Þjóðviljinn - 09.05.1980, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 09.05.1980, Blaðsíða 16
E VOÐVIUINN Föstudagur 9. mai 1980 Aöalslmi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudaga til föstudaga. l'tan þess tima er hægt aö ná f blaöamenn og aöra starfsmenn blaösins f þessUm slmum : Hltstjórn 81382. 81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmvndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 og 17-19 er hægt aö ná I afgreiöslu blaösins i sfma 81663. Blaöaprent hefur sfma 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öil kvöid. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663 Könnun á tómstundaiðju reykviskra barna og unglinga Margir vinna með skólanum |M I ■■ I MH ■ MMl ■ Hi ■ MS ■ Vorhrein- gerning í Breiðholti A morgun, laugardaginn 10. mal, efna félagasamtök I Breiöholti III til hreinsunar- dags i hverfinu. Siikur hreinsunardagur var einnig haldinn I fyrra og tókst þá mjög vel. Er nti vonast tii aö ibúar i Fella- og Hólahverfi, börn sem fuiiorönir, bregöist vel viö og komi sem flestir út til aö hreinsa og fegra hverf- iö sitt á morgun. Gatnamálastjóri mun .11 leggja tíl plastpoka undir rusl til aö auövelda fólki aö losna viö rusl af lóöum sínum og opnum svæöum, ásamt þvi aö sjá um brottflutning á þvl er safnast saman. Pokar veröa afhentir i Fellahelli frá kl. 10 l fyrra- máliö og þar veröa jafn- framt veittar allar nánari upplýsingar. —eös Höfóabakkabrúin: Visað til Borgar- skipulags Umræöur um hina um- deildu Höföabakkabrú tóku drjúgan tfma á fundí Bygg- ingarnefndar Reykjavfkur i gær. Var aö lokum samþykkt meö 4 atkvæöum meirihluta- flokkanna gegn 3 atkvæöum Sjáifstæöisflokksmanna aö vfsa máiinu tii Borgarskipu- lags Reykjavfkur tii nánari athugunar. Fulltrúar Sjálfstæöis- flokksins i nefndinni vildu samþykkja brúna og hefja framkvæmdir viö hana. Málinu hefur einnig veriö vísaö til Umferöarnefndar borgarinnar, en hún hefur ekki skilaö áliti. — eös Sýning á teikningum á Eiðsgranda- svœði Samkeppni um teikningar aö raöhúsum og einbýlishús- um á Eiösgrandasvæöi I Reykjavik er nú lokiö og verður i dag opnuö aö Kjar- valsstöðum sýning á verö- launateikningunum og öör- um teikningum sem bárust i þessari samkeppni. Þrenn verölaun voru veitt og hlutu eftirfarandi hópar verölaun: Guömundur Kr. Guö- mundsson, ólafur Sigurös- son og Dagný Helgadóttir. Ingimundur Sveinsson, Egill Guömundsson, Jón B. Stefánsson og Sæbjörn Kristjánsson Helgi Hjálmarsson, Vil- hjálmur Hjálmarsson, Dennis Jóhannesson, Björn Helgason , (ráögj. Vifill Odd- son og Reynir Vilhjálms- son). Undanfarin ár hefur starfað samstarfsnefnd á vegum Æskulýðsráðs Reykjavíkur og Fræðslu- ráðs Reykjavíkur, þar sem rætt hef ur verið um æsku- lýðs-og skólamál. Sl. haust ákvað nefnd þessi að beita sér fyrir því að gerð yrði könnun í skólum borgar- innar, þar sem leitast yrði við að f á svör unglinganna við hinum ýmsu spurning- um um æskulýðs-, tóm- stunda- og skólamál. Leitaö var til félagsvisinda- deildar Háskóla lslands til þess aö undirbúa og skipuleggja könn- unina. Þorbjörn Broddason, Þór- ólfur Þorlindsson og Rúnar Karlsson unnu aö þvl ásamt full- trúum nefndarinnar. Rúnar Karlsson haföi einnig alla tölvu- vinnu meö höndum. Könnunin fór fram meðal nem- enda I 5.-9. bekk grunnskólans 1 nær öllum skólum borgarinnar hinn 5. febrúar sl. Samtals töldust vera 6.636 nemendur I þessum bekkjum en I könnuninni náöist til 6.050 einstaklinga eö 91.2%. Aö könnuninni lokinni var dreg- iö úrtak 899 svarlista meö töl- fræöilega viðurkenndum hætti og eru niurstööur byggöar á tölvuúr- vinnslu þessa úrtaks. Meðal þess sem lesa má út úr þessari könnun má nefna: U.þ.b. helmingur unglinganna telur sig verja minna en einni klukkustund á dag I heimanám. Sá tlmi sem variö er til heima- náms viröist óháöur þvl hvort, eöa hve mikiö, móöir vinnur utan heimilis. Athafnasemi I tómstundastarfi viröist ekki draga úr þeim tlma sem fer til heimanámsins. Unglingar I Reykjavlk eru mjög miklir fjölmiölanotendur. Þó er áberandi hversu útvarps- notkun kemur langt á eftir notkun annarra miöla. Sem dæmí um fjölmiölanotkunina má nefna, aö 75,1% segist lesa blöö, bækur og timarit á hverjum degi. 80.1% segjast hlusta daglega á tónlist og 81% telur sig horfa á sjónvarp daglega. Hinsvgar hlusta 48.2% á útvarp daglega. 1 svörum viö spurningum um samskipti innan fjölskyldunnar kemur fram, aö þátttaka I heimil- isstörfum er fastur liður I llfi meiri hluta unglinga. Heimiliö viröist vera vettvangur mikils hluta tómstundaathafna og sam- skipta við jafnaldra. Allstór minnihluti, eöa nær fimmti hver unglingur, gengur hins vegar til fundar viö kunningja slna á öör- um stööum daglega. 1 svörum viö spurningum um Iþróttaiökun er staöfest hin geysi- lega útbreiðsla sem sklöa- iökun hefur náö aö undanförnu. Meira en annar hver unglingur viröist fara nokkuö reglulega á skíöi og f jölmennur minnihluti fer oft I mánuði. Fjóröi hver ungling- ur telur sig stunda iþróttir tvisvar til þrisvar sinnum I viku. Viðskiptamenn leiktækjasala eru ekki fjölmennur hópur þegar litiö er á heildina. Hins vegar viröist fámennur kjarni sækja þá stift. Þessi könnun bendir til þess aö nálægt þvl 200 unglingar I Reykjavlk eigi aöalathvarf sitt á þessum stööum. Aö lokum má nefna aö 33,5% unglinga segjast vinna utan heimilis, með skólanum, en 32.0% segjast vinna á heimili. Flestir, eöa 36,5%, telja sig vinna 1—5 klst. á viku. 8.5% stúlkna segist hafa meira en 20.000 kr. I laun á viku og 14.6% drengja. — eös Haukur Haraldsson smiöur sýnir blaöamönnum Þjóöviljans hvernig skemmdarvargarnir hafa sparkaö efstu flisunum burt og brotiö þannig 40 stykki. Á innfelldu myndinni sjást einar útidyranna sem margoft hafa veriö brotnar upp og öryggisgleriö I þeim mölbrotiö. Mynd —eik. Sundlaugin sem Breiðholtsbúar bíða eftir: Gler og flísar brotið fyrir miljónir króna Ctiit er fyrir aö ekki takist aö ljúka viö byggingu útisundiaug- arinnar viö Fjölbrautaskólann i Breiöholti I haust eins og til stóö, vegna tlöra skemmdarverka unglinga á byggingarsvæðinu. Nú siöast voru brotnar 40 stórar fllsar sem búiö var aö steypa I sundlaugina, auk þess sem mikiö hefur veriö um rúöubrot, og úti- hurðir brotnar upp. Aö sögn smiöa sem starfa viö sundlaugabygginguna hefur á- standiö veriö meö versta móti I vetur. Þaö hafi þó tekið út yfir allt, þegar fllsarnar voru brotnar eöa hreinlega sparkaö af sund- laugabörmunum. Ljóst er aö tjón vegna skemmdarverka I byggingunni nemur oröiö mörgum miljónum kr. auk þess sem verkiö mun aö öllum likindum dragast fram Unglingasamtök hverfisins berjast gegn skemmdan vörgum fyrir betra Breiðholti eftir hausti, en mikil vinna er aö lagfæra skemmdirnar eftir fllsa- brotin. A laugardaginn kemur hafa forstöðumaöur Fellahellis Sverrir Brynjólfsson og Ömar Einarsson framkvæmdastjóri Æskulýösráös Reykjavlkurborg- ar boöaö til fundar viö sig nærri 50 húsveröi I Breiöholti III, þar sem rætt veröur um slæma umgengni og skemmdarverk I hverfinu, og hvaöa aðgerðum megi beita gegn sllku. Sverrir sagöi aö þessi mál heföu einnig veriö mikiö rædd meðal unglinga sem taka þátt I starfsemi Fellahellis, og I aprll s.l. var stofnfundur samtaka unglinga I hverfinu, sem ætla aö berjast fyrir betra Breiöholti. „Þaö er ekki nema brot af öll- um unglingahópnum hér sem stendur I þessari skemmdarstarf- semi, sem svo tíðrætt er um I fjöl- miölum, og unglingarnir hér llða fyrir þetta, því þau eru-mjög vör viö alls kyns andúö frá utanaö- komandi fólki, vegna þessa.” Sverrir sagöi aö númer eitt væri að breyta hugarfarinu hjá þeim sem standa fyrir þessum skemmdarverkum, og þvi ætluðu unglingasamtökin aö fylgja eftir. -Ig. Fulltrúi verkfallsmannanna: Samstaðan er alger á Gyllí Reynt var að kaupa yfirmennina útúr deilunni Eins og Þjóðviljinn skýrði frá í gær er kom- inn upp deila milli sjó- manna og útgerðar- manna skuttogarans Gyllisfrá Flateyri, vegna þess að útgerðarmenn- irnir gleymdu að afskrá ahöfnina þegar togarinn var tekinn í slipp til véla- viðgerðar. Sjómenn vilja eðlilega fara að lögum og vilja fá þessa 2 mánuði greidda sem þeim ber#en því neita útgerðarmenn. I gær voru samninga- fundir í Reykjavík í málinu og að sögn full- trúa sjómanna á Gylli kom það útúr þeim fundi að útgerðarmenn féllust á að greiða yfirmönnum fyrir þessa 2 mánuði, en öðrum ekki. Semsagt, reynt var að sundra mannskapnum með því að kaupa yfirmennina útúr. — Þaö kemur ekki til greina, enda höfnuöu yfirmenn þessu samstundis.. samstaöa okkar er alger, sagöi fulltrúi sjómanna sem Þjóöviljinn ræddi viö I gær. Hann sagöi aö þaö kæmi ekki til greina aö ganga aö neinu öðru en aö fullar greiöslur komi tii enda ber út- geröarmönnum aö standa viö þær, fyrir þessu er fordæmi hér á landi meö togarann Bjarna Herjólfsson. 1 sjómannasamningunum á Vestfjöröum er ákvæöi sem seg- ir aö ef um stórkostlega vélar- bilun sé aö ræöa séu menn af- skráöir eftir eina viku. Um sllkt var ekki aö ræða,j>ar sem skipiö fór I venjulega vélarskoöun og eftir þvl sem meira var gert, komu fleiri smábilanir I ljós sem töföu verkiö. Auk þess ber aö tilkynna sjómönnum þegar þeir eru afskráöir; þaö var ekki gert,og raunar eru ákvæöi I lög- um sem segja aö sjómaður eigi aö vera viöstaddur þegar hann er afskráöur. Þaö er þvl ljóst aö Gyllir fer ekki á sjó fyrr en útgeröar- mennirnir standa viö geröa samninga og greiöa skráöum sjómönnum skipsins laun þeirra. — Sdór t

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.