annmarkarnir I stööu
svarts aö koma i ljós. Hann getur
Enn einu sinni hefur Korstnoj rutt
Petrosjan úr veginum aö heims-
meistaratitlinum.
(Kortsnojer ekkertá þeimbuxun-
um aö þiggja peðið. Hann veit
sem er aö Petrosjan fengi mótspil
eftir a-linunni.Hann kýs heldur aö
opna miöboröiö þar sem menn
standa allir sérlega vel, ráöa
reyndar lögum og lofum á borö-
inu).
22. ...-cxd5 24. Bd6!-Bxd6
23. Hxd5-Bc5 25- Rxd6-Hed8
(E.t.v. var 25. — Heb8 betri leikur
en ekki sérlega fagur útlits.
Svarta staöan er sennilega þegar
oröin töpuö.)
26. Hhdl-De6
27. Rxb7-Hdb8
28. Hb5-Df6
(Svartur getur aö sjálfsögöu ekki
leyft drottningarkaup. Eftir-
leikurinn væri tiltölulega auö-
veldur i endatafli.)
29. Hd2-Dg6 37. Rd6-Hb4
30. g3-h6 38. h5-Dg4
31. Rd6-Hd8 39. a3-Ha4
32. Hbd5-Hab8 40. Ka2-Rc7
Framhald á bls. 21.
STORMARKAÐSVERÐ
Gerið verðsamanburð
LEYFT OKKAR
VERÐ: VERO:
EGG1 kg . kr. 1690.- 1100.-
Braga kaf fi 1/4 kg .kr. 1015.- 975.-
Smjörliki 1/2 kg .kr. 425.- 359.-
Kakó 1/2 kg .kr. 2480.- 1595.-
Eldhúsrúllur Fay2stk . kr. 680.- 597.-
Niðursoðnar perur 1/1 dós . kr. 1080.- 869.-
Niðursoðnar ferskjur 1/1 d. ... .kr. 1040.- 825.-
Coop Grænar baunir 1/1 dós ... . kr. 574.- 409.-
PASKAEGG A TILBOÐSVERÐl
Miðvikudaginn
2. april
opið til kl. 22
Laugardaginn
5. april
opið kl. 9—12
STORMARKAÐURINN
Skemmuvegi 4A,
Kópavogi