Þjóðviljinn - 29.08.1980, Page 2
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 29. ágúst 1980
Sviösmynd úr sýningu Saufikræklinga á Týndu teskeiöinni.
Norræn leiklistarhátíð áhugamanna
Leikfélag Saudárkróks
o _
sýnir 1 Abo í Finnlandi
Sýning Leikfélags Sauöárkróks
á Týndu teskeiöinni eftir Kjartan
Ragnarsson undir stjórn Ásdisar
Skúladóttur veröur opnunarsýn-
ing Sænska leikhússins i Abo I
Finnlandi á norrænni leiklistar-
hátiö áhugamanna sem þar hefst
i dag og stendur yfir helgina.
Hátiöin er haldin aö tilstuölan
Nordisk Amat/r Teaterríd
(NAR), en Finnar tóku aö sér
framkvæmd hennar. Hátiöin,
sem er hin fyrsta af þessu tagi, er
aö hluta til kostuö af norræna
menningarmálas jóönum og
finnska menntamálaráöuneytinu,
auk þess sem borgaryfirvöld i
ABO hafa styrkt hana.
Einum leikhópi frá hverju landi
var gefinn kostur á þátttöku. Til
aö velja Islenska hópinn var kosin
dómnefnd tveggja manna, en þeir
voru Pétur Einarsson, skólastjóri
Leiklistarskóla íslands, og Stefán
Baldursson leikstjóri, og völdu
þeir sýningu Leikfélags Sauöár-
króks.
Hátiöin fer fram á tveim stöö-
um i Ábo, Stildentaleikhúsinu og
Sænska leikhúsinu. Auk sýninga
þar hefur islenska hópnum veriö
boöiö aö sýna I Esbo, sem er vina-
bær Sauöárkróks, og i Helsinki.
Núverandi formaöur NAR er
Helga Hjörvar, framkvæmda-
stjóri Bandalags Islenskra leik-
félaga, en fulltrúi Islands i stjórn
þess er Einar Njálsson.
FIM:
Lýst eftir myndum
á Haustsýninguna
Félag islenskra myndlistar-
manna hefur hafiö undirbúning
aö Haustsýningu félagsins aö
Kjarvalsstööum, sem oröin er ár-
viss þáttur I myndlistarlifi
borgarinnar. Sú nýjung veröur nú
höfö á aö bjóöa fimm myndlistar-
mönnum aö mynda nokkurskonar
kjarna sýningarinnar auk þess
sem öörum er heimilt aö senda
myndir til dómnefndar.
Sýningin veröur opnuö laugar-
daginn 27. september, en föstu-
daginn 19. sept. kl. 17-20 verður
tekiö á móti innsendum verkum
þeirra sem hyggjast taka þátt i
sýningunni. öllum sem fást viö
myndlist er heimilt aö senda 5-10
myndlistarverk, jafnt félags-
mönnum sem utanfélags-
mönnum, gegn ákveönu þátttöku-
gjaldi, kr. 10 þúsund fyrir félags-
lenn og 15 þúsund fyrir utanfélags-
menn.
Markmiöiö er aö kynna ný verk
félagsmanna auk þess aö gefa
öörum kost á aö sýna verk sin og
veröa auk sýningarskrár gefin út
i tengslum viö sýninguna kort til
sölu á sýningartima.
Norðlendingar þinga
Stóriðjan líka
tíl umræðu þar
Umræöa um stóriöju og orku-
mál setur væntanlega sinn svip á
Fjóröungsþing Norölendinga ekki
siöur en þing Austfiröinga um siö-
ustu helgi, en Norölendingar
þinga á Akureyri á sunnudaginn
kemur. Auk orkumála og iönþró-
unar eru meginmál skipan fram-
haldsmenntunar þar nyöra og
verkaskipting rikis og sveitar-
félaga.
Ekki færri en þrir ráöherrar
eru meöal framsögumanna,
Hjörleifur Guttormsson iönaöar-
Franskur
kafbátur
til sýnis
Franskur úthafskafbátur ,,Le
Morse” veröur I Reykjavikurhöfn
dagana 29. ág.-l. sept. kl. 14-17,
tilkynnir franska sendiráöið. Aö-
gangur og leiösögn i smáhópum.
ráöherra, sem ræöir iönþróun I
viöara samhengi, Ingvar Gisla-
son menntamálaráðherra ræöir
framhaldsmenntun og Svavar
Gestsson um verkaskiptinguna.
Fjölmargir aðrir hafa fram-
sögu um dagskrármál þingsins og
tillögur sem fyrir þvi liggja og
snerta ma. vegamál, land-
búnaðarmál, sjávarútvegsmál,
byggingafulltrúa, viöskipti og
þjónustu, þjónustumiöstöövar og
skipulag, starfsemi hljóövarps og
sjónvarps á Noröurlandi, lista-
samskipti, virkjanir, orkufrekan
iönaö, umdæmaskipulag, tekju-
stofnamál og fleira.
Þingiö veröur haldiö aö Mööru-
völlum, raungreinahúsi Mennta-
skólans á Akureyri og sett kl. 2
eh. af formanni Fjóröungssam-
bandsins, Valdimar Bragasyni
bæjarstjóra á Dalvik. Fram-
kvæmdastjóri sambandsins,
Askell Einarsson flytur starfs-
skýrslu og siöan veröa tillögur
kynntar og ræddar. A mánudag
veröur umræöufundur um
sveitarstjórnarmál og siöan
nefndarstörf, en þingslit veröa
siödegis á þriöjudag 2. sept-
ember.
— vh
Vflja færa eftír-
litið í verkstæðin
Aöalfundur Bilgreinasam-
bandsins sl. laugardag Itrekaöi
fyrri ályktanir sambandsins um
aö stefna beri aö þvi aö viöur-
kennd bifreiöaverkstæði fái
heimild til aö annast lögboöna
skoðun bifreiöa að einhverju eða
öllu leyti og skoraði á dómsmála-
ráöherra aö beita sér fyrir slikri
breytingu, meö tilvisun til álits
starfshóps á vegum ráöuneytisins
I okt. 1979. ,
Taldi aöalfundurinn, aö nytt
fyrirkomulag þar sem hluti öku-
tækja yröi skoðaöur á viður-
kenndu verkstæði, jafnframt þvi
sem starfsaöstaða Bifreiðaeftir-
lits rikisins yröi stórlega bætt,
mundi stuðla að virkara og raun-
verulegra eftirliti með ástandi
ökutækja og auknu öryggi.
Mestur yrði væntanlega hagn-
aður bileigenda af sliku fyrir-
komulagi með þvi aö eiga kost á
vandaðri skoðun bifreiöa sinna
um leið og þeir láta fara fram
venjulegt viðhald og losna þannig
viö hiö hvimleiöa, timafreka og
kostnaöarsama umstang, sem
búa hefur þurft viö til þessa,segir
i ályktun fundarins. Minnt var á,
aö I dag fer ljósaskoðun fram á
verkstæðum og er það verulegur
hluti skoðunarinnar.
í minningu
Björgvins Sæmundssonar, bæjarstjóra
Björgvin Sæmundsson, bæjar-
stjóri i Kópavogi, lést 20. ágúst
siðast liðinn aöeins fimmtugur að
aldri og verður útför hans gerö
frá Kópavogskirkju I dag.
Enda þótt Björgvin hafi fyrir
nokkrum árum verið timabundið
frá vinnu vegna veikinda og kennt
lasleika undanfarnar vikur, kom
fráfall hans okkur samstarfs-
mönnum hans mjög á óvart.
Björgvin Sæmundsson fæddist
á Akureyri þann 4. mars 1930.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri áriö
1950 og prófi I byggingaverk-
frasði frá Tækniháskólanum I
Kaupmannahöfn (DTH) veturinn
1957. Eftir að hafa starfað eitt ár
á verkfræðistofu i Reykjavik
gerðist hann bæjarverkfræöingur
á Akranesi áriö 1958 og gegndi þvi
starfi i tvö ár. Arin 1960 til 1962
rak hann eigin verkfræðistofu á
Akranesi en tók þá viö embætti
bæjarstjóra þar og gegndi þvi i
tvö kjörtimabil, 1962 til 1970.
I ágúst 1970 varð Björgvin siðan
bæjarstjóri i Kópavogi og gegndi
þvi starfi til dauðadags.
Björgvin var á verkfræðingsár-
um sinum afkastamikill og
traustur verkfræðingur og gerði
þá uppdrætti og áætlanir um
fjölda mannvirkja i húsbygging-
um, gatna- og holræsagerð, hafn-
argerð ofl.
Aöalstarfssvið Björgvins varö
hins vegar málefni sveitar-
stjórna. Hann var bæjarstjóri i
samfellt 18 ár og átti á því tima-
bili sæti i fjölda nefnda og stjórna
fyrir sveitarfélag sitt og samtök
sveitarfélaga.
Sem bæjarstjóri lét Björgvin
sér mjög annt um að hagur
bæjarins sæti ávallt i fyrirrúmi og
brást hart við ef honum þótti gerð
tilraun til aö ganga á bæinn, hver
sem i hlut átti.
Björgvin var mikill starfsmaö-
ur og hvert það mál, er hann tók
aö sér vann hann vel og rækilega.
Hann haföi nokkuö fastmótaöar
skoöanir á málum yfirleitt og
lagði mál fyrir á ljósan og ein-
faldanhátt. Hannflutti mál sitt af
fullri einurð og fylgdi málum vel
eftir, oft með Ivafi af glettni, og
var þvi erfiður andstæðingur I
málflutningi en ákjósanlegur
samherji.
1 félagsskap var Björgvin hrók-
ur alls fagnaöar. Hann haföi
næmt auga fyrir hinum spaugi-
legu þáttum I tilverunni, kunni
firn af skemmtilegum sögum, er
allar báru einkenni græskulauss
gamans, og var afbragðs sögu-
maður sjálfur.
Hann var ágætur félagi.
Björgvin kvæntist 20. april 1957
Asbjörgu Guðgeirsdóttur og
höföu þau búiö sér mjög fallegt
heimili að Skjdlbraut 20. Börn
þeirra eru HUdisif, tvitug og
Kjartan 17 ára.
Ég votta Asbjörgu og börnum
þeirra einlæga samúð mina og
þakka samfylgdina þann spöl,
sem leiðir okkar Björgvins lágu
saman. Björn ólafsson.
Bókun bæjarráds Kópavogs yegna fráfalls
Björgvins Sæmundssonar, bæjarstjóra
Björgvin Sæmundsson,
bæjarstjóri varð bráðkvaddur
þann 20. þ. m. fimmtugur að
aldri.
Björgvin hóf störf sem
bæjarstjóri i Kópavogi þann
10. ágúst 1970 og haföi þvi
gegnt þvi starfl i rösk 10 ár.
Viö fráfall Björgvins
Sæmundssonar á Kópavogs-
kaupstaður á bak að sjá ötul-
um starfsmanni og málsvara
og miklum málafylgjumanni.
Starfsmenn bæjarins sakna
vinsæls stjórnanda og kunn-
ingjar og vinir ágæts félaga.
Litlu samfélagi sem okkar
er mikill skaði aö fráfalli sliks
manns á miöjum starfsaldri.
Harmar bæjarráð hið óvænta
andlát Björgvins Sæmunds-
sonar og færir ekkju hans og
börnum einlægar samúöar-
kveðjur.
1 viröingarskini óskar
bæjarráð eftir þvi að útför
Björgvins fari fram á kostnað
bæjarsjóös.