Þjóðviljinn - 30.03.1980, Page 24
DJOÐMUNN
Sunnudagur 30. mars 1980
A&alstmi ÞjóDviljans er 81333 kl. 9-20 mánudaga til íöstu-
daga. Utan þess tima er hægt afi ná i blafiamenn og aðra
starfsmenn bla&sins i þessum simum: Ritstjórn 81382,
81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257.
Laugardaga kl. 9-12 og 17-19 er hægt ab ná i afgreibslu
bla&sins I sima 81663. Blaöaprent hefur slma 81348 og eru
bla&amenn þar á vakt öU kvöld.
Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81333 81348 afgreiðslu 81663
Vésteinn
Lúðvíksson
Leikfélag Reykjavikur
frumsýndi í gær laugardag
nýtt verk eftir Véstein
Lúðviksson. óþarfi er aO
kynna Véstein fyrir les-
endum okkar. Verk hans
„Stalin er ekki hér” -olli
miklum deilum og umræöum
á sinum tima. Sunnudags-
biaöið hafði samband við
Véstein varðandi hið nýja
verk hans „Hlemmi”._
— Getur þú rakið sögu-
þráðinn i stuttu máli?
— Verkið gerist á okkar
timum. Þar segir frá ungum
manni, Hemma, Hermanni
Sverrissyni, sem hefur verið
við nám erlendis en er nú
kominn I sitt sjávarpláss
og uppgötvar, að bak við fág-
aö yfirborð, fjölskyldu sinn-
ar eru fólgnir heldur hrika-
legir atburðir. Svo hrikalegir
aö Hlemmi veröur ekki sami
maður upp frá þvi. Móðir
hans hefur gifst þeim manni
sem hefur veriö valdur að
dauða fööur Hemma, en
hann var verkalýösforinginn
á staðnum, og stjúpi hans er
almætti staðarins.
Leikritiö fjallar siöan um
hvernig Hemmi reynir að
sanna þessa vitneskju og
notfæra hana til að breyta
valdahlutföllum á staðnum.
Inn I söguþráðinn blandast
ástamál drengsins, fyrrver-
andi kærasta hans og núver-
andi ástmey hans.
— Söguþráðurinn minnir
óneitanlega á „Hamlet” eftir
Shakespeare?
— Já, kjarninn er sóttur i
Hamlet. Eða réttar sagt
þemað. Að öðru leyti er
verkið óskylt hinu sigilda
leikriti Shakespeares. Þarna
er kannski fyrst og fremst
lýst átökum tveggja hreyf-
inga, auðvalds og verkalýðs-
hreyfingar.
— Er þetta „sálrænt”
verk?
— Nei. En segja má að
leikhús án sálfræði sé ekkert
leikhús.
— Hefur verkið breyst. I
ieikhúsvinnunni?
— Já, stærstu kippina
hefur verkiö tekið hér i leik-
húsinu. Þaö er svo ótrúlega
margt sem kviknar i mér
þegar ég heyri setningarnar
úr munni leikarana.
— Er þetta leikrit frá-
brugöið þinum fyrri
verkum?
— Já, þetta er allt öðruvisi
leikriten ég hef skrifaö áður.
„Stalin” var dæmigert
vandamálaleikrit, sem
byggir á pólitiskum vanda,
en þetta leikrit er þannig
uppbyggt, aö þaö lýtur aö
leikhúslögmálum samtimis
sem það á rætur f tslands-
sögu síöustu áratuga.
Ég álit ekki að leikhús eigi
aðlemja skoöunum inn ifólk,
heldur kveikja i leikhúsgest-
um
— im
'r!' 1 P
Myndlistarskólinn
Hópur 12 -14 ára unglinga var að vinna við dúkristu og skein áhuginn úr svip þeirra. Til vinstri má sjá
gamla enska bókapressu sem er notuð viðþrykkiö. (Ljósm.:gel)
VORSÝNING
Margrét Hjálmarsdóttir heggur
konumynd i stein. en það er nýj-
ung að kennt sé að höggva i stein.
Áður hefur verið mótað og steypt.
(Ljósm.:gel)
Myndlistarskólinn sem lengst af var i Asmundarsal við Freyjugötu
er nú sinn annan vetur i stóru og björtu húsnæði að Laugavegi 118. t
gær var opnuð þar sýning á verkum nemenda og stendur hún fram yfir
páska og er opið daglega frá kl. 14 -18.
Þjóðviljinn leit þangað inn nú i vikunni og spjallaði við tvo af kennur-
um skólans, þau Katrinu Briem skólastjóra og Ragnar Kjartansson.
Þau sögðu að um 300 nemendur væru nú I skólanum og er hann að
mestu rekinn siðdegis og á kvöldin. Þaö er einungis höggmyndadeildin
sem er dagdeild. I höggmyndadeildinni eru nú 7 nemendur.
Tveir af nemendunum i höggmyndadeild voru I vinnu, þær Margrét
Hjálmarsdóttir og Þorbjörg Þórarinsdóttir. Voru þær að höggva i svo-
kallaðan kúnststein,en það er nýjung. Aður hefur einungis veriö kennt
að móta og steypa. Þær voru sammála um að þetta væri mjög spenn-
andi vinna.
Við gengum inn i málaradeild og þar var hópur nemenda að mála
kyrralifsmynd eftir módeli en á öðrum staö var Ragnar Kjartansson aö
finna til höfuðkúpu til að mála eftir.
Hópur 12 - 14 ára unglinga var I læri hjá Katrinu skólastjóra. Þau •
koma tvisvar i viku til að læra að teikna,en nú voru þau að gera bóka-
merki i dúkristu. Svipur þeirra bar með sér mikla einbeitni og áhuga.
Myndlistarskólinn i Reykjavik er greinilega lifandi og skemmtileg
stofnun.
— GFr
Katrln Briem skólastjóri: Alls
eru 300 nemendur 1 skólanum.
Einn af kennurum skólans, Ragnar Kjartansson, mundar hér höfuð- Lilja Glsladóttir hjúkrunarfræðingur er byrjandi I skólanum. Hún er
kúpu eins og Hamlet foröum.en hún er notuö til að teikna eftir. hér aö mála kyrraiifsmynd eftir módeli.
(Ljósm.:gel)
(Ljósm.:gel)