Þjóðviljinn - 30.08.1980, Blaðsíða 16
Helgin 30.-31. ágúst 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 17
16 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 30.-31. ágúst 1980
Hitaveituherstöð heimtar meira olíugeymarými
Herinn gæti minnkad vid sig geymarýmið
ti ekh
Séö inn
aö
Helguvik-
inni upp
aö
byggöinni
og á
Vallar-
svæöiö.
Vikin fyrir miöju á þessari loftmynd er Helguvik og upp af henni á oliustööin aö risa samkvæmt áform-
um POL-nefndarinnar. Eins og sýnt er á skipuiagskortinu á opnunni hér á undan átti byggöin aö teygja
sig út með heiöarbrúninni og siðan niöur aö Helguvlkinni, þar sem einkum átti aö rlsa iönaöarhúsnæöi.
A þessari mynd sjást oliutankarnir sem eru utan Vallargiröingar á svæöinu milli Njarövlkur og Kefla-
vlkur. Eins og fram kemur i greininni telja ýmsir aö hernum ætti aö vera I ldfa lagiö aö gefa eftir þetta
svæöi undir byggingarlóöir.
Byggöin I Keflavik cr farin aö teygja sig allnærri fyrirhuguöu oliutankasvæöi i Helguvlk eins og þessi
mynd sýnir greinilega en hún er tekin rétt ofan viö sjálfa vikina. A myndinni má greina ibúöarhúsin i
Keflavik og flugvallarbyggingar.
„Ósköp auðvelt fyrir herinn að leggja niður þá geyma sem eru utan Vallargirðingar og hindra byggðaþróun í Njarðvík”
„Þetta kemur manni ákaflega
kostulega fyrir sjónir, þessi full-
yröing að Bandarlkjaher þurfi að
þrefalda oliugeymarými sitt.
Þetta er sagt um leiö og verið er
aö leggja hitaveitu inn á Vallar-
svæðið. Sömuleiðis er hann dáltið
kúnstugur áhugi Keflvlkinga á
þvi aö skipta við herinn á tung-
unni niöur að Njarðvíkunum, þar
sem oliugeymar eru nú, og
Helguvikursvæöinu, sem er
skipulagt byggingarsvæði. Málið
mætti leysa með þvi að herinn
kippti upp þeim tönkum sem
standa byggöaþróun fyrir þrifum
og leysti sin olíubirgöamái inni á
Vallarsvæðinu sjálfu með full-
nægjandi hætti bæöi hvað varöar
birgöarúm og mengunarvarnir.”
Þetta eru I stuttu má'.i viðhorf
eins af forvtgismönnum oliu-
verslunar I landinu til svokallaðs
Helguvikurmáls. Hér á eftir
veröur það rakið nokkuö og m.a.
getið slikra vangaveltna um að
menn hafi farið yfir lækinn til
þess að sækja vatniö er leitað
hefur veriö lausna I sambandi við
áratuga oliuforöa bandarísku
NATÓ stöövarinnar I Miðnes-
heiði.
Stöðug mengunarhœtta
Oliutankar herstöðvarinnar
voru á striðsárunum reistir i brún
Miðnesheiöar og hafa verið þar
siðan, sumir niðurgrafnir en aðrir
standa upp úr. Nú eru 19 tankar
við byggðina utan Vallargirð-
ingar og 24 inni á Vallarsvæöinu
flestir komnir til ára sinna, en
aðrir þó nýlegri. Miklar umræður
hafa orðið um mengunarhættu af
þessum tönkum, svo og leiðslu-
kerfinu. Þá hefur meöferð hersins
á oliu I flugskýlum og á flugbraut-
um ekki siður sætt gagnrýni.
Ibúar á Suöurnesjum, og þá
sérstaklega i Njarðvlk og Kefla-
vik, hafa óttast grunnvatns-
mengun og eyðileggingu vatns-
bóla sinna, enda eru vatnsból
þeirra nærri tankasvæðinu.
Það hefur og verið áhyggjuefni
bæjarstjórnarmanna og ibúa
Njarövlkur og Keflavlkur að
tankasvæöið i tungunni niöur að
Njarðvikum og leiðslukerfið
niður að höfn slltur sundur byggð-
ina og stendur I vegi fyrir eöli-
legri byggöaþróun, eins og vikið
er að annarsstaðar i blaðinu.
POL-nefndin
Haustið 1979 skipar Benedikt
Gröndal þáverandi utanrikisráð-
herra sameiginlega nefnd Banda-
rlkjahers og islenskra aðila til
þess aö fara ofan I saumana á
þessu máli og að hans sögn fylgdi
nefndarskipaninni forskrift frá
honum um að önnur lausn kæmi
ekki til greina en að flytja tank-
ana af svæöinu. 1 Morgunblaðinu
fimmtudaginn 31. júll s.l. koma
viðhorf Benedikts Gröndals I ljós,
er hann ritar:
„Núverandi leiðslur frá Kefla-
vikurhöfn til tankanna eru óvið-
unandi og standa i vegi fyrir
byggð og samgöngum.
Núverandi tankar þrengja að
byggð Njarövikur og Keflavikur
svo að ekki verður viö unað á
miðsvæði, þar sem kaupstaðirnir
mætast, enda búa báöir við land-
þrengsli.
Ný staösetning ollustöðvar
flugvallarins verður að vera svo
fjarri byggö, aö mengunarhætta
verðiengin. Stöðin veröur að upp-
fylla ströngustu kröfur um nú-
tima öryggi. Löndunaraðstaða
veröur aö vera fjarri höfnum
byggöanna.”
Imai s.l. skilaöi svokölluð POL-
nefnd álití til utanrikisráöuneyt-
isins og komst samhljóða að
þeirri niðurstöðu að stækkun og
flutningur eldsneytisgeymakerfis
hersins væri æskileg en kostn-
aöarsöm. Nefndin var sammála
um aö Helguvik væri æskilegasti
staöurinn út frá öllum helstu
sjónarmiðum, það er aö segja
með tilliti til öryggis, mengunar-
varna, og tæknilegra þátta.
I nefndinni áttu sæti af Islands
hálfu, Helgi Agústsson, forstöðu-
maöur Varnarmáladeildar, Hjál-
mar Bárðarson, forstjóri Sigl-
ingamálastofnunar, Hilmar Þór-
arinsson, forseti bæjarstjórnar
Njarðvikur og Ólafur Björnsson
bæjarfulltrúi i Keflavik. Af hálfu
setuliðsins voru i nefndinni
Captain Thomas J. Keene,
commanding officer, Lieutenant
Colonel Donald A. Simpson, vara-
birgðastjóri hersins og Comman-
der Thomas A. Dames bygg-
ingastjóri herstöðvarinnar. Með-
al ráðgjafa nefndarinnar voru
Aðalsteinn Júllussor. og Gisli
Viggósson frá Vita og hafnar-
málastofnuninni, Jón Jónsson
jarðfræöingur og Magnús
Jóhannesson frá Siglingamála-
stofnun, auk ýmissa bandarískra
sérfræðinga I framkvæmdum á
vegum sjóhersins.
Sprengt i klettana
Aö þvi er Þjóöviljinn kemst
næst kemur fram i skýrslunni að
ekki sé fyrir hendi aðstaða á
Islandi til þess að taka viö nauð-
synlegu birgðahaldi hersins og
ekkert íslensku oliufélagana mun
hafa á þvi áhuga að koma upp
birgðastöövum i félagi eða i nánd
við herinn.
Herinn telur sig þurfa á aö
halda samtals 200 þúsund rúm-
metra geymslurými I nýrri oliu-
stöð. Þar er um að ræöa fyrir utan
geymslutanka, móttökuaðstöðu
annaö hvort með oliuhöfn eða
oliumóttökudufli og leiðslur og
dreifingartanka I nánd við flug-
brautir.
1 Helguvlkinni er ráögert að
koma fyrir 11 fimmtán þúsund
rúmmetratönkum og fylgihlutum
og einum fjögur þúsund rúm-
metra á eins ferkilómetra svæði.
Tankarnir verða sprengdir inn i
klettana, samkvæmt áætluninni
■og allt kerfið á að byggja i sjö
áföngum á sjö árum fyrir um 45
milljarða Islenskra króna á nú-
virði.
Veruleg eða ekki
veruleg
Þegar þessi áform voru gerð
opinber fór Þjóöviljinn á stúfana
og spuröist fyrir um hvort hér
væri um aö ræöa aukningu á
birgðarými hersins. Svörin voru
misvisandi þvl að forstöðumaður
varnarmáladeildar kvað ekki
vera um „verulega aukningu” aö
ræða en utanrikisráðherra sagöi
hana vera „verulega”. Hvorugur
var þá reiöubúinn til þess að
nefna neinar tölur I þessu sam-
bandi. Fram hefur komið hjá
utanrikisráöherra aö hann telur
nauðsynlegt aö færa tankasvæðið
vegna mengunarhættu, en hefur
ekki fallist á framkvæmdina
sjálfa, hvorki hvenær hafist skuli
handa né heldur stærðargráðuna.
Hefur hann I samtali viö Þjóðvilj-
ann sagt aö hann þyrfti aö sjá
fyrir þvi rök áður en hann heimil-
aði þreföldum birgðarýmis fyrir
oliu á vegum hersins.
Deilur um verksvið
Rétt er að geta þess hér að ef
lagt yrði i Helguvikurfram-
kvæmdir myndu Bandarikin og
Atlantshafsbandalagið bera af
þeim allan kostnað, Bandarikja-
stjórn 40% og sérstakur fram-
kvæmdasjóöur NATÓ 60%. Fram
hefurkomiö aö hafist verði handa
I fyrsta lagi 1982, bæöi vegna þess
aðfjármagnfáisttæplega fyrr, og
vegna þess að hönnun þessara
mannvirkja mun taka alllangan
tima.
Deilur eru uppi um það hvort
ákvörðun um framkvæmdir á
vegum hersins séu alfarið á verk-
efnasviði utanrikisráöuneytisins
eða mál rlkisstjórnarinnarallrar.
Ólafur Jóhannesson heldur fast
við fyrra sjónarmiðið likt og for-
veri hans I embætti Benedikt
Gröndal, en Gunnar Thoroddsen
og Alþýðubandalagsmenn leggja
áherslu á aö tugmiljarða fram-
kvæmdir snerti efnahagsstjórn á
Islandi í rikum mæli og hljóti þvl
að vera rikisstjórnarmál, eins og
önnur meiriháttar mál sem upp
koma.
Þreföldun tilfjórföldun
Þrátt fyrir leyndina yfir þvi
hversu mikil aukningin á birgða-
rýminu væri upplýsti Þjóðviljinn
hvernig málum var háttað föstu-
daginn 22. ágúst. Birtar voru hér i
blaðinu upplýsingar úr skrá
bandariska sjóhersins yfir fasta-
fjármuni I Keflavikurstöðinni.
Þar kemur fram að geymslurými
hersins fyrir eldsneyti á Suöur-
nesjum á að þrefaldast eða fjór-
faldast. Vægtsagt veröuraö telja
það „verulega aukningu” eins og
utanrikisráðherra hafði áður
viðurkennt, eða úr 60 þúsund i um
200 þúsund rúmmetra.
Hitaveita um áramót
Nú má velta þvl fyrir sér hvers-
vegna herinn telur sig þurfa að
auka birgðarými sitt. Það kemur
dálitiö spánskt fyrir sjónir um
leið og verið er að leggja hita-
veitu inn á Völlinn. Samkvæmt
upplýsingum frá Hitaveitu Suöur-
nesja verður um helmingur af
byggingum á Vellinum tengdur
hitaveitunni fyrir næstu áramót
og einnig hið svokallaða Rock-
ville-svæöi. Siðari áfanga á að
ljúka á næsta ári og verða þá all-
ar byggingar á Vellinum hitaðar
með heitu vatni i stað gasoliu.
Völlurinn mun nota um 45 mega-
wött af þeim 90 megawöttum sem
Hitaveita Suðurnesja framleiðir,
og samsvarar það 20 til 30 þúsund
tonna ársnotkun af gasoliu. Her-
inn ætti þvi aö geta sparað sér
birgðarými sem þessu nemur.
50þúsund tonn afJ-24
Samkvæmt upplýsingum sem
Þjóðviljinn hefur aflað sér frá
aðilum innan oliuverslunar er
megnið af því eldsneyti sem
herinn þarfnast i framtiöinni
fyrir utan bensin og gasoliu á
vélarogfaratæki þotueldsneyti af
gerðinni J-24. Herinn hefur þegar
geymslurými á Vellinum sjálfum
fyrir um 35 þúsund lestir af þotu-
eldsneyti, en ársnotkun mun vera
um 50 þúsund lestír á ári.
Einn af þeim sem hvað kunnug-
astur er oliumálum hersins af
islenskum aðilum heldur þvi
fram að það séu slæm skipti fyrir
Keflvikinga að skipta á Helgu-
vikursvæðinu, sem er skipulagt
byggingarsvæði fyrir ibúöir og
iðnaðarhúsnæði og tungunni nið-
ur að Njarövlk, þar sem tankar
standa nú utan Vallarins. Það
ætti að vera ósköp auðvelt að
mæta minnkandi birgðarýmis-
þörf hersins með þvi að leggja
niður tankana utan Vallarins, og
notast viö bestu tankana inni á
Vallarsvæðinu, sem ættu að geta
fullnægt núverandi þörfum
varnarstöðvarinnar. Hægt ætti að
vera aö ganga þannig frá málum
með endurnyjun og betri um-
búnaöi að mengunarhætta væri úr
sögunni.
Skammgóður vermir
Um þau rök að meö flutningi I
Helguvík væru leyst vandamál
eins og „nálægð” við byggð,
„mengunarhætta” „öryggi” og
annaö af þvi tagi sagöi umræddur
heimildarmaður aö sér sýndust
þau harla léttvæg. Þaö mætti
merkilegt heita að ábyrgðarmenn
bæjarfélagsins og Karl Steinar
Guðnason vildu ólmir losna við
oliugeymana úr byggð, en heimt-
uðu I staðinn griðarstóra oliustöö
þétt ”ið framtiðarbyggð.
Fyrirhuguð oliustöð væri svo þétt
viö Keflavik að hún myndi innan
fárra ára hamla byggöaþróun og
leiðslukerfið frá henni myndi
þegar verða hættulega nærri
þeirri íbúðabyggð sem nú er
farin að teygja sig út eftir allri
heiðarbrúninni — falleg einbýlis-
hús og raðhús — til móts við það
svæði þar sem Helguvíkin er
niðuraf. Þetta hlyti aö teljast
nokkuð skammgóöur vermir,
miöað viö þá staöreynd að i raun
gæti herinn minnkað við sig
birgöarými og gefiö Njarðvik-
ingum ettir tunguna þar sem
tankasvæöið er nú utan Vallar-
girðingar.
Einnig má benda á að enda þótt
geymslurými yröi fyrir mestan
hluta hinna 200 þúsund rúmmetra
af eldsneyti sem herinn telur sig
hafa þörf fyrir þá er gert ráð fyrir
aðtankará Vellinum veröi áfram
notáöir þangað til byggöir hafa
verið átta fjögur þúsund lesta
dreifingartankar inni á Vellinum,
þannig aö Suöurnesjabúar munu
ekki losna við hættu af mengun
grunnvatns frá oliutönkum hers-
ins þótt risastór oliustöö veröi
gerð i Helguvik.
—Einar Karl —