Þjóðviljinn - 24.04.1980, Side 15
Fimmtudagur 24. april 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
miðast við, skal réttur hans til
fulls verðs.... ráöast af þvi fram-
leiðslumagni, er framleitt var á
viökomandi jörð áður en hann tók
við búi,og einnig af þörf hans til
eðlilegrar afkomu samanborið
við aðra bændur miðað viö fjár-
magnskostnað við stofnun búsins
og laun fyrir vinnu við rekstur
þess i hlutfalli við verðlagsgrund-
vallarbú að mati Framleiðslu-
ráðs landbúnaðarins.”.
Mjólkin á erfiðara upp-
dráttar
Það má svo skjóta þvi hér inn,
að fyrir útflutt dilkakjöt nú fást
34,5% af skráðu verði en aðeins
2,2% fyrir mjólkurafurðir. Þetta
er verðið án útflutningsbóta. Við
framleiðum 11 milj. ltr. af mjólk
umfram það, sem selt er innan-
lands og útflutningsbætur eru
greiddar á.
— Það er þvi sjáanlega enn
meiri þörf á að takmarka
mjólkurframleiðsluna.
— Já, en hinsvegar ráða bænd-
ur þvi sjálfir á hvorri búgreininni
þeir láta skerðinguna bitna.
Kynningarfundir
— Hvernig finnst þér að bændur
taki þessum ráðstöfunum?
— Það hafa nú verið haldnir
fundir viðsvegar um land til þess
að kynna þær bændum og þeirri
kynningu verður enn haldið
áfram. Auðvitað eru bændur ekk-
ert hrifnir af þvi að það skuli
þurfa að gripa til svona aðgerða.
En almennt skilja þeir þá nauð-
syn, sem á því er. A þeim fund-
um, sem ég hef mætt, hafa bænd-
ur rætt þessi mál af skynsemi og
ábyrgðartilfinningu. Og ég dreg i
efa að aðrar stéttir hefðu tekið á
svona vandamálum af jafn mik-
illi festu og bændur gera.
— Nú hefur verið heimilt að
innheimta verðjöfnunargjald til
þess að jafna útflutningshalla,
hver er reynslan af þvi?
— Já, heimilt hefur. verið að
beita einskonar flötu verðjöfn-
unargjaldi. En á þvi er sá ann-
marki, að það kemur jafnt niður á
öllum,stórum búum sem smáum,
kemur eftirá þegar bóndinn hefur
lagt fram allan kostnað og vinnu
við framleiðsluna. En með þvi að
beita kvótakerfinu þá veit bónd-
inn fyrirfram að hverju hann
gengur og getur hagrætt fram-
leiðslunni i samræmi við það. Nú,
þegar búið er að gera þessa út-
reikninga, verða þeir sendir
bændum og þeim gefinn kostur á
að gera við þá sinar athugasemd-
ir.
Og þá erum við komnir að þvi,
hvernig bændur geta brugðist við
nú þegar. Kindakjötsframleiðsl-
an I haust er auðvitað að verulegu
leyti þegar ráðin og litlu hægt að
breyta þar en mjólkurframleið-
endur hafa enn rúma 8 mánuði til
þess að hagræða sinni fram-
leiðslu. Við höfum hvatt bændur
til þess að draga sem mest úr
mjólkurframleiðslunni yfir
sumarmánuðina, um hana munar
mest, gefa kúm t.d. ekki fóður-
bæti að sumrinu. Siðan þarf svo
að leitast við að breyta burðar-
tima kúnna.Bændur hafa það að
verulegu leyti i sinum höndum
hvernig þessi skerðing kemur út.
Og ef dregur úr framleiðslunni
minnkar skerðingin. Það ætti
ekki að þurfa að taka nema 2-3 ár
að ná framleiöslunni nægjanlega
mikið niður.
Samt eru þetta auðvitað tilfinn-
anlegar aðgerðir og min skoðun
er sú, að rikisvaldið verði að
koma þarna til aðstoðar umfram
það, sem verið hefur, a.m.k. svo,
að létta megi skeröingunni af
fyrstu 300 ærgildunum.
Skerðingarmörkin endur-
skoðuð
— Hversu lengi gilda þau
skerðingarmörk, sem nú hafa
verið ákveðin?
— Þau mörk, sem ákveðin voru
ihaust, gilda aöeins fyrir þetta ár
og verða endurskoðuð þegar
komið hefur i ljós hvernig þau
verka. I haust verða svo ákveðin
skerðingarmörk fyrir næsta ár.
Bændur mega alls ekki lita á
þetta sem einhverja spennitreyju
sem búið sé að færa þá i um aldur
og ævi heldur sem óhjákvæmileg-
ar aðgerðir um skamman tima.
Og það er alveg i höndum bænda-
samtakanna sjálfra að ákveða
hvernig og hvort þessar heimildir
verða notaðar.
Sumardagurinn jyrsti í Reykjavík:
Tívolí, skrúðgöngur og
skemmti-
dagskrá
Hátfðahöldin sumardaginn
fyrsta verða með lfku móti og i
fyrra I Reykjavik og undir umsjá
Skátasambands Reykjavikur.
Þau hefjast með fjölskylduguös-
þjónustu kl. 11 fh. I Dómkirkj-
unni, en slðdegis verða skrúð-
göngur, tivoli og skemmtidag-
skrá f miðbænum.
Safnast verður saman á tveim
stöðum f borginni og frá þeim
gengiö I skrúðgöngu niður i Miö-
bæ. Frd Hlemmtorgi veröur lagt
af stað kl. 13.30 og frá Melaskóla
verður lagt af stað kl. 13.20. Fyrir
göngum munu fara fánaborgir
skáta og lúörasveitir, (Lúðra-
sveitin Svanur og Lúðrasveit
verkaiyösins).
Skemmtunin i Miðænum veröur
tvfþætt:
Tívollskemmtun skáta verður I
Austurstræti, Pósthússtræti og á
Hótel Islands planinu. Hún hefst
strax og skrúðgöngurnar koma I
Miöbæinn. Er hægt að velja á
milli um 55 atriða s.s. rúlettu,
naglaíreksturs, veöreiða, dósa-
bakka o.fl. Aögangseyrir á atriöi
þessi er svokölluð sumarkróna,
sem seld verður á staðnúm og
„kostar allt á bilinu 1-3 sumar-
krónur” I atriði, (1 sumarkróna
jafngildir 100 kr.), — eftir þvl hve
veigamikil þau eru.
Skemmtidagskrá fer fram á
sviði á Lækjartorgi. Dagskráin á
sviðinu hefst kl. 14.30. Kynnir
verður Þorgeir Astvaldsson. Á
skemmtuninni koma fram söng-
hópar og kórar s.s. „Lltið söng-
dúó” og Skólakór Melaskóla,
trúðar og önnur sllk fyrirbæri,
leikþáttur o.fl. Ennfremur verður
sýnt það nýjasta I barnatiskunni
og skólahljómsveitir Laugarnes-
skóla og Arbæjar- og Breiðholts
munu leika nokkur lög.
Guösþjónustur fara og fram I
Langholtskirkju og Neskirkju og
útvarpað verður skátamessu frá
Akureyri kl. 11.00.
Skátaforingjamir sem skýrðu
frá fyrirhugaðri dagskrá á blaða-
?f %
1 framkvæmdastjórn hátiðahaldanna eru þau Erla Elfn Hansdóttir og
Gunnar Atlason. Mynd: —eik
mannafundi sögðust aö sjálfsögöu
vera búnir að panta gott veður, en
vegna reynslu eru allir hvattir til
KÓPAVOGUR:
að gá til veðurs áður en lagt er af
staö oghaga klæðnaöi eftir veöri.
— mhg
Hátíðahöld
framá kvöld
Basar og kaffi-
sala í Torjimm
I dag standa nemendur Myndlista- og handlðaskóla íslands fyrii
kaffisölu I Bernhöftstorfu kl. 10-18. A morgun hefst basar I Torfunni,
sem MHÍ stendur einnig fyrir. Basarinn veröur opinn frá 10 til 18 föstu-
dag, laugardag og sunnudag, og verður þar margt eigulegra muna á
boðstólum.
Hátiðahöld sumardagsins
fyrsta I Kópavogi verða með
svipuða sniði og verið hefur
undanfarin ár, en það er Ung-
mennafélagið Breiðablik sem
hefur af þeim veg og vanda.
Dagskráin hefst kl. 10 árdegis
meö vlöavangshlaupi ÍK við
Fagrahvamm (v/Gagnheiöi), kl.
10,30 er skátaganga frá Víghóla-
skóla til kirkju og kl. 11 skáta-
messa I Kópavogskirkju.
Eftir hádegi, kl. 13,30 veröur
farin skrúðganga frá Digranes-
skóla að Kópavogsskóla og fer
Skólahljómsveit Kópavogs fyrir
göngunni, stjórnandi Björn Guö-
jónsson. Dagskrá viö Kópavogs-
skóla hefst kl. 14. Þá verður
hlutavelta á vegum Lionsklúbbs I
skólanum kl. 15ogkl. 16,30 keppni
I knattspyrnu á Vallargerðisvelli
milli UBK og 1K I 6. og 5. flokki.
Um kvöldið kl. 19,30 er diskó-
tek I Hamraborg 1 fyrir 10-12' ára
og kl. 20,30 sýnir Leikfélag Kópa-
vogs Þorlák þreytta I Félags-
heimilinu.
FRIM ’80
Sýning og þing frímerkja-
safnara haldid á Húsavík
Dagana 25-28 aprll 1980 verður
haldin frlmerkjasýning i Safna-
húsinu á Húsavlk, sem hlotið
hefur nafnið FRIMÞING 80. Um
Bóka-
uppboðá
Akureyri
Margt fágætra bóka verð-
ur boöið upp á fimmta upp-
boði Jóhannesar óla
Sæmundssonar sem haldið
veröur I Hótel Varðborg á
Akureyri á laugardag nk., en
alls verða á uppboöinu 140
númer.
Uppboöiö hefst kl. 15,30, en
bækurnar eru um þessar
mundir til sýnis I Forn-
sölunni Fögruhlið og seljast 1
þvi ástandi sem þær eru I viö
hamarshögg.
18 aðilar munu sýna þar I 56
römmum og er um margvisleg
efni að ræða.
Sýningin skiptist I samkeppnis-
deild og kynningardeild auk heiö-
ursdeildar, en þar mun Póst-
stjórnin sýna efni. í samkeppnis-
deild eru skráðir 25 rammar, en
29 I kynningardeild, af efni má
nefna eftirfarandi: tslensk bréf-
spjöld 1879-1941, íslensk fyrsta-
dags bréf, Stimplar úr Þingeyjar-
sýslum, Danskir auglýsingar-
stimplar frá upphafi, Islensk frl-
merki á bréfum og póstkortum,
Blóm, Tónlistarfrimerki, Rauöi-
krossinn i Finnlandi, Jólamerki,
Jólafrlmerki, Listaverk og m. fl.
Sýningin veröur opnuö föstu-
daginn 25. aprll kl. 15 og verður
opin til kl. 22, á laugardag og
sunnudag verður opið kl. 13,30-22
og á mánudag kl. 14-17.
Ýmislegt verður gert til fróð-
leiks og skemmtunar á sýning-
unni.. Jón Aðalsteinn Jónsson
flytur erindi og sýnir skugga-
myndir um Hans Hals safnið á
laugardaginn kl. 20,30, á sunnu-
daginn kl. 20,30 er fyrirhugað aö
sýna kvikmynd og kl. 15 á sunnu-
daginn er ráðgert frimerkjaupp-
boð.
Pósthús veröur opið alla dag-
ana og þar verður notaður sér-
stakur dagsstimpill. Sérstakt
sýningarumslag kemur út fyrir
sýninguna og veröur til sölu
ásamt eldri umslögum, enn-
fremur kemur út minningarörk
og sýningarskrá. Fleira er I at-
hugun. Landsþing LIF veröur
haldið I tengslum viö sýninguna
og verður það haldiö á laugar-
daginn kl. 9 i Safnahúsinu.
Kaffi hjá
fóstrunum
Fóstrufélag Islands hefur kaffi-
sölu I dag, sumardaginn fyrsta, I
Vlkingasal Hótel Loftleiða kl. 2,30
til 5 siðd. Boðiö er uppá gómsætar
kökur og gott viðmót með kaffinu.
Sumri
fagnað í
Hafnar-
firði
Skrúðganga hefst frá
Skátaheimilinu I Hafnarfirði
kl. 10 I fyrramálið. Gengið
verður niður Reykjavíkur-
veg og á gatnamótum
Reykjavlkurvegar og
Fjarðargötu kemur Lúðra-
sveit Hafnarfjarðar inn I
gönguna.
Þá verður gengið sem leiö
liggur út Fjarðargötu, suður
Strandgötu, vestur Suður-
götu aö Hafnarfjarðarkirkju.
Þar verður skátamessa kl.
11, sr. Siguröur H. Guð-
mundsson messar. Avarp
flytur Rúnar Brynjólfsson,
yfirkennari.
Torsten Föllinger
í Norræna húsinu
Ljóð Brechts
og Tucholskys
Sænski söngvarinn Torsten
Föllinger, sem þekktur er
fyrir túlkanir sinar á ljóöum
Brechts og þýska aldamóta
ljóðskáldsins Kurt Tuc-
holkkys syngur Ijóö þeirra og
sænskra skálda i Norræna
húsinu á föstudagskvöldiö
nk. ki. 20,30
Torsten Föllinger er
fæddur 1922 1 östersund I
Sviþjóð. Hann lauk .námi
frá Leiklistarskólanum I
Stokkhólmi og óperuskóla I
Vín. Föllinger var kennari
við Leiklistarskólann I
Stokkhólmi I 10 ár og kennir
ár hvert við leikhús og skóla 1
Sviþjóð og erlendis, en
leikarar og óperusöngvarar
um öll Norðurlönd hafa
keppst við að fá hann sem
kennara sinn.
Undanfarnar vikur hefur
Föllinger kennt söng við
Leiklistarskóla Islands, en
(Nordiska Teater-
kommitten) Norræna Leik-
listarnefndin veitti skólanum
styrk til að fá hann hingaö.